Fréttablaðið - 27.02.2009, Side 41
28 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
12
L
L
L
12
L
THE INTERNATIONAL kl. 8 - 10.15
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 6
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 8
THE PINK PANTHER 2 kl. 6
FANBOYS kl. 10.15
16
L
12
L
L
THE INTERNATIONAL D kl. 8 - 10.30
THE INTERNATIONAL LÚXUS D kl. 5.30 - 8 - 10.30
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 4 - 6
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 5.15 – 8 – 10.40
THE PINK PANTHER 2 D kl. 4 - 6
FANBOYS kl. 8 -10.10
SKÓGARSTRÍÐ 2 kl. 3.45
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ kl. 4
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
16
L
12
14
14
L
THE INTERNATIONAL kl. 5.30 - 9
ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 6
MILK kl. 5.20 - 8 - 10.40
THE WRESTLER kl. 8 - 10.15
THE READER kl. 8 - 10.20
VICKY CRISTINA BARCELONA kl. 5.50
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
12
L
12
L
12
L
HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 6 - 9
THE PINK PANTHER 2 kl. 6 - 8
FROST/NIXON kl. 5.30 - 10
HOTEL FOR DOGS kl. 5.30
VALKYRIE kl. 9
BRIDE WARS kl. 8 - 10
600kr.
fyrir börn
750kr.
fyrir fullorðna
- S.V., MBL
- L.I.L., TOPP5.-FBL.IS
FRÁBÆR GAMANMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
- S.V., MBL - E.E., DV
MAGNAÐUR
SPENNUTRYLLLIR MEÐ
CLIVE OWEN OG NAOMI
WATTS Í FANTAFORMI!
SparBíó 550kr
Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ GRÆNU
SparBíó 850kr
BYGGT Á METSÖLUBÓKINNI
SHOPAHOLIC kl. 3:40 - 5:50D - 8D - 10:20D L
CONFESSIONS SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 - 10:20 VIP
ÆVINTÝRI DESPEREAUX kl. 3:40 - 5:50 L
ÆVINTÝRI DESPEREAUX kl. 3:40 VIP
DEFIANCE kl. 5:50 - 8:30 16
FRIDAY THE 13TH kl. 8 - 10:20 16
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
BENJAMIN BUTTON kl. 8:30 7
HOTEL FOR DOGS kl. 3:40 L
ROLE MODELS kl. 8 - 10:20 12
BEDTIME STORIES kl. 3:40 L
YES MAN kl. 5:50 7
CONFESSIONS SHOPAHOLIC kl. 6D - 8:20D - 10:30D L
DEFIANCE kl. 8D - 10:40D 16
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 4D L
BENJAMIN BUTTON kl. 3:50 - 7 - 10:10 7
BLOODY VALANTINE - 3D kl. 6(3D) 16
BOLT 3-D m/ísl. tali kl. 4(3D) L
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 6 L
BRIDE WARS kl. 8 L
FRIDAY THE 13TH kl. 10 16
SHOPAHOLIC kl. 6 - 8 - 10 L
CHIHUAHUA kl. 6 L
DEFIANCE kl. 8 - 10:30 16
SHOPAHOLIC kl. 5:50 - 8 - 10:20 L
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 6 L
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 8 12
FRIDAY THE 13TH kl. 10:20 16
NÝ VINNA...?
VONANDI
NÝR UNNUSTI...?
KANNSKI
NÝTT VESKI...?
ALGJÖRLEGA!
ALLT SEM HÚN ÞRÁÐI VAR BARA SMÁ YFIRDRÁTTUR
91/100
Entertainment Weekly
- bara lúxus
Sími: 553 2075
ÆVINTÝRI DESPEREAUX kl. 4 og 6 - íslen- L
HE’S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 5.30, 8 og 10.30 12
THE PINK PANTHER 2 kl. 8 og 10 L
BEVERLY HILLS CHIHUAHUA kl. 3.40 L
HOTEL FOR DOGS kl. 4 L
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 12
★★★★★
- S.V., MBL
★★★★★
- L.I.L., Topp5.is/FBL
„Ég kalla tónleikana Harpan
ómar og það er ekkert smá stóð af
tónlistarfólki sem kemur fram,“
segir Jón Kr. Ólafsson um tón-
leikana sem haldnir verða í kvöld
í sal FÍH í Rauðagerði. Með Jóni
kemur fram glæsilegur hópur
gestasöngvara, meðal annarra
Ragnar Bjarnason, Þuríður Sig-
urðardóttir, Magni Ásgeirsson
og Geir Ólafs. Þá mun Hafliði
Magnússon lesa úr ævisögu sinni
um söngvarann sem kom út fyrir
síðustu jól. Þetta eru styrktar-
tónleikar fyrir einstakt tónlistar-
safn Jóns Kr. á Bíldudal, Melódíur
minninganna.
„Ég hef verið að rekast í þessu
í átta ár til að halda sjálfum mér
og öðrum á floti,“ segir Jón um
safnið.
„Ég segi bara að það gangi vel
enda eru allir komnir með upp í
kok af þessum endalausu fréttum
um að allt sé á hausnum hér og
allt sé á hausnum þar.“
Jón segir safnið í sífelldum
vexti og engan bilbug er að finna
á honum. „Það er allt við það sama
á Bíldudal,“ segir hann og segir að
fólk á landsbyggðinni finni ekki
mikinn mun þótt svokölluð kreppa
eigi að vera skollin á. „Það er búið
að berja landsbyggðina aftur á bak
og áfram, stela af okkur kvótan-
um og gera húsin okkar verðlaus,
en það hafði enginn áhyggjur af
því. Svo þegar gýgurinn opnaðist
fyrir sunnan og rassinn var kom-
inn úr buxunum þá varð allt vit-
laust. Menn hitta stundum sjálfa
sig fyrir og þannig er nú komið í
þessu þjóðfélaginu núna.“
Jón hitar upp fyrir kvöldið með
því að taka lagið með hljómsveit-
inni Skakkamanage á Rás 2 í dag
kl. 11, en tónleikarnir hefjast kl.
21. - drg
Enginn bilbugur á Bíldudal
HELDUR SÉR Á FLOTI Landsfrægir
tónlistarmenn styrkja einstakt tónlistar-
safn Jóns Kr. Ólafssonar í FÍH-salnum á
föstudagskvöldið.
Alls sóttu 38 hljómsveitir um að
spila í Þýskalandi í vor á vegum
tónlistarklúbbsins Norðrið sem
var stofnaður á dögunum. Verið
er að vinna úr umsóknunum og
líklega verður ljóst eftir helgi
hvaða sveitir spila þar í apríl, maí
og júní. Aðeins einn til tveir flytj-
endur verða valdir fyrir hvern
mánuð.
Anna Hildur Hildibrandsdótt-
ir hjá Útón er ánægð með þátt-
tökuna. „Ég vissi ekki við hverju
átti að búast því þetta er nýtt
verkefni. Þetta er alla vega mik-
ill fjöldi að fara í gegnum en það
er mjög skemmtilegt að sjá hvað
það er mikið af öflugum verk-
efnum í boði,“ segir hún og bætir
við að umsóknirnar hafi verið úr
öllu litrófi tónlistarbransans. „Við
erum mjög ánægð með viðbrögð-
in og undirbúningurinn í Þýska-
landi gengur vel. Við erum spennt
að sjá hvað gerist þegar á hólminn
kemur.“
Veittur verður styrkur til
flytjendanna sem nemur allt að
150.000 krónum en aldrei sem
nemur meira en 25.000 krónum
á hvern þann sem kemur fram í
hverju verkefni.
Lay Low ríður á vaðið og opnar
Norðrið formlega með tónleikum
í Þýskalandi í næsta mánuði. Í
tengslum við opnunina verður fjöl-
miðlauppákoma í Berlín 10. mars
til að kynna þennan nýja og spenn-
andi tónlistarklúbb. - fb
Tugir vilja spila í Þýskalandi
SAMSTARFSAÐILAR Anna Hildur Hildibrandsdóttir ásamt samstarfsaðilum Útóns við
verkefnið Norðrið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Langi Seli er búinn að taka
upp nýja plötu með nýju
bandi og heldur fyrstu
tónleika sína í langan tíma í
næstu viku.
„Ég hef ekkert lært, en músíkin
hefur eðlilega breyst eitthvað af
því að það eru komnir nýir menn
í bandið,“ segir Axel Hallkell
Jóhannesson, Langi Seli, sem nú
snýr aftur á fullu gasi með Nýju
skuggana. Langi Seli og Nýju
skuggarnir eru hann og Jón Skuggi
og nýju skuggarnir Erik Qvick á
trommum og Gísli Galdur á plötu-
spilara og hljóðeffekta.
„Það er búið að taka upp nýja
plötu og hún kemur út eftir sirka
mánuð. Platan heitir Drullukalt
og við erum að mixa hana þessa
dagana. Þetta er beint af augum
sándlega séð og textarnir eru voða
mikið bara lögin við vinnuna. Það
er sungið um veðrið og menn sem
eru að vinna og svona,“ segir Seli.
Langi Seli og Skuggarnir varð til
upp úr hljómsveitinni Oxzmá á 9.
áratugunum og spilaði séríslenskt
rokkabillí. Vinsælasta lagið var
„Breiðholtsbúgí“ og platan Rottur
og kettir sem kom út 1992 er eina
stóra plata sveitarinnar til þessa.
„Maður var orðinn býsna þreytt-
ur á þeirri plötu þegar hún kom út.
Ég var að hlusta á hana aftur um
daginn og það var nú bara gaman.
Músík er eins og ljósmynd. Manni
finnst kannski einhver mynd alveg
ömurleg og hendir henni ofan í
skúffu, en eftir 20 ár finnst manni
hún fín. Annað við tónlist er að
sama hvað maður er að reyna þá
heyrist alltaf á tónlistinni á hvaða
áratugi hún var tekin upp.“
Seli segir næsta skref að setja
allar vélar í gang og kynna plöt-
una. „Núna eru íslenskar hljóm-
sveitir feikilega vel spilandi svo
við höfum æft stíft til að eiga
séns,“ segir Seli og hlær. „Þetta er
ekki eins og á 9. áratugnum þegar
var nóg að æfa bara einu sinni og
troða svo upp.“
Fyrstu tónleikar Langa Sela og
Nýju skugganna verða 6. mars á
Sódómu Reykjavík, nýja staðnum
með útrásarvíkingapissuskálunum
á efri hæð Gauksins.
drgunni@frettabladid.is
LANGA SELA DRULLUKALT
LÖGIN VIÐ VINNUNA Langi Seli mætir aftur með Nýju skuggana. Ný plata kemur út
eftir mánuð og fyrstu tónleikarnir verða 6. mars á Sódómu Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL