Fréttablaðið - 27.02.2009, Side 7
6 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Íslandsbanki þarf að
afskrifa vel á annan milljarð króna
vegna sölu á Árvakri, útgáfufélagi
Morgunblaðsins, segir Birna Ein-
arsdóttir bankastjóri. Hún segir að
vegna óska tilboðsgjafa geti bank-
inn ekki gefið upp kaupverðið.
Frá upphafi var lögð áhersla á að
hafa söluferli Árvakurs gagnsætt
og opið, segir Birna. Það feli það í
sér að allir hafi möguleika á að fá
gögn og gera tilboð í fyrirtækið.
Íslandsbanki ákvað á miðviku-
dag að taka tilboði Þórsmerkur
ehf. í Árvakur. Þórsmörk ehf. er
í eigu Óskars Magnússonar, Guð-
bjargar Matthíasdóttur, Þorsteins
Más Baldvinssonar og fleiri. Bank-
inn hafnaði tilboði ástralska fjár-
festisins Steve Cosser, sem var um
200 milljónum króna lægra en til-
boð Þórsmerkur ehf.
Cosser vildi ekki ræða við
Fréttablaðið í gær. Talsmaður hans
segir sérfræðinga nú fara yfir
útboðsferlið allt, þar sem atvik í
því ferli hafi komið Cosser á óvart.
Cosser treysti sér ekki til að tjá sig
um málið fyrr en þeirri yfirferð sé
lokið. Birna segir augljóst að mikið
tap hafi verið á lánum til Árvak-
urs. Afskrifa þurfi vel á annan
milljarð króna. Vonandi verði hægt
að upplýsa um nákvæmari upphæð
þegar samningar séu lengra komn-
ir. Afskriftirnar fari meðal annars
eftir því hvernig rekstur félagsins
gangi næstu árin.
Skuldir Árvakurs voru um 4,5
milljarðar króna í janúar síðast-
liðnum. - bj
Sérfræðingar Steve Cosser fara yfir útboðsferli Íslandsbanka vegna Árvakurs:
Afskriftir vel á annan milljarð
BANKASTJÓRI ÍSLANDSBANKA Afskriftir
Íslandsbanka vegna Árvakurs velta að
einhverju leyti á gengi félagsins næstu
árin að sögn Birnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Norðurlöndin eru
staðráðin í að standa saman í bar-
áttu gegn hneigð til verndarstefnu
í heimskreppunni. Þetta lögðu
forsætisráðherrar allra Norður-
landanna fimm áherslu á er þeir
ræddu við fjölmiðla eftir fund
þeirra við Bláa lónið í gær.
„Það er afar mikilvægt að ekki
verði horfið til verndarstefnu og
einangrunar heldur að við horfum
á styrkleikana og þeir verði notað-
ir til að sækja fram með grænum
hagvexti,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra.
„Við verðum að beita okkur
eins og við getum á alþjóðavett-
vangi gegn öllum hneigðum til
verndarstefnu,“ sagði hinn danski
starfsbróðir hennar, Anders
Fogh Rasmussen. Vegna þess að
öll Norðurlönd eru lítil opin hag-
kerfi sem eru mjög háð frjálsum
milliríkjaviðskiptum hefðu þau öll
gríðarmikilla hagsmuna að gæta
að kreppan verði ekki til þess að
verndar- og haftastefna torveld-
uðu alþjóðaviðskipti.
Af þessari ástæðu væri að hans
mati norrænt samstarf sennilega
mikilvægara nú en nokkru sinni
fyrr.
Anders Fogh sagði einnig að
Danir fylgdust vel með þróun-
inni á Íslandi og væru boðnir og
búnir að leggja sitt af mörkum
til að hjálpa Íslendingum að kom-
ast sem fyrst út úr þeirri djúpu
kreppu sem hér ríkir. Norski for-
sætisráðherrann Jens Stoltenberg
sagði umheiminn sjá Ísland sem
dæmi bæði um kostina við hnatt-
væðinguna og um ókostina sem
nú hefðu leitt til þessa alvarlega
ástands.
Allir ráðherrar hinna Norður-
landanna – Noregs, Danmerkur,
Finnlands og Svíþjóðar – lýstu
samstöðu sinni með Íslending-
um og vilja til að standa fast að
baki hinum íslensku vinum sínum
í þeim vanda sem þeir ættu nú í.
Hins vegar hvíldi ábyrgðin á því
að stýra Íslandi út úr kreppunni
að sjálfsögðu fyrst og fremst á
herðum Íslendinga sjálfra.
Bæði sænski ráðherrann Fre-
drik Reinfeldt og sá finnski, Matti
Vanhanen, sögðu reynslu sinna
landa af að ganga í gegn um alvar-
lega kreppu á fyrri hluta tíunda
áratugarins geta nýst til að hjálpa
Íslandi að rata farsælustu leiðina
út úr sínum vanda. Vanhanen lagði
áherslu á mikilvægi nýsköpunar;
hún væri stór þáttur í að leggja
grunn að hagvexti framtíðarinn-
ar. audunn@frettabladid.is
KÁTIR ÞRÁTT FYRIR KREPPU Norrænu forsætisráðherrarnir Matti Vanhanen, Fredrik
Reinfeldt, Jens Stoltenberg og Anders Fogh Rasmussen á áheyrendabekknum á
norrænu hnattvæðingarráðstefnunni í Svartsengi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Norðurlönd saman
gegn verndarstefnu
Norrænu forsætisráðherrarnir eru sammála um að standa saman gegn vernd-
arstefnu, enda eru það sameiginlegir hagsmunir allra lítilla opinna hagkerfa að
tryggja að milliríkjaviðskipti verði áfram sem frjálsust, þrátt fyrir heimskreppu.
ALÞINGI Karl V. Matthíasson, þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
áhyggjur af að útgerðarmenn hafi
eignast Morgunblaðið. Óttast hann
að aðeins sjónarmið kvótaeigenda
muni heyrast í blaðinu. Lýsti hann
þessu á Alþingi í gær og velti
fyrir sér hvort, í ljósi þessa, ekki
þyrfti að setja lög um fjölmiðla.
Karl spurði fjármálaráðherra
út í málið enda taldi hann Íslands-
banka hafa veitt Morgunblaðinu
óeðlilega fyrirgreiðslu og vildi
vita um afskriftir vegna fyrirtæk-
isins.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði málið ekki
hafa komið á sitt borð, það hefði
alfarið verið í höndum starfs-
manna bankans og fyrirspurnum
þyrfti að beina þangað. - bþs
Karl V. Matthíasson:
Moggakaup
kunna að kalla
á fjölmiðlalög STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsókn-
arflokksins,
fagnar yfirlýs-
ingum Bjarna
Benediktssonar,
þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins,
um tillögu fram-
sóknarmanna
um niðurfell-
ingu skulda um
tuttugu prósent.
Bjarni hefur
sagt tillöguna ágæta og afskriftir
koma fyllilega til greina.
„Þetta eru skýr og jákvæð
skilaboð,“ segir Siv og útilok-
ar ekki að Framsókn leggi fram
frumvarp um málið. „Við vilj-
um koma okkar málum áfram og
erum opin fyrir að gera það með
öðrum.“ - bþs
Niðurfelling skulda um 20%:
Skýr og jákvæð
skilaboð Bjarna
SIV FRIÐLEIFS-
DÓTTIR
DÓMSMÁL Liðsmaður vélhjóla-
klúbbsins Fáfnis hefur verið
dæmdur í tveggja mánaða fang-
elsi fyrir að ráðast á tollvörð í
Leifsstöð í febrúar í fyrra. Mað-
urinn, sem er tæplega fertug-
ur, reiddist mjög þegar leitað var
að fíkniefnum í farangri hans og
endaði það með því að hann rak
öxl sínu af miklu afli í bringu toll-
varðar svo sá missti andann og
kenndi sér meins í nokkurn tíma.
Áður hafði maðurinn, sem var
íklæddur einkennismerktu leður-
vesti Fáfnis, gefið fíkniefnahundi
hnéspark. Hundurinn hafði fund-
ið af honum fíkniefnalykt. Ekkert
fannst við leitina. - sh
Dæmdur fyrir árás á tollvörð:
Fáfnisliði gaf
hundi hnéspark
Telur þú að Jón Baldvin Hanni-
balsson verði næsti formaður
Samfylkingarinnar?
Já 18,5%
Nei 81,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú fundið flöskuskeyti?
Segðu skoðun þína á vísir.is
STJÓRNMÁL „Frá fyrsta degi var litið á okkur
sem vildum búa til stóran og öflugan flokk
sem óvini af Vestfjarðaklíkunni svokölluðu.
Klíkan vildi bara að flokkurinn væri lítill
klúbbur sem reddaði örfáum vinnu, og því fór
sem fór. Við gáfumst bara upp,“ segir Þóra
Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður kjör-
dæmaráðs Frjálslynda flokksins í Reykja-
vík suður. Þóra og Tryggvi
Agnarsson, fyrrum kollegi
hennar í Reykjavík norð-
ur, sögðu sig formlega
úr flokknum á þriðjudag
ásamt varaformönnum og
riturum ráðanna. Þá hefur
Kristinn H. Gunnarsson
þingmaður einnig sagt sig
úr flokknum.
Þóra segir stöðugan
straum af úrsögnum úr
flokknum hafa hafist í
haust. „Það er mjög slítandi og mannskemm-
andi að vera í svona félagsskap þar sem
maður er óvelkominn og stanslaust grunað-
ur um græsku. Jafnvel fólk sem hefur verið í
flokknum frá upphafi hefur gefist upp.“
Að sögn Þóru ríkir óstjórn í yfirstjórn
Frjálslyndra, þar sem spilling og einka-
vinavæðing ráði ríkjum. „Okkur
fannst flokkurinn líka standa sig
afar illa í brennandi málum eins
og afnámi kvótakerfisins. Á
nýlegum miðstjórnarfundi kom
fram að Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður flokksins, er kvóta-
eigandi. Þetta finnst okkur alls
ekki viðeigandi og gæti orsakað
hagsmunaárekstra, en sjálfur sér
Guðjón ekkert að þessu,“ segir Þóra.
Hún býst við að margt af því fólki
sem yfirgefið hefur Frjáls-
lynda á síðustu vikum
stofni nýjan flokk,
en það skýrist á
næstu dögum.
Ekki náðist í
Guðjón Arnar
Kristjánsson
við vinnslu
fréttarinnar.
- kg
Kristinn H. Gunnarsson og stjórnarmeðlimir kjördæmaráða:
Sögðu sig úr Frjálslyndum
ÞÓRA GUÐMUNDS-
DÓTTIR
HÆTTUR Í FRJÁLSLYNDA
FLOKKNUM Kristinn H.
Gunnarsson er genginn
úr Frjálslyndaflokknum.
KJÖRKASSINN