Tíminn - 14.09.1991, Page 5
Laugardagur 14. september 1991
Tíminn 5
FÉLAG UM NÝJAN ÁLAFOSS:
Framkvæmdasjóður
vill 24 milljónir í leigu
í gær var stofnað félag tll undir-
búnings stofnun hlutafélags um
rekstur ullarþvottarstöðvar og
bandvinnslu, sem Álafoss hafði á
hendi í Mosfellsbæ og Hvera-
gerði. Að sögn forsvarsmanna
þarf um 60 milljónir í hlutafé og
hefur því nú þegar nær öllu ver-
ið safnað. Aðeins stendur á tælg-
um og húsnæði. Eins og áður
hefur komið fram hafnaði stjóm
Framkvæmdasjóðs 10 milljóna
tilboði félagsins um leigu á hús-
um og tækjum gamla Álafoss
sem sjóðurinn eignaðist Hún
vill fá 24 miljjónir króna.
Þeir, sem standa að stofhun ullar-
þvottar- og bandvinnslufyrirtækis,
eru fjórir fyrrum starfsmenn Álafoss
hf., Stéttarsamband bænda fyrir
hönd ullarinnleggjenda, Landssam-
tök sauðfjárbænda og þýskir við-
skiptavinir Álafoss sáluga.
Guðjón Kristinsson, sem átti frum-
kvæðið að félagsstoftiuninni, segir að
ef stjóm Framkvæmdasjóðs taki ekki
tilboði félagsins, eigi það þá úrkosti
að flytja starf sitt allt út á land. Víða
megi fa vélar við vægu verði, bæði
hérlendis og erlendis. Þessum mála-
lokum fylgdi þó sá ókostur að starf-
semin gæti ekki hafist fyrr en að ein-
hveijum mánuðum liðnum. Nauð-
synlegt gæti orðið að fá erlenda aðila
til að vinna bandið í millitíðinni.
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, upplýsti að
tíminn væri svo naumur að japanskir
viðskiptavinir krefðust svara í næstu
viku um hvort framhald yrði á starfi
Forsvarsmenn hins nýja fyrirtækis kynna stöðuna fýrir blaða-
mönnum í gær. Tfmamynd: Ami Bjama
Álafoss. Ef skýr svör fengjust ekki,
myndu þeir snúa viðskiptum sínum
annað.
Áætlað er að hið nýja fyrirtæki kaupi
ull af bændum, meti hana og þvoi,
selji hana til bandframleiðslu innan-
lands og flytji út það sem ekki má
nýta hér. Einnig framleiði hún vefh-
aðar-, vélprjón-, gólfteppa- og hand-
prjónaband á innlenda og erlenda
markaði. Gert er ráð fyrir að við
framleiðslu vinni 57 manns, mun
færri en í Álafossi.
Eins og áður er getið bauð félagið
10 milljónir í leigu á húsum og
tækjum, sem Framkvæmdasjóður
fékk í arf að Álafossi dauðum. Stjóm
Framkvæmdasjóðs vill 24 milljónir.
Mikið ber í milli og lítill tími er til
stefnu.
-aá.
Bilið á milli menntunar sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga hefur aukist,
segir hjúkrunarforstjóri Landakots:
Deilt um yfirvinnu
á Landakotsspítala
Sjúkraliðar á Landakotsspítala hafa á undanfömum vikum sett fram
kröfur um úrbætur á ýmsum sviðum og verið í yfírvinnubanni, en á
Landakoti hafa staðið yfír skipulagsbreytingar á hjúkrunarsviði.
Sjúkraliðarair harma neikvæð svör stjóraenda spítalans og vona að
siík vinnubrögð verði ekki að venju.
í ályktun sjúkraliða á Landakotsspítala
þann 12. september sl. kom m.a. fram
að sjúkraliðar telja alvarlegt að stjóm-
endur skuli ekki kannast við að álag
hefur aukist töluvert á starfsmönnum
sjúkrahússins á þeim samningstíma
sem lauk nú 1. september, m.a. vegna
undirmönnunar og samdráttarað-
gerða.
Sjúkraliðum þykir sérkennilegt að
stjómendur taka ekki undir það al-
menna álit að undirmönnun sjúkra-
deilda bitnar á sjúkraliðum jafht og á
hjúkrunarfræðingum. Þá þykir
sjúkraliðum það til vansa að stjóm-
endur skuli ekki sjá ástæðu til að umb-
una starfsmönnum spítalans við áður-
greindar aðstæður, nema þegar um
undirmönnun á sjúkrahúsinu er að
ræða.
Málhildur Angantýsdóttir, trúnaðar-
maður sjúkraliða á Landakotsspítala,
segir í samtali við Tímann að óskum
sjúkraliða um kjarabætur hafi verið
neitað af stjóm sjúkrahússins og vísað
til kjarasamninga af því að þeir em
lausir. Aðspurð segir Málhildur „að
hún hafi ekki trú á því að verið sé að
ýta sjúkraliðum úr starfi. Það hefur
verið stefna á bráðadeildum sjúkra-
húsa um allan heim, að 60% starfs-
manna séu hjúkmnarfræðingar, en
40% starfsmanna sjúkraliðar. Og þetta
á einnig við á íslandi. Hins vegar þurfa
skipulagsbreytingar að vera kynntar
áður en þær em komnar í fram-
kvæmd. Þar var mesti „feillinn", ég
held að það sé sanngjamt að segja það.
Það hefði verið betra að búið hefði ver-
ið að kynna skipulagsbreytinguna og
ég held að það hefði getað sparað
margt Það þarf yfirleitt að tala saman,
svo fólk geti áttað sig á hlutunum".
Rakel Valdimarsdóttir, hjúkmnarfor-
stjóri Landakotsspítala, tekur fram í
samtali við Tímann að kjarasamningar
við Sjúkraliðafélag íslands séu lausir,
þannig að það var ekki hægt að semja
núna. Sjúkraliðar taka þessi mál upp í
kjarasamningum og sjá hvað kemur
út úr því. Sjúkraliðar og stjómendur
Landakotsspítala munu síðan ræða
saman. Það kom bréf frá sjúkraliðum í
gær þar sem þær segjast ætla að bíða
og <á upplýsingar frá okkur í sambandi
við mönnun og annað sem þær geta
nýtt sér í kjarasamningum.
Sjúkraliðar telja að skipulagsbreyt-
ingamar á Landakotsspítala styðjist
við rannsókn er nefnist „Tíðniathug-
anir á störfum sex starfsstétta á lyf-
lækningadeildum, bamadeild og gjör-
gæsludeild Landakotsspítalá'. Sjúkra-
liðar fara þess vegna fram á að stéttar-
félagi þeirra verði sent eintak af
rannsókninni, svo að fúlltrúar þeirra
geti kynnt sér innihald hennar.
Rakel segir að það hafi verið gerðar
tvær athuganir á störfum starfsstétta á
Landakotsspítala, ein á Landsspítalan-
um og ein á Borgarspítalanum. Þær
hafa allar sýnt svipaðar niðurstöður.
Rakel kveður trúnaðarmann sjúkra-
liða hafa fengið þessa umræddu rann-
sókn og lesið hana yfir. Hins vegar er
það rétt að rannsóknin var ekki kynnt
yfir allt sjúkrahúsið, en könnunin ligg-
ur frammi í bókasafhinu. Það er eng-
inn að leyna neinu. Rakel segir enn
fremur að skipulagsbreytingin hafi
verið kynnt trúnaðarmanni sjúkraliða
og hjúkmnarfræðingum í vor. Síðan
hafi breytingin verið í þróun í sumar,
en formlega komið til framkvæmda
þann 1. september sl. í lok september
nk. er síðan ætlunin að kynna skipu-
lagsbreytinguna og ræða við starfs-
menn.
Rakel tekur fram að það þurfi að
skoða þessi mál og auk þess þarf að
endurskoða „vinnutilhögunina" inni á
spítalanum enn frekar. Skipulags-
breytingin nú varðar hjúkrunarsviðið
og hefur verið í undirbúningi í 1 ár.
Það verður að taka skipulagsbreyting-
ar í áföngum og það kemur að sjúkra-
liðum. Við á Landakoti viljum gjaman
standa með sjúkraliðum, en það væri
óeðlilegt að grípa inn í og semja við
þær núna, þar sem samningamir eru
lausir.
Aðspurð segir Rakel að það bitni
óskaplega mikið á hjúkrunarfræðing-
um þegar bráðadeildir eru undir-
mannaðar, af þvf að á þeim deildum er
svo margt sem sjúkraliðar mega ekki
gera. Stór hluti sjúklinga á sjúkrahús-
um nú til dags er mikið veikt fólk og
þar af leiðandi er alltaf minna og
minna sem sjúkraliðar mega gera fyrir
þetta bráðveika fólk. Hjúkrunarfræð-
ingar hafa aukið við menntun sína á
undanfömum árum, til þess að stand-
ast auknar kröfur sem gerðar em til
hjúkrunarfræðinga, en það hafa
sjúkraliðar ekki gert Þannig hefúr bil-
ið á milli hjúkrunarfræðinga og
siúkraliða aukist og það er afar slæmt
Á langlegudeildum hafa sjúkraliðar
hins vegar reynst sérstaklega vel og
þar hefur menntun þeirra nýst mjög
vel.
Við viljum gjaman styðja við bakið á
sjúkraliðum og taka á þessum málum,
en það tekur allt sinn tíma, segir Rakel
að lokum.
Verndum velferðina
Fulltrúaiáð Kennarasambands íslands heltir á launafóUc og aUan almenning í land-
inu að sameinast og brjóta í bak aftur árásir ríkisstjórnarinnar á það velferðarkerfi,
sem þjóðin hefur byggt upp með áratuga baráttu.
Fulltrúaráðið hvetur til víðtækrar samstöðu launafólks og annarra hagsmunahópa
gegn árásum á velferðarkerfið og til samstarfs í komandi kjarasamningum. —Tilk.
Djass á Hvammstanga
Stofnað hefur verið á Hvamms-
tanga Tónlistarfélag V-Húnvetn-
inga. Formaður félagsins var kos-
inn Sveinn L. Bjömsson tón-
skáld. Tilgangur félagsins er m.a.
að standa fyrir tónleikahaldi í
sýslunni a.m.k. einu sinni i mán-
uði frá hausti til vors.
Félagar eru þegar orðnir um 50
talsins og er öllum heimil þátt-
taka. Ætlunin er að bjóða ná-
grannabyggðum sýslunnar að
njóta góðrar tónlistar með V-Hún-
vetningum í vetur.
Fyrstu tónleikar félagsins verða
á miðvikudagskvöldið í næstu
viku, þann 18. september, en þá
munu Andrea Gylfadóttir og kvar-
tett Flosa Ólafssonar flytja djass-
tónlist. Tónleikarnir verða í Hótel
Vertshúsi á Hvammstanga og hefj-
ast kl. 21:00.
imm
95 SERÍAN
á mjög hagstæöu veröi
Bókið tímanlega
Járnhálsi 2 ■ Sími 91-683266
110 Rvk ■ Pósthólf 10180