Tíminn - 04.04.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 4. apríl 991
ÚTLÖND
Fréttayfirlit
NIKÓSÍA - (rösk yfirvöld lýstu
yfir í gær að þau hefðu bælt nið-
ur uppreisnina í Kúrdistan og
hvöttu alla þá, sem hefðu yfir-
gefið heimili sín, til að snúa aftur.
Oðrum en þeim, sem hefðu
gerst sekir um að brjóta lög, yrði
ekki refsað, sagði í tilkynning-
unni sem lesin var í útvarpinu í
Bagdad.
NIKÓSÍA - Hundmö þúsunda
Iraskra Kúrda flýja nú undan
íraska stjómarhemum, en fólkið
óttast hefndaraðgerðir af hálfu
íraskra yfirvalda vegna upp-
reisnarinnar. Vegir til írans og
Tyrklands eru yfirfúllir af flótta-
fólki og farartækjum. Þyriur og
flugvélar iraska flughersins gera
loftárásir á flóttafólkið. Yfirvöld i
(rak sögðust í gær hafa náö
seinasta mikilvæga vígi upp-
reisnarmanna á sitt vald, borg-
inni Sulaimaniya í norðaustur-
hluta Kúrdistans.
WASHINGTON - Bandaríski
flugherinn ræður loftunum yfir (r-
ak, en talsmenn bandrískra yfir-
valda sögðu aö Bandaríkja-
menn mundu halda fast við fyrri
stefnu sína um að blanda sér
ekki í borgarastyijöld í frak.
PARÍS - Francois Mitterrand,
forseti Frakklands, skoraði í gær
á Sameinuðu þjóðirnar að for-
dæma ofbeldisverk fraskra yfir-
valda gegn uppreisnarmönnum
og halda viðskiptaþvingunum á
(rak áfram þangað til ofbeldis-
verkunum linnti.
TIRANA - U.þ.b. 5 þúsund Al-
banir söfnuðust saman fyrir
framan grfska sendiráðið f höf-
uðborginni Tirana f von um að fa
vegabréfsáritun tii Grikklands.
Mikill glundroði hefur skapast í
borgum og bæjum Albaníu eftir
stórsigur Verkamannaflokksins
(áður Kommúnistaflokkurinn) í
þingkosningunum á sunnudag,
en flokkurinn naut aðallega
stuðnings f sveitunum.
MOSKVA - Rússneska þingið
felldi i gærtillögu Borisar Jeltsin,
forseta Rússlands, um að forseti
lýðveldisins yrði valinn í lok maí
eða byrjun júní í beinni kosn-
ingu. ( þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni, sem fram fór f Sovétrikjun-
um 17. mars, var almenningur í
Rússlandi spurður hvort hann
vildi velja forseta landsins beint
og var góður meirihluti fyrir því.
YAOUNDE, Kamerún - Þús-
undum farandsala og stúdenta
lenti saman við óeirðalögreglu í
miðborg Yaounde, sem er höf-
uðborg Vestur- Afríkuríkisins
Kamerúns. Þeir voru að mót-
mæla einsflokksstjórn forsetans,
Paul Biya, en miklir lýðræðis-
straumar streyma nú í Vestur-
Afríku.
VEVEY, Sviss - Breski rithöf-
undurinn Graham Greene lést i
Sviss í gær, 86 ára að aldri.
Hann bjó lengstum í Frakklandi,
en fór tii Sviss fyrir um ári síðan
til að leita sér lækninga. Bana-
meinið var blóðsjúkdómur.
Greene var einn virtasti rithöf-
undur þessarar aldar. Hann
skrifaði um 60 skáidsögur og
sumar þeirra voru þýddar á allt
að 27 tungumál. Nokkrar bækur
hans hafa verið þýddar á is-
(ensku. Margar kvik- og sjón-
varpsmyndir hafa verið gerðar
eftir sögum hans. Reuter-SÞJ
Danir skera niður
Danir hafa ákveðið að skera niður
útgjöld til vamarmála um tæpa
fimm milljarða ísl. kr. vegna þeirrar
þíðu sem hefur orðið í samsldptum
við Sovétríkin og önnur ríki Austur-
Evrópu.
Danska varnarmálaráðuneytið
sagði í gær að fækkað yrði í hernum,
skriðdrekum og flugvélum yrði lagt,
flugstöð á Jótlandi yrði lokað og
hætt yrði við smíði herskipa.
Þrír stjórnarandstöðuflokkar sam-
þykktu niðurskurðinn, en það var
nauðsynlegt til að meirihluti væri
fyrir honum á þinginu þar sem
minnihlutastjórn mið- og hægri-
manna hefur það fáa menn á þingi.
Niðurskurðurinn á að koma til
framkvæmda á næstu tveimur ár-
um. Varnarmálaráðherra Danmerk-
ur, Knud Enggaard, sagðist vera
ánægður með að samkomulag hefði
náðst um niðurskurðinn. Hann
sagði að ekki væri hægt að ákveða
frekari niðurskurð til varnarmála,
þar sem talsverð óvissa ríkir um
framtíðarskipulag Evrópu.
Reuter-SÞJ
Kúrdísk kona stendur hér fyrir framan margskotna mynd af Saddam Hussein, forseta fraks. Her Saddams
virðist hafa bælt niður alla mótspymu uppreisnarmanna.
Frakkar bregðast við hörmungunum í Kúrdistan:
lctlsmenn kúrdískra andspymuhópa sögðu í gær að íraski stjómar-
herinn hefði gereytt mörgum þorpum og bæjum í Kúrdistan, keyrt
yfir fólk á skriðdrekum og varpað sprengjum á óbreytta borgara sem
reyna að flýja norður í landið. „Fólk deyr úr vosbúð. íraskar þyrlur
elta óbreytta borgara og varpa sprengjum á þá. Ungaböm deyja í
höndunum á mæðmm sínum úr kulda, hungri og sjúkdómum,"
sagði talsmaður Kúrdíska lýðræðisfiokksins (KDP) í Damaskus í
Sýrlandi.
Alþjóðlegar hjálparstofnanir telja
að tvær til þrjár milljónir Kúrda séu
nú á flótta undan stjórnarhernum
og stefna þeir aðallega til Tyrklands
og írans. Að sögn opinberu frétta-
stofunnar IRNA í íran þá stefndi
a.m.k. hálf milljón manns að landa-
mærum írans og tyrknesk stjórn-
völd segja að yfir tvö hundruð þús-
und Kúrdar stefni á tyrknesku
landamærin og hafa þau leitað eftir
aðstoð Sameinuðu þjóðanna.
Það var kvíðafullur tónn í tals-
manni KDP í Damaskus þegar hann
talaði um þjóðarmorð. „Það er verið
að þurrka út heila þjóð. Þúsundir
manna hafa verið drepnir og hraktir
á flótta. Flóttafólkið er í sjálfheldu í
fjallahéruðunum án nokkurs matar
og afdreps og þjóðir heimsins horfa
aðgerðalausar upp á þetta," sagði
hann. Hann skoraði á Týrki að opna
landamærin fyrir flóttafólkinu og
bjarga lífi þeirra. Uppreisnarmenn
sögðu að stjórnarhernum væri enn
veitt viönám á nokkrum stöðum.
Talsmaður Þjóðernissambands
Kúrdistans (PUK) í London sagði að
uppreisnarmenn héldu enn nokkr-
um úthverfum olíuborgarinnar
Kirkuk. Hins vegar skýrði opinbera
fréttastofan INA í írak frá því að
stjórnarherinn hefði náð borginni
Sulaimaniya í norðausturhluta
Kúrdistans úr höndum „speilvirkja
og svikara" og að þar með væri síð-
asta mikilvæga vígi uppreisnar-
manna fallið.
Frakkar hafa brugðist einna skjót-
ast við hörmungum Kúrda. í gær
stóð til að aðstoðarráðherra mann-
úðarmála í Frakklandi, Bernard
Kouchner, flygi til Kúrdistans til að
skipuleggja hjálparstarf í Kúrdistan
og Francois Mitterrand Frakklands-
forseti skoraði í gær á Öryggisráð
S.Þ. að fordæma ofbeldisverkin
gegn Kúrdum. Mitterrand sagði að
orðstír samtakanna væri í veði. Þá
hefur eiginkona Mitterrands, Dani-
elle, sem er mikill mannréttinda-
frömuður, lýst opinberlega yfir van-
þóknun sinni á aðgerðaleysi þjóða
heimsins.
Alþjóðanefnd Rauða krossins
(ICRC) í Genf sagði í gær að hún
ætlaði að senda fulltrúa sína til
Norður-íraks til að meta hve mikilli
aðstoð Kúrdar þyrftu á að halda.
Bresk yfirvöld sögðust í gær ætla að
taka til athugunar óskir alþjóðlegra
hjálparstofnana um meiri aðstoð við
íraska borgara. Bretar hafa þegar
veitt aðstoð sem nemur um 600
milljónum króna.
Tólf Kúrdar tóku íraska sendiráðið
í Brússel í Belgíu á sitt vald í gær og
héldu því í um fimm klst. þar til þeir
gáfust friðsamlega upp og létu einn
öryggisvörð, sem þeir tóku í gísl-
ingu, lausan. Tilgangur Kúrdanna
með að taka sendiráðið var að sýna
samstöðu með kúrdískum uppreisn-
armönnum í frak.
Mennirnir tólf flögguðu fána
Kúrdistans, brutu húsgögn og rúð-
ur í sendiráðinu og brenndu skjöl og
köstuðu þeim út um glugga sendi-
ráðsins. Þeir fundu einnig rússneska
rifla og skammbyssur í sendiráðinu
og sýndu þau.
Sendiráð eru skyldug að láta skrá
öll vopn, en það hafði ekki verið gert
í þessu tilfelli. íraski sendiherrann
sagðist ekki vita hvernig vopnin
komust inn í sendiráðið.
Kúrdarnir gáfust upp rétt áður en
belgíska óeirðalögreglan ætlaði að
freista inngöngu í sendiráðið.
Reuter-SÞJ
kemur út á föstudag
T Tíminn
MILLJÓNIR KÚRDA
LEGGJA Á FLÓTTA