Tíminn - 28.12.1990, Page 18
18 Tími'nri
Föstudagur 28. desember 1990
ÍMINNING
Bima Helgadóttir
fyrrum húsfreyja Fremstagili, Laugadal
Fædd 6. júlí 1911
Dáin 21. desember 1990
Hinn 21. desember sl. andaðist að
heimili sínu, Fremstagili í Engihlíð-
arhreppi, Birna Helgadóttir, fyrrum
húsfreyja þar.
Birna var fædd 6. júlí 1911 að
Kirkjuhóli, býli er var skammt frá
Víðimýri í Skagafirði. Foreldrar
hennar voru Helgi Guðnason, er
ættaður var úr Bárðardal, og kona
hans Sigurbjörg Jónsdóttir, eyfirskr-
ar ættar. Birna var yngst fjögurra al-
systkina og átti auk þess þrjú hálf-
systkini yngri. Öll eru þessi systkini
látin nema eitt
Móður sína missti Bjarni þriggja
ára en dvaldist áfram með föður sín-
um og seinni konu hans, Maríu
Björnsdóttur, á nokkrum stöðum í
Skagafirði til 14 ára aldurs, en flutt-
ist þá til Akureyrar og dvaldist þar
við ýmis störf þar til hún kom sem
kaupakona vorið 1935 vestur í
Laugadal að Fremstagili til Hilmars
Frímannssonar er þá var bóndi á
Fremstagili.
Sem líkum má af ráða var ekki um
skólagöngu hjá Birnu að ræða utan
hins hefðbundna barnaskólanáms.
Á Akureyri dvaldist hún hjá frænd-
fólki sínu og átti þar gott atlæti og
góð ár, en að sjálfsögðu varð hún að
fara að vinna strax og hún gat sér til
framfæris, því snemma mun það
hafa orðið hennar takmark að sjá
fyrir sér sjálf, halda sérstaklega vel á
því sem aflaðist, þótt efni væru ekki
mikil.
Þetta lífsviðhorf var leiðarljós
Birnu alla tíð og nutu margir góðs af
hennar umhyggju.
Vorið 1935 gerist Birna kaupakona
hjá Hilmari Arngrími Frímannssyni
bónda á Fremstagili, sem áður segir.
Hilmar var þá búinn að búa þar
nokkur ár, harðfrískur bóndi, bráð-
myndarlegur og maður hinn gjörvi-
legasti.
Svo er að sjá að Birnu hafi líkað
vistin vel, því hún fór ekki aftur frá
Fremstagili og árið eftir giftu þau
sig, Birna og Hilmar.
Birna gerist húsmóðir og skapar
með manni sínum myndarlegt og
hlýlegt heimili og lagði allt sitt
fram, svo það gæti orðið þeim sem
hjá þeim dvöldu sem best.
Búskaparsögu þeirra hjóna á
Fremstagili í rúma fjóra áratugi
ætla ég ekki að rekja nema að litlu
leyti. Þau bættu jörð sína, byggðu
útihús, endurbyggðu og stækkuðu
íbúðarhús. Túnið var sléttað og auk-
ið og búið stækkað. Allt var þetta
gert með hagsýni og dugnaði. Hilm-
ari bónda voru og falin ýmis störf
fyrir félög og félagasamtök hér í
sýslu, sem tóku tíma hans frá bú-
störfunum. Það kom ekki að sök því
húsmóðirin Birna vakti yfir velferð
búsins og vann jafnt sem þörf krafði,
úti sem inni.
Þau Hilmar og Birna bjuggu á
Fremstagili í fulla fjóra áratugi, síð-
ust árin í samvinnu við son sinn Val-
garð og Vilborgu, eiginkonu hans.
Mann sinn missti Birna 13. júní
1980, en var svo lánsöm að geta
dvalist eftir það, allt til dauðadags, á
Fremstagili í skjóli ástríks sonar og
tengdadóttur.
Þau hjón Hilmar og Birna eignuð-
ust fimm börn sem eru, talin í ald-
ursröð: Halldóra húsmóðir, búsett í
Reykjavík, maki Ólafur Jónsson.
Guðmundur Frímann löggæslu-
maður, búsettur á Blönduósi, maki
Gerður Hallgrímsdóttir. Anna
Helga fóstra, búsett í Reykjavík. Val-
garður, bóndi og oddviti, Fremsta-
gili, maki Vilborg Pétursdóttir.
Hallur, hópferðabílstjóri, búsettur á
Blönduósi, sambýliskona Elín Jóns-
dóttir.
Birna á Fremstagili var mikilhæf
kona, hún vel vel gefm, víðlesin og
því fróð um marga hluti, ljóðelsk og
hafði mjög gaman af söng. Skapferli
hennar var einstætt. Alltaf sama
Vinningstölur laugardaginn
22. des. '90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 14.280.553
O 4. 4af5l^'^l 2 692.363
3. 4af5 267 8.946
4. 3af 5 10.573 527
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
23.625.832 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
hýra, glaðværa viðmótið, lét aldrei
erfiði líðandi stundar hamla glað-
værð og góðum hug til þeirra sem
hún umgekkst.
Ég var svo lánsamur að eiga þess
kost að kynnast Birnu og Fremstag-
ilsfólkinu vel, bæði var að ekki er
langt á milli bæjanna, Blanda reynd-
ar farartálmi hluta úr árinu, en
heimsóknir milli heimilisfólksins á
Fremstagili og Köldukinn voru fast-
ur þáttur hvern vetur eftir að ísa
lagði.
Það var gaman að koma að
Fremstagili. Glaðværð og góðvild
umvafði mann strax og inn var kom-
ið og tíminn fljótur að líða við spil
og góðar veitingar. Þarna lagði hús-
freyjan Birna ekki hvað minnstan
hlut að borði.
Margvísleg önnur samskipti hafa
verið gegnum árin milli þessara
heimila, sem eru mér minnisstæð
og ég þakka af alhug.
Við fráfall þessarar mikilhæfu
konu, er ljóst að miklu og giftu-
drjúgu dagsverki er lokið. Dagsverki
sem miðaðist fyrst og fremst við að
auðga og bæta það samfélag sem
næst henni var og sannarlega tókst
Birnu á Fremstagili það.
Ég færi systkinunum frá Fremsta-
gili og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
Eg minnist látinnar sæmdarkonu,
Birnu Helgadóttur, með virðingu og
þökk.
Kristófer Kristjánsson
Afmælis- og
minningar-
greinar
Þeim, sem óska birt-
ingar á afmælis-
og/eða minningar-
greinum í blaðinu, er
bent á, að þær þurfa
að berast a.m.k.
tveimur dögum íyrir
birtingardag. Þær
þurfa að vera vél-
ritaðar.
____Til viÓskiptamanna_
banka og sparisjóða
Lokun
2. janúar
og eindagar
vfxla.
Vegna áramótavinnu verða
afgreiðslur banka og sparisjóða
lokaðar miðvikudaginn
2. janúar1991.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
umjólogáramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, 12. desember 1990.
Samvinnunefnd banka og sparisjóóa