Tíminn - 13.03.1991, Side 3
Miðvikudagur 13/hniars 1991
Sjálfstæðismenn gagnrýna grunnskólafrumvarpið harðlega:
KOSTAR MENNTAMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ KOSNINGA-
BARÁTTU SVAVARS?
Tíminn 3
Sigurður íþróttamaður UMSE1990
Frjálsíþróttamaðurinn Sigurður
Matthíasson frá Dalvik var kjör-
inn íþróttamaður UMSE, á árs-
þingl sambandsins sem fram fór
nýverið. Sigurður hefur einkum
lagt stund á spjótkast, og náði
hann sérlega góðum árangrí á
síðasta ári. Sigurður keppti á 20
mótum á síðasta árí, bæði hér
heima og erlendis. Hann keppti á
14 alþjóðlegum mótum og vann
5 þeirra, auk þess sem hann sigr-
aði á Landsmóti UMFÍ og fleirí
stórum mótum hér heima.
Besta kast Sigurðar til þessa er
79.56 metrar, og hefur hann þar
með öðlast þátttökurétt á ÓL í
Barcelona á Spáni. Sigurður und-
irbýr sig nú af kappi fyrir ÓL, auk
heimsmeistaramótsins sem fram
fer í Tokyo síðar á þessu árí.
hiá-akureyri.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra var harðlega gagnrýndur í um-
ræðum á Alþingi um grunnskóla-
frumvarp. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins sökuðu hann um að reyna
að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn
með auglýsingum sem birtar hafa
veríð í dagblöðum og kostaðar eru af
menntamálaráðuneytinu. Svavar
sagði að birting auglýsinganna hefðu
veríð mistök.
Sjálfstæðismenn hafa gert harða
hríð að menntamálaráðherra við aðra
umræðu um grunnskólafrumvarpið í
neðri deild. Umræðumar hafa nú
staðið með hléum síðan í byrjun síð-
ustu viku. Sjálfstæðismenn hafa kraf-
ist þess að frumvarpið verði tekið út
af dagskrá og segja útilokað að það
verði að lögum á þeim stutta tíma
sem eftir er af þinginu. Svavar hefur
ekki fallist á þessa kröfu og vonast
ennþá eftir að frumvarpið verði að
lögum fyrir þinglok.
Gagnrýni sjálfstæðismanna byggist
fyrst og fremst á því að frumvarpinu
fýlgja engar kostnaðar- eða fram-
kvæmdaáætlanir. Þeir telja að frum-
varpið kosti sveitarfélögin í landinu
7-8 milljarða á 10 árum og kostnaður
ríkissjóðs muni einnig aukast um
hundruð milljóna á ári. Svavar hefur
vísað þessum tölum á bug og bendir á
að Fjárlaga- og hagsýslustofnun telji
frumvarpið muni hafa í för með sér
útgjaldaaukningu upp á 1,8% á ári
eða um 2-3 milljarðar á 10 árum.
Sjálfstæðismenn segja einnig að
með frumvarpinu sé þrengt að einka-
skólum. Þeir benda á að sveitarfélög-
in séu ekki höfð með í ráðum og þeir
hafi ekki treyst sér til að mæla með að
frumvarpið verði samþykkt.
Auglýsingamar, sem birtust í Press-
unni og DV fyrir helgi, virðast hafa
hert á andstöðu sjálfstæðismanna við
frumvarpið. Þeir segja að í auglýsing-
unum sé gefið í skyn að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé á móti uppbyggingu
grunnskóla. Jafnframt gagnrýndu
sjálfstæðismenn bækling sem
menntamálaráðherra gaf út um
Lánasjóð íslenskra námsmanna og
segja þar vera á ferð dulbúinn kosn-
ingaáróður. Þeir segja það sérkenni-
legt að ráðuneytið skuli kosta og gefa
út slíkan bækling. Það eigi að vera í
verkahring LÍN að gefa hann út. -EÓ
Viðhorf til þró-
unarsamvinnu
verði könnuð
Lagt er til að gerð verði vönduð
skoðanakönnun um viðhorf þjóðar-
innar til þróunarsamvinnu og að-
stoð. Þetta er niðurstaða í áfanga-
skýrslu nefndar sem forsætisráð-
herra skipaði, sem kanna á leiðir til
að tryggja að framlag íslendinga til
þróunarsamvinnu verði 0.7%, eins
og ályktanir Sameinuðu þjóðanna
kveða á um.
í áfangaskýrslu nefndarinnar kem-
ur fram að eftir ítarlega athugun og
samráð við þingflokka sé ekki ráð-
legt að efna til Skoöanakönnun um
þetta sem hefði mikið fræðslu- og
upplýsingagildi, væri allt eins væn-
legur kostur. Á þessa tillögu hefur
forsætisráðherra fallist.
Núna, á seinni hluta starfstímabils
síns, mun nefndin kanna frekar fjár-
öflunarleiðir til að auka og tryggja
fjárframlög til þessa. Mun nefndin
gera tillögur um stefnumótun og
skipulag þróunarsamvinnu, en hún
telur að leiða megi rök að því að lág
opinber framlög til hennar megi að
hluta til rekja til þess hve viðfangs-
efni hennar séu vistuð á ólíkum
stöðum í stjórnkerfinu. -sbs.
VIRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði er endurgreiddur:
• Byggjendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna á
byggingarstað hússins.
•Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna við
viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis
síns.
• Þeir sem framleiða íbúðarhús í verk-
smiðju hér á landi geta fengið endur-
greiddan hluta virðisaukaskatts af
söluverði húsanna.
Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er
endurgreiddur virðisaukaskattur vegna
tækjavinnu né af efni sem notað er til
byggingarframkvæmda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
•RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til
sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Athygli skal vakin á því að frumrit
sölureiknings skal fylgja umsókn um
endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna
endurþóta og viðhalds. Vegna ný-
byggingar verður umsækjandi að geta
lagtfram umbeðin gögn, t.d. sölu-
reikninga þar sem skýrt kemur fram
hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir:
janúar og febrúar, mars og apríl, maí og
júní, júlí og ágúst, september og október,
nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Hvenær er
endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma skal endur-
greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
HVlTA HÚSIÐ / SlA