Tíminn - 27.03.1991, Síða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 27. mars 1991
7.700 manns bíða eftir láni frá Húsnæðisstofnun, en árlega eru byggðar um 1400-1500 íbúðir:
22 milljörðum er varið
til opinberra framkvæmda
Talið er að framkvæmdir við byggingar og mannvirki hafi dregist
saman um 6-7% á síðasta ári. Þetta er svipaður samdráttur og ár-
ið á undan (5-6%). Þjóðhagsstofnun spáir að umsvif í verktaka-
starfsemi yerði svipuð á þessu ári og á árinu 1989, en Verktaka-
samband ísland spáir 3% samdrætti á árinu. Óvissuþátturinn í
spánni er mikill vegna þess að ekkert er vitað um hvort einhverj-
ar áiversframkvæmdir verða á þessu ári.
Fjárfesting í íbúðarhúsnæði hefur
að mestu haldist óbreytt síðustu tvö
ár. í þjóðhagsspá er reiknað með 5%
aukningu í íbúðabyggingum á
þessu ári, en Verktakasambandið
reiknar með 3-5% samdrætti.
Áframhaldandi samdráttur varð í
byggingu verslunar- og skrifstofu-
húsnæðis á árinu 1990 (15-20%) en
þær framkvæmdir voru með mesta
móti á áriunum 1984-1987. Gert er
ráð fyrir að á þessu ári verði fram-
kvæmdir við slíkar byggingar svip-
aðar og þær voru í fyrra.
Byggingar hins opinbera drógust
saman um 9% á árinu 1990 og í
samgöngumálum varð 4% sam-
dráttur miðað við árið á undan.
Hins vegar jukust virkjanafram-
kvæmdir um 45% á árinu 1990, en
þar munar mest um Blönduvirkjun.
Reiknað er með um 12% samdrætti
í virkjunarframkvæmdum á þessu
ári, en ekki er útilokað að virkjunar-
framkvæmdir aukist ef samningar
um byggingu álvers nást á árinu.
Reiknað er með að 22 milljörðum
verði varið til opinberra fram-
kvæmda á þessu ári, sem eru um
2% minna en í fyrra. í þessu sam-
bandi skiptir mestu máli að fram-
kvæmdum er að mestu lokið við
Nesjavallaveitu og framkvæmdir við
Blöndu eru komnar á lokastig. Um
8% meira fjármagni er veitt til vega-
mála á þessu ári en á síðasta ári.
Spáð er um 13% samdrætti í fram-
kvæmdum við flugvelli á þessu ári.
Þá er spáð nokkurri aukningu í
byggingu opinberra bygginga. Til
skóla og íþróttamannvirkja verður
varið um 2.900 milljónum, til bygg-
inga sjúkrahúsa 1.650 milljónum
og til annarra opinberra bygginga
3.200 milljónum. Á þessu ári verður
lokið við tvær stórar byggingar sem
hafa kostað einhverja milljarða, en
það er ráðhús í Reykjavík og veit-
ingahús á Öskjuhlíð.
Talið er að þjóðin byggi íbúðarhús
fyrir 15-16 milljarða á þessu ári.
Þjóðhagsstofnun reiknar með að
íbúðabyggingar aukist um 5% á ár-
inu, en Verktakasambandið telur að
íbúðabyggingar dragist saman um
3- 5%.
Á síðasta ári urðu verktakar varir
við erfiðleika við að selja nýbyggðar
íbúðir. Tálið er að nú séu um 200-
300 íbúðir, fokheldar eða lengra
komnar, óseldar á markaðinum.
Ástæðan er minni eftirspurrt vegna
almenns samdráttar í þjóðfélaginu.
Miklu meira var byggt af félagsleg-
um íbúðum á síðasta ári, en árin þar
á undan og er líklegt að það hafi haft
áhrif á eftirspurn eftir nýbygging-
um. Á síðasta ári voru byggðar 823
félagslegar íbúðir. Hjá Húsnæðis-
stofnun liggja fyrir tæplega 1.800
umsóknir um lán til bygginga fé-
lagslegra íbúða af þeim um 7.700
umsóknum sem liggja fyrir hjá
stofnuninni. Árleg þörf fyrir nýjar
íbúðir er hins vegar áætluð 1400-
1500 íbúðir. -EÓ
Dansk
■
mm IIAV.
Ir VOr"
dagar
Danskir vordagar er heltl á röð
skemmtana sem haldnar verða í
Reykjavík. Að þeim standa Lista-
safn Íslands, Norræna húsið, Jazz-
vakning, Básarkvintett Reyýavík-
ur, Listasalurinn Nýhöfn, Mál og
menning, Kammermúsíkklúbbur-
inn, Háskólabfó, Dansk-íslenska
félaglð og Sendiráð Danmerkur.
Fyrsti danski vordagurinn er
laugardagurinn 23. mars. Þá opnar
Listasafn íslands sýningu á verk-
um danskra súrrealista frá árunum
1930-1950. Sýnd verða verk eftir:
Harry Carlsson, Wilhelm Freddie,
Ritu Kernn Larsen, Vilhelm Bjerise
Petersen og Elsu Thoresen. Sýn-
ingin stendur til 5. maf og aðgang-
ur er ókeypis.
Nánar verður greint frá dagskrá
Danskra vordaga þegar nær dregur.
Aðstandendur Danskra
vordaga ( Reykjavík
Tfmamynd: Áml BJarna
Nýjar Búsetaíbúðir
I síðustu viku afhenti húsnæðissamvinnufélagið Búseti á höfuð-
borgarsvæðinu hundruðustu íbúðina sem félagið hefur byggt.
fbúðin er í nýju fjölbýlishúsi að Trönuhjalla 13-17 í Kópavogi og
meðal viðstaddra var Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra.
Einnig var kynnt hvað er að gerast hjá búsetafélögunum og fleira í
tilefni að því að 19. mars sl. voru samþykkt á Alþingi, lög um hús-
næðissamvinnufélög og búseturétt. GEÓ
Skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna:
Tæp 40% tóku
ekki afstööu
í skoðanakönnun sem DV gerði um
helgina og birti í gær um fylgi flokk-
anna hlýtur Framsóknarflokkurinn
20,2% fýlgi þeirra sem tóku afstöðu
og 13 þingsæti. Alþýðuflokkurinn hef-
ur 11,1% fylgi og 7 þingsæti, Sjálf-
stæðisflokkur 51,8% og 33-34 þing-
sæti, Alþýðubandalag 9,1% og 5-6
þingsæti og Kvennalisti 6,6% og 4
þingsæti og er þá miðað við þá sem
tóku afstöðu í könnuninni. Flokkur
Kaupfélag Skagfirðinga:
Mllgóð
afkoma
Frá Guttormi Óskarssyni
fréttaritara Tímans á Sauðár-
króki.
Rekstrarhagnaður Kaupfélags
Skagfirðinga reyndist 57 miilj-
ónir. Höfuðástæður þessarar
sæmilegu afkomu eru að sögn
Þórólfs Gísiasonar kaupféiags-
stjóra lág veröbólga og hóflegir
kjarasamningar, auk ýmissa
hagræðingaraðgerða sem skil-
uðu árangri á rekstrarárinu.
Rekstrartekjur kaupfélagsins
hækkuðu um 16,5% milli ára
og námu alls kr. 2.037 milijón-
um. Verslunin kom betur út á
árinu en undanfarin ár. Hjá
Skagfirðingabúð varð veitu-
aukning um 20% og verslunin í
fyrsta sinn rekin með hagnaði.
Fjármunamyndun rekstrarins
varð 143 milljónirkr.
Sameiginieg heildarvelta Kaup-
félagsins og Fiskiöjunnar nem-
ur rúmum þremur milljörðum
kr. Hcildarfjárfestingar KS á ár-
inu voru um 110 milljónir. Eig-
ið fé í árslok var 815 milljónir
kr. sem er um 41% eiginfiár-
hlutfall. Eigiö fé jókst milli ára
um 30%.
í árslok störfuðu207 fastráðn-
ir starfsmenn hjá KS, þar af
voru 36 í hálfu starfi. Launa-
greiðslur námu afls 296 millj-
ónum kr. á árinu.
Mannsins, Heimastjómarflokkurinn
Verkamannaflokkurinn og Þjóðar-
flokkur hljóta allir 0,3% atkvæða, en
engin þingsæti. Aðrir hlutu engin at-
kvæöi í könnuninni.
Einungis 60,2% aðspurðra tóku af-
stöðu í könnuninni, en 35,5% voru
óákveðin og 4,3% neituðu að svara. Úr-
takið í könnuninni var 600 manns,
jafnt var skipt á milli kynja og jafnt
miili höfðuborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar. Spurt var: Hvaða lista
myndir þú kjósa, ef þingkosningar
færu fram nú?
Einnig var fylgi flokkanna í Reykjavík
og á Reykjanesi kannað. Þar kom fram
að Framsókn fengi 13,1% atkvæða og 2
kjörna í Reykajvík og 15,5% atkvæða á
Reykjanesi og 2 kjörna. —GEÓ
Skipstjórar á loðnuskipum álykta:
Stofnmælingar
á loðnu eru ekki
ábyggilegar
Skipstjórar á loðnuskipum hafa
sent frá sér eftirfarandi ályktanir
sem samþykkt var á fundi þeirra
21. mars sl. í fyrsta lagi að veiði-
stofn loðnuvertíðina 1990-1991
hafi verið mun stærri en vertíðina
þar á undan, en þá var leyft að
veiða um 800 þús. tonn. I öðru
lagi álitu fundarmenn að stofn-
mælingar á loðnu séu ekki ábyggi-
legar, sökum ósannfærandi mæl-
ingaaöferöa og vegna breytilegra
aðstæðna hér við land.
í þriðja lagi taldi fundurinn að
mikilvægt væri að endurmeta þurfi
þéttleikastuðla, sem notaðir eru við
stofnmælingar á loðnu. í fjórða lagi
telur fundurinn nauðsynlegt að
ákveða lágmarkskvóta við upphaf
hverrar loðnuvertíðar. „í þessu
sambandi mætti t.d. styðjast við
álega meðalveiði undanfarin X ár“
segir í ályktuninni. í fimmta lagi
krefst fundurinn þess að ekki verði
endurnýjaðir samningar við önnur
ríki um veiðirheimildir loðnu inn-
an íslenskrar iandhelgi.
Auk þessa tilnefndi fundurinn
fjóra fulltrúa til að fylgja eftir ofan-
greindum atriðum og leggja þeir til
eftirfarandi: Að stofnmælingar
fiskifræðinga á loðnu verði teknar
til gagngerrar endurskoðunar. Að
dregin verði saman reynsla af stofn-
mælingum loðnu frá undanförnum
áratugum og spár fiskifræðinga og
reynslutölur bornar saman. Að
nauðsynlegt sé að auka samstarf
milli fiskifræðinga og loðnusjó-
manna, t.d. með aukinni kynningu
á vinnu og starfsvettvangi hvors
annars og að komið verði á fót ráð-
gjafanefnd vegna loðnuveiða, skip-
uð fiskifræðingum og skipstjórum
loðnuskipa.