Tíminn - 14.09.1991, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 14. september 1991
Byggingarkostnaður Perlunnar:
Igildi 12 leik-
skóla og reksturs
þeirra í 15 ár
Raunveruleg stærð hárra talna (fjárupphæða) reynist oft tormelt
nema í samanburði við eitthvað áþreifanlegra. Þannig rak blaða-
mann Tímans t.d. í rogastans er hann áttaði sig á því að sama upp-
hæð og fer í byggingu Perlunnar hefði nægt fyrir byggingarkostnaði
12 nýrra leikskóla og þar á ofan kostnaðarhlut borgarinnar af rekstri
þeirra allra í 15 ár (til ársins 2006). En 12 nýir leikskólar mundu
einmitt nægja fyrir öll þau 1.220 börn, sem biðu eftir plássi á leik-
skólum borgarinnar um síðustu áramót, og rúmlega það.
Verður 57 milljóna króna um-
frameyðsla veitingamannsins á
kostnað Hitaveitunnar (í aukabari
og annan viðbótarbúnað) ekki líka
skiljanlegri í ljósi þess að Reykja-
víkurborg getur byggt glænýjan
476 fermetra leikskóla fyrir 109
börn fyrir 35 milljónir. Ársskýrsla
Dagvistar barna upplýsir að þrír
nýir leikskólar hafi verið teknir í
notkun sumarið 1990. Leikskól-
arnir eru allir eins, 476 fermetrar
fyrir 109 börn hver. Samanlagður
byggingarkostnaður leikskólanna
ásamt húsgögnum var 124 milljón-
ir kr., eða 41,4 m.kr. að meðaltali.
Meðalbiðtíminn eftir leikskóla-
plássi í borginni er sagður 13 mán-
uðir. Og 1.220 börn biðu eftir slíku
plássi um síðustu áramót. Öll þau
börn, og meira til, mundu rúmast
á 12 nýjum leikskólum. Sam-
kvæmt framangreindu er hægt að
byggja 12 leikskóla fyrir um 500
milljónir króna (t.d. minna en það
sem byggingarkostnaður Perlunn-
ar hefur farið úr böndunum á
tveim árum).
Þegar leikskóla ber á góma benda
raunsæir menn jafnan á, að það sé
ekki nóg að byggja leikskóla. Það sé
líka mjög dýrt fyrir borgina að reka
þá. Og ekki verður því neitað.
Heildarkostnaður við rekstur 13
leikskóla fyrir 1.207 börn var um
136 milljónir kr. á síðasta ári. For-
eldrar barnanna borguðu tæplega
helminginn, en rekstrarstyrkur
borgarinnar var alls rúmlega 72
milljónir kr. yfir árið.
Fréttir herma að byggingarkostn-
aður Perlunnar sé orðinn nálægt
l. 600 milljónir króna. Til marks
um stærð slíkrar upphæðar mundi
hún, samkvæmt framansögðu,
duga borginni til að byggja 12 leik-
skóla (500 m.kr.) og auk þess borga
sinn hluta í rekstrarkostnaði þeirra
í 15 ár (72 m. x 15 ár = 1.080
m. kr.).
Hafi Reykvíkingar átt 1.600 millj-
ónir kr. á lausu, virðast leikskól-
arnir 12 raunar líka hafa verið mun
ódýrari valkostur heldur en eitt
kúluhús. Því má nefnilega ekki
gleyma, að borgarbúar (viðskipta-
vinir Hitaveitunnar) þurfa næstu
15 árin að borga meira en 100
milljóna kr. styrk (niðurgreiðslu)
til reksturs Perlunnar. Þar er mið-
að við þá áætlun hitaveitustjóra að
7-8 milljónir kr. vanti upp á að
húsaleigan fyrir Perluna nægi fýrir
beinum útgjöldum Hitaveitunnar
af rekstri hennar ár hvert.
- HEI
Frá blaðamannafundi fjármálaráðherra í gær þar sem gerð var
grein fyrir stöðunni í innheimtu skattaskulda. Tímamynd: Árnl Bjarna
Átak til innheimtu skattaskulda gengur vel:
Innheimtu 372
millj. í ágúst
Fyrsta áfanga átaks fjármálaráðu-
neytisins til innheimtu ógreiddra
skatta er lokið. Árangurinn er að
sögn góður.
I byrjun maí voru skuldir vegna
virðisaukaskatts ársins 1990 1.7
milljarðar. í byrjun ágúst hafði tekist
að innheimta 200 milljónir. Skuldir
vegna fyrstu tveggja mánaða þessa
árs voru í maí 655 milljónir króna.
Fram til ágústs tókst að innheimta
320 milljónir. Á þessum tíma þurfti
ekki að afskrifa neinar skuldir vegna
gjaldþrota.
í júní skulduðu landsmenn tæpa
2.3 milljarða af tekjuskatti áranna
1988 til 1990. Af þeim skulduðu
gjaldþrota aðilar 1.25 milljarð. f ág-
úst hafði tekist að heimta 372 millj-
ónir og Iækka skuldina í 1.9 millj-
arða.
Fjármálaráðuneytið ætlar að halda
innheimtuaðgerðum áfram.
-aá.
Svavar Gestsson, fyrrv. menntamálaráðherra:
SKOLAGJOLD
KOLÓLÖGLEG
Úr Reykjaréttum á Skeiöum í gær. Tfmamynd SBS
Flóa- og Skeiðamenn rétta
<r)ón Baldvin Hannibalsson berst
nú við að hengja skólagjöldin á
gildandi framhaldsskólalög og
segir í frétt í Tímanum í gær að
þeim hafi verið viðhaldið af mér,“
sagði Svavar Cestsson, fyrrv.
menntamálaráðherra, í gær.
„Sannleikurinn í málinu er sá að
innheimta skólagjalda til rekstrar
skólanna er óheimil samkvæmt
gildandi lögum. Það eru skóla-
nefndir en ekki ráðherra, sem
ákveða innritunar- og efnisgjöld
framhaldsskólanna," sagði Svavar.
Hann sagði að Jón Baldvin færi
með þvætting þegar hann væri að
reyna aö réttlæta innheimtu skóla-
gjalda. „Þessi hegðun hans stafar
bersýnilega af því að hann er kom-
inn í klípu í Alþýðuflokknum, enda
í vondum málum þar og ekki útlit
fyrir að ríkisstjórnin falli frá þess-
ari hugmynd hans. Skólagjöldin
eru hans hugmynd: Ég man ekki
betur en að hann hótaði þessari
gjaldtöku í sjónvarpsviðtali út um
bílglugga sl. sumar," sagði Svavar.
Varðandi þær uppákomur, sem
orðið hafa að undanförnu í tengsl-
um við fjárlagagerðina, sagði Svav-
ar að sá valdhroki, sem lýsti sér í
stjórnarathöfnum ríkisstjórnarinn-
ar, væri umhugsunarefni út af fyrir
sig. Þar væru tilskipun um niður-
skurð á kennslu í Menntaskólanum
á ísafirði og fyrirætlanir um niður-
skurð í spítalaþjónustu glögg
dæmi.
—sá
Flóa- og Skeiðamenn réttuðu fé
sitt — á milli fjögur og fimm þús-
und kindur — í Reykjaréttum á
Skeiðum í gær, í úrhellisrign-
ingu. Fjallferðin gekk vel, enda
fengu menn ágætis veður. Að
sögn kunnugra er féð vel fram
gengið.
Páll Lýösson, formaður Afréttar-
málafélags Flóa og Skeiða, sagði
að af þeim svæðum niðri í byggð
þar sem fátt fé væri, væri fé í betri
holdum en það fé sem rekið hefði
verið á fjall. Páll sagði að mörg
stærri fjárbú væru aðkreppt með
beitarlönd og nauðsyn væri
þeirra vegna að reka áfram á fjall.
Sumir töluðu þó um að það yrði
úr sögunni um aldamót, að sögn
Páls.
Margt manna kom saman í rétt-
unum í gær, enda er réttadagur-
inn ávallt skemmtilegt manna-
mót. —SBS, Selfossi.
RÍKISREIKNINGUR ÁRIÐ 1989
SÝNIR 65 MILLJARÐA HALLA
Fjármálaráðherra lagði í gær fram
ríidsreikning fyrir árið 1989.
Hann markar þáttaskU, því þar eru
skuldbindingar, sem bvíla á ríkis-
sjóði, í fyrsta sinn teknar með í
reikninginn.
Með þeim námu heildargjöld á
rekstrarreikningi 147.508 millj-
ónum króna. Heildartekjur 83.057
milijónum. Og rekstrarhalli því
64.451 miUjón. Samkvæmt upp-
gjöri á reikningsskilavenjum und-
anfarinna ára þar sem ekki er tekið
tillit til skuldbindinga, er rekstrar-
hallinn 4.445 milljónir. Hrein
lánsfjárþörf ríkissjóðs nam 7.280
mUljónum, heUdartekjur 81.900
mUijónum. Útgjöld 86.400 mll|j-
ónum.
Elns og iyrr getur eru skuldbind-
ingar ríkissjóðs nú í fyrsta sinn
teknar með í reikninginn. Greiðsl-
ur vegna þessara skuldbindinga
dreifast á alQangt tímabil. Þær
helstu eru vegna áunninna lífeyr-
isréttinda opinberra starfsmanna,
landbúnaðarmála og viðskipta við
sveitarfélög. Skuldbindingaraar
þrengja möguleika rfldsins til að
takast á við ný verkefni, og fjár-
málaráðherra viðurkennir að þær
geri ríkisstjórainni erfitt fyrir um
að lækka skatta á næstu árum.
-aá.