Tíminn - 14.09.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn Laugardagur 14. september 1991
„Nei, alls ekki. Samtökin eru ekki tengd
neinum stjórnmálaflokkum eða hags-
munasamtökum. Þau vilja stuðla að víð-
tækri fríverslun á milli landa og góðum
samskiptum íslendinga við Evrópu-
bandalagið, sem og aðrar þjóðir og
heimshluta. Samstaða vill hins vegar
gera það án þess að íslendingar tengist
viðskiptabandalögum. Við teljum okkur
ekki eiga erindi í Evrópubandalagið. Nú
er verið að stofna nýtt ríki úr EB og við
teljum að það sé betra fyrir ísland að vera
utan þess en innan.“
— Hvaða kosti eiga íslendingar ef þeir
gerast ekki aðilar að Evrópska efnahags-
svæðinu?
„íslendingar hafa ágætis viðskipta-
samning við Evrópubandalagið. Hann er
í gildi og mun halda áfram að vera í gildi,
nema annar hvor aðilinn segi honum
upp, en það hefur ekki verið til umræðu.
Við viljum þó gjarnan endurskoða þenn-
an viðskiptasamning og ég tel að það sé
mjög eðlilegt, en hann er íslendingum
fremur hagstæður.
Þegar Islendingar gengu í EFTA þá
gerðu þeir viðskiptasamning við Evrópu-
bandalagið. í honum fólst viðskiptafrelsi,
þ.e. fríverslun með flestar vörur, en þó
voru undantekningar með sjávarafurðir
að einhverju leyti. Flestar okkar sjávaraf-
urðir fara inn á Evrópumarkaðinn með
lágum tollum eða engum tollum. Við
viljum náttúrlega afnema alla tolla. En
þessi samningur varðandi sjávarafurðir,
svokölluð bókun 6, tók gildi 1976 og
hann gildir áfram. íslendingar eru nú
þegar með tiltölulega hagstæða samn-
inga við Evrópubandalagið er varðar af-
urðir. En það eru hærri tollar á unnum
fiski og við vildum gjarnan fá lægri tolla,
en bandalagið er auðvitað að vernda sitt
svæði með tollunum. Mér finnst að það
gæti oft ákveðins misskilnings í umræð-
unni varðandi Evrópubandalagið.
Bandalagið vill ekki auka fríverslun við
allar þjóðir, heldur vilja þeir auka frí-
verslun innan sinna aðildarlanda, en síð-
an vilja þeir byggja tollamúra í kringum
sig. Mín skoðun er sú að það eigi að vera
frjáls vöruviðskipti á milli landa.
Margir íslendingar virðast líta svo á að
ef við gerumst ekki aðilar að Evrópsku
efnahagssvæði eða Evrópubandalaginu
þá munum við ekki geta selt físk til Evr-
ópu. Það er misskilningur. Auk þess held
ég að það sé hættulegt að binda sig við
einn markað. Bandaríkjamarkaður hefur
verið okkur mjög mikilvægur í gegnum
árin. Viðskipti okkar við Norður-Amer-
íku eru minni nú en oft áður vegna ým-
issa ytri aðstæðna, en ég tel að við eigum
að rækta þann markað. Einnig höfum
við mjög mikla möguleika í Asíu, t.d. í
Japan og víðar. Markaður í Austur-Evr-
ópu er auk þess óskrifað blað fyrir okkur
enn sem komið er. Þar höfum við mjög
mikla möguleika. Okkar góðu fiskafurðir
eru víða mjög eftirsóttar. Við höfum allt-
af getað selt fískinn undanfarin ár, þetta
er ekkert vandamál. Við stöndum ekki
frammi fyrir neinum afarkostum. Sjáv-
arafurðir eru eftirsóknarverð vara og
eiga eftir að verða enn eftirsóttari."
— í umræðunni um aðild að Evr-
ópsku efnahagssvæði er sífellt talað um
sjávarafurðir. Hvað er það fleira sem
felst í aðildinni?
„Ég hef orðið vör við það að margir
halda að aðildin snúist bara um það að
selja fiskinn okkar til Evrópu. Þegar
slitnaði upp úr viðræðunum um Evr-
ópskt efnahagssvæði í sumar, þá fyrst
varð mörgum ljóst að í aðildinni fólst
miklu meira, þ.e. að í raun og veru var
verið að semja um fjórfrelsið svonefnda.
í því felst óheft flæði vöru, fjármagns,
þjónustu og vinnuafls. Með því að gerast
aðilar að Evrópsku efnahagssvæði þá
tökum við yfir öll lög og reglur Evrópu-
bandalagsins að því er þessa þætti varðar,
sem er ekkert lítið mál. Við getum þá
ekki lengur tryggt að íslendingar gangi
fyrir um vinnu hér á landi. Við eigum þá
líka á hættu að útlendingar eignist hlut í
sjávarútveginum og nái yfirhöndinni í
atvinnulífi okkar. Það er heldur ekki gert
ráð fyrir neinum undantekningum, að
því er þessa þætti varðar, í EES- viðræð-
unum. Þau 19 lönd, sem þama taka þátt,
em jafnrétthá innan Evrópska efnahags-
svæðisins.
Ef ekki em settir skýrir fyrirvarar í
sjálfan samninginn, er varða íslensk
fiskiskip, þá getum við ekki komið í veg
fyrir, að erlendir aðilar eignist hlut í fisk-
veiðum hér við land. Ég er ansi hrædd
um að þá verði erfitt fyrir okkur að halda
efnahagslegu sjálfstæði.
Dómstóll Evrópubandalagsins felldi
þann úrskurð á dögunum, að breskt
lagaákvæði, sem koma átti í veg fyrir að
Spánverjar og aðrir útlendingar kæmust
inn í breska landhelgi, samræmdust ekki
lögum bandalagsins. Bresku lögin eru
þarna talin mismuna þegnum Evrópu-
bandalagsins. Eftir þennan dóm blasir
við sú hætta að EFTA-löndin geti ekki
komið í veg fyrir fjárfestingar erlendra
aðila í fiskiskipum og að aðilar banda-
lagsins geti þannig komist yfir kvóta. Ef
íslendingar gerast aðilar að Evrópska
efnahagssvæðinu getur þetta einnig átt
við um okkur, svo framarlega sem við fá-
um ekki beina fyrirvara inn í samninginn
um þessi atriði. Þessi túlkun hefur kom-
ið fram hjá virtum norskum lögfræðing-
um og einnig nýlega hjá Stefáni M. Stef-
ánssyni lagaprófessor."
— Hefur þessi úrskurður dómstólsins
einhveija frekari þýðingu fyrir íslend-
inga?
„Já, vissulega. Ef það verður samið um
fjórfrelsið, sem er grundvöllur Evrópu-
bandalagsins, gildir grundvöllurinn, sem
þessi úrskurður byggir á, einnig fyrir
okkur.
Auðvitað ætlar enginn að hindra það að
fólk komist á milli landa eða að koma í
veg fyrir allar fjárfestingar útlendinga.
Hins vegar á Alþingi íslendinga að setja
þau lög og þær reglur sem við teljum
henta okkur. Það er alls ekki víst að lög
og reglur, sem eiga við í Frakklandi eða
Þýskalandi, eigi við hér á landi. íslend-
ingar þurfa einnig að athuga það að við
getum ekki sett ný lög á Alþingi sem
brjóta í bága við lög bandalagsins, ef við
gerumst aðilar að Evrópska efnahags-
svæðinu. Þá erum við í rauninni að gera
lög bandalagsins að okkar lögum og um
leið að takmarka okkar löggjafarvald,
sem er hluti af okkar fullveldi. Evrópu-
bandalagslögin verða þá ofar okkar lög-
um.
— Er ekki takmörkun á fullveldi ís-
lendinga eitt af meginmálunum t þess-
um samningum?
„Mér finnst þetta atriði skipta mjög
miklu máli í þessum samningum. Fjór-
frelsið hefur nánast ekki fengið neina
umfjöllun hérlendis. Og það er eitt af
meginmarkmiðum Samstöðu að upplýsa
þjóðina hvað í þessum samningum felst.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna
t.d. utanríkisráðherra segir fólki ekki
sannleikann um þessa samninga og hvað
í þeim felst. Ef samningarnir um Evr-
ópska efnahagssvæðið eru svona góðir,
hvað hafa þeir íslendingar þá að fela sem
vilja okkur þar inn? Umræðan hefur fyrst
og fremst verið um fiskinn. Auk þess er
t.d. talað við unga fólkið um það að verið
sé að reyna að opna fyrir því háskóla í
Evrópu. Frá árinu 1984 hefur verið unn-
ið að samningum við Evrópubandalagið
um tuttugu mismunandi málaflokka,
t.d. skólamál, rannsóknir og þróun og
umhverfismál, svo eitthvað sé nefnt.
íslendingar eiga auðvitað að halda
áfram þeirri samvinnu, þó svo að við ger-
umst ekki aðilar að Evrópska efnahags-
svæðinu.
Mig er farið að gruna að utanríkisráð-
herra óttist það, að ef fólk vissi hvað í
samningnum fælist myndi það snúast
gegn honum.“
— Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra sagði á dögunum að ef ís-
lendingar gerðust ekki aðilar að Evr-
ópska efnahagssvæðinu þá myndi það
einungis flýta fyrir inngöngu okkar í
Evrópubandalagið. Ert þú sama sinnis
og utanríkisráðherra?
„Það er mitt álit að Jón Baldvin og stór
hluti Alþýðuflokksins hafi verið sömu
skoðunar og forsætisráðherra Noregs, að
Evrópska efnahagssvæðið sé biðstofa eða
ágætis stökkpallur inn í Evrópubanda-
lagið. Ég held hins vegar að ef við værum
að ræða um inngöngu í Evrópubanda-
lagið þá myndi fólk frekar gera sér grein
fyrir því hvað væri á ferðinni. Augu
manna eru smám saman að opnast, svo
sem sjá má á kosningaúrslitunum í Nor-
egi. Þar hafa skoðanir fólks breyst mjög
mikið núna í sumar. í Noregi sýndu
skoðanakannanir að fólk vildi ekki ganga
í Evrópubandalagið, en meirihluti studdi
hins vegar aðild að Evrópsku efnahags-
svæði. Nú hefur fólk í Noregi uppgötvað
að Evrópska efnahagssvæðið er ekki ýkja
frábrugðið Evrópubandalaginu."
— Hveraig sæir þú ísland fyrir þér sem
aðila að Evrópska efnahagssvæðinu?
„Það, sem gæti gerst, er að erlendir að-
ilar sæju sér hag í að fjárfesta hér á landi,
fyrst og fremst í verðmætum auðlindum
okkar. Þeir myndu sjá sér hag í að fjár-
festa í fiskiskipum og kvótum og síðan
myndu þeir flytja hráefnið beint í sínar
verksmiðjur nálægt markaðnum, þannig
að við yrðum eins konar verstöð á þessu
sviði og það væri það versta sem gæti
gerst. Utlendingar gætu einnig séð sér
hag í því að fjárfesta í laxveiðiám og jarð-
hita. Við höfum hér á landi engin skýr
lög um eignarrétt á jarðhita og vatnsafli.
Það á enginn fossana, við eigum þetta
öll. Það væri ansi erfitt fyrir okkur að
tryggja að auðlindirnar séu aðeins fyrir
okkur, ef við göngumst undir það að all-
ar þessar 360 milljónir hafi sama rétt.
Við megum heldur ekki gleyma hálend-
inu; hver á hálendið? Við öll og við vilj-
um ráða því hvemig við nýtum það. Eg
sé hins vegar fyrir mér að við gætum
misst út úr höndunum á okkur náttúm-
perlur sem eru okkur dýrmætar.
Ég held að vísu að það verði ekki nein
biðröð af erlendum aðilum sem hafí
áhuga á að fjárfesta í öðrum íslenskum
atvinnurekstri. íslenskir fjármálamenn
gætu auk þess séð sér hag í því að fjár-
festa í fyrirtækjum nær efnahagsmiðj-
unni í Evrópu þar sem vöxturinn er.
Þetta gæti þýtt að við myndum tapa út úr
höndunum á okkur okkar mikilvægustu
auðlindum, jafnframt því sem við mynd-
um missa fjármagn úr landi og yrðum þá
fátækari og einangraðri heldur en við er-
um nú.“
— Þar sem þú situr á Alþingi fyrir
Kvennalistann, má þá líta svo á að jafn-
aðarmerki sé á milli stefnu Kvennalist-
ans og Samstöðu í þessu máli?
„Það er ekki aðalatriðið. Kvennalistinn
hefur að vísu verið andvígur samningum
um Evrópska efnahagssvæðið. Þess
vegna er það mjög eðlilegt að kvenna-
listakonur starfi í samtökum eins og
Samstöðu. í Samstöðu er hins vegar fólk
úr öllum áttum. Fjölmennasti hópurinn
innan samtakanna er fólk sem ekki er á
skrá í neinum pólitískum flokki. Það var
ekki síst sá hópur sem leitaði eftir því að
ég yrði formaður í þessum samtökum.
Þau vinna fyrst og fremst gegn aðild ís-
lands að Évrópsku efnahagssvæði og
Evrópubandalaginu. í öðrum málum
geta skoðanir fólks innan Samstöðu ver-
ið skiptar."
— Gæti Samstaða orðið nýtt afl í ís-
lenskum stjóramálum?
„Samstaða ætlar ekki að fara út í neina
beina flokkapólitík, en hún verður von-
andi afl sem hefur áhrif. Ég hef síðustu
daga orðið vör við mikinn stuðning við
málstað okkar, m.a. hefur fjöldi fólks
hringt til mín og lýst ánægju sinni yfir
stofnun samtakanna."
Jakobína Sveinsdóttir
Kristín Einarsdóttir, formaður Samstöðu um óháð ísland:
ÞURFUM EKKI í EES
TIL AÐ SELJA FISK
Þann 29. ágúst síðastliðinn voru samtökin Samstaða um óháð ísland, í styttra
formi Samstaða, stofnuð. Tilgangur samtakanna er að vinna gegn aðild Islands að
Evrópsku efnahagssvæði (EES) og Evrópubandalaginu (EB). Samtökin vilja stuðla
að víðtækri fríverslun milli landa og góðum samskiptum lslendinga við Evrópu-
bandalagið svo og aðrar þjóðir og heimshluta. Um Ieið vilja þau tryggja að íslending-
ar verði hér eftir sem hingað til óháðir viðskiptabandalögum og þjóðin haldi óskertu
fullveldi. Auk þess telja samtökin að kjósendum eigi að gefast kostur á að segja álit
sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en ríídsstjóra og Alþingi taka afstöðu til aðildar að
Evrópsku efnahagssvæði eða Evrópubandalaginu.
A stofnfundinum var Kristín Einarsdóttir alþingiskona kosin formaður Sam-
stöðu. Af því tilefni er Kristín tekin tali og spurð að því hvort það megi ekki líta á
Samstöðu sem samtök einangrunarsinna?