Tíminn - 05.03.1991, Qupperneq 1
Ólafur Ragnar sem ráðherra: Boðar björgunaraðgerðir vegna frestunar álvers.
Ólafur Ragnar sem formaður Alþb.: A móti ályktun um byggingu álvers:
Olafur Ragnar leikur
kosningasóló á þingi
Ólafur Ragnar Grímsson lagði fram
á ríkisstjómarfundi sl. föstudag, lista
yfir opinberar framkvæmdir fýrir um
2 milljarða kr. sem flýta skuli, verði
ekki af framkvæmdum við nýtt álver
á þessu árí. Þessi óskalisti ráðherr-
ans varð tilefni utandagskrárum-
ræðu á Alþingi í gær. Margir þing-
manna deildu hart á Ólaf Ragnar og
sögðu hann kominn í kosningaham,
en meðal framkvæmda á lista hans
má nefna breikkun Reykjanesbraut-
ar, byggingu flugskýlis á Keflavíkur-
flugvelli, hafnarframkvæmdir í Þor-
lákshöfn og ýmsar framkvæmdir á
þéttbýlisstöðum sem orðið hafa fýrír
barðinu á loðnubrestinum. Athygli
hlýtur að vekja í þessu sambandi að
ríkisstjómarflokkamir — að undan-
skildu Alþýðubandalaginu — hafa
nú samþykkt að iðnaðarráðherra
leggi fram þingsályktunartillögu um
heimild til að byggja nýtt álver.
• Blaðsíða 5
TVEIR FANGAR sem struku af Litla-Hrauni voru handteknir í húsi í miðbænum í Reykjavík, síðdegis
í gær. Þeir struku úr fangelsinu síðdegis á sunnudag og fengu far með stúlku í bæinn, en hún hafði ein-
mitt heimsótt annan þeirra fýrr um daginn. Stúlkan segist hafa hitt þá fýrír tilviljun við veginn skammt frá
fangelsinu og þeir hafi neytt hana til að aka með þá til Reykjavíkur. Piltamir fóm úr bílnum í Árbæ og
spurðist ekkert til þeirra þar til þeir voru handteknir í gær. Tímamynd: Pjetur