Tíminn - 27.03.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKI3SKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hotnarhusinu v Tryggvogotu,
S 28822
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-76-91
HOGG-
DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
ppL,
OJvarahlutir
K Hamarsböfda I - s. 67-674^J'
I j niiim
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1991
Vélbáturinn Jósep Geir ÁR 36 sökk út af Knarrarósvita:
SJ ■■ 0 1A l 1 IAÁ \ Fl IVA R
BJARGAÐ GIFTUSAMLEGA
Sjö skipveijum af vélbátnum Jósep Geir ÁR-36 var bjargað
giftusamlega þegar báturinn sökk út af Knarrarósvita í gær-
morgun. Annar bátur, Fróði ÁR-33, var skammt undan og kom
stundu síðar á vettvang og bjargaði skipverjum.
Að sögn Guðfinns Karlssonar,
skipstjóra á Fróða, var það um 9
leytið í gærmorgun sem neyðar-
kall frá Jósep Geir barst í gegn-
um Vestmannaeyjaradíó. Þá
hafði mikill leki komið að bátn-
um þar sem hann var staddur 7
mílur út af Knarrarósvita, sem
er rétt austan við Stokkseyri.
Fróði var skammt undan og liðu
aðeins fáar mínútur þar til
hjálpin barst.
„Þegar við komum að voru fjór-
ir menn í björgunarbáti og við
tókum þá strax um borð. Síðan
fórum við alveg að afturendan-
um á Jósep Geir. Þar svömluðu
þrír menn í flotgöllum sem við
tókum um borð. Svo að segja um
leið sökk báturinn," sagði Guð-
finnur Karlsson. Fróði kom síð-
an að bryggju í Þorlákshöfn um
klukkan 11 þar sem vinir og ætt-
ingjar skipbrotsmannana biðu
þeirra.
Lögreglan í Árnessýslu tók
skýrslur af skipverjum í gær og
sjópróf fara bráðlega fram. Þá
skýrist hvað olli þessum atburði.
Jósep Geir var 47 tonna eikar-
bátur, 47 tonn og í eigu Hrað-
frystihússins á Stokkseyri. Skip-
stjóri var Benedikt Hallgríms-
son.
-sbs.
Skeytasendingar milli Ólafs Ragnars og lækna halda áfram:
Engin afsökun frá Ólafi
Árið 1989 höfðu 65 læknar yfír 4
milljónir í laun frá Launaskrifstofu
ríkisins og í verktakagreiðslur frá
TVyggingastofnun. í fyrra voru
meðallaun hjúkrunarfræðinga 1,3
milljón, sjúkraliða og þroskaþjálfa
um ein milljón og ljósmæðra rúm-
lega 1,2 milljónir. Þetta kom fram á
blaðamannafundi sem Ólafur Ragn-
ar Crímsson fjármálaráðherra hélt í
gær, en á fundinum svaraði hann
þeim skeytum sem læknar hafa sent
honum á síðustu dögum.
Læknar kröfðust þess í fyrradag að
fjármálaráðherra bæðist afsökunar á
ummælum sem hann lét falla í við-
tali í sjónvarpinu. Ólafur Ragnar
neitar að biðjast afsökunar og bendir
því flest til þess að læknar stefni ráð-
herranum fyrir meiðyrði.
Fjármálaráðherra lét blaðamönn-
um í té skrá yfir launagreiðslur til 65
lækna sem hæstar tekjur höfðu á ár-
inu 1989. Sá hæsti fékk röskar 49
milljónir greiddar. Einn fékk 18,3
milljónir, næsti 9 milljónir og sá
fjórði 8,5 milljónir. Af þessum 65
læknum voru 37 með yfir 5 milljón-
ir í laun og 23 sem höfðu yfir 6 millj-
ónir í laun. Þessar upphæðir eru all-
ar á verðlagi ársins 1989 og má
hækka þær um 15-20%. Inn í upp-
hæðirnar vantar laun sem greidd eru
frá Háskóla íslands og jafnframt
vantar inn í þær greiðslur sem sjúk-
lingur greiðir sjálfur beint til lækn-
isins, en þær eru allt að 900 kr. fyrir
hvert skipti. Stór hluti af upphæðun-
um er hins vegar kostnaður lækna
sem reka læknastofur og eiga dýr
tæki. Þessi reksturskostnaður er
mjög mismunandi og getur verið
meira en helmingur af greiðslum frá
Trvggingastofnun.
Ólafur Ragnar sendi í gær læknum
bréf þar sem hann svarar bréfi
lækna, en í því er þess m.a. krafist að
hann biðjist afsökunar á ummælum
sínum. í ráðherrabréfinu rekur Ólaf-
ur lið fyrir lið hvað hann átti við í
umræddu viðtali og vísar jafnframt í
greinargerð sem læknar lögðu fram í
samningaviðræðum í janúarmánuöi
síðastliðnum. í lok bréfsins segist
Ólafur Ragnar vera tilbúinn til við-
ræðna við lækna um þau málefni
sem deilt hefur verið um á síðustu
dögum. Hann segir að ekki sé óeðli-
legt að slíkur fundur sé öllum opinn.
Ólafur Ragnar sagðist vilja ræða við
lækna um hvernig heilbrigðiskerfi
við viljum hafa, einkum þó hvort
ástæða sé til að láta vinna Iæknisverk
í verktakaþjónustu. Ólafur Ragnar
gagnrýndi verktakafyrirkomulagið
harðlega. Hann sagði að þar væri á
ferðinni kerfi sem gerði læknum
kleift að margfalda tekjur sínar. Ólaf-
ur Ragnar gaf einnig í skyn að sumir
læknar á sjúkrahúsum væru að
vinna læknisverk úti í bæ á þeim
tíma þegar þeir ættu að vera í vinnu
á sjúkrahúsunum. Hann sagði a.m.k.
undarlega andstöðu lækna við að
nota stimpilklukku. -EÓ
Flugleiðir:
Allt stefnir
í verkfall á
fostudaginn
Félagsdómur tók í gær fyrir Flugleiða hafa staðið yfir um
stefnu Vinnuveitendasambands nokkurt skeið. Flugleiðir hafa
íslands á hendur Félagi ís- ekki viljað ganga að launakröf-
lenska atvinnuflugmanna um um flugmannana, en sam-
að boðað verkfall flugmanna kvæmt útreikningum félagsins
Flugleiða yrði dæmt ólögmætt. jafngilda þær 80% launahækk-
Félagsdómur tekur ákvörðun un.
um frekara framhald málsins. Þegar Flugleiðir leituðu til
Að sögn Þórarins V. Þórarins- VSÍ var málið komið í þrátefll.
sonar, framkvæmdastjóra VSÍ, VSÍ leitaði síðan til Félags-
er stefna VSI í þessu máli í dóms. Lögfræðingur FÍA hefur
tveimur meginliðum. Annars nú fengið frest fram yfír jpáska
vegar að FÍA sé óheimilt að til að skoða stefnu VSI. Því
skipta sér af hverjir skipi þykir einsýnt að flugmenn
samninganefnd VSÍ og Flug- Flugleiða fari í sólarhrings-
leiða í þessu máli og hins vegar verkfall 29. mars, á föstudegin-
að FÍA verði skaðabótaskylt um langa. Það ætla flugmenn
gagnvart Flugleiðum vegna að gera vikulega og eða þar til
ólögmætrar vinnustöðvunar. gengið verður að kröfum
Viðræður milli flugmanna og þeirra. -sbs.
Framkvæmdastjórn Ferðamálaráðs:
Lýsir áhyggjum vegna
kjaradeilu flugmanna
Framkvæmdastjórn Ferða- afar viðkvæm fyrir áföllum.
málaráðs samþykkti ályktun á Jafnvel eins dags verkfall hefur
fundi sínum 26. mars sl. þar víðtækar afleiöingar í grein-
sem hún lýsir þungum áhyggj- inni,“ segir í ályktuninni.
um vegna þeirrar deilu, sem í ályktuninni segir jafnframt
risin er milli Félags íslenskra aö framkvæmdastjórn Ferða-
atvinnuflugmanna og vinnu- málaráðs vilji láta í Ijós „ein-
veitenda þeirra. dregna ósk um að deiluaðilar
„Röskun á samgöngum hefur nái samkomulagi hið fyrsta svo
mikil áhrif á ferðaþjónustu sem óvissuástandl megi létta og
er atvinnugrein í örum vexti og komist verði hjá frekara tjóni.“