Tíminn - 26.06.1991, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGU
-
EB telur tilboð Islendinga og Norðmanna á Lúxem'
borgarfundinum ekki vera grundvöll samninga
Viðræður EB og EFTA
aftur á byrjunarreit
„Þetta virðist ætla að verða erfitt.
Það virðist ekki ætia að halda þar
heiðursmannasamkomuiagið,
fremur en hjá sumum hér heima,“
sagði Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins, í
gær um viðræður EB og EFTA í
Salzburg í gær. Viðræðunum lauk
með þeim árangri einum að samn-
ingsaðilar lýstu sameiginlegum
vilja beggja til að Ijúka samningun-
um áður en sumarfrí EB hefjast í
ágústmánuði. Jón Baldvin Hanni-
balsson sagði í gær að takist
samningar ekki fyrir þann tíma séu
markmið samningaviðræðnanna í
hættu. Það eru einkum fjögur at-
riði sem hindra samkomulag EB
og EFTA: Fríverslun með fisk,
vöruflutningar um Alpana, þróun-
arsjóður (eins konar byggðasjóð-
ur til að styrkja fátæk svæði álf-
unnar) og lengri tími til aðlögunar
að frjálsu streymi fólks og fjár-
magns. • Blaðsíða 5
——
Hljómskálinn í klössun
Nú er unniö að viðgerð á Hljómskálanum, aðsetri Lúðrasveitar
Reykjavíkur. Hljómskálinn er reistur á gömlum öskuhaugum Reyk-
víkinga og Jóhannes Kjarval listmálari mótmælti byggingu hans
kröftuglega á sínum tíma, þar sem hann skyggði á útsýni til Keilis.
Tlmamynd: Áml BJarna.