Tíminn - 26.06.1991, Blaðsíða 9
8 Tíminn
Miðvikudagur 26. júní 1991
Miðvikudagur 26. júní 1991
Tíminn 9
Innflutnings- og einangrunarstöð fyrir alifugla tekin til starfa. Nýir varp- og kjötstofnar í rsektun:
vaxa hraðar
Á Hvanneyri í Borgarfirði er innflutnings-
og einangrunarstöð fyrir alifugla tekin til
starfa. Fyrirtækið var stofnað sérstaklega að
frumkvæði eggja- og kjúklingabænda til að
koma á fót og reka slíka stöð, en henni er
ætlað að verða miðstöð kynbóta á alifuglum
hérlendis.
Stöð þessi markar tímamót í sögu eggja- og
kjúklingaframleiðslu hér á landi. Eitt helsta
markmiðið með stofnun stövarinnar er að
lækka framleiðslukostnað á eggjum og kjúk-
lingum án þess að slakað sé á kröfum um
gæði.
Sameignarfélagið Stofnungi
Stofnungi sf. sér um rekstur stöðvarinnar.
Stofnungi sf. er sameignarfélag Félags eggja-
framleiðenda og Félags kjúlingabænda. Fram-
kvæmdastjóri Stofnunga sf. er Eiríkur Einars-
son, en Ólöf Erla Bjarnadóttir sér um hænsn-
in.
Fyrirtækið leysti til sín þrotabú ísunga með
aðstoð Framleiðnisjóðs landbúnaðarins.
Byggingar ísunga höfðu þá staðið ónotaðar á
Hvanneyri í þrjú ár. Um áramótin var hafist
handa við að koma upp aðstöðu til frjóeggja-
innflutnings sem stæðist ýtrustu kröfur um
heilbrigði og öryggi. í mars á þessu ári komu
svo fyrstu frjóeggin til landsins og nú þegar
hafa 36.000 egg verið flutt inn.
Framleiðsluaukning
með nýjum stofnum
Með innflutningi á frjóeggjum er ekki ver-
ið að bæta innlendu stofnana. Þeir verða
látnir víkja fyrir einstaklingum af svipuðum
stofnum, sem náð hafa hærra ræktunarstigi
og þjóna betur þeim kröfum sem gerðar eru
til eggja- og kjúklingaframleiðslu um verð
og gæði. Um er að ræða tvær tegundir
stofna til innflutnings: holdastofn og varp-
stofn.
Núna eru rúmlega 5.000 ungar af varpstofn-
inum í einangrun í stöðinni. Næstu þrjár
sendingar af frjóeggjum verða af holdastofni.
Með nýja varpstofninum er búist við að afurð-
ir á hverja varphænu aukist úr 13-14 kg af
eggjum í 17-18 kg.
Fóðurþörfin er minni en hjá innlenda varp-
stofninum, meðalþyngd eggjanna er meiri og
varptími hænsnanna hefst fyrr, þannig að
uppeldistíminn styttist. Með nýja holdastofn-
inum er fóðurþörfm minni en hjá innlenda
stofninum, án þess þó að það komi niður á
vaxtarhraða eða stærð fuglanna.
Þá er vaxtarhraðinn mun jafnari en innlenda
stofnsins, sem auðveldar uppeldi fuglanna,
eykur hagkvæmni og gæði afurðanna. Bara
með því að skipta um stofna má reikna með
15-18% kostnaðarlækkun í framtíðinni.
Framræktun óhagstæð
Ekki er talið hagkvæmt fyrir greinarnar að
framrækta stofnana. Því verður stöðugt að
flytja inn frjóegg fyrir nýja foreldrafugla til að
hindra úrkynjun.
Framræktun innlendu varp- og holdastofn-
anna hefúr orsakað úrkynjun, sem lýsir sér
m.a. í lélegri fóðurnýtingu og háum fram-
leiðslukostnaði í eggja- og kjúklingafram-
leiðslu.
Til að fullnægja eftirspurn framleiðenda er
búist við að flytja þurfi til landsins frjóegg fyr-
ir varpstofninn einu sinni á ári, en þrisvar á ári
fyrir holdastofninn.
Náið samstarf
við yfirdýralækni
Stjórn Stofhunga sf. hafði náið samstarf við
embætti yfirdýralæknis um hvaða land yrði
fyrir valinu þegar að innflutningi nýrra stofna
kæmi. Að vandlega athuguðu máli urðu
norskir stofnar fyrir valinu. Þeir þóttu sam-
eina kosti afurðasemi og heilbrigðis.
Heilbrigðisþátturinn er ekki síður mikilvæg-
ur en afurðasemi stofnanna, þar sem ýmsir
hænsnasjúkdómar hafa ekki enn borist hing-
að til lands með tilheyrandi erfiðleikum og
kostnaði. Af þessum sökum er innflutningur á
frjóeggjum vandmeðfarinn og gæta verður
fyllsta öryggis.
í kjúklingaframleiðslu er notaður stofn sem
nefnist Hvítur Plymouth Rock. Samtökum ali-
fuglabænda í Noregi hefur tekist að bæta af-
urðasemi stofnsins verulega. Dregið hefur ver-
ið úr fóðurþörfmni án þess að það komi niður
á vaxtarhraða eða stærð fuglanna. Vaxtarhrað-
inn hefur aukist og eldistíminn styst til muna.
í eggjaframleiðslu er notaður hænsnastofn
sem nefnist Hvítir ítalir. Norðmenn hafa náð
góðum árangri með stofninn undanfarin ár.
Kíló á hverja varphænu hefur aukist um tvö
kíló og meöalþyngd eggjanna aukist. Þá hefst
varptími hænsnanna fyrr, þannig að uppeldis-
tíminn styttist.
Bólusetning við
Mareks-iömunarveiki leyfð
Innflutnings- og einangrunarstöðin á Hvann-
eyri er beinlínis hönnuð með það í huga að
draga sem mest úr hættunni á útbreiðslu
nýrra sjúkdóma. Dýralæknar hafa stöðugt eft-
irlit með starfseminni og tekin eru sýni reglu-
lega til að fylgjast með heilbrigði fuglanna.
Fram til þessa hefur ekki verið leyft að bólu-
setja alifugla við svonefndri Mareks-lömunar-
veiki hér á landi. Veiki þessi hefur valdið tölu-
verðum búsifjum meðal eggja- og kjúklinga-
bænda. í mars 1991 veitti yfirdýralæknir leyfi
fyrir notkun bóluefnisins. Allir ungar í inn-
flutnings- og einangrunarstöðinni verða bólu-
settir þegar þeir koma úr klekjaranum. Vonir
standa til að þetta nýfengna leyfi verði til þess
að vanhöld minnki og muni ásamt nýjum
stofnum lækka framleiðslukostnað.
minna
verpa meira
Ingu
Sigurðar-
dóttur
Ný reglugerð
um alifuglarækt
í október 1990 var gefin út ný reglugerð um
alifuglarækt, sem ætlað er að tryggja hollustu
alifuglaafurða og bæta heilbrigðisástandið í
alifuglaframleiðslunni í víðum skilningi. Með
heilbrigði er þarna bæði átt við sjúkdóma,
sem upp kunna að koma, og vellíðan fugl-
anna.
Reglugerðin leysir af hólmi gamla reglugerð,
nr. 225 frá árinu 1950, sem var orðin úrelt. í
þeirri nýju er í fyrsta sinn kveðið á um að
*4" í
WmSm.. H L
- x ^ xx, . > 'Lív • -W
■m
Frá innflutnings- og einangrunarstöð Stofnunga sf. á Hvanneyri.
dýralæknir með sérþekkingu á alifuglasjúk-
dómum starfi við embættið. Honum er ætlað
að sinna vörnum og sjúkdómsgreiningu, auk
þess að hafa umsjón með reglubundnu efirliti
á alifuglabúum. Þá verða öll eggja- og kjúk-
lingabú héðan í frá að hafa fullgilt rekstrar-
leyfi til að framleiða á almennan markað.
freglugerðinni eru ýmis ákvæði sem miða að
því að hindra að smit berist á milli einstakra
framleiðsluþátta alifuglaræktarinnar. Má þar
nefna fjarlægðarmörk milli bygginga, sótt-
hreinsun og hvfld eldishúsa'. Gefinn er frestur
til að uppfylla skilyrði um fjarlægðarmörk til
1. janúar 1994.
í reglugerðinni felst m.ö.o. aukinn hvati til
þess að einstakir bændur sérhæfi sig í rekstri
stofnbúa, útungunarstöðva eða framleiðslu á
neyslumarkað eins og algengt er víða erlendis.
Fjögurra þrepa ferill
Ferillinn frá innflutningi til bónda er um 18
til 20 mánaða langur, í fjórum aðskildum
þrepum. f honum felst hvati til aukinnar sér-
hæfingar innan greinanna. í Danmörku er t.d.
stuðst við þennan sama feril.
Útungun og einangrun stofnfugls á Hvanneyri
stendur í 14 til 16 vikur. Þaðan fara ungamir á
stofnbú. Þar fer uppeldi stofnfugls fram, svo og
varp. Eggin þaðan fara á útungunarstöðvar
sem sjá um útungun á framleiðslufugli. Ungar
þaðan fara svo til bænda sem holdakjúklingar
eða eru aldir upp til að verða varphænur.
Eiríkur Einarsson segir að eftir rúmlega tvö
ár verði hinir nýju stofnar teknir við af þeim,
sem fyrir eru hér á landi, og komnir á flest,
ef ekki öll, eggjaframleiðslu- og kjúklinga-
bú.
Ekki aðför að gamla
íslenska hænsnastofninum
Sá misskilingur hefur gert vart við sig að
með innflutningnum sé verið að gera skipu-
lega aðför að gamla íslenska hænsnastofnin-
um. Það er ekki rétt. íslenski hænsnastofninn
hefur aldrei verið nýttur í alifuglaræktinni hér
á landi.
Fyrir nokkmm árum var talið að hann væri
að deyja út. Honum var komið til bjargar og
að sögn Stefáns Aðalsteinsonar hjá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins er hann búinn
að ná sér vel á strik. Vestur-íslendingar hafa
óskað eftir að fá nokkur hænsni af þeim stofni
til að rækta upp í sínum heimkynnum, og
Tlmamynd; SIS
ekki verður þess langt að bíða að af því geti
orðið.
Eiríkur Einarsson, framkvæmdastjóri Stofn-
unga, segir að hingað til hafi allt gengið að
óskum í starfi fyrirtækisins. Hann var mjög
bjartsýnn á framtíð þess: „Þetta er mjög stórt
skref, sem stigið hefur verið, og í raun nýr
kafli í sögu alifuglaræktar hér á landi. Ég er af-
ar bjartsýnn á framtíð Stofnunga og tel að það
hafi framtíðina fyrir sér.“ Sagði Eiríkur Ein-
arsson.