Tíminn - 04.04.1991, Síða 2
2 Tíminn
Fimnhtudágur 4. apríl 991
Níundi þáttur deilu Ólafs Ragnars og lækna: Ölafur ritar læknum nýtt bréf:
Rifist um hvernig eigi að
lesa bréf forsætisráðherra
Rifrildið milli ólafs Ragaars Grímssonar fjármálaráðherra og
iækna virðist engan endi ætla að taka. Þar var síðast komið sögu
að forsætisráðherra hafði svarað síðasta bréfi lækna og lýst því
yfir að hann styddi ekki ummæli fjármálaráðherrans. Læknar
fögnuðu því, en fjármálaráðherra sagði þá ekki lesa allt bréfið,
Það síðasta sem gerst hefur í þessari gagnmetku deilu er að Ól-
afur Ragnar hefur sent læknum enn eitt bréfið þar sem hann
leggur tii að stofnuð verði nefnd sem geri tiliögur um hvemig
eigi að leggja niður verktakakerfið.
Jafnframt býðst fjármalaránherra
til að flytja frumvarp á næsta þingi
um að laun lækna verði ákveðin
með kjaradómi.
Ólafur Ragnar hélt blaðamanna-
fund í gær þar sem hann kynnti
bréf sitt til lækna og þær tlllögur
sem í því felast. Fram kom á fund-
inum að Ólafur er óánægður með
hvemig læknar sögðu fjölmiðlum
frá bréfí forsætisráðherra. Hann
sagði að þeir hefðu tekið úr því það
sem þeim hentaði, en sleppt því
sem þeim féil eidd eins vel við.
í bréfl Steingríms Hermannsson-
ar forsætisráðherra til Læknafélags
Rcylqavíkur og Læknafélags ís-
lands, segir forsætisráðherra að
hann styðji ekki ummæli fjármála-
ráðherra. Hann seglst hins vegar
eldd hafa heyrt þær hótanir sem
fjármálaráðherra vísar tíl, en fjár-
málaráðherra hijóti að taka fulla
ábyrgð á þeim ályktunum sem
hann dregur af viðræðum sínum
við lækna.
Steingrímur segist eldd trúa því að
nokkur iæknir vanræki sjúklinga
sfna vegna kjarabaráttu. Steingrím-
ur segist lengi hafa verið þeirrar
skoðunar að áícveða eigi kjör lækna
á sjúkrahúsum með kjaradómi.
Hann segist jafnframt telja að
læknar á sjúkrahúsum eigi al-
mennt að starfa þar fullan tíma og
að aðskilja eigi betur en nú er gert
þá þjónustu sem veitt er á sjúkra-
búsum, annars vegar, og af sjálf-
stætt starfandi sérfræðingum hins
vegar.
I bréflnu tekur forsætisráðherra
fram að honum þyki ýmsar setn-
ingar í greinargerð með kröfum
iækna frá janúar s.I „afar óviðeig-
andi“. Hann segist treysta því að
slíkt hafi verið sett á blað að lítt
hugsuðu máli, íhita deilunnar.
Ólafur Ragnar sagði á blaða-
mannafundinum í gær að bréf for-
sætisráðherra sfyddi þau efnislegu
rök sem hann hefði hafl fram að
færa í þessari deilu. Nauðsynlegt
væri að skilja að verktakakerfið,
sem sérfræðingar í læknastétt hafa
komið upp, frá starfsemi sjúkra-
húsanna. Ólafur sagðist sjálfur
vera þeirrar skoðunar að ieggja ætti
þetta kerfl nlður. Ólafur sagðist
einnig telja að Kjaradómur ætti að
ákveða laun iækna, líkt og laun
presta, dómara og fleiri stétta.
Til hægðarauka fyrir lesendur,
sem sumir hverjir eru búnir að tapa
söguþræðinum í þessum sjónleik,
skal hér riíjað upp það helsta sem
gerst hefur í hveijum þætti. í fyrsta
kafla var haft viðtal við Ólaf Ragnar
í sjónvarpi þar sem hann sagði
lækna hóta sér með dauða sjúk-
linga ef hann borgaði ekki. í öörum
kafla mótmæltu læknar þessum
ummælum og kröfðust þess að
ráðherra drægi orð sín til baka og
bæðist afsökunar. í þriðja kafla vís-
aði Ólafur tfl greinargerðar, sem
iæknar lögðu fram í kjaradeilu
lækna í janúar, og sagði að þar væri
sér hótað. í íjórða kafla sendu
læknar ÓÍafi bréf þar sem hann er
krafinn um afsökunarbeiðnL í
flmmta kafla sendi Óiafur læknum
bréf þar sem hann segist ektó ætía
að biðjast afsökunar. í sjötta kafla
sendu læknar forsætisráðherra bréf
þar sem þelr spyrja hvort hann
styðji ummæli Ólafs. í sjöunda
kafla sendi forsætisráðherra bréf,
en efni þess er nddð hér að ofan. I
áttunda kafla sögðu læknar fjöl-
miðlum firá bréflnu og í siðasta
kafla sendi Ólafur læknum bréf og
hélt blaðamannafund af því tilefhi.
Hvað mun gerast í tíunda kafla?
Munu Iæknar senda enn eitt bréfið
og hvað gerir ólafúr Ragnar þá?
Mun hann senda annað bréf og
halda enn einn blaðamannafund-
inn? EÓ
Flugmannadeilan:
Dómssátt í verkfallsmálinu:
Enn fundað hjá
sáttasemjara
Annar fundur var haldinn hjá Sátta-
semjara ríkisins í gær i kjaradeilu
Félags íslenskra atvinnuflugmanna
og Flugleiða hf. Fundurinn hófst
kl. 14 í gær og stóð fram á kvöld.
Aðalumræðuefni fundarins voru
vinnutímareglur og vinnutilhögun.
Búist er við að samningaviðræður
haldi áfram næstu daga.
Stefnu Flugleiða á hendur flug-
manna vegna boðaðs verkfalls 29.
mars sl„ en því var frestað með
tveggja daga fyrirvara, lauk í gær
með dómssátt í Félagsdómi.
Dómssátt var ákveðin í ljósi þess að
boðaðri vinnustöðvun var aflýst
tveimur dögum áður en hún kom til
framkvæmda og þar sem samninga-
viðræður hafa nú hafist með eðlileg-
um hætti, enda beri hvor aðili sinn
kostnað af málinu.
Einnig tókst samkomulag um að
FÍA viðurkenni rétt VSÍ og Flugleiða
hf. til að ákveða skipan samninga-
nefndar og hverjir komi fram fyrir
hennar hönd í viðræðum við FÍA.
—GEÓ
Frestur til úrbóta á sjóðvélum og sölureikn-
ingum, sem um 800 fyrirtæki fengu í febrúar,
er liðinn og eiga þau von á heimsókn frá
skattrannsóknarstjóra innan skamms:
Lokað verður
hjá trössunum
Frestur sá, sem sérsveit skattrann-
sóknarstjóra gaf verslunum og fyr-
irtækjum sem ekki voru með sjóð-
vélar eða sölureikninga í Iagi, er um
það bil að renna út og mega aðilar,
sem fengu athugasemd, eiga von á
heimsókn næstu daga. Þeir, sem
hafa trassað að sinna þessum at-
hugasemdum, mega eiga von á því
að fyrirtækinu verði lokað.
Eftirlitsátak þetta hófst í febrúar sl.
eftir að Alþingi samþykkti lög um
skýrar lokunarheimildir skattrann-
sóknarstjóra. í þeim lögum er til-
skilinn 45 daga frestur ,til úrbóta frá
því starfsmenn skattrannsóknar-
stjóra hafa komið athugasemdum
sínum á framfæri, og er sá frestur
nú liðinn hjá þeim fyrirtækjum sem
fyrst voru heimsótt. Þeir forsvars-
menn fyrirtækja, sem ekki hafa
sinnt þessum athugasemdum, geta
átt það á hættu að lögregla verði
kölluð til og fyrirtækinu lokað þar
til úrbætur hafa verið gerðar.
Starfsmenn skattrannsóknarstjóra
heimsóttu rúmlega 1800 fyrirtæki
og var úrbóta krafist hjá tæplega 800
fyrirtækjum. Átakið náði til fyrir-
tækja í Reykjavík, Kópavogi, Kefla-
vfk og annars staðar á Suðurnesjum,
á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu og
í Vestmannaeyjum. Af þessum svæð-
um virtist ástandið einna best hjá
fyrirtækjum á Dalvík og í Vest-
mannaeyjum. Eftirlitsheimsóknir í
fyrirtæki halda áfram af fullum
krafti samhliða endurskoðun. Nú er
haldið áfram eftirliti í Reykjavík, en
á næstu vikum er ætlunin að heim-
sækja fyrirtæki á Suðurlandi og á
Norðurlandi vestra. —SE
Það þjónaði landsmönnum í 61 ár áður en það var fellt. Timamyndir: Ámi Bjama
Langbylgjumastrið fellt
í gær var fellt 150 metra hátt langbylgjumastur Pósts
og síma á Vatnsendahæð. Þar stóð það í 61 ár og flutti
landsmönnum öllum, til sjávar og sveita, dagskrá Rík-
isútvarpsins.
Upphaflega voru möstrin tvö. Annað þeirra féll í óveðr-
inu mikla 3. febrúar. Þar með varð hitt ónothæft, svo
langbylgjusendingar Útvarps lögðust af.
Nauðsynlegt þótti að fella mastrið, sem eftir stóð, af
tveimur ástæðum. Það var orðið svo ryðgað að mönnum
stafaði hætta af því.
Auk þess varð að rýma fyrir bráðabirgðamöstrum sem
rísa eiga á sama stað nú í sumar. Sumum var þó greini-
lega sárt um gamla mastrið, og hefðu helst viljað friða
það. Nýju bráðabirgðamöstrin eru mun minni en þau
gömlu og draga því styttra. Eftir að Útvarpið hóf send-
ingar á FM, beinist langbylgjan helst að sjómönnum á
hafi úti og íbúum afskekktra sveita.
Meðan FM-sendingar ná ekki til þeirra þykir nauðsyn-
legt að senda út á langbylgju. Þess vegna hefur mennta-
málaráðherra skipað starfshóp til að vinna tillögur um
langbylgjusendingar útvarps í framtíðinni.
A grundvelli þeirra skal ákveða hvort reist verður ný
langbylgjustöð, eða sendingarnar lagðar af með öllu.
-aá.
/