Tíminn - 14.09.1991, Side 3
Laugardagur 14. september 1991
Tíminn 3
Biðtími einstæðra foreldra í Reykjavík eftir barnaheimilisplássi lengist úr 8 í 11 mánuði:
Biölisti tvöfaldaöist
á síðustu fimm árum
Möguleikar einstæðra foreldra til að
koma ungum börnum sínum í
gæslu á vegum Reykjavíkurborgar
virðast fara versnandi ár frá ári.
Þannig hefur biðlisti eftir dagheim-
ilisplássi fyrir böm einstæðra nær
tvöfaldast á fimm árum (úr 220 í
417 böm). Á sömu fimm árum hef-
ur meðalbiðtími þessara barna eftir
plássi lengst um meira en þriðjung
(úr 7,8 upp í 10,7 mánuði).
Á þessum fimm árum hefur börn-
um einstæðra foreldra fjölgað um
fjórðung í borginni, en plássum fyr-
ir þau á dagheimilum borgarinnar
aðeins um 6% (úr 724 í 770). Enda
kemur í ljós að í gæslu hjá dag-
mæðrum hefur þessi hópur stækkað
um 50% á sama árabili (úr 330 í árs-
lok 1985 upp í 500 um síðustu ára-
mót).
Þessar upplýsingar koma m.a. í ljós
þegar ný ársskýrsla Dagvistar barna
1990 er borin saman við samsvar-
andi skýrslu fýrir árið 1985.
Giftir fengið nýju
plássin
Samanburðurinn sýnir m.a. að
framkvæmdir í dagvistunarmálum
borgarinnar á þessum árum virðist
hafa komið öllum öðrum fremur til
góða heldur en einstæðum foreldr-
um. Þannig hefur t.d. gift fólk (þar
með taldar fóstrur á heimilunum)
fengið fyrir sín börn 103 af þeim 129
dagheimilisplássum sem bæst hafa
við á þessum tíma. Enda hefur með-
albiðtími þessa hóps styst úr 3,6
niður í 2,9 mánuði. Biðtími hefur
líka styst í kringum 2 mánuði hjá
háskólastúdentum, þótt plássum
hafi ekki fjölgað fyrir þeirra böm.
Alls voru 1.264 börn á dagheimilum
borgarinnar í lok síðasta árs.
Þá vekur athygli að þótt bömum
einstæðra foreldra í gæslu dag-
mæðra hafi fjölgað stórlega síðustu
árin (um 170), hefur öllum börnum
í gæslu þeirra samt fækkað um
þriðjung. í árslok 1985 gættu dag-
í-:^» n
mæður um 900 barna umfram þau
sem borgin niðurgreiddi ekki gæslu
fyrir. Um síðustu áramót voru það
aðeins 320 böm, samkvæmt skýrslu
Dagvistar barna. Enda hefur börn-
um einstæðra foreldra fjölgað hlut-
fallslega úr 27% upp í 61% af öllum
bömum í gæslu á einkaheimilum.
Nær öll fjölgun bama
Aukin þörf einstæðra foreldra fýrir
barnagæslu þarf líklega ekki að
koma á óvart þegar litið er á íbúatöl-
ur Hagstofunnar. Þær sýna m.a. að
einstæðum foreldmm í Reykjavík
hefur fjölgað um 700 á sama tíma og
dagheimilisplássum hefúr fjölgað
um 46 fýrir börn þeirra. Börnum á
aldrinum 0-14 ára í Reykjavík hefur
fjölgað um 1.380 á umræddu fimm
ára tímabili. Á sama tíma hefur
börnum einstæðra foreldra fjölgað
um 1.080. Með öðrum orðum, hefur
nær öll fjölgun bama í borginni orð-
ið á heimilum einstæðra foreldra.
Slík heimili taldi Hagstofan hátt í 4
þúsund um síðustu áramót. En
heimili vígðra og óvígðra hjóna með
börn losuðu þá hins vegar 10 þús-
und.
Biðtími á leikskóla
lengist aðeins
Á leikskólum borgarinnar eru börn
hins vegar ekki flokkuð eftir fjöl-
skyldumynstri eða starfi foreldra,
eins og á dagheimilunum og hjá
dagmæðrunum. í desember s.l. voru
2.450 börn á leikskólum borgarinn-
ar, sem er um 220 fleiri (10%) en
fimm árum áður.
Fjölgun leikskólaplássa virðist
næstum því halda í við aukningu á
eftirspurn á undanförnum árum.
Fjöldi nýrra umsókna var litlu meiri
í fýrra (1.480) eins og fimm árum
áður, og biðlisti í árslok (1.220 börn)
heldur ekki miklu lengri. Meðalbið-
tími eftir plássi var um 13 mánuðir í
fýrra, aðeins lengri en árið 1985.
Þegar litið er til þess að ekki er hægt
að sækja um leikskólapláss fýrr en
barn nær 18 mánaða aldri, er ljóst
að börn eru komin vel á þriðja ár
þegar leikskólavist þeirra hefst.
Enda voru yngri en 3ja ára innan við
10% barna á leikskólum borgarinn-
ar um síðustu áramót.
- HEI
Umsækjendur um stöðu þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum:
Níu kallaöir
einn útvalinn
Níu guðfræðingar sóttu um emb-
ætti þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum.
Þeir eru séra Ágúst Sigurðsson á
Prestsbakka, sr. Cuðmundur Örn
Ragnarsson Reykjavík, Guðrún
Edda Gunnarsdóttir guðfræðingur
Reykjavík, sr. Hanna María Péturs-
dóttir Skálholti, sr. Ragnheiður
Eria Bjamadóttir Raufarhöfn og sr.
Rögnvaldur Finnbogason Staða-
stað. Þrir óskuðu nafnleyndar.
Umsækjendur um önnur embætti
á vegum þjóðkirkjunnar eru þessir:
Um Raufarhafnarprestakall sækir
Jón Hagbarður Knútsson guðfræð-
ingur Reykjavík. Um Stykkishólms-
prestakall sækir sr. Gunnar Hauks-
son sóknarprestur á Þingeyri og dr.
Sigurjón Eyjólfsson guðfræðingur
Reykjavík. Adda Steina Björnsdóttir
guðfræðingur, Ragnheiður Sverris-
dóttir djákni og Vigfús Hallgrímsson
BA í uppeldisfræðum sækja um starf
fræðslufulltrúa á biskupsstofu. Eng-
ar umsóknir hafa borist um Hólma-
víkurprestakall og Patreksfjarðar-
prestakall.
—sá
Ferðamálaráð hafnar hugmyndum um meiri álögur:
Lendingargjöld veröi óbreytt
Ferðamálaráð samþykkti á fundi íslenskrar ferðaþjónustu, sem nú
þann 6. þ.m. að mótmæla hug-
myndum, sem fram hafa komið um
að hækka lendingargjöld og innrit-
unargjöld flugfarþega.
Ráðið telur að aukin skattheimta
af þessu tagi spilli samkeppnisstöðu
íslenskrar ferðaþjónustu, sem
þegar ber þunga skattbyrði.
Þá minnir ráðið á að ferðaþjónusta
er vaxandi atvinnugrein, sem líkleg
er til að skila verulegum hagnaði ef
hlúð er að rekstrarskilyrðum henn-
ar. —sá
VINNUVELA-
eigendur
Endurbyggjum vökvatjakka í bú- og vinnuvélar
Eigum allar algengar stærðir af þéttingum
og efni í tjakksköft og tjakkhús.
Eigum stjórnloka og slöngur
fyrir greipar við moksturstæki.
Gefum faglegar
ráðleggingar.
raii«ji ujlwji uu^5)Uígj
Járnhálsi 2 • Sími 91-683266 -110 Rvk - Pósthólf 10180