Tíminn - 04.04.1991, Síða 12

Tíminn - 04.04.1991, Síða 12
12 Tíminn Fimmtudagur4. apríl 1991 MINNING Gunnar Guðbjartsson Kveðja frá Laugargerðisskóla Sveitir Sriæfellsness vakna í hrími. Fjallstindarnir eru hvítir og yfir hvelfist himinninn blár. Hér um sveitir barst fréttin að hér- aðshöfðingi hefði kvatt sitt jarð- neska Iíf. Ósjálfrátt litu menn myndina af honum þar sem hann fór í fylkingarbrjósti að berjast, góðum málum til sigurs. Hann var snemma kallaður til í sínu héraði og síðar af bændasamtökum lands- ins til þeirra verka sem vandasöm- ust voru. Hann var oft umdeildur, en ætíð dáður fyrir baráttu- og viljaþrek. Gunnar Guðbjartsson bóndi að Hjarðarfelli var kvaddur hinstu kveðju frá Fáskrúðarbakkakirkju í Miklaholtshreppi s.l. laugardag, með virðingu og þökk. Þessar fátæklegu línur sem hér birtast eiga að vera þakklætisvottur til hans fyrir þá baráttu að koma upp skólahúsi yfir æsku Heiðsynn- inga. Að tilhlutun Fræðsluráðs Snæ- fellsness- og Hnappadalssýslu voru fimm menn kjörnir 30. okt. 1957, frá jafnmörgum hreppum, til að kynna sér möguleika á að byggja barna- og unglingaskóla er þjóna skyldi sveitarfélögunum sunnan fjalls á Snæfellsnesi. 8. des. 1957 boðaði Gunnar Guðbjartsson til fyrsta fundar með kjörnum fulltrú- um í Skólamálanefnd Heiðsynninga og var hann á þessum fundi kosinn formaður nefndarinnar og var þá þegar hafinn undirbúningur að staðsetningu skóla. 1960 lýkur Skólamálanefnd störfum sínum, en við tekur byggingarnefnd, sem Gunnar var kosinn formaður fyrir. Sameiningarmáttur hinna fimm hreppa hafði brostið, en fram skyldi haldið „að byggja yfir börnin“. Skóli skyldi reistur við Kolviðarneslaug í Eyjahreppi. Gunnar gerðist þá þegar forgöngu- maður að byggingu samiginlegs skóla fyrir Eyjahrepp, Breiðuvíkur- hrepp, Kolbeinsstaðahrepp, Mikla- holtshrepp og Skógarstrandarhrepp er óskaði eftir aðild að skólabygg- ingunni 1963. Hér Ieyfir undirritaður sér að vitna í skrif Erlendar Halldórssonar bónda í Dal, er hann birti í bókinni Byggðir Snæfellsness. ,/iðal for- göngumaður þessa stærsta verkefn- is sem nefnd sveitarfélög hafa ráðist í til þessa var Gunnar Guðbjartsson, bóndi á Hjarðarfelli. Hann var for- maður byggingarnefndar uns verk- inu var lokið. Vann hann að málinu af fádæma dugnaði og ósérplægni og má með réttu kalla hann föður þessa skóla." Hann beitti sér fyrir því að lóð fengist undir skólamannvirki, rétt- indum á jarðhita og köldu vatni, verksamningum og fjármagnsút- vegun, en ótrúleg barátta fór í öll þessi mál og þá ekki síst í að raf- magn fengist til skólans. Gunnari tókst að sigrast á öllum þessum málum og vann að þeim allt þar til að byggingu lauk. Skylt er að geta þess að í öllum þessum umsvifum naut hann dyggrar aðstoðar og sam- hjálpar ágætra manna í byggingar- nefnd og utan hennar, þótt hér verði ekki tíundað. Við sem starfað höfum við Laugar- gerðisskóla og þeir nemendur sem stundað hafa hér nám, megum öll drjúpa höfði og þakka Gunnari Guð- bjartssyni þau orð og athafnir er fól- ust í orðum hans við vígslu Mikla- holtsréttar haustið 1956, „næst byggjum við yfir börnin". Megi dugnaður hans og ástúð til æsku þessa héraðs styrkja ástvini hans, hugga þá og verða smyrsl sára þeirra. Hin hrímgaða sveit minnir á dauð- ann og blátær himinn boðar hið óendanlega. Gunnar Guðbjartsson hefur horfið okkur í bili, þó í raun sé það ekki, því við lifum með skóla hans. Laugargerðisskóla 23. mars 1991, Höskuldur Goði Foringi er fallinn — kaldir vindar næða um dreifða byggð frá ystu nesjum til innstu dala. Þjóðin öll er fátækari. Aðalstarf Gunnars Guð- bjartssonar var fyrir bændur og síð- ari árin skipaði hann sér ótrauður í fremstu röð þeirra alltof fáu sem vara við gálausum leik með fjöregg þjóðarinnar. Þótt líkamskraftar skertust barðist hann fyrir bændur og þjóðina alla. — Þar er nú skarð í fámennan hóp virkra varnarmanna. Nú þegar Ieiðir skiljast í bili þakka ég Gunnari Guðbjartssyni vináttu við mig og störf í þágu dreifðrar byggðar. í þeim störfum hans fannst ekki brestur frekar en í öðru er hon- um var tiltrúað. Minningu hans verður mestur sómi sýndur með því að bændur landsins fylgi fordæmi hans — gefist aldrei upp. Okkar leiðtoga er best að minnast með því að við slítum ekki byggðakeðjuna — gefumst ekki upp — og lifum í þeirri trú að aftur komi vor í dal. Ég kveð Gunnar Guðbjartsson í full- vissu þess að hans hafi beðið starfs- vettvangur á vegum þess guðs sem sólina skapaði. Fjölskyldu hans sendi ég samúðarkveðjur. Halldór Þórðarson Ragnheiður Þorkelsdóttir Kvöld-, nætur- og hdgldagavarsla apóteka I Reykjavík 29. mars til 4. april er I Lyfjabúðinnl Iðunni og Garösapóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi til Id. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 2ZO0 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar f sima18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Slm- svari 681041. Hafharfjöröun Hafnarfjarðar apótek og Norð- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó- tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I slma 22445. Apótek Keflavíkun Opið virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frí- dagakl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Sdfbss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabæn Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Læknavakt Læknavakt fyrir Reykjavik, Seifjamames og Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sólarhringinn. Á Seitjamamesl er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaöá sunnudögum. Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og tlmapant- anirlsíma 21230. Borgarspítalinn vaktfrákl. 08- 17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (simi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um lyljabúöir og læknaþjónustu emgefnar I sím- svara 18888. Ónæmisaðgeröir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskfrteini. Sdtjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi frá Bár Fædd 5. júní 1893 Dáin 2. mars 1991 Amma okkar Ragnheiður Þorkels- dóttir er látin hátt á 98. aldursári. Hún var fædd í Smjördölum í Sand- víkurhreppi í Flóa 5. júní 1893, dótt- ir hjónanna Sigríðar Magnúsdóttur og Þorkels Jónssonar. Amma var yngst barnanna, en systkini hennar voru Ingibergur, Jón, Sigríður, Magnús og Skúli, eru þau nú öll lát- in. Árið 1896 urðu Sunnlendingar fyr- ir þungum búsifjum og fór heimili ömmu ekki varhluta af þeim. Gríðar- legur jarðskjálfti reið yfir og hrundu hús eða skemmdust á flestum bæj- um í Flóa og víðar. Bæjarhúsin í Smjördölum eyðilögðust og munaði litlu að mannskaði yrði þegar bæjar- göngin hrundu yfir gamlan mann sem var að forða sér út. Algert neyð- arástand ríkti. Meðal annars var gripið til þess ráðs að koma börnum í fóstur yfir veturinn, flestum í Reykjavík og voru amma og Skúli bróðir hennar í þeim hópi. Börnin, sem stundum voru nefnd jarð- skjálftabörnin, voru flutt suður á hestvögnum og þegar til Reykjavík- ur kom, komu bæjarbúar og völdu sér börn til fósturs. Atlætið á fóstur- heimilunum þótti misjafnt og má gera sér í hugarlund hvernig foreldr- unum hefur liðið að senda bömin sín út í óvissuna og standa sjálfir yfir heimilum sínum í rúst. Ekki þurfti amma að kvarta undan sínu hlut- skipti, hún hlaut fóstur hjá miklu ágætis fólki, SVeini Sveinssyni snikkara og konu hans, og héldu þau tryggð við hana alla tíð síðan. En þetta él stytti upp eins og öll önnur, lífið komst í samt lag aftur. Amma ólst upp eins og flestar sveita- stúlkur á þeim tíma. Sem ung stúlka var hún nokkra vetur í vist í Reykja- vík. Árið 1920 giftist hún Kristjáni ÓI- afssyni, bónda í Langholtsparti í Hraungerðishreppi, f. 29. maí 1878, d. 3. júní 1956. Foreldrar hans voru hjónin Katrín Ögmundsdóttur og Ólafur Jóhannesson, sjómaður og bóndi á Dísastöðum í Sandvíkur- hreppi. Fyrri konu sína, Kristjönu Jóakimsdóttur frá Selfossi, missti afi í spönsku veikinni 1918 frá þremur börnum og gekk amma þeim í móð- urstað. Árið 1922 fluttu þau að Bár í Hraungerðishreppi og bjuggu þar síðan allan sinn búskap. í Bár þurfti aö byggja upp allan húsakost, en þau bjuggu þar í torfbæ fyrstu 7 árin. Afí var lærður trésmiður og vann jafnframt búskapnum mikið við smíðar m.a. við Flóaáveituna og Mjólkurbú Flóamanna. Bústjóm kom því mikið í hlut ömmu. Dætur þeirra eru: Kristjana, Sigríð- ur, Ragna og Sigrún. Kristjana f. 10.9.1920, býr í Reykja- vík, gift Ingimundi Guðmundssyni brunaverði, frá Ljótarstöðum í Landeyjum, f. 24.03.1911, d. 4.12.1985. Barn þeirra: Guðrún Þórunn meinatæknir, f. 27.4.1953, maki Jón Bergmundsson rafmagns- verkfræðingur, f. 25.10.1952, börn þeirra: Kristjana og Kjartan Ingi. Sigríður f. 17.9.1921, býr á Selfossi, gift Kristjáni Finnbogasyni trésmið frá Hítardal, f. 8.4.1918, d. 17.7.1974. Börn þeirra: Pétur vél- fræðingur, f. 3.8.1945, maki Guð- rún V. Árnadóttir skrifstofumaður, f. 4.11.1946, börn þeirra: Kristján og Sigríður. Ragnheiður auglýsinga- teiknari, f. 25.9.1946, maki Páll Þór Imsland jarðfræðingur, f. 1.8.1943, börn þeirra: Birna og Freyja. Seinni maður Sigríðar er Bóas Emilsson, f. 17.6.1920. Ragna Þorgerður f. 5.4.1923, býr í Kópavogi, gift Ár- manni Sigurðssyni járnsmið frá Stokkseyri, f. 2.1.1921, d. 25.12.1989. Börn þeirra: Ragnheið- ur innanhússarkitekt, f. 24.7.1946, maki Þorsteinn Gíslason, verkfræð- ingur f. 27.7.1947, börn þeirra: Fríða, Lára og Pétur. Sigríður f. 12.10.1947, var gift Sigvalda Krist- jánssyni, þau skildu, börn þeirra: Sigrún, Ragna og Kristján. Sigurð- ur auglýsingateiknari, f. 14.2.1956, maki Linda Wright, nemi f. 26.3.1955, börn þeirra: Sölvi og Rúna. Kristján iðnfræðingur, f. 6.12.57, maki Herdís Hermanns- dóttir, f. 10.05.1957, barn þeirra: Katrín. Sigrún f. 11.4.1928, býr í Banda- ríkjunum, var gift Michael Denegan f. 21.8.1917, d. 17.2.1989. Börn þeirra: Katrín hjúkrunarfræðingur f. 18.6.1953, maki Peter Morales, f. 15.10.1946, barn þeirra: Lana Joy. Susan iðjuþjálfi, f. 18.3.1955, maki Richard Shortridge, barn þeirra: Al- issa. Börn Kristjáns af fyrra hjónabandi: Jóhanna Guðrún f. 15.2.1905, býr á Selfossi, gift Jóni Gíslasyni frá Haugi í Gaulverjabæjarhr., f. 16.12.1899, d. 14.10.1953. Þau bjuggu að Eystri-Loftstöðum, Gaul- / verjabæjarhr. Eignuðust þau 6 börn. Ólafur trésmiður, f. 2.6.1906, d. 22.4.1978. Eftirlifandi kona hans er Ingveldur Guðmundsdóttir frá Keldnakoti í Stokkseyrarhr., f. 25.10.1919, hún býr í Kópavogi. Eignuðust þau 6 börn. Katrín f. 4.8.1908, dvelur á Hrafnistu í Reykjavík, gift Steingrími Welding sjómanni, f. 30.9.1908 (látinn), þau skildu. Barnlaus. Afi lést 1956 eftir langvarandi veik- indi, hvíldi umönnun hans öll á ömmu. Ekki stóð hún þó ein, því að Stefanía Jónsdóttir frá Steig í Jökul- fjörðum, sem hafði komið sem vinnukona að Bár 1932, með son sinn Tryggva Bjarnason kornungan, hélt alltaf tryggð við heimilið og vann því af miklum dugnaði þar til hún lést árið 1963. Ekki var minna um vert framlag Tryggva, eina vinnufæra karlmannsins á bænum, og var hann hin styrka stoð ömmu á erfiðum tímum. Eftir lát afa brá amma búi og keypti Tryggvi af henni jörðina, en hún flutti til Sigríðar dóttur sinnar á Selfossi. Árið 1960 flutti hún til Reykjavíkur til Kristj- önu dóttur sinnar og árið 1970 fór hún á Elliheimilið Grund og dvaldi þar síðan. Á seinni árum ævi sinnar fékk hún eins og svo margir af hennar kynslóð fyrst tíma og tæki- færi til að sinna sínum hugðarefn- um, en þau voru fyrst og fremst hannyrðir og ýmiss konar sköpun, allt lék í höndum hennar. Við höfum öll upplifað það að alast upp með ömmu okkar á heimilinu og teljum að svo náið sambýli við hana hafi orðið okkur mjög til góðs. Það fylgdi henni svo sérstök hlýja og kærleikur og aldrei brást hún von- um okkar um skilning og umburð- arlyndi. Hún var afskaplega dagfars- prúð manneskja, og hafði alltaf full- komna stjórn á skapi sínu, en hélt þó ávallt sínum hlut. Þessir eigin- leikar færðu henni virðingu sam- ferðamanna og verða okkur fyrir- mynd. Við kveðjum ömmu okkar með hlýhug og þakklæti. Pétur Kristjánsson Ragnheiður Kristjánsdóttir Guðrún Þórunn Ingimundardóttir 612070. Garðabæn Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er I síma 51100. Hafharfjörður. Heilsugæsla Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Simi 40400. Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarriringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Sími: 14000. Sálraen vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál- fræðilegum efnum. Sími 687075. Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16ogkl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00. Sænguritvennadeild: Alla daga vikunnar ki. 15- 16. Heimsóknartimi fyrirfeður kl. 19.30-20.30. Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarfækningadeild Landspítalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa- kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg- arspitalinn f Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarfjúðin Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Weppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 til kl. 19.30. -Flókadeild: Alladagakl. 15.3061 kl. 17 Kópa- vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífllsstaðaspítali: Heimsóknar- tími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St Jósepsspitall Hafnarfirðl: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíö hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim- sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkurfæknishéraðs og heilsu- gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Sími 14000. Keflavík-sjúkrahúsiö: Heim- sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgarogá hátiðum: Kl. 15.00-16.00og 19.00- 19.30. Akuteyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akraness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavik: Seltjamames: Lögreglan simi 611166, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 11100. Kópavogur Lögreglan simi 41200, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður Lögreglan simi 51166, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 51100. Keflavík: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og sjúkrabíll simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjan Lögreglan, simi 11666, slökkvilið slmi 12222 og sjúkrahúsið sími 11955. Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222. IsaQörðu’: Lögreglan sími 4222, slökkviliö simi 3300, brunasimi og sjúkrabifreiö simi 3333. Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.