Tíminn - 30.05.1991, Page 2

Tíminn - 30.05.1991, Page 2
2 Tíminn M.'O .* ‘ n X ~ ' r » I i « i 7 Fimmtudagur 30. júní 1991 Davíð Oddsson segir að ef stjórnin geti ekki lagalega rift einhliða stuðningsaðgerðaþætti búvöru- samningsins þá blasi það við að hún muni boða bændurtil viðræðna um niðurskurð eða frestun: Vill Davíð rýra hlut Fyrir kosningar gagnrýndi Davíð Oddsson nýja búvörusamninginn einkum fyrir það hve hann væri óhagstæður bændum. Nú lætur hann að því liggja að stuðningsaðgerðaþáttur samningsins verði tekinn til endurskoðunar — með hag ríkissjóðs í huga Tímamynd: Arni Bjarna Davíð Oddsson forsætisráðherra lýsti því yfir á Alþingi í gær að sér þætti það blasa við, ef í ljós kæmi að ríkisstjómin værí bundin af stuðningsaðgerðaþætti búvöru- samningsins, að teknar yrðu upp viðræður við bændur um að draga úr eða fresta þeim þætti. Davíð sagði að gerð svo viðamikils samnings hefði verið óheppileg rétt fyrir kosningar. Samningur- inn værí með fyrirvara um laga- breytingu á Alþingi og ef sú laga- breyting myndi ekki ganga fram, þá væri það spuming hvort samn- ingurinn væri ekki þar með allur fallinn úr gildi. Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra talaði á undan Davíð og sagði hann í upphafi ræðu sinnar að hann vildi ítreka það sem hann hefði áður sagt, að hann vildi standa við og framfylgja búvörusamningnum. Sjálfstæðismenn væru vanir að standa við gerða samninga. Davíð Oddsson sagði í samtali við Tímann í gær að éícki væri hægt að skilja orð sín á Alþingi f gær á þann hátt að hann væri ósammála Halldóri Blön- dal. Eins og Tíminn greindi frá í síðustu viku þá hefur farið fram lögfræðileg athugun á því hvort ríkisstjómin sé bundin af búvörusamningnum, og sagði Davíð Oddsson að álit ríkislög- manns um það væri komið og yrði rætt á ríkisstjómarfundi á morgun. Aðspurður sagði hann að stjórnin hefði með því verið að kanna stöðu sína í málinu, því nauðsynlegt væri að hún vissi nákvæmlega hver staða hennar væri. „Samningurinn var gerður þrátt fyrir að einn af stjómar- flokkunum væri honum andvígur. Hann var gerður með fyrirvara um samþykki Alþingis og það er nauð- synlegt að ríkisstjórnin viti hvað felst í málatilbúnaði af þessu tagi,“ ði Davíð. ræðu sinni á Alþingi í gær, sem flutt var undir liðnum stefnuræða forsætisráðherra, sagði Davíð Odds- son að búvörusamningurinn væri gerður með fyrirvara um lagabreyt- ingar á Alþingi. „Spurning er hvað felst í þessu. Þýðir þetta í raun al- mennur fyrirvari um samninginn allan eða bara tiltekna þætti hans sem þurfa lagabreytingar við? Mætti þá ekki segja um leið að þessar laga- breytingar hljóti eins og annað efni samningsins að vera slík forsenda samningsins, að gangi þær ekki fram, vegna þess að hið nýja Alþingi kjósi ekki að samþykkja lagabreyt- ingamar, þá sé samningurinn þegar úr gildi fallinn." Þá sagði Davíð að í stuðningsað- gerðaþætti samningsins væri um aö ræða miklar fjárskuldbindingar. ,Auðvitað hlýtur ríkisstjórn, sem tekur við völdum í landinu og þarf að huga að stórkostlegum halla rík- issjóðsins, að taka atriði eins og þetta til skoðunar. Ef að niðurstaðan væri sú að ríkisstjómin væri algjör- lega bundin af þessum þætti sérstak- lega, þá gæti hún engu að síður tek- ið það upp við viðsemjandann, með skírskotun til þess ástands sem væri í ríkisbúskapnum þá væri óhjá- kvæmilegt og í þágu landsins alls og þar með viðsemjandans, að draga úr eða fresta þessum þætti. Mér finnst það blasa við að þessir kostir séu færir,“ sagði Davíð Oddsson. Eins og áður sagði þá er álit ríkis- lögmanns komið í hendur forsætis- ráðherra og verður kynnt í ríkis- stjórninni á morgun. Erfitt er að skilja þessi orð Davíðs á annan hátt en þann að ríkislögmaður telji stjórnina vera bundna af stuðnings- aðgerðaþætti samningsins, og virð- ist Davíð því vera að boða bændur til viðræðna um niðurskurð. Aðspurður sagði Halldór Blöndal að ekki væri hægt að skilja það svo að landbúnaðarráðherra og forsætis- ráðherra væm ósammála um það hvort standa ætti við búvömsamn- inginn eða ekki. „Ég er þegar byrjað- ur að efna búvörusamninginn, en það er náttúrlega svo um allt sem lít- ur að samþykki Alþingis, að Alþingi hefur síðasta orðið, og það er þeim kunnugt sem gerðu þennan búvöm- samning," sagði Halldór. Jón Helgason, þingmaður Fram- sóknarflokksins, sagði að þessi yfir- lýsing forsætisráðherra hefði komið honum mjög á óvart, því hann hafi þar með algjörlega ómerkt ummæli landbúnaðarráðherra. Jón sagði að í síðustu viku hefðu fulltrúar bænda- samtakanna kynnt ráðuneytum búnaðarsambanda búvömsamning- inn, m.a. vegna jákvæðrar afstöðu núverandi landbúnaðarráðherra til hans. „Það er algjör forsenda fyrir því starfi að þeir geti treyst því sem í samningnum stendur. Ekki það, eins og hæstvirtur forsætisráðherra sagði, að það ætti nú allt að taka til endurskoðunar og niðurskurðar,“ sagði Jón. Hann sagði að samningurinn byggðist á því að sauðfjárbændum væri ætlað að skera niður íjárstofh sinn, en í staðinn skuli þeir studdir á margvíslega vegu, til þess að finna sér nýjan starfsvettvang. „Fyrir bónda, sem á að minnka sinn bú- stofn og draga úr sínum tekjum, þá er það auðvitað úrslitaatriði, að hann geti haft nokkuð rökstudda von eða vissu fyrir því að við fyrir- heitin um stuðning við leit að nýjum möguleikum verði staðið. Að öðmm kosti hlýtur hann að gefast upp,“ sagði Jón Helgason. Jón sagði að það væri mikill mis- skilningur að hægt væri að taka þetta atriði til endurskoðunar og niðurskurðar, þetta væri undir- stöðuatriði samningsins. Jón sagði að þrátt fyrir góðar yfirlýsingar land- búnaðarráðherra, þá væri það land- búnaðarráðherra nauðsynlegt, vegna ummæla utanríkisráðherra, að fá algjörlega ótvíræða yfirlýsingu frá forsætisráðherra um það að við búvörusamninginn yrði staðið. „Svo kemur reiðarslagið. I staðinn fyrir að forsætisráðherra standi nú við bakið á flokksbróður sínum, þá kemur hann og segir að ríkisstjórnin hljóti að taka stuðningsaðgerðimar til endurskoðunar, sem er algjör for- senda samningsins," sagði Jón. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrver- andi landbúnaðarráðherra, sagði að víðtæk samstaða hefði náðst um samninginn og því yrði ekki trúað að óreyndu að ríkisstjórnin væri svo gæfulaus að ætla að henda slíkri sáttargjörð frá sér. —SE Ársfundur Alþjóða hvalveiðiráðsins sker úr um hvalveiðitillögu íslendinga í dag: BNA-mönnum leyfðar veiðar, okkur ekki? Ósamræmi í málflutningi ráðherra á Alþingi: SÉRSTAKT STEFNU- SKJAL EÐA ÓFULL- GERT MINNISBLAÐ? Tækninefnd Alþjóða hvalveiði- ráðsins tók ekki afstöðu til beiðni Bandaríkjamanna um meiri veiði- kvóta til handa Inúítum í Alaska. Hún fékk sömu örlög og beiðni ís- lendinga — var vísað til ráðsins sjálfs. Bandaríkjamenn fóru fram á að Inúítar mættu veiða 54 Grænlands- sléttbaka ár hvert næstu þrjú ár. ís- lendingar og Norðmenn lögðu þá til að kvótinn yrði aðeins veittur í eitt ár í senn. Ekki þrjú eins og verið hefur hingað til. Með því hefðu Bandaríkjamenn neyðst til að sækja um kvóta á hverju ári. Það er vita- skuld viðkvæmt fyrir þá þjóð sem fremst gengur í að friða hvali. Tækninefndin tók ekki afstöðu til málsins, sendi það beint til ráðsins sjálfs. Beiðni Bandaríkjamanna bíða þó að öllum líkindum önnur örlög en beiðni íslendinga. Beiðni Banda- ríkjamanna verður nær örugglega samþykkt í dag, en beiðni íslendinga felld. íslenskir hvalveiðimenn segja að gangi þetta eftir, muni sjást í hnotskurn hversu langt Hvalveiði- ráðið hefur borið af réttri leið — þeirri leið sem mörkuð er í stofn- skrá þess. Flest aðildarríki ráðsins ætla markmið og hlutverk ráðsins að koma í veg fyrir allar veiðar í at- vinnuskyni. Aðeins megi leyfa veiðar frumbyggja, eins og af þjóðfræðile^- um áhuga. Hin aðildarríkin, og ís- land meðal þeirra, ætla hlutverk ráðsins að koma á skynsamlegri nýt- ingu hvala. í atvinnuskyni. -aá. Utanríkisráðherra og forsætisráð- herra eru ekki samstíga í túlkun á því hvers konar skjal liggi tii grundvallar landbúnaðarstefnu stjómarinnar. Utanríkisráðherra telur það vera sérstakt stefnuskjal og vitnaði í það í ræðu sinni fyrr í vikunni, en í þingskapaumræðu í gær mátti heyra það á forsætisráð- herra að um væri að ræða ófullgerð minnisblöð flokkanna sem stjóm- arandstaöan ætti enga heimtingu á aö fá að sjá. Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, hóf þing- skapaumræðuna og krafðist þess að þingið fengi afhent þetta skjal, þar sem utanríkisráðherra vitnaði í það í ræðu sinni aðfaranótt þriðjudags- ins. Davíð Oddsson forsætisráð- herra kom því næst í pontu og sagði að þarna væri aðeins um minnis- blöð stjórnmálaflokka að ræða, sem ekki væri búið að fullganga frá. Svavar Gestsson, þingmaður Al- þýðubandalagsins, kom skömmu síðar í' pontu og benti á að þessi ófullgerðu minnisblöð hefði utan- ríkisráðherra kallað sérstakt stefnu- skjal ríkisstjórnarinnar og spurn- ingin væri því sú hvort hér væri um oftúlkun að ræða af hálfu utanríkis- ráðherra. Fleiri stjórnarandstæð- ingar tóku undir þá skoðun að ef um sérstakt stefnuskjal stjórnar- innar væri að ræða þá væri það op- inbert skjal og því bæri að afhenda þinginu það. Landbúnaðarráðherra vildi ekki tjá sig um hvort hann hefði séð þetta skjal og utanríkis- ráðherra þagði þunnu hljóði í gær- dag. —SE

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.