Fréttablaðið - 27.02.2009, Side 37
24 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
„Leikhúsið er tæki til að
leika sér – ég er að leika
mér – og breyti verkinu
heil ósköp,“ segir Kjartan
Ragnarsson sem í kvöld
frumsýnir sviðsetningu á
verki Dürenmatt frá sjötta
áratugnum, Þeirri gömlu
sem kemur í heimsókn sem
hann kallar Milljarðamærin
snýr aftur.
„Þetta er eiginlega gamli mað-
urinn snýr aftur,“ segir Kjartan
en hann hefur ekki unnið á stóra
sviði Borgarleikhússins síðan
hann setti Íslensku mafíuna þar
á svið 1995. Hann átti þá að baki
þrjár sviðsetningar á Stóra svið-
inu, Evu Lunu, Þrúgur reiðinnar
og Dampskipið Ísland en var gjör-
kunnugur sviðinu sem stjórnar-
maður Leikfélags Reykjavíkur á
þeim árum þegar leikhúsið í Soga-
mýrinni var hugsað og hannað:
rómuð sviðsetning hans á Þrúg-
unum var raunar fyrsta sviðsetn-
ingin sem nýtti allt rýmið á stóra
sviðinu: „það er gaman að koma
á stóra sviðið aftur, alveg frjáls
og skuldbindingalaust, gaman að
koma að þessu fræi aftur og finna
það lifna við,“ segir Kjartan en
hann á að baki 22 sviðsetningar
á vegum LR.
Hann segir þá Gretar Reynisson
hafa umbylt verkinu og þýðingu
Gísla Rúnars Jónssonar sem var
á sínum tíma unnin fyrir Herra-
nótt. „Gísli er frægur fyrir inn-
skot sín. Verkið var að auki unnið
undir sterkum áhrifum frá Brecht
og fyrir fimmtíu manna leikflokk,
þó hlutverkin sem kjöt er á væru
bara rtuttugu og tvö. Svo við
styttum það og steyptum saman
persónum sem var bæði þakklátt
og sjálfsagt.“
Til stóð að frumsýna Milljarða-
mærina um jól en sökum góðs
gengis var frumsýningin færð
aftur: „Við byrjuðum að æfa 1.
nóvember og æfðum í fjögurra
daga vikum fram í miðjan des.
Tókum þá hlé. Það gefur góða
raun að vinna svona í tveimur
skömmtum. Láta verkið malla í
undirmeðvitundinni í einhvern
tíma. Það breytir miklu.“ Kjartan
segist treysta sér til að setja upp
eitt verk á ári.
Hugur hans er lengstan hluta
ársins bundinn við rekstur Land-
námssetursins í Borgarnesi þang-
að sem þau Sigríður Margrét kona
hans fluttu þegar Landnámssetr-
ið var að komast í gang: „Upp-
færsla í svartasta skammdeginu
kemur sér vel og það er gott að
halda sambandi við sitt gamla fag
- ferlega fínt - ef mér býðst væn-
leg uppfærsla árlega á þeim tíma
þigg ég það. Það er ekki eins og
útlegðin sem maður fór í ef unnið
var í útlöndum í heila þrjá mán-
uði. Núna gat ég farið heim um
helgar og tekið upp þráðinn þar
í vinnu.“
Milljarðamærin snýr aftur
verður frumsýnd í kvöld og segja
þeir sem hafa séð til æfinga á
verkinu að sviðsetningu Kjartans
og Gretars sé best lýst sem „leik-
húsveislu“. pbb@frettabladid.is
SÁ GAMLI KOMINN AFTUR
LEIKLIST Kjartan Ragnarsson ólst upp
hjá LR sem listamaður og snýr aftur eftir
langt hlé: „Það er gaman að koma á
stóra sviðið aftur án skuldbindinga.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LEIKLIST Gamalkunnugt stef úr fyrri sýningu Kjartans og Gretars, Ljósi heimsins 1989, hópurinn stígur inn á sviðið úr ljósinu.
MYND LR/GRÍMUR BJARNASON
The Blue Fox, en svo nefnist
Skugga-Baldur eftir Sjón, er til-
nefnd til hinna virðulegu verð-
launa „The Independent Foreign
Fiction Prize“.
Þessi verðlaun eru helstu bók-
menntaverðlaunin sem tileinkuð
eru erlendum bókum á enska mál-
svæðinu. Stórblaðið Independent
stofnaði verðlaunin árið 1990 og
voru þau veitt í fimm ár, og árið
2001 voru þau endurvakin í sam-
vinnu við Arts Council England.
Vinningshafar síðustu ára eru
meðal annarra Per Petterson (höf-
undur Út að stela hestum) og Javi-
er Cercas (höfundur Stríðsmenn
Salamis) en bækur eftir þá hafa
komið út á íslensku í neon-bóka-
seríu Bjarts.
Aðrir tilnefndir höfundar, auk
Sjón, eru Jose Eduardo Agualuse,
Sasa Stanisic og Ismail Kadare.
Skugga-Baldur kom út í Eng-
landi á síðasta ári hjá forlaginu
Tele gram, sem hefur nú þegar
tryggt sér útgáfuréttinn á Rökk-
urbýsnum. Það eru mikil tíðindi
að íslensk bók sé tilnefnd til þess-
ara glæsilegu verðlauna.
- pbb
Skugga-Baldur tilnefndur
BÓKMENNTIR Sjón kominn inn á
engilsaxneskan markað
Áfram heldur frægðarganga stutt-
myndar Rúnars Rúnarssonar –
auk fjölda tilnefninga á stórum
og smáum hátíðum hefur myndin
hlotið 26 verðlaun og engin íslensk
kvikmynd, stutt eða löng, hefur
fengið aðrar eins viðtökur. Síðast
voru það tvenn verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Mons í Belg-
iu (Le Festival Internation-
al du Film d’Amour de Mons)
um síðastliðna helgi. Zik Zak
átti tvær myndir á hátíðinni:
Kvikmyndin Skrapp út eftir
Sólveigu Anspach hlaut
titilinn „besta evrópska
kvikmyndin“ og Smáfugl-
ar eftir Rúnar Rúnars-
son var valin „besta
alþjóðlega stutt-
myndin“. Hátíðin
sem hefst jafnan
í kringum Valentínusardaginn er
nú haldin í 25. sinn og nýtur sífellt
meiri vinsælda, en um 30 þúsund
manns safnast árlega saman í þess-
um 90 þúsund manna fallega bæ,
Mons, til að njóta hátíðarinnar.
Nefna má að Smáfuglar hefur
unnið til svo margra verðlauna
frá því að hún var frumsýnd,
í maí 2008, að engin
önnur stuttmynd í heim-
inum hefur unnið jafn
mörg verðlaun frá
þeim tíma til dagsins
í dag. Rúnar vinnur nú
að undirbúningi kvik-
myndar í fullri lengd.
- pbb
Sigrandi smáfuglar
KVIKMYNDIR Rúnar Rúnarsson
leikstjóri á góðu gengi að fagna
víða.
Kl. 10.00
Þá hefst miðasala á langþráða tónleika Eivarar
Pálsdóttur á Íslandi sem verða á Nasa föstudag-
inn 3. apríl, nánar tiltekið á Nasa.
Nú er Eivør með hörkuband á bak við sig og
hyggst spila ný lög af væntanlegri plötu í bland
við vel þekkta smelli. Liðsskipan er þannig:
Eivør Pálsdóttir – söngur, gítar, slagverk,
Benjamin Petersen – rafgítar, Mikael Blak – raf-
bassi, kontrabassi, mamba – trommur, slagverk.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð um Ísland
og má finna nánari upplýsingar um hana á
www.eivor.com/index.php?id=41.
Hinn 14. mars kl. 20 gefst áhugamönnum um
klassískan söng í fyrsta sinn tækifæri til að heyra
helstu sóprana landsins á sviði saman þegar fjórar
söngkonur leiða saman hesta sína á stórtónleikum
í Íslensku óperunni. Söngkonurnar sem um ræðir
eru: Auður Gunnarsdóttir, Elín Ósk Óskarsdótt-
ir, Hulda Björk Garðarsdóttir og Þóra Einarsdótt-
ir. Söngkonurnar hafa allar verið önnum kafnar og
gert garðinn frægan bæði hér heima og erlendis og
er því nokkuð fréttnæmt að ná þeim öllum saman
á galatónleika í Íslensku óperunni. Við píanóið
verður Antonía Hevesi, fastráðinn píanóleikari við
Íslensku óperuna, sem er löngu kunn af störfum
sínum hérlendis, m.a. fyrir hina vinsælu hádegis-
tónleika í Hafnarborg.
Efnisskráin verður ekki af verri endanum, en
þar má finna margar af helstu perlum óperubók-
menntanna, aríur, dúetta og samsöngsatriði, eftir
Bellini, Mozart, Verdi, Wagner, Puccini, Rossini og
fleiri.
Galakjólar og -greiðslur munu gleðja augu áhorf-
enda og því er kjörið tækifæri fyrir tónleikagesti
að gera sér dagamun, klæða sig upp á og gleðjast
í góðra vina hópi. Veitingasalan verður opin fyrir
tónleika og í hléi, en konfekt er í boði Nóa Síríus,
sem styrkir tónleikana. Miðasala hefst 2. mars í
Íslensku óperunni og á www.opera.is. - pbb
Fjórar prímadonnur
TÓNLIST Antonía Havesi, Hulda Björk Garðarsdóttir og Auður
Gunnarsdóttir í efri röð frá vinstri, Þóra Einarsdóttir og Elín
Ósk Óskarsdóttir í neðri röð í skarti á sviði Óperunnar.
MYND ÍSLENSKA ÓPERAN/
Hart í bak
Þrettándakvöld
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Heiður
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is