Tíminn - 11.04.1991, Page 3
Fimmtudagur 11. apríl 1991
Tím ín 3
EB í vaxandi vandræðum með sjávarútvegsmálin. Skortur fyrirsjáanlegur á fiski í löndum bandalagsins:
Samningsstaða sjálfstæðs
íslands styrkist stöðugt
Samkvæmt mati, sem fram kemur í fræðsluríti Félags íslenskra iðn-
rekenda, verður ekki annað séð en samningsstaða íslendinga sem
sjálfstæðs samningsaðila gagnvart EB sé sífellt að styrkjast og að tím-
inn vinni með fslendingum varðandi möguleika á viðskiptum við EB
með sjávarafurðir. Ástæðan er fyrst og fremst erfiðleikar bandalags-
þjóðanna með fiskveiðistefnu sína og fyrirsjáanlegur skortur á fiski,
ekki einungis til vinnslu, heldur líka og ekki síður til neyslu.
„Sjávarútvegur — EB í vandræð-
um.“ Þannig hljóðar fyrirsögn í
fræðsluriti Félags íslenskra iðnrek-
enda þar sem fjallað er um þau vand-
ræði sem Evrópubandalagið hefur
lengi átt í með sjávarútveg sinn og
þær leiðir sem framkvæmdastjórn
EB leitar nú til að greiða úr þeim
vandræðum. í bráðabirgðaskýrslu
framkvæmdastjórnarinnar til Evr-
ópuráðsins og Evrópuþingsins bend-
ir hún á þau atriði sem þarfnast end-
urskoðunar. Sérstaklega þykir at-
hyglisvert hvað framkvæmdastjórnin
segir þar um samskipti bandalagsins
við ríki utan bandalagsins og þá aðal-
lega um aðgang að fiskimiðum. „Ef
marka má það sem í skýrslunni segir,
þá kann að verða breyting á næstu
árum á þessari stefriu bandalagsins,"
segir í riti FÍI.
Vegna þessa leitaði Tíminn álits
Magnúsar Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra SÍF, á því hvort nýir
möguleikar væru hugsanlega að
opnast í samningum íslendinga við
EB.
„Það sem e.t.v. er að gerast, er að
ákveðinn skilningur fyrir sérstöðu
okkar er að skapast í Evrópubanda-
laginu. Það kemur fram í mörgu sem
menn segja þar þessa dagana. Hins
vegar er ennþá mjög hörð andstaða
gegn því að þessi sérstaða verði við-
urkennd. Og það er það, sem þeim
hefur ekki tekist að komast í gegn-
um.
En mín tilfinning er sú, að samhliða
einhverju pólitísku viðhorfi, séu
menn í EB að átta sig á því að þegar
litið er til framtíðarinnar þá er nokk-
uð ljóst að það verður skortur á fiski
í Evrópubandalaginu, nokkuð sama
hvernig þeir snúa sér í því máli. Og
að þess vegna sé það kannski að verða
mál fyrir EB að tryggja það að þeir fái
fisk — en að það skipti ekki höfuð-
máli hver veiðir þann fisk,“ sagði
Magnús.
— Sé skortur á fiski, skiptir þá
kannski ekki svo miklu máli hvort
við stöndum utan EB?
„Það er forsendan fyrir lífi okkar að
það séum við sjálf sem veiðum og
vinnum fiskinn. Að við fáum virðis-
aukann af því. Þetta er líka grund-
völlurinn að hugmyndafræðinni um
þetta aukna samstarf þjóða, þ.e. að
hver þjóð geri það sem hún er hæfust
til. Ef við getum ekki veitt og unnið
fisk á hagkvæmari hátt heldur en
aðrar þjóðir, þá veit ég ekki hvað það
er sem við eigum að geta gert.“
Magnús segir okkur nú þegar njóta
tollalækkana hjá EB. Þeir gefi út
ákveðna kvóta með lægri tollum
heldur en sameiginlegir tollar EB
eru. Ástæða þess sé auðvitað sú, að
verið sé að leita eftir fiski inn í banda-
lagið, bæði til vinnslu þar og til
neyslu.
í riti FÍI segir að stærsta vandamál-
ið sem EB á við að etja sé að sjálf-
sögðu allt of stór floti, miðað við þau
fiskimið sem bandalagið hefur yfir að
ráða. Þetta leiði til ofveiði, minnk-
andi afla og versnandi ástands í þeim
héruðum sem byggja afkomu sína á
fiskveiðum og fiskiðnaði. Þetta
ástand endurspeglist í kröfum sem
Evrópubandalagið geri um fiskveiði-
heimildir við íslandsstrendur.
í áðurnefhdri skýrslu framkvæmda-
stjórnar EB er sagt mjög brýnt að
móta stefnu sem taki á þessum
vandamálum. í ljósi galla á núver-
andi kerfi fiskveiðistjórnunar og
verndunar fiskistofna, ófullnægjandi
eftirlits með því hve mikið veitt er og
allsendis ófullnægjandi árangurs í
því að draga saman flotann, þá verði
EB að fá í hendur fullnægjandi heim-
ildir til þess að geta stjórnað og haft
eftirlit með fiskveiðum. Sérstaklega
varðandi veiðar úr einstökum fiski-
stofnum.
í þessu felst m.a.: Að taka upp
strangara veiðieftirlit og vemdarráð-
stafanir. Að draga úr stærð og veiði-
getu flotans. Og að auðvelda heildar-
sýn yfir fiskveiðar með því að skrá ná-
kvæmlega alla veiði skipa Evrópu-
bandalagsins.
Framkvæmdastjórnin telur það
eðlilega afleiðingu, að strandríkin
sem fengu forræði yfir 95% fiskimið-
anna við útfærslu landhelginnar á
sínum tíma, vilji sjálf nýta þessi fiski-
mið með eigin flota. Þessi staðreynd
neyði Evrópubandalagið til þess að
endurskoða stefnu sína um að krefj-
ast aðgangs að fiskveiðiauðlindum
þessara ríkja. Tengsl bandalagsins við
þessi ríki verði í framtíðinni að
byggjast á annars konar tengslum en
veiðiheimildum. Þar megi sérstak-
lega nefna nánari tengsl milli aðila í
sjávarútvegi í þessum rfkjum og inn-
an EB. Þær takmarkanir á aðgangi að
fiskimiðum sem floti EB búi við leiði
til sívaxandi skorts á fiskafurðum
innan EB. Bandalagið verði að finna
nýjar leiðir til viðskipta til þess að
draga úr skorti á fiskafurðum, sam-
hliða því að efla rannsóknir á fiski-
stofnum og fiskeldi.
Fiskimenn í Evrópubandalaginu eru
um 300 þúsund talsins. Árið 1988
flutti EB inn fisk til manneldis fyrir
um 5.380 millj. ecu eða yfir en 400
milljarða króna.
HEI
20 faereyskir psóríasissjúklingar baða sig nú í Bláa lóninu á
vegum Kiwanishreyfingarinnar. Björghéðin Jacobsen:
Hefur reynst börnunum vel
Þessa dagana eru staddir hér á landi á vegum íslensku og færeysku
Kiwanishreyfingarinnar, 20 færeyskir psóríasissjúklingar. Færeying-
amir munu dvelja hér á landi í tvær vikur og stunda böð í Bláa lón-
inu, en þeir komu til landsins si. laugardag.
Psóríasis er ólæknandi húðsjúk-
dómur. Hægt er að halda einkenn-
um niðri með ýmsu móti, m.a. sól-
böðum og böð í Bláa lóninu hafa
borið góðan árangur. Hlutfall psór-
íasissjúklinga í Færeyjum er hærra
en gengur og gerist í öðrum löndum
og að sögn Leifs Fossdal Guttesen,
formanns færeyska psóríasisfélags-
ins, er ekki vitað hver ástæðan fyrir
því er.
Eins og áður sagði þá er það Kiwan-
isfélagið í Færeyjum og Kiwanis-
hreyfmgin hér á landi sem stendur
straum af kostnaðinum við ferðina.
Björghéðin Jacobsen er fulltrúi fær-
eyskra Kiwanismanna og fararstjóri
hópsins hér á landi. Hann sagði að
kostnaðurinn við svona ferð væri
mikill, en þeir hefðu náð að safna
talsverðu fé um síðustu jól og það
heföi gert þeim kleift að fjármagna
þessa ferð, en Kiwanisfélögin ís-
lensku borguðu einnig rúmlega
helming af útlögðum kostnaði.
Einnig hefðu þeir fengið flugfar-
gjöldin niðurgreidd hjá Flugleiðum
sem og gistinguna á færeyska sjó-
mannaheimilinu.
Af þessum 20 Færeyingum er rúm-
lega helmingurinn böm á aldrinum
eins til fimmtán ára. Björghéðin
sagði að svo virtist vera sem lónið
hefði góð áhrif á bömin og útbrotin
hefðu snarminnkað strax á fyrstu
dögunum. —SE
Leifur Fossdal Guttesen, formaður
færeyska psóríasisfélagsins, og
Björghéðin Jacobsen, fulltrúi fær-
eyskra Kiwanismanna, í Bláa lón-
inu. Björghéðin er sá sem stendur
á bakkanum. Timamynd: Pjetur
kemur út á föstudag
T Tíminn