Tíminn - 17.12.1991, Page 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v Trvggvogotu
,S 28822
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Oðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR•VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
9
Tíminn
ÞRIÐJUDAGUR 17. DES. 1991
Fjáriagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að fjárveiting til Háskólans verði skert á næsta ári. Háskólaráð segir að skólinn sé í hættu. Sveinbjörn Björnsson háskólarektor:
VERÐA ENGIR NÝNEMAR
TEKNIR í HÁS KÓLANN?
Svo gæti fariö aö ekki yrðu teknir nýnemar inn í Háskóla íslands
næsta haust, ef fjárlög veröa samþykkt eins og þau líta út eftir
aðra umræðu á Alþingi. Veröi þau aö veruleika, vantar Háskóla
íslands um 127 milljónir upp á, til aö geta veitt óbreytta þjón-
ustu. Sveinbjörn Björnsson háskólarektor segist vona að ekki
þurfi að koma til þess að nýnemar verði ekki teknir inn í skólann
á næsta ári, en segir jafnframt að það sé eina leiðin til að mæta
þeim niðurskurði sem fjáriögin segja til um.
,J>að að taka ekki við nýnemum á
næsta ári, er að sjálfsögðu hastarleg
aðgerð, sem við vonum að ráða-
menn vilji ekki fara út í. Þetta er von-
andi ekki það sem gerist, en þetta er
eina leiðin, sem við sjáum til að ná
niðurskurði sem dyggði til að reka
skólann við fjárveitingar þær sem í
stefnir. Skólinn hefur undanfarin ár
tekið við auknum fjölda nemenda,
án þess að hann hafi fengið raun-
hækkun fjárveitinga, og á þeim tíma
hefur verið hagrætt mikið og skorið
niður, en einhvem tímann ná menn
botni í þeim málum,“ sagði Svein-
bjöm Bjömsson háskólarektor, í
samtali við Tímann.
í ályktun, sem Háskólaráð hefur
sent frá sér og sem er byggð á grein-
argerð fjármálanefndar Háskóla ís-
lands, segir að Háskóli íslands sé í
hættu. Þar segir að fjárveiting ríkis-
ins á næsta ári verði um 253 milljón-
um króna lægri en hún þyrfti að
vera, en því verði þó að einhverju
leyti mætt með hærri skólagjöldum,
eða 90 milljónum, sem Háskólaráð
telur í raun óframkvæmanlegt, og að
36 milljónir fáist til baka af almenn-
um niðurskurði til ríkisstofriana.
Þrátt fyrir þetta vantar stofriunina
um 127 milljónir til að geta veitt
óbreytta þjónustu. Sveinbjöm segir
að þeir háskólamenn sjái möguleika
á hagræðingu í rekstri upp á 20
milljónir og niðurfellingu á nám-
skeiðahaldi upp á aðrar 20 milljónir,
en þá standi 80 milljónir eftir sem
þeir sjái enga möguleika á aö ráða
við. Þessar tölur miðast við að bæði
endurgreiðslan og skólagjöldin skili
sér í kassann.
í ályktuninni segir að skólinn sé
bundinn skyldum við þá nemendur,
sem nú þegar em í námi, og því verði
aðgerðir til spamaðar í rekstri að
beinast gegn nýnemum á næsta ári.
Þar að auki verði að koma til varan-
leg lokun námsbrauta og deilda og
afriám margs konar þjónustu. Það
myndi leiða af sér að um 2000 nem-
endur myndu tefjast í námi og leita
atvinnu á þröngum vinnumarkaði.
Samkvæmt fiárlagafrumvarpinu er
ráðgert að Háskólanum sé heimilt
að innheimta skólagjöld, allt að 17
þúsund krónur á nemanda, og gæti
aukning skólagjalda numið alltað 75
milljónum á árinu, en áður þurftu
nemendur að greiða tvö þúsund
krónur. Fjármálanefridin bendir á að
fjárveitingar á hvem nemanda í Há-
skóla íslands séu mun lægri hér
heldur en gengur og gerist í öðrum
háskólum, t.d. á Norðurlöndum.
Nefrit er sem dæmi að fjárveiting er
292 þúsund krónur á mánuði á nem-
anda í HÍ, en milli 450-100 þúsund
kr. í öðmm háskólum.
„Við höfum verið að tala við fjár-
veitingamefhd og ráðherra og allir
hafa tekið okkur vel og litist vel á
okkar tillögur, en síðan gerist ekk-
ert. Við höfum átt ágætt samstarf
við menntamálaráðherra, en það er
svo mikill darraðardans sem nú er
stiginn í kringum fjárlagaumræð-
una á Alþingi, og ég er hræddur um
að kappið sé stundum meira en for-
sjáin. Við áttum von á að heyra eitt-
hvað um málið í annarri umræðu á
Alþingi um fjárlögin, en það gerðist
ekki, þannig að við látum heyra í
okkur núna. Við höfum sagt að ef
fjárveitingarvaldið er tilbúið að
koma til móts við okkur, séum við
tilbúnir að reyna einhverjar mildari
leiðir. En við verðum að athuga
okkar gang milli jóla og nýárs, því
við verðum að stíga á bremsumar
strax á næstu önn. Við yrðum að
skerða kennslu þá. Það skiptir
miklu máli fyrir nemendur að fá
vissu í þessu máli. Ef frumvarpið
verður afgreitt svona, verður ráðu-
neytið og Háskólinn að senda ffá sér
yfirlýsingu um það hvemig á að
haga hlutunum," sagði Sveinbjöm
Bjömsson háskólarektor að lokum.
-PS
Iðnaðarráðherra undirritar yfirlýs-
ingu um orkusáttmála Evrópu:
Er ekki skerðing
á forræði okkar
yfir orkulindum
Forsætisráðherra og utanríkis- íslensk stjórnvöld muni túlka for-
ráðherra sögðu á Alþingi í gær að reeöi yfir orkulinduni þannig að
engin hætta væri á að undirrítun íslendingum verði heimilt að
iðnaðarráðherra á yfiríýsingu um halda þeim einkarétti opinberra
orkusáttmála Evrópu skerði for- aðila til virkjana orkulinda lands-
ræði íslendinga á eigin orkulind- ins, líkt og við búum við i dag.
um. Formenn Framsóknarflokks Iðnaðarráðherra féllst ekki á að
og Alþýðubandalags sögðu að breyta ræðu sinni þannig að
skilja mætti yfiríýsinguna sem stjórnarandstaðan felldi sig við
skerðingu á forræði Islendinga. hana og þess vegna fór fram um-
Stjórnarandstaðan óskaði eftir ræða um málið á þingi.
umræðu utan dagsbrár á Alþingi í I umræðunni lýsti forsætisráð-
gær um þetta mál f dag undirrit- herra því yfir að hann hefði
ar Jón Sigurðsson iðnaðarráð- gjaman viljað að iðnaðarráðherra
herra yfirlýsingu um gerð orím- breytti ræóu sinni eins og Stein-
sáttmáia Evrópu. Yfiriýsingin er grímur fór fram á. Hann sagðist
ekki bináandi fyrir ísland, en vís- hins vegar ekki telja hættu á að
ar til þess sem íslendlngar geta forræði íslendinga yfir orkulind-
sætt sig við að standi í væntan- unum myndi glatast. Steingrím-
legu sáttmála. ur sagði að víða í yflrlýsingunni
Steingrímur Hermannsson lagðí væri komið Inn á að fyrirtækl
til á íundi utanríldsmálanefndar í ættu að fá að hafa írjálsan að-
gær að iðnaðarráðherra lýsti, í gang að orkulindum og ekki
ræðu sem hann flutti síðdegis í mætti mismuna fyrirtækjum í
gær, yfir sérstöðu íslands og að því efni. -EÓ
Fasteignamat ríkisins:
íbúöarhús hækka um 10%
í flestum sveitarfélögum
Yfirfasteignamatsnefnd ríkisins
hefur ákveðið framreiknistuðul
fasteignamats, það er að segja
hækkun þess mats sem í gildi
hefur veríð frá 1. desember
1990. Og er hún svofelld:
1. Matsverð íbúðarhúsa og íbúð-
arlóða, í sveitarfélögum öðrum en
þeim sem talin eru í næsta lið,
hækkar um 6%, stuðull verður
1.06.
2. í Keflavík, í Njarðvík, á Akra-
nesi, á Selfossi og á Höfn í Horna-
firði hækkar matsverð um 10%.
Matsverð á Kjalarnesi hækkar um
15%.
3. Matsverð atvinnuhúsnæðis, at-
vinnulóða og bújarða að undan-
skildum íbúðarhúsum á jörðum
og hlunnindum verður óbreytt.
4. Matsverð hlunninda hækkar
um 6%.
f skýrslu Fasteignamats ríkisins
kemur fram að útborgun í pening-
um á íbúðamarkaði höfuðborgar-
svæðisins hefur á tveggja ára
tímabili lækkað úr því að vera
75% af söluverði í 45%. Þá hefur
Akureyri:
Erilsöm helgi
Lögreglan á Akureyri hafði í mörg
horn að Iíta um helgina. Átta ein-
staklingar þurftu að gista fanga-
geymslur lögreglunnar um helgina,
vegna óláta og ýmissa annarra
ástæðna. Þá voru fjölmörg útköll
þar sem menn voru keyrðir til síns
heima. Fimm sinnum varð lögregl-
an að hafa afskipti vegna árekstra,
sem reyndar allir voru minniháttar
og án meiðsla. Þá var einn tekinn
grunaður um ölvun við akstur og
tveir teknir fyrir of hraðan akstur. í
samtali við Tímann sagði Iögreglan
að þetta hefði verið leiðindahelgi,
sem mætti rekja til þess að mikið
hefði verið um jólaglögg á vegum
lyrirtækja norðan heiða. -PS
söiuverð umreiknað til stað-
greiðslu lækkað úr því að vera
89.5% söluverðs í 86.5%, um 3%.
Fasteignamatið rekur þessar
breytingar báðar til húsbréfakerf-
isins. -aá.
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPF’HÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 | 1 2.790.493
2. 3 161.667
3. 4af5 123 6.801
4. 3a)5 4.445 439
Heildarvinningsupphæö þessa viku:
í
UPPLYSINGAR SIMSVARI91 -681511 lukkulina991002