Tíminn - 24.01.1991, Blaðsíða 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 24. janúar 1991
i/Iiðvikudagur
Tíminn T
\mm,
^• : **■»* *-»w, «
Vegir yfir hálendið myndu stytta vemlega ökuleiðir milli landshluta, en alltaf er viss sjarmi yfir háiendisferðum, einkum ef fólk lendir í hæfilega hættulitlum vandræðum sem tekst að ráða fram ú Slíkt heita gjaman ævintýraférðir. Heyra brátt slíkar férðir sögunni til?
1 Landsvirkjun þarf að leggja vegi i í tengslum við háspennulínur. Vegagerðin vill vera með en á ekki fé:
gsgæsss
i
Hálendisvegir mynda heild
styrkir landsbyggðina
Ekki virðist líta út fyrir að í bráð geti orð-
ið af samstarfi Vegagerðar ríkisins og
Landsvirkjunar um lagningu svokallaðra
hálendisvega. Landsvirkjun þarf á allra
næstu árum að leggja veg norður yfir
Sprengisand, samfara lagningu háspennu-
línu, en vegalagning samfara línulagningu
þykir mjög til hægðarauka og er orðin við-
tekin venja við slíkar framkvæmdir. Sam-
fara lagningu háspennulínu norður yfir
Sprengisand, á allra næstu árum þarf að
leggja slíkan veg og hefur Landsvirkjun
óskað eftir samvinnu við Vegagerðina þar
um. Vegagerðin kveðst hins vegar ekki geta
ljáð þessu máls, þar sem ekki séu til nægir
peningar til að halda vegum í byggð í við-
unandi ástandi og því verði fjallvegirnir að
mæta afgangi. Þetta kom meðal annars
fram á athyglisverðri ráðstefnu um hálend-
isvegi og áhrif þeirra, sem haldin var í Mý-
vatnssveit um síðustu helgi og Ferðamála-
félag Mývatnssveitar gekkst fyrir. Hálendis-
vegir hafa verið nokkuð í umræðunni að
undanförnu, meðal annars í ljósi hug-
mynda sem Trausti Valsson skipulagsfræð-
ingur hefur sett fram, um hvernig slíkir
vegir geti stuðlað að byggðajafnvægi í land-
inu.
Góðar samgöngur styrkja
byggðir
Trausti Valsson skipulagsfræðingur hefur
verið einn helsti hugmyndasmiður um
væntanlega hálendisvegi. Hann hefur ný-
lega gefið út bók, Framtíðarsýn: ísland á
21. öld, þar sem meðal annars er fjallað um
hálendisvegi og áhrif þeirra. Þar segir að á
meðan atvinnuhættir og annað fljóti áfram
f sama farvegi sé ekki flókið að skipuleggja.
Þegar vegakerfi þarf aftur á móti að fara að
þjóna nýjum atvinnugreinum eins og ferða-
málum, þurfi að endurskoða kröfur okkar
til vegakerfis rækilega. Nú þurfi að huga að
endurskoðun þegar séu að verða ýmsar
grundvallarbreytingar á verðmætamati
heimsins, þannig að landið sjálft sé að
verða dýrmæt auðlind. Trausti fjallar um
hve íslendingar séu fastheldnir á það
byggðamynstur, sem ríkt hafi hér á landi,
og hann telur að eitt helsta markmið nú-
verandi byggðastefnu sé að koma í veg fyrir
breytingar á byggðamyndinni. Trausti segir
að snúa verði við þeirri þróun sem ríkjandi
hafi verið, að þéttbýlisbúar flýi á suðvestur-
hornið. „Og er ekki hætta á öðru en að ís-
lendingar vilji nýta sér landið ef samgöngur
um það eru góðar. Með góðu vegakerfi yrði
lfka kominn grunnur að miklum og dreifð-
um ferðaiðnaði, sem getur gert mikið til að
styrkja hinar dreifðu byggðir." Trausti segir
því hér með öðrum orðum að með hálend-
isvegum, þ.e. öflugum og góðum samgöng-
um, megi mynda eina heild sem jafnframt
styrki stöðu íandsbyggðarinnar.
Lína yfir Sprengisand
Staðsetning væntanlegrar háspennulínu
norður yfir Sprengisand hefur um nokkurt
skeið verið til athugunar hjá Landsvirkjun.
Áætlað er að línan muni liggja frá Búrfells-
virkjun, norður eftir Búðarhálsi og þaðan í
sem næst beina stefnu að Fjórðungsvatni,
sem er á miðjum Sprengisandi. Frá þeim
stað hafa, varðandi línustæði til Akureyrar,
ýmsir valkostir verið skoðaðir. Það, sem
helst kemur til greina nú, er að leggja lín-
una um Bárðardal, Hellugnúpaskarð,
Fnjóskadal og Bíldsárdal og þaðan til Akur-
eyrar. Línustæði frá Fjórðungsvatni að
tengipunkti til Fljótsdalslínu yrði í stórum
dráttum nærri núverandi Sprengisandsleið.
Tengipunktur yrði syðst í Bárðardal, þar
sem línan færi annars vegar á Akureyri og
svo hins vegar í Fljótsdalsvirkjun, þvert yfir
Ódáðahraun, sunnan Herðubreiðartagla
um Fljótsdalsheiði og að virkjuninni.
Og svo þarf að leggja vegi. Allt frá Búrfelli
og að Hreysiskvísl á Sprengisandi hefur
verið lagður varanlegur vegur, alls 123 km.
Víða á því svæði voru aðstæður til vega-
gerðar þó mjög góðar, hægt að ýta upp
burðarlagi vegarins og því varð kostnaður
við vegagerðina mjög lágur, 850 þúsund á
km. Og nú þarf að leggja alls um 300 km á
væntanlegum línustæðum. Tekið er fram í
áætlunum að eftir því sem norðar dragi séu
aðstæður til vegagerðar þó víða verri og að
sama skapi dýrari.
Og miðað við að nýtt álver taki til starfa,
þá þarf að gera þessa hálendisvegi strax í
sumar. Helgi Bjarnason segir að hér sé ver-
ið að tala um slóða, sem gætu orðið vegir í
fyllingu tímans. Hálendisvegir sem gætu
verið opnir 6 til 8 mánuði á ári. „Við hjá
Landsvirkjun viljum fyrir alla muni að þeir
fjármunir, sem við verjum til slóða- og
vegagerðar á hálendinu, nýtist öllum. En
það hefur strandað á því að Vegagerðin hef-
ur ekki haft úr svo að segja neinu fjármagni
að spila til hálendisvegagerðar," sagði
Helgi.
Lítið sett í hálendisvegi
Eymundur Runólfsson, verkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins, sem talaði á ráðstefn-
unni, sagði að erfitt væri fyrir Vegagerðina
Eftir
Sigurð
Boga
að taka þátt í lagningu hálendisvega, því
hún hefði lítið fjármagn til slíkrar vega-
gerðar. Á síðasta ári hefði verið úthlutað 23
miljónum til fjallvega og sú upphæð hefði
rétt dugað til að hefla helstu fjallvegi í sum-
arbyrjun. Eymundur segir að það sé stefna
Vegagerðarinnar og stjórnvalda að á meðan
margir vegir í byggð séu ekki í viðunandi
ástandi, þá verði fjallvegir einfaldlega að
mæta afgangi. „Málið er það að á þessu ári
lítur út fyrir að það komi yfir 400 miljónir
frá Landsvirkjun á þessu ári til línuvega. En
mig langar til að þeir vegir muni geta nýst
almenningi síðar meir og þar með að Vega-
gerðin geti komið með eitthvert mótfram-
lag til þess að fá einhverju að ráða. En það
má segja að það strandi á peningaleysi hjá
okkur, en það vantar ekki viljann," sagði
Eymundur.
Víða eru veðraskil
Ómar Ragnarsson fréttamaður talaði á
ráðstefnunni, meðal annars um snjóalög á
hálendinu, eitt býðingarmesta atriðið í
þessu sambandi. Ómar sagði að á stærstum
hluta þeirra svæða, sem væntanlegir há-
lendisvegir muni liggja um, sé snjólétt,
jafnvel snjóléttara en af er látið. Hann segir
ástæðu þess að núverandi hálendisvegir séu
svo oft ófærir á vetrum vera þá að þeir séu
niðurgrafnir. Þannig megi á vetrum sjá úr
lofti að hinir niðurgröfnu vegir séu eins og
hvít lína um flekkótt land. Einnig sagði
Ómar að víða á hálendinu væru glögg
veðraskil og „með tilkomu hálendisvega
verður hægt að opna möguleika til þess að
fara á skömmum tíma með ferðamenn af
svæði í slæmu ferðaveðri yfir á svæði með
björtu veðri".
Dregur úr utanvegaakstri
Þóroddur Þóroddsson, framkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs, sagði á ráðstefnunni
að stefna í nýtingu hálendisins væri ekki til,
jafnvel þó að hálendið væri mikið nýtt til
ferðalaga, orkuvinnslu og beitar. „Upp-
byggður vegur, sem mannvirki, um Spreng-
isand í Bárðardal er ekki vandamál frá nátt-
úruverndarsjónarmiði," sagði Þóroddur,
„en vegur um Bleiksmýrardal er það hins
vegar. Uppbyggður vegur úr Bárðardal til
Mývatns getur legið á nokkrum stöðum
sem allir þarfnast ítarlegrar skoðunar með
tilliti til náttúruverndar.“ Þóroddur sagði
að þögnin væri eitt af því sem gæfi hálend-
inu gildi og þannig gæti hraðbraut rýrt
gildi þess. Aftur á móti hefði það sýnt sig að
góðir vegir og merkingar drægju úr utan-
vegaakstri og þar með úr álagi á umhverfi
hans.
Hugmyndin býsna snjöll
Ásgeir Leifsson, iðnráðgjafi á Húsavík,
segir hugmyndina um að samnýta línuvegi
Landsvirkjunar yfir hálendið með þjóðvega-
kerfi vera býsna snjalla. Hann sagði þó að
gagnvart Húsavík yrði Ifklega ekki um
mikla breytingu að ræða, þar sem þetta
myndi stytta leiðina til Reykjavíkur óveru-
lega og því yrði lítill sparnaður í því að fara
hana. Hann sagði að þó gæti þetta skipt ein-
staka aðila máli, s.s. verktaka sem gætu
starfað á mun stærra svæði en fyrr. Einnig
gæti þetta skapað aukin tengsl milli Suður-
og Norðurlands og gæti það skapað mögu-
leika á vöruflutningamiðstöð á Selfossi.
„Áhrifin yrðu mest í kringum ferðamanna-
iðnað. Það myndu skapast nýjar leiðir sem
gætu verið verulega áhugaverðar, ekki síst í
ljósi þess að erlendir ferðamenn gætu þá
komist ýmist beint á Egilsstaða- eða Akur-
eyrarflugvöll," sagði Ásgeir Leifsson.
Veitt verði fjárveiting
í ráðstefnulok var samþykkt samhljóða
svohljóðandi ályktun: „Fundur ráðstefnu
um hálendisvegi og áhrif þeirra, haldinn í
Hótel Reynihlíð við Mývatn 20. janúar
1991, beinir þeim eindregnu tilmælum til
ríkisstjórnarinnar og Alþingis að sem allra
fyrst verði gengið formlega frá samstarfi
Vegagerðar ríkisins og Landsvirkjunar
vegna línuvega. Veitt verði sérstök fjárveit-
ing til þessa verkefnis, án skerðingar á al-
mennu vegafé. Lögð verði áhersla á að
vegastæði verði valin þannig að þessir vegir
nýtist almennri umferð í framtíðinni, verði
á snjóléttum svæðum og tekið verði tillit til
náttúruverndarsjónarmiða."
sbs.
..._____