Tíminn - 18.09.1991, Page 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 18. september 1991
Baulaðu nú
Búkolla mín
Búkolla
Bamaleikrít eftir Svein Elnarsson
TónUst: Jón Asgeirsson
Leikmynd og búningan Una CoUins
Lýsing: Björn B. Guömundsson
Leikstjórí: Þórunn Siguröardóttir
Sýningarstaðun Þjóðleikhúsið, stóra sviðiö.
Sagnahefðin er okkur íslending-
um í blóð borin og víst er að við
eigum skráðan sæg af þjóðsögum.
Ein sú þekktasta er sögð af henni
Búkollu, sem hvarf að heiman og
lenti í tröllahöndum og stráksi fór
að leita hennar og færði hana aftur
foreldrum sínum eftir miklar svað-
ilfarir.
Einnig er til sagan af þeim Ásu,
Signýju og Helgu, sem einnig fóru
að leita að þeirri sömu gæða-
skepnu. Segja má að leikritið styðj-
ist frekar við þá útgáfu. Söguþráð-
inn þekkir hvert mannsbarn og í
meginatriðum er ekki vikið frá
honum, þótt ýmsu sé skotið inn í
og skáldað eins og gengur.
Á því er enginn vafi að ritun
barnaleikrits er að sumu leyti
vandasamari en skrif fyrir full-
orðna, því bömin þola síður að at-
burðarásin sé keyrð, svo einhverju
nemi, í lágu gírunum. Þau vilja
hraða, einlæga og helst nokkuð
ærslafengna frásögn.
Höfundi og leikstjóra hefur tekist
bærilega að koma Búkollu á sviðið.
Framvindan er jöfn og hinir ungu
áhorfendur eru með á nótunum og
lifa sig inn í sýninguna og þá sér-
staklega framan af þegar meira er
gert af því að tala beint til þeirra.
Hinu er ekki að neita að það hefði
að ósekju mátt vera meiri gáski í
leiknum og atburðarásin nokkuð
hraðari.
Helstu hlutverk eru i höndum Sig-
rúnar Waage, sem leikur Helgu,
hina útskúfuðu systur. Sigrún fer
prýðilega með hlutverk sitt og
geislar af henni hjartahlýjan frá
upphafi til enda leiksins. Sigurður
Sigurjónsson Ieikur stráksa, sem
hefur það hlutverk að vera sögu-
maður og tengja samna atriðin, auk
þess sem hann talar til krakkanna
og gerir þau þannig virk í sýning-
unni. Sigurði tekst mæta vel upp,
eins og hans er von og vísa, og væri
leikrit þetta allt ansi daufari ef hans
nyti ekki við.
Önnur hlutverk eru nokkru minni
í sniðum: Baltasar Kormákur er
bráðskemmtilegur sem Dording-
ullinn ráðagóði, sérstaklega er lát-
bragðið gott. Tinna og Lilja Guðrún
leika systurnar Ásu og Signýju á
eftirminnanlegan hátt, þótt hlut-
verkin séu ekki ýkja stór. Karl og
Kerlingu í koti sínu sjá þau Róbert
og Herdís um af rósemi og yfirveg-
un.
Ónefndar eru þá þær Daladrottn-
ingin sem Guðrún Stephensen leik-
ur og Fjalladrottningin, sem Þóra
Friðriksdóttir leikur. Gervi og fas
þessara kvenna var mér heldur til
ama. Mætti ég heldur biðja um ær-
legar tröllskessur, forljótar og fer-
legar, en ekki þessar afdönkuðu,
hálfmennsku drottningar.
Á frumsýningunni virtust mér
yngri börnin hafa af leikriti þessu
góða skemmtun, en þó er eins og
broddinn vanti til að Búkolla geti
orðið barnaleikrit í 1. flokki.
Gísli Þ.
Er allt með felldu?
Reykjavík, 11. sept. 1991
Tilefnið fyrir því að ég rita pistil
þennan eru mál Veitingahússins í
Öskjuhlíð. Þar hefur verið dregin
upp skuggaleg mynd af raunveru-
leikanum. Kostnaðaráætlanir hafa
farið langt fram yfir upphaflegar
áætlanir, eða 300 milljónir um-
fram síðustu gerð áætlunar þess-
arar og útgjöld vegna hennar orð-
in 1600 milljónir. Eftir fyrirspurn-
ir Sigrúnar Magnúsdóttur, borgar-
fulltrúa B-lista, til núverandi
borgarstjóra hefur hann látið gera
úttekt á fjármálum vegna þessa
nýja veitingahúss, sem stendur í
Öskjuhlíð. Sitthvað hefur verið
dregið fram í dagsljósið og margt
óvænt verið gert opinbert. Er þar
af mörgu fróðlegu að taka.
Sé litið á fleiri mál, sem unnin
eru af borgarkerfinu, ber helst að
nefna ráðhúsið nýja sem verið er
að reisa við Tjörnina. Snemma árs,
eða núna í vor, var kostnaðurinn
kominn í 3,6 milljarða, heilar
3600 milljónir. Er allt með felldu í
því máli, eða er staðan kannski
slæm, það er hærri og meiri kostn-
aður en uppgefið er í raun. Þetta
mál ætti að athuga betur ofan í
kjölinn. Er það ef til vill botnlaus
hít þar sem um svimandi háar
upphæðir peninga er að ræða. Eru
öll kurl komin til grafar í þessu
máli. Minnihlutinn á hér að krefj-
ast tæmandi, nákvæmra upplýs-
inga frá meirihluta. Því fyrr, því
betra, fyrir alla.
Nefna má og þá kosningabrellu
borgarstjórnarmeirihlutans að
skipta um og endurnýja umferðar-
ljós á öllum gatnamótum Reykja-
víkur skömmu fyrir síðustu kosn-
ingar. Hver greiðir þann kostnað,
sem af því hlaust og hversu hár var
hann. Þetta hefur almenningur
rétt á að fá vitneskju um. Hér er
þörf á skýrum svörum frá meiri-
hluta.
Þetta alltsaman vísar síðan á
skipulag yfirstjórnunar borgarinn-
ar. Hver er raunveruleg gerð þess,
hvernig er það myndað og af hverj-
um það síðan er skipað. Hverjar
eru heildargreiðslur til þessara
manna og launakjör öll. Er hér um
að ræða taxtagreiðslur eða einhver
sérkjör þeirra. Hver eru kjör
þeirra samanborið við laun til
annarra starfsmanna borgarinnar.
Margt fleira má nefna og krefjast
svara við. Málefni BÚR sáluga voru
alltof lítið til umræðu í kosninga-
baráttunni síðustu. Þar átti að
svipta hulunni af einu mesta fjár-
málahneyksli sem um getur hér-
lendis. Seldar voru eignir þre- til
fjórfalt undir raunvirði. Tveir
milljarðar urðu að 600 milljónum,
án teljandi athugasemda nokk-
urra.
Nokkur mál eru enn ónefnd.
Gatna- og dagvistarmál, t.d. Hvaða
eftirlit er með þessum málum.
Minnihlutinn núverandi þarf að
hljóta ótvíræð svör af hálfu meiri-
hlutans. Það eru maðkar í mys-
unni í þessu núorðna, rótgróna
embættismannakerfi, sem er í dag
við lýði. öllum þessum málaflokk-
um þarf að fylgja fast eftir, mark-
visst og skýrt, skref fyrir skref, stig
af stigi. Rétti tíminn til þessa er
núna, en ekki á morgun eða
seinna. Þörf er á að hér sé fylgt á
eftir með fullum þunga, fyrir kom-
andi kosningar, sem fram fara eftir
tvö og hálft ár.
Gunnar Freyr Gunnarsson,
kt. 221158-4589
Velferðar-
þjóðfélagið
Það sem Friðrik látlaust líðst
og lýðum þykir miður,
eftir árið Blöndal býðst,
bændur skera niður.
Meðul lítt né lækna fá,
lasnir hljóta náinn.
Keppni fékk nú meira' en má
maðurinn með Ijáirm.
Davíð upp í skýin skaust,
skein á perlur víða.
,JVú er komið hrímkalt haust,
horfin sumarblíða. “
Orðhákur