Tíminn - 04.04.1991, Síða 5
Fimmtudagur 3. apríl 1991
Tíminn 5
Fiskverðsdeila sjómanna og ÚA:
Samkomulag í deilunni
halað í land í gær?
Samkomulag tókst í gærkvöldi milli sjómanna og Útgerðarfélags
Akureyringa í deilunni um heimalöndunarálag. Á fundinum lagði
ÚA fram tilboð um 41% heimalöndunarálag í stað 30% sem gilti til
1. mars s.I., en sjómenn fóru fram á 50%. Síðan á að taka við nýtt
og breytt launakerfi togarasjómanna þar sem heimalöndunarálag er
úr sögunni en laun hækki eftir öðrum leiðum.
Sjómenn sátu á fundi í gærkvöldi og að þjóðarsáttin ónýttist. „Það hef-
þar sem rætt var hvort þeir sætti sig
við þessa lausn og hvort hún verður
til þess að deilan leysist og þeir fari á
sjó. Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA, sagðist ekki vilja tjá sig um
málið í lok fundarins í gær, vegna
þess að endanleg niðurstaða var ekki
fengin.
Krafa sjómanna hefúr haft víðtæk
áhrif og t.d. hefur allt fiskverkafólk
hjá fiskiðjusamlagi Húsavíkur skrifað
undiryfirlýsingu til stjómar fyrirtæk-
isins þar sem farið er fram á hærri
laun.
Einar Oddur Kristjánsson, formaður
VSÍ, sagði í samtali við Tímann í gær
að hann sæi ekki sérstaka ástæðu til
að óttast að afleiðingar hugsanlegra
launahækkana sjómannanna yrðu
þær að upplausn yrði í launakerfinu
ur alltaf verið gert ráð fyrir því að fisk-
verð væri frjálst. Við vissum alltaf að
sá böggull fylgdi skammrifi að sjó-
menn hafa ætíð verið þátttakendur
og eigendur hluta aflans. Þeirra kaup
verður að hlíta því að færast upp og
niður eftir því hvort fiskverð er hátt
eða lágt. Það var alltaf vitað að þetta
gæti valdið óróa. Hins vegar hefur
enginn komið fram með tillögu um
annars konar launakerfi fyrir sjó-
menn. Ég vil því spyrja á móti: Ef það
er eðlilegt að landverkafólk hækki í
launum um Ieið og fiskverð hækkar, á
þá kaup þess að lækka þegar fiskverð
lækkar? Ég bendi á það að nú er
rækjuverð á mjög hraðri niðurleið,"
sagði Einar Oddur.
Um hvort iaunahækkanir til sjó-
manna og fleiri stétta gæti eyðilagt
þjóðarsáttina sagði Einar Oddur að
VSÍ væri ekki undir neinum kring-
umstæðum tilbúið til að breyta laun-
um almennL Þjóðarsáttin snerist um
hvort það tækist í framtíðinni að
bæta kjör íslendinga, en ekki að
hækka kaupið þeirra. Af því væri ára-
tuga reynsla. Eina ráðið væri að hefta
verðbólgu og auka hagvöxt. Það eitt
dygði til að bæta kjörin. En hafa sjó-
menn skynjað það?
„Nei, ég tel að menn hafi gerst offar-
ar í þessu máli. Þeir, sem hafa gripið
til þeirra óyndisúrræða að stöðva
skip, hafa gengið of langt og ættu að
gæta þess að í gildi eru kjarasamning-
ar við sjómenn. Ég held því fram að
afskipti Sjómannafélags Akureyrar af
þessari deilu séu fullkomlega óeðli-
leg,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður VMSÍ, sagði í gærkvöld að hart
væri sótt að þjóðarsáttinni og mark-
miðum hennar, en það væru ekki
hinir lægstlaunuðu sem það gerðu,
heldur aðrir. „Ég nefni stéttir eins og
lækna, yfirmenn á fiskiskipum, flug-
menn og fleiri sem allar geysast fram
í launakröfum á sama tíma og það er
boðað að jafnvægi verði að nást. Mér
finnst að það einkenni þjóðfélagið
öðru fremur nú, að allir þessir há-
launamenn eru með þjóðarsátt. Þeir
vilja bara ekki sjálfir taka hið minnsta
á sig hennar vegna. Um þessa samn-
inga við sjómennina á Akureyri
treysti ég mér hins vegar ekki til að
segja neitt á þessu stigi, þar sem ég
hef ekki séð þá. Það er þó ljóst að sjó-
menn hafa fengið stórkostlegar kjara-
bætur umfram aðra sem starfa við út-
gerð og fiskvinnslu. Þá hafa þeir að
auki skattfríðindi. Ég bendi á þessar
staðreyndir aðeins og í þessum orð-
um felst ekki að ég sé að sjá ofsjónum
yfir kjörum sjómanna," sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson.
—GEÓ/sá
Fjölmiðlun lætur kanna:
Gaf bankinn rang-
ar upplýsingar?
Lögmaður Fjölmiðlunar sf., sem
keypti hlut Verslunarbankans í
Stöð 2, hefur krafist þess að mats-
menn verði dómkvaddir til að meta
hvort lánasvið bankans hafi veitt
réttar upplýsingar um lána- og
skuldastöðu Stöðvarinnar þegar
kaupin voru gerð.
Fjölmiðlun er sameignarfélag
kaupsýslumanna, sem á sínum tíma
keyptu 250 millj. kr. hlut Verslunar-
bankans í Stöð 2. Fjölmiðlunar-
menn telja að bankinn hafi ekki gef-
ið þeim réttar upplýsingar um stöðu
fyrirtækisins. Er sagt að þar skeiki
nálega 100 millj. Hafa þeir reynt að
ná samkomulagi við bankann, en án
árangurs. Bankinn hefur til þessa
neitað að slá nokkuð af upphaflegu
kaupverði, og vísað frá hugsanlegri
bótaskyldu. Líklegt þykir að Fjöl-
miðlun höfði mál á hendur bankan-
um á grundvelli matsins.
Matsmenn verða að öllum líkind-
um skipaðir í bæjarþingi Reykjavík-
dag.
ur
-aa.
GJALDÞROTA
íslendingur, blað sjálfstæðismanna
á Akureyri, hefur verið tekið til
gjaldþrotaskipta. Dauft hefur verið
yfir blaðinu síðustu ár, enda fjár-
hagserfiðleikar þess miklir. Sjálf-
stæðismenn á Norðurlandi eystra
gefa þó enn út blað sem heitir ís-
lendingur. Blaðið er gefið út af
kjördæmisráði Sjálfstæðisfiokksins
í kjördæminu, en ekki íslendingi
h.f. sem gefið hefur út blaðið í 77
ár og hefur nú verið tekið til gjald-
þrotaskipta. Alþýðublaðið greindi
frá þessu í gær.
Útgáfumál sjálfstæðismanna á
Norðurlandi hafa verið í ólestri síð-
ustu ár. Fyrir fáum vikum lét Hall-
dór Blöndal, þingmaður flokksins í
Norðurlandi eystra, hafa það eftir
sér að nauðsynlegt væri að stofna
nýtt dagblaö á Norðurlandi. Gjald-
þrot íslendings kemur í kjölfar þess-
ara ummæla Halldórs. Þó að á ýmsu
gangi í blaðaútgáfu á íslandi, heyrir
það til algerra undantekninga að
pólitísk blöð, sem gefin eru út með
styrk stjórnvalda, séu gerð gjald-
þrota.
-EÓ
Álafoss hefúr gert tvo ullarsölusamninga við Sovétmenn
°g. '
Eru viðskioti við
Sovétmenn a
Alafoss hefur skrifað undir tvo
samninga um sölu á ullarvörum
til Sovétríkjanna upp á 780 millj-
ónir króna. Að sögn Ólafs Ólafs-
sonar, forstjóra Álafoss, þýða
þessir samningar atvinnu fyrir
450 manns á þessu ári og fram á
það næsta á vegum Álafoss. Sölu-
samtök lagmetis eru einnig að
þreifa fyrir sér á Rússlandsmark-
aði og búast má við tíðindum það-
an fljótlega. Þcssír samningar og
umleitanir lagmetismanna giæða
vonir manna um að viðskipti við
Sovétmenn aukist, en þau hafa
verið í nokkurri lægð að undan-
förnu.
Samningar Álafoss eru við sov-
éska samvinnusambandið og
rússneska lýðveldið. Fyrmefndi
samningurinn hljóðar upp á 180
milljónir, allt til framleiðsíu og af-
hendingar í ár, en sá síðamefndi
upp á 600 milljónir og þar af er
rúmur helmingurinn til fram-
leiðslu og afhendingar í ár. Búið
er að ganga frá og undirrita samn-
inga, með þeim fyrirvara að íjár-
mögnunarsamningur við annan
aðilann, sem langt er kominn, nái
fram að ganga. Samningar fyrir
næsta ár em á iokastigi. Sovéska
samvinnusambandið mun greiða
fyrir vörumar með olíu og Öðmm
verðmætum, en rússneska lýð-
veldið í gjaldeyri. Ólafur Ólafs-
son, forstjóri Álafoss, sagði að að-
allega væri það fatnaður sem þeir
myndu framleiða fyrir þá, peysur
og jakkar auk trefla. Aðspurður
sagði Ólafur að þetta væri stærsti
samnlngur við Sovétmenn sem
gerður hefði verið á ullarvörum.
„Þetta þýðir að verkefni verða
tryggð fýrir 450 manns út þetta ár
og fram á það næsta. Samning-
amir breyta því þó ekki að fjár-
hagsstaða fyrirtækisins er mjög
alvarleg vegna uppsafnaðs taps
fyrri ára,“ sagði Ólafur.
Aðspurður sagði Ólafur að hann
gæti ekki merkt neina þíðu í sam-
skiptum við Sovétmenn, þrátt íyrir
þessa samninga. „Sovéska ríkið
hefur ekki gert neinn samning við
okkur, eins og þeir hafa gert í 38 ár,
og við gemm okkur ekki miklar
vonir um að samningar verði gerð-
ir,“ sagði Ólafur. Hann sagði að
hvorid væri þíða né frost í samskipt-
um ríkjanna, heldur væri ástandið
svipað og það hefði alltaf verið.
Elns og áður sagði þá em Sölu-
samtök lagmetis nokkuð vongóð
um að Rússlandsmarkaður lifni
við bráðlega. Garðar Sverrísson,
framkvæmdastjóri samtakanna,
sagði að þeir væm stöðugt að leita
að nýjum mörkuðum og þreifing-
ar væm í gangi í gegnum þriðja
aðila til að koma umframbirgðum
á Rússlandsmarkað. Það væm
nokkuð margir aðilar, m.a. í Aust-
ur-Evrópu, sem hefðu verið að
kanna þetta fyrir þá. Garðar sagði
að of snemmt væri að segja til um
hvort þetta myndi ganga, en það
myndi vonandi skýrast á næstu
dögum.
Rússlandsmarkaður væri mikil-
vægur að því leyti að sumar verk-
smlðjur framleiddu nær eíngöngu
fyrir þann markað og lægð þar
þýddi einfaldlega lokun sumra
verksmiðja, eins og Ld. verk-
smiðjunnar á Homafirði, sem
framleiddi eingöngu inn á Rúss-
landsmarkað.
„Maður gerir sér ekki vonir um
stóra samninga strax, en að sjálf-
sögðu er unnið í þessu af fullum
krafti,“ sagðl Garðar Sverrisson.
—SE
Stuttbuxnaliðið
í kosningaham
Samband ungra sjálfstæðismanna
byrjaði skömmu fyrir páska að sýna
auglýsingu í kvikmyndahúsum
Reykjavíkur, þar sem ágæti Sjálf-
stæðisflokksins er tíundað. Þessi
auglýsing mun ekki brjóta í bága
við samkomulag stjómmálaflokk-
anna um að birta ekki leiknar aug-
lýsingar í ljósvakafjölmiðlum.
Að sögn Belindu Theriault, 2. vara-
formanns SUS, var gerður samning-
ur við kvikmyndahús í Reykjavík um
birtingu þessarar auglýsingar. Er
hún sýnd í öllum stærri sölum
þeirra og hófust sýningar skömmu
fyrir páska. í auglýsingunni, sem er
rúm mínúta á lengd, gefur að líta
ungt fólk sem kemur fram og segir
hvers vegna það ætli að kjósa flokk-
inn.
Meðal þeirra sem fram koma eru
Jón Páll Sigmarsson og Unnur
Steinsson.
Friðbert Pálsson, framkvæmda-
stjóri Háskólabíós, sagði ekkert
óeðlilegt vera við þessar auglýsingar.
Hver sem er gæti hvenær sem er
keypt auglýsingatíma í kvikmynda-
húsum.
-sbs.
Iipi Hrossaræktendur
IÐtí og hestaeigendur
Búnaðarfélag íslands hvetur alla eigendur ung-
hrossa og trippa til að fá frumskráningareyðu-
blöð fyrir hross á næstu búnaðarsambandsskrif-
stofu og afla sér um leið kennitalna fyrir hrossin
sem skráð verða. Frumskráningarblöðin skilist
útfyllt til búnaðarsambandsskrifstofunnar.
Allar FROSTMERKINGAR héðan í frá eru algjör-
lega bundnar því að eigendur hrossa fái númer á
hrossin hjá viðkomandi héraðsráðunaut á svæði
því sem hrossið er fætt á, áður en frostmerking
er pöntuð. Búnaðarfélag íslands, sími 91-19200,
tekur við pöntunum á frostmerkingum, eða Pétur
Hjálmsson, sími 91-666164.
Búnaðarfélag íslands,
hrossaræktin.