Tíminn - 13.03.1991, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 13. mars 1991
Tíminn 13
Frá Fósturskóla íslands
Vegna inntöku í Fósturskóla Islands nú í vor, verður
boðið upp á sérstakt könnunarpróf í íslensku, dönsku
og ensku.
Könnunarprófið er ætlað fólki 25 ára og eldra með
reynslu af starfi með börnum en með ófullnægjandi
formlega skólagöngu skv. lögum um inntökuskilyrði
skólans.
Prófið verður haldið um mánaðamótin apríl/maí á eft-
irtöldum stöðum: Fósturskóla íslands í Reykjavík,
Menntaskólanum á ísafirði, Verkmenntaskólanum á
Akureyri, Menntaskólanum á Egilsstöðum og Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum.
Skráning í síma: 91-83866 og 91- 83816 daglega
kl. 14.00-15.30.
Skráningarfrestur til 22. mars nk.
Umsækjendur fá síðan sendar upplýsingar um fyrir-
komulag prófa ásamt sýnishornum af lesefni, sem er
sambærilegt því efni sem lagt verðurfyrir í prófunum.
Skólastjórí.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Traustir hlekkir
í sveiganlegrí keðju
hringinn í kringum landið
Bílaleiga með útibú
ailt i kringum landið.
gera |)ér miiguiegí að ieigja bíl
á einum stað
«g skila honunt á uðruin.
Nvjustu
MITSUBISHI
bílarnir alltaf tii tak.s
rr
Revkjavfk: 91-686915
Akureyri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísafjörður: 94-3574
Illönduós: 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egíisstaðir: 97-11623
Vopnafjurður: 97-31145
Höl’n í Hornaf.: 97-81303
SKEIFAN 7
S: 91-680640
Fax: 91-680575 B/S 98533343
P.V.C. Plastgluggar
í gripahúsin
Varanleg
lausn á
viðráðan-
legu verði
ODYRIK
HELGARFAKKAR
Okeypis
HÖNNUN
auglýsingar
PEGflR ÞÚ
AUGLÝSIR í
Tímanum
AUGLÝSINGASÍMI
680001
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 w
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhofða 2
Sími 91-674000
SPEGILL
Villur
íbíó-
myndum
Það er ekki furða þó að áhorfend-
um haft þótt orrustuatriðið um
Atlanta í Á hverfanda hveii raf-
magnað. Þar má nefnilega sjá
Scarlett O’Hara hlaupa fram hjá
20. aldar ljósastaurum þó að
myndin hafi átt að gerast 60 árum
áður en götur voru raflýstar.
Þetta eru svo sem ekki einu mis-
tökin sem hafa lent á hvíta tjald-
inu. Frægt er að hárið á Judy Gar-
land styttist og lengdist sitt á hvað
í myndinni „The Wizard of Oz“
sem gerð var 1939. í myndinni
Stjörnustríð, sem gerð var 1979,
má heyra Mark Hamill heilsa Leiu
prinsessu sem „Carrie“, en það er
einmitt leikkonan Carrie Fisher
sem fer með hlutverk Leiu.
Þá er það orðið frægt þegar fanga-
númer Elvis Presleys breytist í
miðjum klíðum í myndinni ,Jail-
house Rock“ (1957). í myndinni
„The King and 1“ (1956) bregður
Yul Brynner fyrir ýmist með
eymalokk eða ekki í sama atriðinu.
í myndinni „Jewel of the Nile“
(1985) stekkur Kathleen lúrner
ofan af húsþaki á lest. Á fótunum
ber hún strigaskó. Hún dettur og
rígheldur sér í hlið lestarvagnsins.
Á fótunum ber hún leðursandala.
Þegar búið er að bjarga henni er
hún aftur komin á strigaskóna.
í myndinni Casablanca, sem gerð
var 1942, rifjar Ilsa (Ingrid Berg-
man) upp að hún hafi verið í kjól
síðasta daginn sem hún var með
Rick í París. Mynd sýnir aftur á
móti að hún var í drakt.
Jafnvel Alfred Hitchcock gat orð-
ið á í messunni. T.d. má sjá í
myndinni North by Northwest
(1959) að lítill drengur grípur fyr-
ir eyrun áöur en Eva Marie Saint
nær að hleypa af byssunni á Cary
Grant.
1916 var myndin „Intolerance"
gerð og þar er sýnd árás Persa á
múr í hinni fomu Babýlon. En
hvemig stendur á nærveru ná-
ungans í lafafrakka og með bindi?
Einn kvikmyndatökumannanna
hafði óvart þvælst fyrir auga
myndavélarinnar. Myndin „Hallo-
ween“ (1978) átti að gerast í 111-
inois, en allir bílarnir báru núm-
eraplötur frá Kaliforníu.
Spartacus var gerð 1960 og þar
Hárið á Judy Gariand styttist og lengist á víxl í „The Wizard of Oz“.
Elvis Presley breytti um fanganúmer í myndinni „Jailhouse Rock,“
án þess að nokkur tæki eftir því týrr en myndin var komin á hvíta
tjaldiö.
áttu rómverskir hermenn í hat-
römmum bardögum. Þeir voru
svo sannarlega á undan sinni sam-
tíð því að sumir þeirra báru arm-
bandsúr, og einn þeirra er í tennis-
skóm. í ,Jaws“, sem gerð var 1975,
á eitt atriðið að fara fram 4. júlí.
En það er ekkert lauf á trjánum þó
að um hásumar sé, myndatökurn-
ar fóru fram í maí.
Fæddur fjórða júlí, var gerð
1989. Söguárið var 1969 og verið
var að leika lagið ,American Pie“,
sem er svo sem gott og blessað
nema það að platan var ekki gefin
út fyrr en 1971.
Morse lögregluforingi heitir
í höfuöiö á bankastjóra
Þegar dugnaðarmaðurinn sir
Jeremy Morse, stjórnarformaður
Lloyds Bank með 190.000 sterl-
ingspunda árslaunin, viidi slaka á
eftir fjármálaspennuna í City í
London, var hann vanur að taka
þátt í krossgátukeppni.
Þegar hann atti kappi við frekar
feiminn og heyrnarsljóan uppeld-
isfræðing datt honum síst af öllu
í hug að einn góðan veðurdag
yrði nafnið hans tekið traustataki
handa leynilögreglumanni sem
leysir ráðgátur eins léttilega og
hann sjálfur krossgáturnar og
yrði alþekkt í augum milljóna
sjónvarpsáhorfenda sem Morse
leynilögregluforingi.
Það er ekki fyrr en nýlega sem
upplýst hefur verið um hvar
nafnið á lögregluforingjanum er
fengið, frá einum voldugasta
bankamanni Englands.
„Guðfaðir" leynilögreglufor-
ingjans, Colin Dexter, sem
hleypti honum af stokkunum
fyrir 18 árum, segir að árum
saman hafi þeir sir Jeremy háð
baráttu sína í krossgátukeppni
um Englandsmeistaratitilinn.
„Hvor okkar varð Englands-
meistari sex eða sjö sinnum.
Þetta var lítill og náinn hópur og
ég varð mikill aðdáandi banka-
stjórans. Þannig að þegar ég
skrifaði fýrstu glæpasöguna
mína ákvað ég að láta söguhetj-
una bera nafn hans til að sýna
virðingu mína fyrir færni hans til
að ráða gátur.“
Hins vegar segist Dexter hafa
fengið nafnið á aðstoðarmanni
Morses, Lewis, frá konu sem
vann við það á blaðinu The Obs-
erver að semja allar spurning-
arnar fyrir „Everyman puzzles".
í Englandi eru nú nýhafnar sýn-
ingar í sjónvarpi á fimm nýjum
tveggja stunda þáttum um Morse
lögregluforingja og lið hans.
Morse lögregluforingi þykir snjall að finna lausnir á ráðgátum.
Bankastjórinn var snillingur í að ráða krossgátur.