Tíminn - 13.03.1991, Page 7

Tíminn - 13.03.1991, Page 7
Miðvikudagur 13. mars 1991 Tíminn 7 RITSTJÓRASPJALL Sveitir kvaddar Þorsteinn Pálsson, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokkins, hafði á orði er hann hvarf frá formennsku sinni að nú myndi hann hafa meiri tíma tii að að sinna kjördæmi sínu. Hann er fyrsti þing- maður flokksins í Suðuriandskjördæmi. Þessi orð voru sögð, þegar þeir Davíð Oddsson borgarstjóri og Friðrik Sophusson þingmaður höfðu verið kjörnir formaður og varaformaður Sjálf- stæðisflokksins. Davíð Oddsson og Fríðrik Sophusson. Báðir verða þeir þingmenn Reykjavíkur. Friðrik hefur verið það, en er nú annar maður á lista flokksins í Reykjavík. Davíð Odds- son er í fyrsta sinn í fyrsta sæti flokksins í framboði til Alþingis. Báðir þessir menn eru vel að trún- aðarstörfum sínum komnir og báðir vel hæfir stjórnmálamenn. Þeir eru fulltrúar stærsta flokks landsins og verða báðir þingmenn Reykjavíkur, sem býr ekki hvað mannfjölda snertir og margvíslega aðra yfirburði við skertan hlut í strjálbýlu landi. Það er því ekki að undra þótt Þorsteini Páissyni yrði hugsað til kjördæmis síns á Suður- landi eftir að fulltrúar Reykjavíkur höfðu tekið við stjórn Sjálfstæðis- flokksins. Löngum hefur þótt kostur á þingmönnum að þeir þekktu þarfir landsmanna allra, og gerðu sér grein fyrir því að smávöxnu þjóðfé- lagi hæfir búnaður, sem ekki er við vöxt. Um sinn hefúr nokkur bólga hlaupið í einstaka sjálfstæðis- menn, sem búa við bestu kjör Reykjavíkur. Þeir hafa tilhneigingu til að líta smáum augum á það mannlíf sem hrærist utan Stór- Reykjavíkursvæðisins og lifir við fábrotnari tækifæri en þéttbýlið býður. Þeir vilja að menn vinni nokkur afrek við hlutabréfasölu og rekstur fjármögnunarfélaga, en eyða minna tali í atvinnuvegi, sem hafa nægt okkur til lífs á löngum öldum. Þeir lifa í þeirri ímynd að sveitirnar séu baggi á þjóðfélaginu, eins og þeir vilji með því hindra þá staðreynd, að þéttbýlið á íslandi er nýrunnið úr sveitalífi. Þeir tala digurbarkalega um erlend við- skipti; um stórar sölur í útlöndum, sem auðvitað eru þakkarverðar, og vilja gjarnan vita sjálfa sig og okk- ur hin komast hið fyrsta fram úr sjálfum okkur með stórum samn- ingum við útlendinga jafnt á pen- ingamörkuðum sem í viðskiptum um fiskveiðiheimildir og aðgang að atvinnulífi og landi. Stórhugur þessara manna á sér lítil takmörk. En hann er byggður á töluvert öðrum forsendum en þeir menn gáfu sér, sem gerðu auðhyggjuna, sem gleymir landi og þjóð á stórum stundum, mögu- Iega hjá hinum nýju draumóra- mönnum. Þeir sem lögðu grunn- inn höfðu hugsjónir í öfugu hlut- falli við peninga. Þeir gerðu hins vegar litla þjóð okkar efnaða, eða sjálfbjarga, með stöðugri sókn á vettvangi samhjálpar, þar sem eng- um var gleymt, hvorki af stéttar- legum ástæðum eða vegna þess að búseta þeirra hentaði ekki gróða- hyggju. Auðhyggja nýja áhrifaliðs- ins í Sjálfstæðisflokknum, sem svo mjög lét til sín taka nú á lands- fundinum, og hefur eflaust talið að formanns- og varaformannskjörið hafí alveg orðið eftir þess höfði, leiðir beinlínis af sér kröfu um að einhverjir verði hafðir útundan. Við höfum nú um skeið búið við svonefnda þjóðarsátt, þar sem rík- isstjóm, verkalýður, atvinnurek- endur og bændur hafa komið sér saman um að hver aðili leggi sitt af mörkum til að þau verðmæti, sem aflað er hverju sinni, eyðileggist ekki jafnharðan í verðbólgu. Með þjóðarsáttinni tókst í fyrsta sinn í fimmtíu ár að ná tökum á verð- bólgu. Það var þó ekki fyrr en fjár- hagur einstaklinga og fyrirtækja hafði verið lagður í rúst að stórum hluta. Þjóðarsáttin er ekki fyrr far- in að bera árangur í auknum kaup- mætti en þeir aðilar rísa upp, sem gráta með eftirsjá verðbólgu, vaxtaokur og verðbætur, og fá því ráðið að stærsti flokkur landsins gerist lífvörður kjötkatlanna í kringum fjármagnsfyrirtækin í Reykjavík. Af þessu leiðir að öðrum er ætl- að að sjá um sveitir landsins og byggðarlög við sjávarsíðuna utan Stór-Reykjavíkursvæðisins. Það er að vísu verðugt og sjálfsagt verk- efni. En það býður upp á viður- kenningu á tvískiptingu þjóðfé- lagsins. Þeir, sem eru nú að kveðja sveitir landsins með því að velja aðeins tvo efstu frambjóðendur stærsta flokksins í Reykjavík til forystu í flokknum, sýna ekki mik- inn stjórnmálalegan vfsdóm. í því máli skipta litlu stórar yfirlýsingar um, að Sjálfstæðisflokkurinn sé flokkur landsins alls. Staðreyndir tala sínu máli í því efni, ásamt linnulausum áróðri gegn þeim ör- fáu þingmönnum flokksins sem sækja atkvæðin til sveita og lands- byggðar. Hlutabréfa- og fjármögn- unarhaukar flokksins líta á orðið framsóknarmaður sem skammar- yrði. Þeir kalla þessa þingmenn Sjálfstæðisflokksins framsóknar- menn. Það er því ekkert undarlegt, þótt sú ákvörðun væri tekin á landsfundi að nú skyldi sveitin kvödd. Samkvæmt nafngiftum fjár- mögnunarhaukanna var öðrum þræði litið á Þorstein Pálsson sem einn af framsóknarmönnum flokksins. Hann galt þess að vera þingmaður Suðurlands. Þessum fjármögnunarhaukum þótti einnig miklu skipta að varaformaður flokksins yrði ekki valinn úr röð- um forystumanna flokksins á landsbyggðinni. Nú átti að reyra hnúta og það tókst. Nóg hafði rík- isstjórn Steingríms Hermanns- sonar tekist að koma á festu og samstarfi í þjóðmálum eftir óreiðu undangenginna ára, þótt ekki bættist ofan á að Sjálfstæðisflokk- urinn færi að hokra að lands- byggðinni, þar sem lítið nýttist af hlutabréfasölu og fjármögnunar- prangi, og þar sem skuldirnar urðu til. Þær verða að vísu til um allt land, líka í Reykjavík. En þær skuldir sem verða til í höfuðborg- inni eru taldar af því góða, enda ráða milliliðauppar þar flestum peningahúsum. Þannig er þá kom- ið fyrir Sjálfstæðisflokknum, sem um þessar mundir býr við best at- læti allra flokka í skoðanakönnun- um. Hann hefur sest fyrir fullt og fast að í Reykjavík, enda hefur hann þar mest fylgi, og ákveðið að láta aðra hluta af landinu eiga sig. Flokkur, sem býr nú við hluta- bréfasölu og fjármögnunarprang, hefur augastað á Efnahagsbanda- lagi Evrópu sem einskonar afa allr- ar velferðar, og telur best lifað við ríflega vexti og verðbætur, er ekki líklegur til að kæra sig um að við- halda andrúmi þjóðarsáttar. Það er líka vafamál að hann gæti það þótt hann vildi. Milliliðauppar flokks- ins skapa ekki trúnað á milli stétta. Fyrir Sjálfstæðisflokknum á því að liggja að ganga inn í sig. Fyrir þjóðfélag, sem hefur samþykkt og staðið að stórfelldum lagfæringum á efnahagslífi sínu með fullri sam- þykkt og samstöðu vinnandi stétta, er ekki fysilegt að fela Sjálfstæðis- flokknum forsjá mála. Þótt núver- andi forystumenn flokksins séu ágætir menn hvor á sína vísu, hafa örlögin hagað því svo, að þeir eru bundir við hestastein mannanna sem settu þá í forystusæti flokks- ins. Þeir munu óttast að verða uppnefndir framsóknarmenn hve- nær sem þeir víkja frá vilja og af leið milliliðauppanna. Þess vegna munu þeir aldrei þora að spyrja að sveitum þessa lands, eða lands- byggðinni yfírleitt. Þeirra hlut- skipti verður að tala til hálfrar þjóðar. Indriði G. Þorsteinsson ÚR VIÐSKIPTALÍFINU Hlutabréfamarkaður á íslandi: Enskilda-skýrslan Enskilda Securities tók 1988 saman skýrslu um hlutabréfamarkað hér á landi ásamt starfsmönnum Iðnþró- unarsjóðs og Seðlabankans, og í henni segir m.a.: „Kaupendur hlutabréfa á helstu fjár- magnsmörkuðum heims hafa til- hneigingu til að líta á arðgreiðslu og verðhækkun hlutabréfa sem eina heild við mat á heildararðsemi af fjár- festingu sinni... þar sem ekki hefur verið um verðhækkun að ræða né nokkum vettvang, þar sem fjárfestar hafa getað selt hlutabréf sín, hvort sem þau hafa hækkað eða lækkað, hafa fjárfestar á íslandi litið á arð ein- an saman fyrir heildararðsemi sína. Aðeins nýlega hefur það hlotið al- menna viðurkenningu á íslandi, að hlutabréf geta hækkað í verði, og má rekja það til umsvifa hinna tveggja miðlara." (BIs. 22) „Tilkoma verðbréfasjóðanna er einn af markverðustu þáttunum í þróun íslensks fjármagnsmarkaðar... Verð- bréfasjóðirnir eru kjörin leið til að kynna fjárfestingu í hlutabréfum. Þar sem slíkir sjóðir fjárfesta í fjölda fyr- irtækja, þá hlífa þeir fjárfestum fyrir mjög miklum sveiflum í arðsemi á sama tíma og þeir fræða þá um markaðinn ... Verðbréfasjóðir eru ekki innlánsstofnanir, heldur tæki til að safna saman fé til fjárfestinga. Sem slíkir hafa þeir því ekki þá skyldu að láta bindingartíma eigna og skulda standast á. I Bretlandi er t.d. engin bindiskylda Iögð á verð- bréfasjóði." (Bls. 25-27) 4. GREIN „í flestum þróuðum fjármagns- mörkuðum heims eru það atvinnu- íjárfestar, sem halda uppi mestum hluta af markaðsviðskiptunum. Á Is- landi teljum við hins vegar, að ein- staklingar muni hafa meiri áhrif á markaðinn... Þróun hlutabréfamark- aðarins hlýtur að vera mjög hæg, þar til almenningur sannfærist um kosti hans.“ (Bls. 28) „Við mælum með, að hlutabréfafyr- irkomulag fyrir starfsmenn sé sett upp á íslandi til að hvetja til víðtæk- ari hlutabréfaeignar meðal starfs- manna.“ (Bls. 44) „Frá árinu 1979 hefur fyrirtækjum verið leyft að auka nafnvirði hlutafjár síns með formúlu, sem tengd er almennri verðbólgu ... Ef nafnvirði hlutafjárins er þannig aukið, getur fyrirtækiö aukið heild- argreiðslur sínar til hluthafa að því tilskildu, að nægur hagnaður sé fyrir hendi ... Við teljum ekki, að útgáfa jöfnunarhlutabréfa sé nauðsynleg. Þessi árlega reikningsuppfærsla skapar mikla pappírsvinnu, en hefur hins vegar engin áhrif á hundraðs- hlut hvers hluthafa í fyrirtækinu." (Bls. 45) „í flestum Evrópulöndum er veltu- skattur lagður á eftirmarkaðsvið- skipti allt að 2%. Þegar skatturinn er þetta hár, dregur hann mjög úr eftir- markaðsviðskiptum. Engu að síður teljum við, að þegar eftirmarkaður hefur þróast á íslandi, verði hægt að leggja 0,5% veltuskatt á innlend við- skipti og þar með verði hægt að breikka skattstofn ríkisins. Þannig yrðu 0,25% greidd af hvorum um sig, kaupanda og seljanda, enda séu báðir búsettir á íslandi." (Bls. 49)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.