Tíminn - 26.06.1991, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 26. júní 1991
Tíminn 15
íþróttir!
Bjarki Pétursson lék vel I liði KR (
gærkvöld, gegn Breiðabllks mönnum
á gervigrasinu í Kópavogi.
Timamynd Pjetur
Wimbledon-tennismótið:
Rigningin aftur
í aðalhlutverki
Ljúka tókst nokkrum leikjum
á Wimbledon-tennismótinu í
gær, áður en hætta varð vegna
rigningar. í fyrradag var ekkert
hægt að leika vegna vatns-
veðurs. Helstu úrslit í gær urðu
þau að núverandi meistari í
kvennaflokki, Steffi Graf frá
Þýskalandi, vann öruggan sigur
á Sabine Appenmans frá Belgíu
6-2 og 6-2. Þá vann Martina
Navratilova 4-6, 6-2 og 6-4 sig-
ur á Elnu Reinach frá S-Afríku,
Arantxa Sanchez Vicario frá
Spáni vann Barböru Rittner frá
Þýskalandi 6-1 og 6-2.
í karlaflokki vann Pat Cash frá
Ástralíu 6-2, 6-3 og 6-3 sigur á
Jeff Tárango frá Bandaríkjun-
um. Kevin Curren, Banda-
ríkjunum, vann Fernando Ro-
ese frá Brasilíu 6-3, 6-3 og 6-1,
og John McEnroe, Bandaríkjun
um, vann Jaime Oncins frá
BrasiIíu6-l,6-2og6-4. BL
Knattspyrna — Kvennalandslið:
26 stúlkur valdar
í landsliðshópinn
Sigurður Hannesson og Steinn
Helgason, landsliðsþjálfarar
kvenna, hafa valið eftirtaldar
stúlkur til undirbúnings fyrir
leiki gegn þýsku héraðsmeist-
urunum frá Hessen. Leikirnir
verða þrír. 5. júlí verður leikið á
Selfossi, 7. júlí á Akranesi og 9.
júlí í Reykjavík.
MARKVERÐIR:
Steindóra Steinsdóttir ÍA
Þórdís Sigurðardóttir Þór
Sigfríður Sophusdóttir UBK
Sigríður Pálsdóttir KA
AÐRIR LEIKMENN:
Karítas Jónsdóttir Þrótti Nes.
Helen Ólafsdóttir KR
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir KR
Kristrún Heimisdóttir KR
Bryndís Valsdóttir Val
Ragnheiður Víkingsdóttir Val
Guðrún Sæmundsdóttir Val
Hera Ármannsdóttir Val
Amey Magnúsdóttir Val
Ellen Óskarsdóttir Þór
Vanda Sigurgeirsdóttir UBK
Sigrún Óttarsdóttir UBK
Ásta B. Gunnlaugsdóttir UBK
Amdís Ólafsdóttir KA
Laufey Sigurðardóttir ÍA
Magnea Guðlaugsdóttir ÍA
Anna Lilja Valsdóttir ÍA
íris Steinsdóttir ÍA
Jónína Víglundsdóttir ÍA
Sigurlín Jónsdóttir ÍA
Ragna Lóa Stefánsd. Stjömunni
Auður Skúladóttir Stjömunni
Leikirnir gegn þýska liðinu
eru liðir í undirbúningi ís-
lenska liðsins fyrir þátttöku í
Evrópukeppni landsliða, en þar
mætir liðið Englendingum og
Skotum.
KNATTSPYRNA - SAMSKIPADEILD:
Áfram heldur einvígi
Breiðabliks og KR
Efstu Uð 1. deildar í knattspymu skildu
jöfn á gervigrasveUinum í Kópavogi í
gærkvöld, 1-1. Einvígi Uðanna heldur
því áfram. Liðin hafa 14 stig, en ÍBV
krækti í þriðja sætið í gærkvöld með 2-
1 sigri á Val á HUðarenda. KA og Víðir
gerðu 1-1 jafntefli á Akureyri.
Leikurinn í Kópavogi var ágætlega leik-
inn af báðum liðum og gróf brot sáust
ekki. KR-ingar náðu forystu á 30. mín. er
Rúnar Kristinsson skoraði glæsilegt
mark beint úr aukaspymu. Rúnar
sneiddi boltann framhjá vamarvegg
Blikanna og f markið, alveg úti við stöng.
Rúnar varð síðan að fara af leikvelli
meiddur á 55. mín. Breiðabliksmenn
áttu mikinn endasprett og tveimur mfn.
fyrir leikslok skoraði besti maður
Breiðabliks í Ieiknum, Hilmar Sighvats-
son, glæsilegt mark með skoti af löngu
færi. Á sfðustu mín. leiksins var Guð-
mundur Guðmundsson nálægt því að
tryggja Breiðabliki sigurinn, en skot
hans fór fTamhji
Menn leiksins, Breiðablik: Hilmar Sig-
hvatsson og Pavel Kretovic. KR: Bjarki
Pétursson og Heimir Guðjónsson.
IBV vann Val
Eyjamenn unnu 2-1 sigur á Val á Hlíð-
arenda og hafa Valsmenn nú tapað
þremur leikjum í röð. Amljótur Davíðs-
son skoraði bæði mörk Eyjamanna, en
Þórður Birgir Bogason jafriaði fyrir Val
1-1.
Jafht fyrir noröan
Víðismenn kræktu í stig á Akureyri, er
þeir léku gegn KA Ólafur Róbertsson
tók forystuna fyrir gestina í fyrri hálfleik,
en undir lok leiksins jafnaði Ámi Her-
mannsson metin, þá nýkominn inná
sem varamaður. BL
„Ég er gáttaður á dómgæslunni
í lciknum, þetta er það slakasta
sem ég hef séð í 1. deild. Dómar-
inn mlsst! fullkomlega tök á
leiknum. Ég saka hann etótí um
hlutdrægnf, en hann átti efnfald-
fega arfaslakan dag,“ sagði Pálf
Bragason, formaður knattspymu-
deildar Stjörnunnar, um dóm-
gæsiu Egils Más Markússonar í
lefk Stjömunnar og Víkings í
fyrrakvöld, erVfkingur sigraöi 3-4
f efthminniiegum leik.
„Við gerum okkur grein fyrír því
að við fáum engu breytt um úrslit
Iciksins, þau sfanda. En nokkur
atriði má tína til sem við erum
ósáttir við. Dæmd var vítaspyma á
Bjama Benediktsson, þegar boit-
inn fór í lærið á honum, og það er
nú sannað með sjónvarpsmynd-
um. Síðan sleppti hann augljósrí
vítaspymu þejjar Þór ómari Þór-
issyni var bragðið í vítateignum.
Þá er það aðdragandinn að því
þegar Jóni Otta markverði var vís-
að út af. Þar brást línuvörðurinn,
þar sem um augfjósa rangstöðu
var að ræða. Þá var dómarinn
ósamkvæmur sjálfum sér er hann
gaf Guömundi Hrciðarssyni,
markverði Vðdngs, gult spjald fyr-
ir hliöstætt brot og Jóns Otta. Það
er eina atvikið í leiknum þar sem
hægt er að taia um
sagði Páll.
Sijöraumenn
fyrir aganefnd og fara fram á það
að Jón Otti fái ekki Jeíkbann, þar
sem brot hans hafi komiö upp úr
rangstöðu.
3g er eldd að bera það uppi
okkur vifjandi og hér er ekki um
persónulegar árásir að ræða.
Engu að síður tel ég að við höfum
ekki vera. Vlö vorum með fæst
agahrot í fyrra og vorum verðiaun-
aðir fyrhr það. Eg tel ekld að við
höfiun breytt stórlega um aðferð.
Hins vegar þykir mér dómarar
hafa töluvert mikið breytt um að-
ferð. Þeir em með spjöldin á íofti
lon og don. Það komu ný fyrir-
mæli frá FIFA og dómaranefnd
KSÍ, um að taka harðar á vissum
brotum og meöan menn eru að
venjast þessu gengur á ýmsu.
Dómarar virðast vera uppteknir af
því sem er nýjast í faginu og
gieyma öðm, sem er alveg eins
dómarans.“
Nokkuð hefur borið i „
ieik nú í upphafl íslandsmóts,
þrátt fyrir sérstakt átak tfl heiðar-
Jegri leiks. Sijaman hefur fengið á
sig 12 gui spjöld, auk þriggja
rauðra spjalda af þeim 5 scm gef-
in hafa verið. Er Stjaman með
grófasta iiðið í deildinni?
„Ég hef ekki séð mikið af leikj-
um í sumar, þannig að ég er ektó
aiveg dómbær á það. Þó tel ég svo
ið að vera Íengi gilt. Dómarar hafa
verið afar spjaldaglaðir, en oft
ósamkvæmir sjáifum sér,“ sagðl
Páll Bragason.
Þrír ieikmenn Stjömunnar verða
væntaniega í leikbanni í næsta
leik: Jón Otti, Júgóslavinn Zoran
Goguric, sem búinn er að fá 4 gul
spjöid, og Birgir Sigfússon sem á
yfir höfði sér tveggja leikja bann,
þar sem hann hefur tvrvegis feng-
ið rautt spjald í sumar.
BL
Egill Már Markússon knattspyrnudómari:
„Hef ekki sjónvarpsmynda-
vélar til að styðjast við“
,ú\f þeim hátt í 80 aukaspyrn-
um, sem ég dæmdi í leiknum, er
örugglega hægt að tína til 3-4
vitleysur sem ég gerði, en ég tel
mig samt geta borið höfuðið
hátt og þetta hefur ekki venð
arfaslakur dagur hjá mér. Ég
hef ekki sjónvarpsmyndavélar
og hægar endursýningar til að
styðjast við, en ef ég hefði þær
þá hefði ég dæmt leikinn uppá
10,“ sagði Egill Már Markússon
knattspyrnudómari um ummæli
Páls Bragasonar, formanns
knattspymudeildar Stjörnunn-
ar, í sinn garð.
„Varðandi þau atriði, sem Páll tínir
til, þá get ég vel svarað þeim. Frá
mínu sjónarhorni fór boltinn í
höndina á Bjarna Benediktssyni,
þegar ég dæmdi á hann vítaspyrnu.
Af sjónvarpsmyndum er ekki hægt
að sjá hvort boltinn fór í hendina
eða ekki. Ég skal viðurkenna að af
myndunum virðist boltinn fara í
lærið, en ekki sést hvort hann fór
iíka í höndina. Varðandi hvort Guð-
mundur Hreiðarsson átti að fá rautt
spjald í staðinn fyrir gult, stend ég
fastur á mínum dómi. Hann er í
samræmi við þau tilmæli sem við
störfum eftir. Um það hvort Þór
Ómar Þórisson átti að fá vítaspyrnu,
þá var ég í mjög góðri aðstöðu til að
meta hvað gerðist. Hann rnissti bolt-
ann frá sér og datt þegar boltinn var
kominn út að endalínu. Það hefði
verið mjög ódýr vítaspyrna. Hvort
línuvörður gerði mistök áður en Jón
Otti braut af sér, get ég ekki sagt til
um. Ég treysti línuverðinum, hann
sagði að allt væri í lagi og því rak ég
manninn út af,“ sagði Egill.
„Ef það á að dæma leikinn eftir
myndavél, þá get ég sagt formanni
Stjörnunnar að vítaspyrnan, sem ég
dæmdi á Víkinga, virtist vera mjög
ódýr samkvæmt sjónvarpsmyndun-
um. Þar fannst mér Helgi Björgvins-
son hlaupa Ingólf Ingólfsson
Stjörnumann niður, en núna þegar
ég er búinn að horfa á þetta í sjón-
varpi þá get ég ekki betur séð en Ing-
ólfur hlaupi á Helga og detti síðan
niður. Ef maður ætti að fara að
dæma leiki eftir sjónvarpsmyndavél,
þá myndi maður breyta ýmsu.“
Sumum fannst þú sleppa víta-
spyrnu á Stjörnuna, er Atli Einars-
son féll í vítateignum. Hvað vilt þú
segja um það?
„Það er það sama að segja um þetta
atvik og varðandi Þór Ómar. Atli fær
að halda áfram, sparkar boltanum
og boltinn er að fara úr leik er hann
fellur. Þetta vöru ekki gróf brot og
að mínu mati ekki um vítaspyrnu að
ræða. Ég var mjög nálægt þegar
þetta gerðist, eins og reyndar allan
leikinn, og viss í minni sök.
Ég er ekki ósáttur við mína
frammistöðu í leiknum og ég held
að ég hafi verið samkvæmur sjálfum
mér. En ég er mannlegur eins og
leikmennimir og eflaust hef ég gert
einhver mistök. Ég er hins vegar
ekki á því að það hafi bitnað meira á
Stjörnunni. Ég er ekki ánægður
hvernig þjálfarar og forráðamenn
liðanna hvöttu sína menn fyrir leik-
inn. Það er ekki von á góðu þegar
talað er um að í leiknum sé um líf
eða dauða að tefla, þegar 12 umferð-
ir eru eftir af mótinu," sagði Egill
Már Markússon dómari. BL.
Mjólkurbikarkeppnin
í knattspymu:
Dregið á morgun
Síðdegis á morgun verður dregið
í 16 liða úrslitum mjólkurbikar-
keppninnar í knattspymu. Úrslit í
3. umferð keppninnar urðu sem
hér segir
Þór-Tindastóll 3-0
Haukar-ÍK 0-1
Þróttur R.-Keflavík 3-4
Akranes-Fylkir 2-1
Dalvík-Leiftur 3-4
Huginn-Þróttur Nes. 1-4
í 16 liða úrslitunum koma 1.
deildarliðin 10 til sögunnar, auk
þeirra 6 neðrideildaliða sem kom-
ust áfram úr 3. umferðinni.
EM landsliða í körfuknattleik:
Formsatriði
hjá Júgóslövum
Júgóslavar eru taldir líklegir til að
hampa Evrópubikamum í Róm á
laugardaginn, þegar úrslitaleikur
Evrópumóts landsliða verður leik-
inn. í fyrsta leik sínum á mótinu í
fyrrakvöld fóm Júgóslavar létt með
Spánverja, lokatölur vom 76-67.
Júgóslavar leyfðu varamönnum
sínum að spreyta sig síðustu 10
mfn. leiksins, en þá höfðu þeir náð
19 stiga forystu.
Þremenningamir Toni Kukoc frá
Jugoplastika Split, sem eru Evr-
ópumeistarar félagsliða, Dino Ra-
dja frá ítalska liðinu Messaggero di
Roma og Vlade Divac frá Los Ange-
les Lakers, voru í aðalhlutverki og
skomðu í sameiningu 41 stig.
Spánverjar þóttu ekki leika vel í
leiknum og gerðu þeir sig seka um
fjölda mistaka undir körfu Júgó-
slava.
Mest spennandi leikurinn á
mánudag var leikur ítala og
Grikkja. 28 stiga sveifla varð í
leiknum, er ítalir sném 18 stiga
tapi upp í 10 stiga sigur. Þrjár
þriggja stiga körfur um miðjan síð-
ari hálfleik frá Ferdinando Gentile
gerðu þar gæfumuninn. ítalir eiga
nú góða möguleika á að sigra f B-
riðli og komast þar með hjá því að
mæta Júgóslövum í undanúrslit-
um.
Úrslitin í gær urðu þessi:
A-riðill: Spánn-Búlgaría 94-93
A-riðill: Júgóslavía-P6IIandl03- 61
B-riðill: Grikkl.-Tékkósl. 123-113f
B-riðill: Ítalía-Frakkland 75-72
í dag mæta Júgóslavar Búlgörum.
Sá leikur verður léttur æfmgaleik-
ur fyrir Júgóslava. Undanúrslit
mótsins verða á föstudag og síðan
verður leikið um sæti á laugardag.
BL
Knattspyma:
Prosinecki til Madrid
og Stojkovic til Verona
Júgóslavneski landsliðsmaðurinn
Robert Prosinecki gerði á mánu-
daginn 5 ára samning við spænska
félagið Real Madrid, en hann lék í
vetur með Rauðu stjömunni í
heimalandi sínnu.
Real Madrid vildi ekki gefa upp
andvirði samningsins, né heldur
hvers vegna Prosinecki, sem er 22
ára, fær að leika erlendis. Það mun
regla hjá júgóslavneska kantt-
spymusambandinu að leikmenn
verði að vera orðnir 25 ára til að
leika erlendis. Fyrr um daginn
hafði lögfræðingur sambandsins
ítrekað þessa reglu. En Spánverj-
amir hafa greinilega fundið lausn á
málinu, sem allir aðilar hafa getað
sætt sig við.
Annar júgóslavneskur landsliðs-
maður, Ðragan Stojkovic, sem í
vetur lék með Marseille, hefur ver-
ið seldur frá félaginu til ítalska
liðsins Verona.
Stojkovic, sem er 26 ára fyrrum
leikmaður Rauðu stjömunnar, átti
lengst af við meiðsl að stríða hjá
Marseille og náði sér aldrei á strik.
Söluverðið var um 6,5 milljónir
dala, eða tæpar 400 milljónir ísl.
króna.
Verona vann sér sa. í ítölsku 1.
deildinni í vor, eftir ns árs dvöl í
2. deild.
BL