Tíminn - 26.06.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Halnarhusinu v Tryggvagotu.
S 28822
.gármálen^oltkarfaa!
S
MHRÐBBffflWflSKIPn
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18, S(MI: 688568
iel
ýo HÖGG-
DEYFAR
Versiið hjá fagmönnum
Gi varahluti
|Lj'HaDursböfóa 1 - s. 67-6744j,
Tí niiiiD
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ1991
| Veiöimenn áttu fótum fjör að launa:
fl AG A R IYVA G u R
A ARNARVATNSHEIÐI
Veiðimenn áttu fótum fjör að launa vegna ásækins mývargs á
Arnarvatnsheiði um síðustu helgi. Þurftu sumir að leita læknis.
Veiðivörður segir að mývargurinn sé óvenju slæmur núna. Sér-
fræðingar segja að ráðlegast sé fyrir fólk að halda sig innan dyra
til að forðast varginn.
„Höndin var stokkbólgin og ég
átti í erfiðleikum með að hreyfa
úlnlið," segir Bjarni Bæring
Halldórsson, sem varð fórnar-
lamb óðs mývargs á Arnarvatns-
heiði um síðustu helgi.
Bjarni var þar við veiðar ásamt
fleirum og segjast þeir aldrei
hafa séð annan eins óskapa mý-
varg og þarna var. Annar í hópn-
um fékk blóðeitrun af völdum
mýbits og þurfti sá að leita lækn-
is í Borgarnesi. Bjarni segir þá
hafa verið í þykkum lopapeysum
og brett ermarnar yfir vettlinga,
ásamt því að hylja sig flugnaneti,
en allt hafi komið fýrir ekki, því
mývargurinn hafi verið þeim
snjallari. Þar að auki segist
Bjarni hafa notað
moskítósmyrsl, en það dugði
ekki til. „Ég þorði ekki annað en
að leita til læknis þegar ég kom
til Reykjavíkur á sunnudaginn
og hann vildi helst leggja mig
inn, en nú bryð ég pensillín og
geri það væntanlega næstu 10
daga,“ segir Bjarni.
Hann segir læknana hafa orðið
hissa og varla trúað því að um ís-
lenskan mývarg væri að ræða.
Hann segist hafa verið í löndum
Veiðimenn á Arnarvatnsheiði rækilega vígbúnir gegn mývarg-
inum. Bjarni Bæring er lengst til hægri. Timamynd: Ami Bjama
þar sem moskítóflugan er skæð
og að hún hafi aldrei verið sér til
trafala. Bjarni segist samt ætla
aftur upp á heiði við fyrsta tæki-
færi. Hann ætlar að búa sig betur
næst og hefur í huga að notast
við yfirermar ásamt því að bryðja
B-vítamín.
Sá ekki til við að
beita
„Þetta var óvenju slæm ganga
sem þarna er búin að vera,“ segir
Snorri H. Jóhannsson, sem er
umsjónarmaður veiðisvæðisins á
Arnarvatnsheiði. Hann segir að
mývargurinn hafi farið um í
stórum strókum, sem séu eins
og stórir sívalningar að sjá.
Umsjónarmaðurinn kveðst vita
af einum veiðimanni sem kvart-
aði yfir að hann hafi ekki séð til
að beita fyrir mýi. Hann segist
ekki hafa séð svona áður á heið-
inni. Snorri segir að þetta sé
fyrsta mý sumarsins, sem komi á
heiðinni, og sé það yfirleitt tals-
vert í upphafi veiðitímans, en
heiðin var opnuð um síðustu
helgi. Hann segir að ástandið
verði betra þegar líða taki á sum-
arið. Aðstæður segir hann hafa
verið góðar fyrir mýið, því þarna
var mikill hiti og logn og engar
kindur komnar enn til að gerast
fórnarlömb plágunnar og létta
þannig álaginu af veiðimönnum.
Snorri segir að í fyrra hafi kom-
ið þrjár göngur, en engin þeirra
hafi verið eins og þessi. Snorri
segist vera að leggja af stað á
greni eftir nokkra daga og vonast
til að þetta verði afstaðið þá.
Kuldi og hiti verka
slævandi
„Það er lítið sem fólk getur gert
annað en að halda sig innan dyra
til að forðast mývarginn. Það er
algengast að flugurnar bíti í
kyrru en röku veðri og þá að
morgni til,“ segirÁrni Einarsson,
skordýrafræðingur hjá Líffræði-
stofnun Háskólans.
Hann segir að B-vítamín og
krem hafi ekkert að segja. Hann
segir að kuldi og hiti verki
slævandi á flugurnar þannig að
þá bíti þær síður. Þá segir Árni að
raki komi í veg fyrir að flugurnar
þorni upp, svo framarlega sem
ekki sé um slagveður að ræða
sem lemji þær niður. Hann álítur
að mývargurinn, sem hér lifir, sé
mest ein tegund, sem lifi í
straumvatni, og mest sé af hon-
um í ám sem koma úr stöðuvötn-
um og þá við upptök þeirra.
Árni segir varglirfuna lifa á svifi
og þörungum, sem komi úr vatn-
inu, og mest sé af henni þar sem
áin fellur úr vatninu. Árni segir
fluguna breytast úr lirfu í flugu á
vorin. Hún geti síðan borist lang-
ar leiðir. Þá segir Árni að flugur,
sem kvikni neðar í ánni, leiti upp
til ármynnisins til að verpa
knippi af eggjum. Komist flugan
í blóð segir Árni hana geta verpt
aftur og því sé það kvenflugan
sem stingi. Hann segir líftíma
flugnanna vera viku til tvær vik-
ur, en það fari eftir veðurskilyrð-
um.
Árni segir mýstróka vera dæmi
um rykmý, en það sé tegund sem
ekki bítur. Hann segir bitmýið
Svona lítur handleggur Bjarna
Bæríngs út eftir hinn harðvít-
uga mývarg á Arnarvatns-
heiðinni um síðustu helgi.
Tímamynd: Árni Bjarna
safnast yfir höfði manna og
skepna og komi þar til að sjúga
blóð. „Það eru yfirleitt fáir dagar
sem eru virkilega erfiðir vegna
mýbits, en yfirleitt er þetta allt í
lagi og fólk þarf að venjast þessu.
Fólki, sem er með ofnæmi, er þó
hættara en öðrum,“ sagði Árni að
lokum. -HÞ
^mmmmmmi^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmma^mmmmmmm
Dýravinir vilja ekki skemmtigarð
í Laugardalnum vegna hávaðamengunar:
Mun 3ncjf3 ^fnnyð
Húsdýragarðsins
Samband dýraverndunarfélaga valinn annar staður fjarri því
íslands mótmælir harðlega ónæði, sem skapast ef af áform-
áformum um a& byggja um stjórnvalda um byggingu
skemmtigarð í Laugardalnum, skemmtigarðs verður.
vegna álags á dýr Húsdýra- Þi ítrekar sambandið þá kröfu
garðsins sem hávaði frá sfna að villt dýr Húsdýragarðs-
skemmtitækjum myndi valda ins verði flutt f náttúríeg heim-
þeim. kynni sín. í tilkynningunni seg-
Þetta kemur fram f fréttatil- )r jafnfrarat aö ekkert dýr eigi
kynningu frá Sambandi dýra- það skilið að vera sett I „Íífstíð-
verndunarfélaga íslands. Það arfangelsr -HÞ
vill að húsdýragarðinum verði
Mun ríkið aðstoða leigjendur með
greiðslur í framtíðinni?
Skipað í húsa-
leigubótanefnd
A ríkisstjórnarfundi í morgun
var samþykkt að skipuð verði
nefnd á vegum félagsmálaráðu-
neytisins, fjármálaráðuneytis-
ins og þingflokkanna, til að
skoða hvort ríkið muni á ein-
hvern hátt aðstoða leigjendur
með leigugreiðslur í framtíð-
inni.
Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra greiða ýmis
sveitarfélög niður húsaaleigu hjá
leigjendum, en hingað til hefur rík-
ið ekki veitt þessum hópi aðstoð.
Nefndinni er ætlað að skila tillög-
um í haust og verða þær lagðar fyrir
þingið, þegar þingstörf hefjast að
nýju. -SIS
KXK l-22.iami99i_|
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 0 2.151.007
2. 4aÍ5Í ff 5 74.734
3. 4al5 161 4.003
4. 3af5 4.326 347
Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 4.670.282
IPPLYSINGAR SIMSVARI91 -681511 lukkulina991 002