Tíminn - 28.12.1991, Síða 8

Tíminn - 28.12.1991, Síða 8
8 Tíminn Laugardagur 28. desember 1991 „Auðvitað vildi ég að Tíminn lifði mig og alla sem að honum standa“ Rætt við elsta starfsmann Tímans, Guðjón Einarsson skrifstofustjóra, sem starfað hefur við blaðið í 40 ár Þann 17. mars nk. verða 75 ár liðin frá því að Tíminn hóf að koma út. En það eru viðsjártímar og um hríð hefur verið óvíst hvort blaðið lifi það að fagna þessu afmæli. Þegar þetta er rit- að er útgáfan aðeins ákveðin til hins 1. mars. Er nær dregur áramótum nú er því vel viðeig- andi að líta um öxl og hugsa til þeirra, sem unnið hafa svo langt og gott starf í blaðsins þágu. Elstur núverandi starfsmanna er Guðjón Einarsson, skrifstofustjóri blaðsins, en hann hefur starfað hjá því í fjóra áratugi, hóf störf 27 ára gamall. Við byrjum á að spyrja hann um ætt og uppruna og tildrög þess að hann réð sig að blaðinu. „Ég er fæddur í Reykjavík 26. apríl 1924 og foreldrar mínir voru þau Einar Jónsson prentari, sem var þekktur meðal tónlistar- manna í Reykjavík á fyrri árum, og Nína Sveinsdóttir leikkona," segir Guðjón. „Við vorum tveir bræðurnir og gerðumst báðir prentarar og músíkantar eins og faðir okkar, svo þú sérð að það er margt líkt með skyldum. Já, ég hóf að læra prentiðn 1940 og lærði í Steindórsprenti hjá föður mínum. Þar var ég fram undir 1950, þegar farið var að ýta á mig að ráða mig hjá prent- smiðjunni Eddu. Það var aðdrag- andinn að því að ég réðst til Tím- ans, en þó var ég þá þegar farinn að grípa í verkefni hjá blaðinu sem íþróttaljósmyndari. Eftir að ég byrjaði í Eddunni prentaði ég á daginn en vann íþróttamyndir að kvöldinu. Um þessar mundir starfaði ég líka um tíma að myndamótagerð í prentsmiðj- unni. Þá voru enn sem oftar að verða þáttaskil í prenttækni með því að nota plastklisjur í staðinn fyrir sink eða kopar. Þetta tók Tíminn upp fyrstur af dagblöðun- um, en þessi aðferð var bæði mik- ið hreinlegri og fljótlegri. En myndamótasmiðir brugðust illa við henni í upphafi, fóru í mál og sögðu mig, sem ekki var lærður myndamótasmiður, vera að fara inn á þeirra verksvið. En málið féll á þá í Hæstarétti, því ég not- aði engin kemísk efni við þetta. Nú, en svo gat það ekki gengið lengur að ég skipti mér svona á milli starfa og menn sáu að ann- að hvort varð ég að helga mig prentinu að fullu eða ljósmynd- uninni. Það síðara varð úr. Á fcrð og flugi Það var gaman að vera ljós- myndari á þessum tíma, en þá var enn ekkert sjónvarp komið og blöðin ein um hituna. Um þessar mundir vorum við Ólafur K. Magnússon á Morgunblaðinu stöðugt á ferðinni þar sem eitt- hvað fréttnæmt var að gerast og fólk beið eftir myndunum, eins og sjónvarpsfréttum síðar. Með okkur var ágæt samvinna, þótt Ólafur væri mikið eldri í þessu, en hann er elsti blaðaljósmyndari landsins nú. Værum við á fund- um þar sem stjórnmálamenn frá Framsóknarflokki og Sjálfstæðis- flokki áttust við, skutum við jafn oft á alla ræðumenn. Munurinn var bara sá að þegar við mynduð- um andstæðinginn, létum við oft blossann af „flassinu" nægja — notuðum ekki filmu. Jú, það gerðust mörg eftir- minnileg atvik og eitt þeirra var þá er Ella Fitzgerald kom hingað 1966. Flugvélin, sem hún kom með, lenti á milli klukkan sjö og átta um kvöld og fjöldi Ijósmynd- ara, blaðamanna og útvarps- manna var mættur. Ella Fitzger- ald kom út um dyrnar á flugvél- inni, kolsvört í svörtum pelsi og í kolamyrkri. Ég var með eitt af þessum stóru „flössum", sem þá tíðkuðust, á lofti og hvernig sem á því stóð, þá hélt Ella að þetta væri hljðóðnemi. Hún gekk beint til mín og fór að flytja ávarp inn í flassið. Það varð auðvitað uppi fótur og fit meðal útvarpsmann- anna, sem þyrptust að með upp- tökutæki sín. En ég þorði ekki að taka niður „flassið" af ótta við að trufla hana. Sem betur fer held ég að ávarpið hafi þó komist að mestum hluta til skila í útvarp- inu og í blöðunum. Kynni af heimspressunni Ég varð umsjónarmaður ijós- myndadeildarinnar á Tímanum og í tengslum við það kom margt eftirminnilegt fyrir. Eitt af því gerðist þegar breski togarinn Ross Cleveland fórst undan Arn- arnesi í ísafjarðardjúpi í febrúar 1968 og aðeins einn maður komst af, Harry Eddom. Hann lá á sjúkrahúsinu á ísafirði og þar sem fréttin vakti feiknaathygli í Englandi, sendu blöð þar blaða- menn og ljósmyndara hingað til lands og eitt þeirra, The Sun, bauð konu hans, bróður og for- eldrum hingað til fundar við skipbrotsmanninn. Þeir hjá Sun töldu sig hafa einkarétt á frúnni, Ritu Eddom, og gættu þess vand- lega að engir aðrir kæmust nærri henni. Á Keflavíkurflugvelli gekk svo langt að þeir lokuðu hana inni á klósetti svo keppinautarnir kæmust ekki nærri henni. Þeir sömdu við okkur á Tímanum um Guöjón Einarsson: „Viö biö- um uns hurðin opnaðist og náöum ágætum myndurn." Filippus prins landar laxinum við Konungsstreng í Laxá.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.