Tíminn - 18.09.1991, Side 3
Miðvikudagur 18. september 1991
Tíminn 3
Finnur Ingólfsson segir um aðför ríkisstjórnarinnar að St. Jósefsspítala:
Davíð er að færa fortíðarvanda
úr Reykjavík til Hafnarfjarðar
.JVIenn standa frammi fyrir því við þessa fjáriagagerð að þurfa að
spara á ýmsum sviðum. Það er að mínu viti rangt að fara suður til
Hafnarfjarðar til að leita að sparnaði. í fyrsta lagi hefur ríkið lítið yf-
ir þessari stofnun að segja, þetta er sjálfseignarstofnun. Það er dá-
lítið einkennilegt að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar skuli ætla að
hrifsa völdin af stjómendum sjúkrahússins og gefa beinar fyrirskip-
anir um hveraig hlutir þar eiga að ganga fyrir sig.
Meðan Davíð var borgarstjóri í
Reykjavík ætlaði hann vitlaus að
verða þegar fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra kom það til hugar að setja
einn mann frá ríkinu inn í stjóm
Borgarspítalans. Borgarspítalinn er
þó að langstærstum hluta í eigu rík-
isins, auk þess sem hver einasta
króna í rekstri hans kemur frá rík-
inu. Þessu mótmælti Davíð Oddsson
með digurbarkalegum yfirlýsingum
um að það væri verið að hrifsa spít-
alann úr höndum Reykvíkinga,"
segir Finnur Ingólfsson, talsmaður
Framsóknarflokksins í heilbrigðis-
málum, um niðurskurð ríkisstjóm-
arinnar í heilbrigðiskerfinu.
,Manni sýnist að þarna ætli Davíð
Oddsson að færa til fortíðarvanda
þann, sem hann skapaði þegar hann
var borgarstjóri í Reykjavík, með lít-
illi uppbyggingu á aðstöðu fyrir
aldraða, suður til Hafnarfjarðar. í
stað þess að snúa sér nú af fullum
krafti að því að auka verkaskiptingu
milli sjúkrahúsanna í Reykjavík,
hlaupa menn til þess að reyna að ná
spamaði annars staðar. Það má ná
spamaði í Reykjavík með markvissri
verkaskiptingu og samvinnu. Það er
hins vegar hættulegt að ætla í
blindni að sameina Borgarspítalann
og Landakot og gera ekkert annað.
Ef ekki verður komið á verkaskipt-
ingu, mun sú sameining leiða til
aukinna útgjalda. Vegna þess að
þegar komnir verða tveir jafnstórir
spítalar í höfuðborginni þá mun
samkeppnin um takmarkaða fjár-
muni til þessara spítala aukast, sam-
keppni um peninga til að koma upp
sama tækjabúnaði á báðum stöðum,
samkeppni um sérfræðinga á
ákveðnum sviðum o.s.frv. Þetta
mun aðeins auka útgjöld. Gmnd-
vallaratriði þegar menn vilja hag-
ræða í þessum rekstri er að koma á
verkaskiptingu.
Mér finnst koma til greina, og alveg
sjálfsagt að skoða það, að leigja
skurðstofur á kvöldin og um helgar
eins og Iagt hefur verið til. Sérfræði-
læknishjálpin er nú orðin tiltölulega
ódýr og hagkvæm. Einhverja slíka
fyrirmynd mætti alveg hugsa.
Samkvæmt þessum tillögum ríkis-
stjómarinnar erum við hins vegar
ekki lengur að tala um sparnað til
hagræðingar. Það er beinlínis verið
að tala um að skera niður þjónust-
una. Gleggsta dæmið er auðvitað ef
menn ætla að breyta alveg hlutverki
Finnur Ingólfsson.
St. Jósefsspítala þegar vitað er að að-
gerðum, sem þar eru framkvæmdar,
verður ekki sinnt annars staðar.
Við Ingibjörg Pálmadóttir þing-
maður fórum í dag í heimsókn til
stjómenda St. Jósefsspítala í Hafh-
arfirði. Við vildum kynna okkur frá
fyrstu hendi aðstæður þar og við-
horf stjórnenda spítalans. Heim-
sóknin var um margt fróðleg og ým-
islegt kom á óvart. í fyrsta lagi
hversu margar aðgerðir eru fram-
kvæmdar á þessu sjúkrahúsi. í öðru
lagi að þetta sjúkrahús hefur haldið
sig innan ramma fjárlaga og mætt
öllum spamaðartillögum af mikilli
skynsemi og raunsæi. Þeir hafa t.d.
ekki lokað deildum eða tekið rúm úr
notkun, eins og flest önnur sjúkra-
hús. í þriðja lagi þjónar sjúkrahúsið
fyrst og fremst Hafnfirðingum. Það
er mjög gott samstarf milli öldmn-
arlækninga á Sólvangi og Hrafnistu,
heilsugæslustöðvanna og þessa
sjúkrahúss. Kerfið vinnur sem ein
heild, þannig að kostnaður á hvern
legudag er mjög lítill miðað við
önnur sjúkrahús. Þama er verið að
gera góða hluti og fráleitt að ætla að
refsa mönnum fyrir það,“ segir
Finnur Ingólfsson. -aá.
Fermingarundirbúningurinn í Reykjavíkurprófastsdæmum
hefst í næstu viku:
STUTT NÁMSDVÖL
í SKÁLHOLTI
í næstu viku fer fram innritun baraa til fermingarundirbúnings hjá
söfnuðum í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Prófastsdæmið nær
yfir Arbæ, Grafarvog, Breiðholt og Kópavog. Innrituð verða á ferm-
ingaraámskeið böra, sem fædd eru árið 1978 og verða 14 ára á ár-
inu 1992. Fermingarfræðslan stendur yfir til marsloka, en ferming-
ar fara síðan fram í aprfl á vori komanda.
Sveinn Björnsson,
forseti ÍSÍ, látinn
Látinn er í Reykjavík Sveinn Bjöms-
son, forseti íþróttasambands íslands
og kaupmaður, 62ja ára að aldri.
Sveinn gegndi fjölda trúnaðarstarfa
innan íþróttahreyfingarinnar og víð-
ar. Hann var mikili KR-ingur og sat í
stjóm KR í 25 ár, þar af varaformaður
í 15 ár. Hann var í stjóm íþróttaráðs
Reykjavíkur og formaður þess um
fjögurra ára skeið, í stjóm íþrótta-
neífidar ríkisins og Félagsheimila-
sjóðs og varaformaður Ólympíu-
nefhdar Islands frá 1973. Sveinn var
forseti ÍSÍ frá 1980, en þar hafði hann
verið í stjóm frá 1962.
Sveinn var varaborgarfulltrúi árin
1974-1982. Hann sat í stjóm Kaup-
mannasamtakanna í 10 ár og var þar
af varaformaður í fimm ár.
Sveinn lætur eftir sig eiginkonu og
fjögur uppkomin böm.
Hermenn kærðir
fyrir nauðgun
Mynd 2. Samanlagöur fjöldi sjúklinga greindra
meö alnæmi og sem látist hafa vegna alnæmis á
íslandi miðað við 30. júní 1991.
_______1.852.85 1.86 2.86 1.87 2.87 1.88 2.881.89 2.891J02.90 1.91
Af átján (slendingum greindum með
alnæmi eru tíu látnir:
Fimm létust úr
alnæmi í fyrra
Þrír vamarliðsmenn eru í gæslu-
varðhaldi hjá lögreglunni á Kafla-
vikurflugvelli, vegna kæru íslenskr-
ar konu um nauðgun.
Atburðurinn mun að líkindum hafa
átt sér stað í síðustu viku á Keflavík-
urflugvelli.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli var einn
vamarliðsmannanna ekki á landinu
þegar rannsókn hófst hjá lögregl-
unni þar. Maðurinn kom til landsins
aftur síðastliðinn mánudag.
-js
Eftir að fermingamámskeið er
hafið, verða foreldrar boðnir á for-
eldrafundi og námið kynnt fyrir
þeim.
Einn liðurinn í fermingarundir-
búningi barnanna er sá að börnin
sæki guðsþjónustur safnaðanna og
kynnist guðsþjónustunni.
Guðmundur Þorsteinsson dóm-
prófastur segir í samtali við Tímann
að um síðustu áramót hafi Reykja-
víkurprófastsdæmi verið skipt upp í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og
vestra. í vestra prófastsdæminu em
allir söfnuðir sem em vestan Elliða-
áa og Reykjanesbrautar, en Árbær,
Grafarvogur, Breiðholt og Kópavog-
ur tilheyra eystra prófastsdæminu.
Guðmundur segir að fermingar-
undirbúningurinn hafí færst í það
horf að halda uppi fræðslu allan vet-
urinn.
Hins vegar er það nýjung í starf-
inu að bjóða upp á tveggja daga
námsdvöl í Skálholti. Stundunum er
þar skipt á milli leikja og náms.
Bömin hafa haft gott af dvölinni og
verið mjög hrifm af staðnum og
kirkjunni.
Þá hefur lokaathöfnin, sem haldin
er í Skálholtskirkju, orðið börnun-
um mjög minnisstæð, segir Guð-
mundur.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur fengið í hendur
skýrslur Seðlabankans og Þjóð-
hagsstofnunar um kosti þess að
tengja íslensku krónuna við evr-
ópsku myntina ECU. Þær verða
lagðar fyrir ríkisstjómina í dag.
Jón vill að svo stöddu ekki tjá sig
Fimm íslendingar létust vegna al-
næmis árið 1990, eða helmingur
þeirra sem látist hafa úr sjúkdómi
um niðurstöður greinargerðanna.
Unnið er að tillögum í ráðuneyt-
inu og Seðlabankanum á grund-
velli þeirra, og þær verða síðar
bomar undir ríkisstjómina. Búast
má við að sú vinna taki nokkurn
tíma. Þá fyrst er frétta að vænta.
-aá.
þessum hér á landi. í byijun þess
árs höfðu samanlagt 13 landsmenn
greinst með alnæmi, hvar af 5 voru
látnir. Yfír árið fjölgaði hinum
látnu í tíu, en þrjú ný tilfelli greind-
ust á árinu.
Á fyrri hluta yfirstandandi árs
greindust tveir Islendingar með
sjúkdóminn. Alls höfðu þá 18 Iands-
menn greinst með alnæmi, hvar af
átta vom enn á lífi nú á miðju ári.
Tölur þessar byggjast á upplýsing-
um landlæknis í Læknablaðinu.
Fram kemur að á miðju þessu ári
höfðu samtals 65 íslendingar
greinst með smit af völdum HIV-
veiru. Þar af greindust sex á fyrri
hluta þessa árs og af þeim reyndust
tveir vera með alnæmi. Af samtals
65 smituðum eru 55 karlar, hvar af
um helmingurinn var milli tvítugs
og þrftugs. Af alls 18, sem greinst
hafa með alnæmi, eru 15 karlar.
Viðskiptaráðherra:
Greinargerð um kosti
þess að tengjast ECU