Fréttablaðið - 27.02.2009, Síða 43
30 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Fram kom í ávarpi Geirs
Þorsteinssonar, formanns KSÍ, á
síðasta ársþingi að upp væri kom-
inn ágreiningur á milli gamla
Kaupþings og KSÍ vegna fyrir-
komulags um skipti á evrum og
krónum. Ágreiningurinn snýst um
130 milljónir króna auk vaxta og
tengist erlendum tekjum KSÍ.
Knattspyrnusambandið hefur
hafnað kröfum skilanefndar gamla
Kaupþings og hefur ráðið sér lög-
mann til þess að gæta hagsmuna
sambandsins.
„Málið er bara í höndum okkar
lögfræðings og ég get lítið annað
sagt á þessari stundu,“ sagði Geir
og bætti við að málið gengi ekki
hratt fyrir sig.
KSÍ stendur frammi fyrir þeim
vanda að vera án styrktaraðila í
efstu deildum karla og kvenna en
Landsbankinn sagði upp markaðs-
réttinum á dögunum.
„Við höfum átt viðræður en ég
vil ekkert segja meira en það. Ég
er samt hóflega bjartsýnn á að
þetta gangi upp fyrir mót,“ sagði
Geir aðspurður hvernig gengi að
finna nýjan styrktaraðila.
KSÍ seldi þýska fyrirtækinu
Sportfive markaðsréttinn að efstu
deildunum. Sá réttur er ekki ódýr
eftir fall krónunnar og staðfesti
Landsbankinn við Fréttablaðið á
dögunum að hann væri allt að 30
milljónir króna á ári. Landsbank-
inn sagðist ekki hafa getað réttlætt
að greiða 30 milljónir fyrir það eitt
að fá nafnið á deildirnar.
Því kemur sú spurning óneitan-
lega upp hvort KSÍ þurfi hreinlega
ekki að greiða niður hluta af þess-
um markaðsrétti, ef ekki allan, ef
sambandið ætlar sér að fá stuðn-
ingsaðila á þessum síðustu og
verstu tímum.
„Ég vil ekkert segja um það.
Við erum bara ánægðir enda með
samning við Sportfive og félög-
in fá sitt,“ sagði Geir pólitískur
í svari og var því spurður aftur
hvort það væri hreinlega ekki sá
raunveruleiki sem blasti við sam-
bandinu. „Það væri óskandi fyrir
alla Íslendinga að gengi krónunn-
ar væri stöðugt. Það hefur skapað
mörg vandamál. Sportfive veit að
aðstæður á Íslandi eru allt aðrar
en þegar síðast var samið.“
Þrátt fyrir dapurt efnahags-
ástand hefur KSÍ einnig hagnast
verulega vegna gengisbreytinga
enda kemur stærsti hlutur tekna
sambandsins erlendis frá í erlendri
mynt.
„Á móti kemur að það nánast
tvöfaldaðist erlenda lánið okkar
vegna framkvæmdanna á Laug-
ardalsvellinum. Það var 600 millj-
ónir í lok síðasta árs en við vorum
með gengistap upp á 390 milljón-
ir vegna erlends láns. Við höfum
síðan greitt mikið niður af þessu
láni á þessu ári,“ sagði Geir Þor-
steinsson. henry@frettabladid.is
Ágreiningur á milli KSÍ og gamla
Kaupþings vegna 130 milljóna króna
KSÍ hefur falið lögmanni að gæta hagsmuna sambandsins vegna deilna við gamla Kaupþing um skipti á
evrum og krónum. Formaður KSÍ segist hóflega bjartsýnn á að nýr styrktaraðili finnist fyrir sumarið.
UM MARGT AÐ HUGSA Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, er hóflega bjartsýnn á að KSÍ
finni styrktaraðila á efstu deildirnar fyrir sumarið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SENDU SMS EST KZL Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU KILLZONE 2, AÐRIR TÖLVULEIKIR,
GOS, DVD MYNDIR OG FLEIRA
WWW.SENA.IS/KILLZONE
10 af 10
– Official PlayStation
Magazine
9 af 10
– Eurogamer.net
10 af 10
– Gamepro
9,4 af 10
– IGN.com
HVER VINNUR!
9.
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
EL
KO
Li
nd
um
–
Sk
óg
ar
lin
d 2
. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
19
9 k
r/s
ke
yt
ið.
ÚRSLIT
Iceland Express-deild karla:
Skallagrímur - ÍR 59-67
Stigahæstir hjá Skallagrími: Igor Beljanski 18,
Landon Quick 14, Sveinn Arnar Davíðsson 13.
Stigahæstir hjá ÍR: Sveinbjörn Claessen 26,
Hreggviður Magnússon 18, Eiríkur Önundarson
10, Ólafur Þórisson 7.
FSu - Snæfell 67-68
Stigahæstir hjá FSu: Sævar Sigurmundsson 22,
Vésteinn Sveinsson 19, Tyler Dunaway 10.
Stigahæstir hjá Snæfelli: Lucious Wagner 20,
Slobodan Subasic 17, Sigurður Þorvaldsson 14.
Grindavík - Breiðablik 112-60
Stigahæstir hjá Grindavík: Þorleifur Ólafsson 18,
Guðlaugur Eyjólfsson 17, Nick Bradford 13, Björn
Brynjólfsson 13.
Stigahæstir hjá Breiðablik: Nemanja Sovic 20,
Daníel Guðmundss. 10, Þorsteinn Gunnlaugss. 8.
Enska bikarkeppnin:
Hull - Sheffield United 2-1
1-0 Kyle Naughton, sjálfsmark (24.), 1-1 Billy
Sharp (32.), 2-1 Peter Halmosi (56.)
UEFA-bikarkeppnin:
Metalist Kharkov - Sampdoria 2-0 (3-0)
CSKA Moskva - Aston Villa 2-0 (3-1)
Hamborg - NEC Nijmegen 1-0 (4-0)
FC Twente - Marseille 0-1 (1-1)
Marseille komst áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Wolfsburg - PSG 1-3 (1-5)
Galatasaray - Bordeaux 4-3 (4-3)
Manchester City - FCK 2-1 (4-3)
Standard Liege - Sporting Braga 1-1 (1-4)
Udinese - Lech Poznan 2-1 (4-3)
Ajax - Fiorentina 1-1 (2-1)
AC Milan - Werder Bremen 2-2 (3-3)
Werder Bremen skoraði fleiri mörk á útivelli.
Stuttgart - Zenit St. Pétursborg 1-2 (2-4)
St. Etienne - Olympiakos 2-1 (5-2)
Deportivo - Álaborg 1-3 (1-6)
Tottenham - Shakhtar Donetsk 1-1 (1-3)
Samanlögð úrslit í sviga, feitletruð lið komin áfram.
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir, leikmaður KR, fari til
sænska úrvalsdeildarfélagsins Djurgården
nú á næstu vikum. Félagið hefur loksins
sett sig í samband við KR og sagði Rúnar
Kristinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá
KR, að væntanlega yrði gengið frá málinu á
allra næstu dögum.
„Ég fer væntanlega til Svíþjóðar strax eftir
að Algarve-mótinu lýkur,“ sagði Guðrún sem
mun keppa á mótinu með íslenska landslið-
inu. Það fer fram í byrjun mars.
„Þetta er auðvitað spennandi kostur fyrir
mig. Ég hef svo sem ekki verið að velta því
mikið fyrir mér að komast að hjá liði erlend-
is. En svo kom þetta skyndilega upp.“
Það var landsliðsmarkvörðurinn og fyrr-
um leikmaður Vals, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
sem benti forráðamönnum Djurgården á
Guðrúnu. „Þá vantaði varnarmann
og ákváðu að hafa samband. Þetta
er draumur fyrir mig að fá að fara út
sem atvinnukona í fótbolta en ég geri
samning við félagið út leiktíðina. Ég
fékk leyfi hjá mínum vinnuveit-
anda hér heima til þess. Reyndar
kemur til greina að ég vinni
í fjóra á tíma í dag samhliða
fótboltanum.“
Guðrún verður þar með
tíundi íslenski knattspyrnu-
maðurinn sem mun leika
í sænsku úrvalsdeildinni í
sumar. Það hefur verið mikil
útrás hjá íslenskum knatt-
spyrnukonum til Svíþjóðar
eftir góðan árangur lands-
liðsins sem tryggði sér sæti í
úrslitakeppni EM sem fer fram í Finnlandi
í sumar.
„Ég held að það sé af hinu góða að svo
margar landsliðskonur muni spila í Svíþjóð
í sumar. Það verður góður undirbúningur
fyrir okkur að fá að spreyta okkur
gegn svo mörgum góðum knatt-
spyrnukonum sem þar spila.“
Guðrún Sóley er einn reyndasti
leikmaður landsliðsins og á alls að
baki 54 leiki. Hún hefur skorað eitt
mark í þeim. Hún er uppalinn KR-
ingur en lék einnig með Breiðabliki
í tvö sumur.
Bróðir hennar, Guðmundur
Reynir Gunnarsson, er einnig fyrr-
um leikmaður KR en hann gekk í
haust til liðs við GAIS sem leikur í
úrvalsdeild karla í Svíþjóð.
GUÐRÚN SÓLEY GUNNARSDÓTTIR: Á LEIÐ TIL DJURGÅRDEN Í SÆNSKU ÚRVALSDEILDINNI
Draumur að fá að vera atvinnukona í fótbolta
> Úrslitakeppnin hefst á mánudag
Á mánudaginn hefst fyrsta umferð í úrslita-
keppni Iceland Express-deildar kvenna
í körfubolta með leik Hamars og Vals í
Hveragerði. Sex lið komust áfram í úrslita-
keppnina en tvö efstu liðin í A-riðli - Haukar
og Keflavík - sitja hjá í fyrstu umferðinni. Hin
viðureignin í fyrstu umferðinni er á milli KR
og Grindavíkur og verður fyrsti leikurinn í
DHL-höllinni á þriðjudagskvöldið. Það lið sem
vinnur fyrr tvo leiki kemst áfram í undan-
úrslitin þar sem deildarmeistarar Hauka eða
Keflvíkingar bíða þess.
KÖRFUBOLTI Grindavík tyllti sér á
topp Iceland Express-deildar karla
í gærkvöldi með stórsigri á Breiða-
bliki á heimavelli, 112-60.
Alls fóru þrír leikir fram í deild-
inni í gær. Sigurður Þorvaldsson
tryggði Snæfelli nauman sigur á
FSu á Selfossi, 68-67, með körfu á
lokasekúndu leiksins. Þá vann ÍR
lið Skallagríms á útivelli, 67-59.
Grindavík er með 34 stig í topp-
sætinu, rétt eins og KR sem getur
endurheimt efsta sætið með sigri á
Njarðvík á útivelli í kvöld. Grinda-
vík er með betri árangur í innbyrð-
isviðureignum sínum við KR og er
því ofar í töflunni.
Sigur Snæfells var einkar dýr-
mætur þar sem liðið á í harðri bar-
áttu við Keflvíkinga um þriðja sæti
deildarinnar. Snæfell er með fjög-
urra stiga forystu á Keflavík sem
stendur en síðarnefnda liðið á leik
til góða. Snæfell stendur þó betur í
innbyrðisviðureignum liðanna.
ÍR er nú í sjöunda sæti deildar-
innar með sextán stig, rétt eins og
Stjarnan sem er í sjötta sætinu.
Átta lið komast áfram í úrslita-
keppnina og eru Tindastóll, FSu
og Breiðablik öll með fjórtán
stig í næstu sætum. Þar sem síð-
arnefndu liðin tvö töpuðu sínum
leikjum í kvöld getur Tindastóll
komið sér í góða stöðu með sigri
á Þór í kvöld.
Þór þarf hins vegar nauðsyn-
lega á sigri að halda í leiknum til
að halda í vonina um að falla ekki
í fyrstu deildina. Þórsarar eru sem
stendur sex stigum á eftir liðunum
þremur í 8.-10. sæti.
Skallagrímur var þegar fallið
úr deildinni fyrir leikinn í gær en
liðið er í neðsta sætinu með fjögur
stig. - esá
Þrír leikir í Iceland Express-deild karla í gærkvöldi:
Grindavík á toppinn
STIGAHÆSTUR Þorleifur Ólafsson skoraði
átján stig fyrir Grindavík í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Valur varð í gærkvöldi
Reykjavíkurmeistari kvenna í
knattspyrnu eftir 2-0 sigur á KR.
Valur fékk því alls sextán stig á
mótinu en KR þrettán.
Kristín Ýr Bjarnadóttir kom
Val yfir með marki á 60. mínútu
en fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir
skoraði síðara mark Vals tíu mín-
útum síðar.
Þetta er fyrsti titill Vals undir
stjórn Freys Alexanderssonar
þjálfara en liðið varð Íslands-
meistari síðastliðið sumar er
hann þjálfaði liðið í sameiningu
með Elísabetu Gunnarsdóttur.
- esá
Valur Reykjavíkurmeistari:
Fyrsti titillinn
hjá Frey
BIKARINN Á LOFT Katrín Jónsdóttir,
fyrirliði Vals, kampakát með bikarinn á
lofti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN