Tíminn - 04.04.1991, Qupperneq 11
Fimmtudagur4. apríl 1991
Tíminn 11
Happdrættisvinningur afhentur
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra afhenti nýlega glæsilegan aðal-
vinning í áriegu happdrætti sínu. Dregið var í happdrættinu sl. að-
fangadag jóla og var aðalvinningurinn SAAB 9000CD árgerð 1991.
Á myndinni, sem tekin var við afhendingu aðalvinningsins á dögun-
um, eru frá vinstri; Guðlaug Sveinbjarnardóttir framkvæmdastjóri
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, vinningshafinn Ólafur Sigurðs-
son, Þórir Þorvarðarson formaður Styrktarfélagsins og Böðvar Ingi
Benjamínsson, starfsmaður Globus hf., umboðsaðila SAAB á íslandi.
—fréttat.
Fimm nýir fram-
boðslistar fyrir kosn-
ingarnar í vor
Fimm ný stjórnmálasamtök hafa
tilkynnt framboð til dómsmála-
ráðuneytisins og óskað eftir að fá
listabókstaf. Þau eru E listi Verka-
mannaflokks íslands, F listi
Frjálslyndra, sem Borgaraflokks-
menn skipa meðal annarra, H listi
Heimastjórnarsamtakanna, Z listi
Græns framboðs og T listi Sam-
taka öfgasinnaðra jafnaðarmanna,
Guðmundur Brynjólfsson, efsti
maður á T listanum, segir að þeir
muni einungis bjóða fram á
Reykjanesi í komandi kosningum,
hann telur að þeir eigi möguleika
á 4 til 6 þingmönnum.
Útlit er því fyrir að alls muni 11
flokkar bjóða fram til alþingis-
kosninganna 20. apríl nk., Það eru
auk ofangreindra flokka A listi Al-
þýðuflokks, B listi Framsóknar-
flokks, D listi Sjálfstæðisflokks, G
listi Alþýðubandalags, V listi
Kvennalistans og Þ listi Þjóðar-
flokks og Flokks mannsins.
—GEÓ
Verslunarskóli íslands sigraði í MORFÍS keppninni í ár og titillinn
ræðumaður kvöldsins færðist á milli Ijölskyldumeðlima:
Afhenti bróður
sínum bikarinn
Verslunarskóli íslands sigraði í
úrslitakeppni Mælsku- og rök-
ræðukeppni framhaldsskólanna í
íslandi, MORFÍS, sem haldin var
íyrir nokkru. VÍ sigraði sigurveg-
arana frá því í fyrra, Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ, með aöeins 14
stiga mun. Ræðumaður kvöldsins
var valinn Almar Guðmundsson,
en bróðir hans, Sigmar Guð-
mundsson, var einmitt valinn
ræðumaður kvöldsins í úrslita-
keppninni í fyrra og afhenti hann
bróður sínum farandbikar sem
hann fékk í fyrra fyrir afrekið.
Ræðulið VÍ hélt því fram í
keppninni að hver væri sinnar
gæfu smiður en ræðulið FG mót-
mælti því hins vegar harðlega.
Það var mál manna að þessi úr-
slitakeppni hefði verið með lífleg-
asta móti og með betri MORFIS
keppnum sem háðar hefðu verið.
Liðin komu, eins og við var að
búast, mjög vel undirbúin til
keppni. Sérstaka athygli vakti
þegar frummælandi Verslunar-
skólans, Halldór Fannar Guð-
jónsson, fleygði frá sér ræðunni á
leið upp í pontuna og flutti hana
með snilldartilþrifum algerlega
blaðalaust. Almar Guðmundsson
úr FG var, eins og áður sagði, val-
inn ræðumaður kvöldsins og
sýndi eins og Halldór frábær til-
þrif í pontunni. Tvær stúlkur
voru meðal ræðumanna, Mjöll
Jónsdóttir úr FG og Kristín Pét-
ursdóttir úr Vf, og stóðu þær sig
með stakri prýði. í ræðuliði VÍ
voru Halldór Fannar Guðjónsson,
Kristín Pétursdóttir, Gísli Mar-
teinn Baldursson og Skorri
Almar Guömundsson úr FG var valinn ræðumaður kvöldsins í úr-
slitakeppni MORFÍS en bróðir hans, Sigmar Guðmundsson, var ein-
mitt valinn ræðumaður úrslitakeppninnar í fyrra.
Andrew Aikman. I ræðuliði FG Ómarsdóttir og Aðalsteinn Leifs-
voru Almar Guðmundsson, Mjöll
Jónsdóttir, Ólafur Rúnarsson og
Hjalti Már Björnsson. Dómarar
voru Böðvar Jónsson, Silja Bára
son, en fundarstjóri var ræðu-
skörungur úr Menntaskólanum í
Reykjavík, Orri Hauksson.
—SE
Öryrkjabandalagið
kaupir meirihluta
í leirbrennslu
Tfmamynd: Áml Bjama.
Öryrkjabandalag íslands hefur
keypt meirihluta hlutafjár í leir-
brennslunni Glit hf. í Reykjavík.
Þetta mun skapa fjölda fatlaðra
einstaklinga atvinnu, en þessi
hlutafjárkaup eru Iiður í endur-
skipulagningu fyrirtækisins.
Öryrkjabandalagið fékk, fyrir
forgöngu félagsmálaráðherra, 12
milljón króna styrk úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra til þessa.
Heildarhlutafé Glit verður alls 25
milljónir. Nú þegar á Öryrkja-
bandalagið 11 miljónir hlutafjár
og hefur tryggt sér forkaupsrétt á
1,5 til viðbótar. Eldri eigendur og
Reykjavíkurborg munu eiga 5 mi-
ljónir hvor og Blindrafélagið
hálfa milljón.
17 öryrkjar vinna í dag hjá Glit.
Þeim mun hins vegar fjölga við
þessa breytingu í allt að 20-30 í
hálfs dags störfum. Stöðugildi
hjá Glit eru alls 25,5. í framtíð-
inni munu bæði fatlaðir og ófatl-
aöir vinna saman hjá Glit en
vinna af þessu tagi þykir henta
fötluðum einstaklingum. Sagðist
Arnór Helgason, formaður Ör-
yrkjabandalagsins, líta af mikilli
bjartsýni til framtíðarinnar varð-
andi þetta, en margir öryrkjar
hafa verið á biðlistum eftir at-
vinnu.
Starfsmaður að renna til leirvasa.
Glit hf. tók til starfa árið 1958.
Aðalfrumkvöðull að því var Ragn-
ar Kjartansson myndhöggvari. í
dag er framleiðsla á ýmiss konar
leirmunum, auk innflutnings og
sérmerkinga á glervörum og
postulíni, stærsti liðurinn í starf-
semi fyrirtækisins. Þá er skilta-
gerð stór þáttur í starfseminni,
en nýlega var aukið við búnað fyr-
irtækisins til silkiprentunar.
-sbs.
Til vinstri er Aöalsteinn Steindórsson, sem á sæti í stjóm Glits hf. fýrir
hönd Öryrkjabandalagsins, og Sigurður Pálmason framkvæmdastjóri.