Tíminn - 14.09.1991, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 14. september 1991
1111 ÚTLÖND
Kosningar í Svíþjóð á morgun:
MIKIL ÓVISSA
UM ÚRSLITIN
Kosningar fara fram í Svíþjóð á sunnudag. Óvíst er hvernig þær
fara, og samkvæmt nýrri skoðanakönnun er óljóst hvort borgara-
flokkarnir ná meirihluta. Flest þykir benda til að Nýtt lýðræði verði
í oddastöðu, en það vantar nokkuð upp á að sænsldr jafnaðarmenn
haldi sínum meirihluta. 800-900 þúsund kjósenda virðast ekki vera
búin að ákveða hvar X-ið lendir á kjörseðlinum, nú þegar aðeins er
rúmlega sólarhringur í kosningar. Það verður því ekki fyrr en á
sunnudagskvöld að ljóst verður hvort Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra og jafnaðarmaður, heldur völdum eða víkur.
Jafnaðarmenn hafa tapað fylgi allt
síðan fyrrum leiðtogi þeirra, Olof
Palme, var myrtur árið 1986. Þeim
er ekki spáð meira en 36% atkvæða,
en í síðustu kosningum fengu þeir
43,2% atkvæða. í skoðanakönnun
um fylgi flokkanna í febrúar sl. kem-
ur í Ijós að ef kosið hefði verið þá,
hefðu jafnaðarmenn ekki fengið
nema 30,7% atkvæða. Þeir virðast
hafa bætt sig nokkuð síðan. Fylgis-
tap þeirra er skýrt að nokkru með
slakri efnahagsstjórn og stöðnun í
sænsku þjóðlífi. Ef svo fer sem spáð
er, hefur fylgi jafnaðarmanna ekki
verið minna síðan þeir komu fyrst
fram, árið 1930, sem öflugur verka-
lýðsflokkur, miðjuflokkur á milli
kommúnisma og kapitalisma.
Olaf Ruin, prófessor í stjórnmála-
vísindum við háskólann í Stokk-
hólmi, segir að þrátt fyrir slæma út-
komu í kosningunum, þurfi það
ekki að þýða að jafnaðarmennskan
sé liðin undir lok.
Borgaraflokkarnir hafa látið í ljós
áhuga á að mynda stjórn saman, þar
sem leiðtogi Hófsama flokksins,
Carl Bildt, yrði forsætisráðherra.
Hins vegar hafa borgaraflokkarnir
lýst yfir að ekki sé áhugi á að vinna
með Nýju lýðræði, en sá flokkur
þykir líklegur til alls.
Búist er við að hátt í 6 milljónir
kjósenda komi að kjörborðinu á
Ekki skýrist fyrr en á sunnu-
daginn hvort Ingvar Carlsson
verður forsætisráðherra áfram í
Svíþjóð.
morgun. Kosið verður á yfir 6 þús-
und kjörstöðum og munu yfir 70
þúsund menn vinna þar á morgun.
Reuter-SIS
Prestur rekinn frá BNR:
Sendurheim
Rómversk-kaþólskur prestur frá
Bretlandi var vísað úr landi í Banda-
ríkjunum f vikunni, strax eftir að
hann var látinn laus úr fangelsi þar
sem hann dúsaði í 15 mánuði fyrir
kynferðislega áreitni við fjóra altar-
isdrengi í söfnuðinum sem hann
þjónaði.
Anton Mowat, en svo heitir prestur,
var sendur til síns heima á Bretlandi
og hann fær ekki að koma til Banda-
ríkjanna fyrr en í fyrsta lagi árið
2005.
Hann sagði við blaðamenn, að hann
væri ekki sekur um öll þau brot sem
hann var sakaður um. Aðspurður
um játningu sína við ákæruatriðum
svaraði hann: „Ég átti ekki nokkurra
kosta völ.“
Hann þurfti að borga fjölskyldum
drengjanna 380.000 dollara.
Mowat var gestaprestur hjá kaþ-
ólsku kirkjunni í úthverfi Atlanta,
Stone Mountain, árin 1986 og 1987
þegar hann var ákærður. Hann var
svo handtekinn í janúar 1990.
Mowat sagði að fangelsisvistin hefði
verið góð reynsla og þroskandi, eða
eins og hann orðar það sjálfur: „Ég
naut þess.“
Reuter-SIS
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lýkur heimsókn sinni til Teheran:
ER FARINN TIL
SAUDI-ARABÍU
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, lauk heimsókn sinni til Te-
heran í gær. í gær sagðist hann
vonast til farsællar niðurstöðu
gísladeilunnar næstu daga eða vik-
ur.
Perez de Cuellar hélt blaða-
mannafund á flugvellinum í Teher-
an áður en hann flaug til Saudi-Ar-
abíu. Hann vildi ekki segja til um
hvort næst yrðu það vestrænir gísl-
ar eða arabískir fangar sem yrðu
látnir lausir. „Satt að segja er ég
nokkuð vongóður um að næstu
daga eða vikur verði ég kominn
með einhverjar niðurstöður í þessu
máli,“ segir Perez de Cuellar.
Aðspurður um hvort þetta þýddi
lausn eins eða fleiri þeirra gísla,
sem eru á valdi Shítamúslíma í
Beirút, sagði hann: „Ég geri ekki
upp á milli gísla. Ég get ekki verið
mjög nákvæmur, því ég vil ekki
vekja of miklar vonir."
Ali Akhbar Velayaty, utanríkisráð-
herra írans, var einnig á blaða-
mannafundinum. Hann sagðist
vonast til að gíslar af öllum þjóð-
emum yrðu látnir lausir eins fljótt
og hægt er.
Perez de Cuellar var í tvo daga í
Teheran, og ræddi við ráðamenn
þar um gíslamálið.
Síðan á miðvikudag hafa ísraelar
látið lausa 51 arabískan fanga af
þeim hundruðum sem em fangels-
aðir í ísrael. Þá hafa ísraelar fengið
afhentar jarðneskar leifar eins
þeirra sjö hermanna sem þeir hafa
viljað fá upplýsingar um, og upp-
lýsingar um afdrif tveggja.
Perez de Cuellar sagðist hafa jafn
mikinn áhuga á öllum gíslum,
vestrænum, líbönskum, ísraelsk-
um og eins þeim Ijómm írönum
sem týndust í Líbanon árið 1982.
Flestir diplómatar telja að íran-
amir séu látnir, en fulltrúar í Te-
heran hafa látið þá á lista yfir gísla
sem em í haldi í Beirút. Perez de
Cuellar segir að það mál sé allt
mjög sorglegt, og sagðist ekki vilja
gefa fjölskyldum þeirra falskar von-
ir um að þeir væm kannski á lífi.
Fyrr í gær þakkaði hann ríkis-
stjóm írans fyrir þeirra hjálp í
gíslamálinu og sagði að Teheran
gæti ekki leyst þetta mál upp á eig-
in spýtur. Þá þakkaði Velayati, í
fyrstu yfirlýsingu íranskra stjórn-
valda um gíslamálið síðan Perez de
Cuallar kom til Teheran, honum
fyrir alla hans aðstoð. „Við vonum
að allir gíslar, sama af hvaða þjóð-
emi, verði látnir lausir sem fýrst.
íranskir, vestrænir og aðrir,“ sagði
Velayati.
Hann sagði að það væri ekki
þeirra mál að segja til um hvenær
það yrði.
Reuter-SIS
Yfirmaður KGB og utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hittast:
Minnka njósnir
um hvern annan
Hinn nýi yfirmaður sovésku leyni-
þjónustunnar KGB, Vadim Bakatin,
sagðist búast við að Bandaríkjamenn
og Sovétmenn myndu minnka
njósnir um hvem annan nú þegar
svo gott samband hefur skapast á
milli stórveldanna. „Ég held að það
sé markmið beggja aðila," segir Vad-
im Bakatin, forstjóri KGB, á fundi
sem hann átti með James Baker, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, í
gær.
Hann sagði að innan leyniþjónust-
unnar brynni spurningin: „Hver er
óvinurinn?" Þá sagði hann að nú
væri KGB búin að missa helsta óvin-
inn, sem var að sjálfsögðu Bandarík-
in.
Washington og Moskva hafa njósnað
um hvora aðra í áraraðir, um hernað-
arleyndarmál og fleira og fleira.
„Ég held að fátt sýni betur hvað sé að
gerast í Sovétríkjunum en einmitt
það að utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna skuli hitta yfirmann KGB hér í
aðalstöðvum leyniþjónustunnar,"
sagði Bakatin í gær. Hann bætti við
að nú þegar sambandið á milli stór-
veldanna færi síbatnandi, væri nauð-
synlegt að KGB hreinsaði til hjá sér,
skapaði sér nýja ímynd, og væri án
óvina.
Bakatin hefur þegar hafið endur-
skipulagningu innan KGB.
Baker sagði að þegar væri búið að
gera ýmislegt til að milda ímynd
KGB, eins og til dæmis með því að af-
henda sænskum yfirvöldum skjöl um
Raoul Wallenberg. Hann bjargaði
hundruðum Ungverjum frá fanga-
búðum nasista á sínum tíma, en ekki
er vitað hver urðu örlög hans, því
hann hvarf.
Baker sagðist ætla að tala við Bakat-
in um hugsanlega stríðsfanga, sem
gætu hafa verið teknir til fanga í
seinni heimsstyrjöldinni.
Reuter-SIS
Fréttayfirlit
MOSKVA - Sovétrikin og
Bandaríkin hafa ákveðið að
hæfta allri vopnaaðstoð við Afg-
anistan til að veita kosningum
þar I landi brautargengi. Forseti
Afganistans, Najibullah, sem
Sovétmenn hafa stutt, og skæru-
liðar, sem hafa notið stuðnings
Bandaríkjamanna, hafa fagnað
þessari ákvörðun.
MOSKVA - James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
segir að Bandarikin og Sovétrik-
in hafi ekki tekist vel upp með
dagsetninguna á ffiðarráðstefnu
Miðausturianda, en sagði að enn
væri þó stefnt að því að halda
ráðstefriuna í október. Málefni
Miðausturlanda verða þar i
brennidepli, en helst er að (srael-
ar setji ströng skilyrði fyrir setu
sinni á ráðstefnunni. Þeir hafa
t.d. gert ýmsar kröfur um sendi-
fulltrúa Palestinumanna á fund-
inum. James Baker hefur sagt
um það, að þrátt fyrir öll skiiyrði
verði ráðstefnan að fara fram,
hvað sem það kostar.
JERÚSALEM - Leiðtogar I
Israel hafa ekki komið fram með
neina málamiölun eftir að Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseti
sagði að hann hafnaði öllum til-
lögum þingsins um að veita (sra-
el lán upp á 10 milljarða. Hann
sagði að frekari hjálp við ísraels-
menn á þessari stundu gæti graf-
iö undan ráðstefnunni um mál-
efni Miðausturianda f október.
Ráðamenn i (srael hafa áöur
sagt að allur stuðningur Banda-
ríkjamanna yrði ekki þegin, eða
eins og þeir orðuðu það sjálfir.
„Frekar lifum við á vatni og
brauði en að þiggja ölmusu af
Bandaríkjunum."
TÝRUS, Llbanon - Sænskur
friðargæslumaður var drepinn og
fimm aðrir særðir í Týrus í gær.
TEHERAN - Javier Perez de
Cuellar, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, lauk heimsókn
sinni til Teheran í gær. Hann
sagðist vonast til að úr gislamál-
inu leystist fljótlega.
TÓKÍÓ - Japanir fögnuðu ósk
Rússa um að hraða viðræðum
um Seinni heimsstyrjaldar-samn-
inginn, en Rússar töluöu fýrir
daufum eyrum þegar minnst var
á Ijárhagshjálp Japana við Sovét-
ríkin. Rætt var um milljarða, en
Japanir sýndu engan áhuga.
SEÚL - Norður-Kórea verður
orðin fær um að framleiða kjam-
orkuvopn innan eins til þriggja
ára. Þetta er haft eftir diplómat frá
Norður-Kóreu, en hann talaði við
blaðamenn á fundi í S-Kóreu.
JÓHANN ESARBORG - Fjórir
blökkumenn í viðbót, og tveir af
þeim lögreglumenn, voru drepn-
ir i Suður- Afríku í gær. Lögregl-
an segir að allt logi í óeirðum á
milli þjóðflokka blökkumanna.
Blökkumenn hafa sagt að að-
skilnaðarstefnan sé enn i fullu
gildi.
NEW ORLEANS - Sjónvarps-
predikarinn Jimmy Swaggart,
sem árið 1988 viðurkenndi að
hafa átt mök við vændiskonu,
tapaði meiðyrðamáli sem hann
höfðaði á hendur keppinauti sín-
um, sem átti stóran þátt I að upp
komst um athæfi hans.
FENEYJAR - Réttindi samkyn-
hneigðra voru f brennidepli á
kvikmyndahátiðinni í Feneyjum
þar sem tvær kvikmyndir, sem
fjaiia um málefni samkyn-
hneigðra, unnu tii verðlauna.
OSIJEK, Júgóslavíu - Evr-
ópubandalagið hefur neyðst til
að viðurkenna að vopnahléð,
sem bandalagið kom á í Júgó-
slavíu, hefur gjörsamlega mis-
tekist.
RÍGA, Lettlandi - Lettar sækj-
ast eftir aöstoð vestrænna ríkja,
tii að kaupa 800.000 tonn af
dýrafóðri, sem landið fær ekki
lengur sent frá Sovétríkjunum.
FRANKFURT - Vestrænir fjár-
málaspekingar hittast í Dresden
á sunnudag til að ákveða í hvaða
formi Sovétríkin fá aðstoð.
LONDON - Sovétrlkin hafa
mikla þörf fyrir vestrænt fjármagn
og þekkingu ef þau ætla að
halda stöðu sinni sem mesta ol-
íuriki heims.
HONG KONG - Kosið verður í
Hong Kong á sunnudag.