Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 19

Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 19
Laugardagur 28. desember 1991 Tíminn 19 Arngrímur Bjarnason Fæddur 24. mars 1908 Dáinn 15. desember 1991 Allt frá því að ég man fyrst eftir mér hefur Arngrímur átt ákveðinn sess í mínum huga. Hann var þessi virðu- legi frændi sem kunni svör og ráð við flestu og var eiginlega hafinn yf- ir gagnrýni. Eins konar höfuðsmað- ur ættarinnar, sem hann var þó ekki fæddur inn í heldur tengdist í gegn- um hjónaband. Maður gat alltaf ver- ið viss um að ráð hans væru óbrigð- ul og mátti þá einu gilda hvert um- ræðuefnið var. Nú er hann allur, á -84. aldursári. Amgrímur Jón Vídalín Bjarnason fæddist 24. mars 1908 á Þórustöð- um í Mosvallahreppi í Vestur- ísa- fjarðarsýslu. Foreldrar hans voru Bjarni Jónatansson, sem þá var bóndi á Þórustöðum en fékkst síðar við verkamannastörf á Flateyri, son- ur Jónatans Þorleifssonar á Litlu- Þúfu í Miklaholtshreppi á Snæfells- nesi og Önnu Filippíu Jónsdóttur, og Stefanía Arngrímsdóttir hús- freyja á Þórustöðum og Flateyri, dóttir Amgríms Vídalíns Jónssonar bónda og skipstjóra í Hjarðardal ytri í Önundarfirði og Laum Williamine Margrethe Thomsen. Bjarni og Stef- anía eignuðust 8 böm og var Am- grímur fjórði í röðinni, en elstur þeirra sem upp komust. Systkini Amgríms vom: Dagrún, fædd 1903, dáin 1929, Amgrímur, fæddur 1904 en Iést á fyrsta ári, Bergljót, fædd 1906, dó á þriðja ári, Bergljót, fædd 1910, Una Margrét, fædd 1911, Njáll Bergþór, fæddur 1913 og Sólveig Stefanía, fædd 1916. Auk þess átti Amgrímur tvær hálfsystur og einn hálfbróður. Föður sinn missti Amgrímur þegar hann var 13 ára og var hann þá tek- inn í fóstur Ólafs Sigurðssonar hreppstjóra á Flatéyri og konu hans, Valgerðar Guðmundsdóttur hús- freyju. Árið 1927 fluttist Amgrímur til Ak- ureyrar og hóf nám í Menntaskólan- um þar. Hann lauk stúdentsprófi ut- anskóla vorið 1933 og þá um haust- ið innritaðist hann í læknadeild Há- skóla íslands. Eftir fyrsta veturinn varð hann þó að hverfa frá námi sök- um fjárskorts, en lauk áður cand. phil. prófi. Leiðin lá aftur til Akur- eyrar þar sem Arngrímur fékkst fyrst við kennslu og starfaði á lög- fræðiskrifstofu. Síðla árs 1937 hóf hann svo störf hjá Kaupfélagi Ey- firðinga, en því fyrirtæki léði hann starfskrafta sína í tæp 50 ár. Hann varð skrifstofustjóri hjá KEA í apríl 1947 og gegndi því starfi fram á mitt ár 1971, en þá var hann ráðinn aðal- fulltrúi og staðgengill kaupfélags- stjóra. Árið 1979, þá 71 árs að aldri, lét hann af störfum hjá Kaupfélag- inu fyrir aldurs sakir. Starfskraftar Amgríms vom þó langt í frá þormir og hann var áfram í hlutastarfi við sérstök verkefni hjá Kaupfélaginu til nóvemberloka árið 1986. Þá átti hann að baki tæplega hálfrar aldar farsælan starfsferil hjá stærsta og umfangsmesta fyrirtæki á Akureyri og þótt víðar væri leitað. Ekki veit ég hvort það var hin langa vist hjá Kaupfélaginu sem gerði Arngrím að samvinnu- og félags- hyggjumanni, eða hvort hann valdi sér þann starfsvettvang vegna lífs- skoðana sinna, en það má einu gilda. Hann hafði í æsku kynnst fá- tækt og skorti, sem meðal annars bannaði honum að stunda lang- skólanám eins og hugur hans stóð þó til, þannig að síst vantaði hann skilning á kjömm og erfiðleikum bágstaddra. Vafalaust hefur hvort tveggja, æskan og uppeldið annars vegar og starfið hins vegar, átt þátt í að móta hans lífsviðhorf. Arngrímur var alla tíð sannur samvinnumaður í þess orðs vfðustu merkingu og gott ef sú hugsjón varð ekki skarpari með ámnum. Á Iöngum starfs- og æviferli gegndi Amgrímur fjölmörgum trúnaðar- störfum. Hann átti m.a. sæti í sjó- og verslunardómi Akureyrar í mörg ár frá 1961, sat í stjórn Sjúkrasam- lags Akureyrar óslitið frá 1962-1982, var í nokkur ár fulltrúi í fram- kvæmdanefnd leiguíbúða Akureyrar og var endurskoðandi reikninga Út- gerðarfélags Akureyrar og Akureyr- arbæjar eftir að hann lét formlega af störfum hjá KEA. Árið 1980 var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að fé- lagsmálum. Þrátt fyrir vestfirskan uppruna, sem honum varð tíðrætt um, var hann orðinn Akureyringur „par exc- ellence", eins konar heimsborgari í höfuðstað Norðurlands. Akureyri var honum afar kær, það má segja að þau hafi saman aldur alið Arngrím- ur og Akureyri líkt og hríslan og lækurinn, og hann mundi sannar- lega tímana tvenna í sögu Akureyr- ar. Arngrímur var ákaflega bókhneigð- ur maður, vel heima í bókmenntum, bæði íslenskum og erlendum. Á heimili þeirra Ástu, móðursystur minnar, er mikið og gott bókasafn, vafalaust eitt af því besta í einkaeign hér á landi. Sem gestkomandi á heimili þeirra kom það aldrei fyrir að ekki fyndist einhver góð bók að glugga í og sjaldan kom maður að tómum kofunum hjá Arngrími, því hann kunni skil á velflestu sem þar gat að líta. Sjálfur fékkst hann dulít- ið við ritstörf, a.m.k. á yngri árum. Hann þýddi nokkrar skáldsögur og sá um útgáfu á barnabókinni Ævin- týri Fjallkonunnar árið 1942. Þá þýddi hann fjölmargar smásögur og greinar fyrir Samvinnuna á fimmta áratugnum. Amgrímur var ágæt- lega hagmæltur og víða í gestabók- um leynast stökur sem hann kastaði fram á góðum stundum. Arngrímur var tvíkvæntur. Árið 1939 kvæntist hann Elínu Guðrúnu Einarsdóttur, f. 1905, en þau slitu samvistir árið 1958. Kjördóttir þeirra er Ólöf Stefanía Arngríms- dóttir, f. 20. júní 1945, hjúkrunar- fræðingur á Akureyri, gift Baldri Jónssyni yfirlækni. Sonur þeirra er Arngrímur. Þann 24. ágúst 1958 gengu þau í hjónaband Arngrímur og Asta Emilía Friðriksdóttir, f. 4. janúar 1926. Hún starfar á skrifstofu Sjúkrasamlags Akureyrar. Ásta var þá liðlega þrítug ekkja og einstæð móðir. Foreldrar hennar voru Frið- rik Jónsson bóndi á Hömrum og víðar í Lýtingsstaðahreppi í Skaga- firði, síðar búsettur á Akureyri, og seinni kona hans, Steinunn Soffía Stefánsdóttir hjúkrunarkona. Frið- rik var Skagfirðingur í báðar ættir, en Soffia var húnvetnsk að ætt. Böm Arngríms og Ástu em: Guðríður Þórhallsdóttir (dóttir Ástu af fyrra hjónabandi, sem Amgrímur gekk í föður stað), f. 17. september 1945, meinatæknir í Mosfellsbæ, gift Hall- grími Jónssyni, flugstjóra hjá Flug- leiðum, og eiga þau þrjú böm: Hrefnu, Ástu og Hallgrím. Stefán Amgrímsson, f. 9. ágúst 1960, BA ( ensku og sagnfræði, lögreglumaður í Reykjavík, kvæntur Kristbjörgu Héðinsdóttur meinatækni og eiga þau tvo syni, Þórð og Arngrím. Á kveðjustund hrannast upp minn- ingar um Iiðna tíma. Á æskuámm mínum dvöldumst við bræðurnir ásamt móður okkar oft um lengri eða skemmri tíma á sumrin í Odd- eyrargötunni hjá Ástu og Arngrími. Frá þeim tíma eru aðeins ljúfar minningar — þá var alltaf gott veð- ur á Akureyri, sól og sumar og Skátagilið var miðpunktur ærsla og leikja. Nokkur sumur vomm við Stefán Arngrímsson saman í sumar- dvöl á Dagverðareyri við Eyjafjörð, þar sem verkalýðshreyfingin rak sumardagheimili. Ég minnist Arn- gríms sérstaklega frá þeim ámm, um 1965- 1970. f hugum okkar krakkanna var enginn jafnmikill au- fúsugestur og Arngrímur þegar hann kom með timbur og nagla og annað tilheyrandi til að við gætum dundað okkur við smíðar. Og þá var margur kastalinn reistur og rifinn og endurbyggður. Alltaf með jöfnu millibili hafði Arngrímur tíma til að skjótast út að Dagverðareyri með stórt og smátt sem gat glatt hugi barnanna. Það vom líka ófóir bíltúr- arnir sem við frændurnir fómm í með Arngrími inn í Eyjafjörð, út með Lögmannshlíð eða jafnvel út á Dalvík. Alltaf gat Arngrímur fundið upp á einhverju nýju og spennandi, vel vitandi að lítið er ungs manns gaman. Tíðum fómm við saman í sumarfrí, foreldrar mínir með okkur bræður og Ásta og Arngrímur með Stefán. Þær hafa líka orðið margar berja- ferðirnar og reyndar er ekki langt síðan ég átti þess kost að fara í berja- mó með þeim hjónum. Því miður urðu samverustundirnar afar fáar meðan ég dvaldist erlendis lungann úr níunda áratugnum, en á síðustu þremur árum hef ég á stundum átt erindi til Akureyrar og þá hefur Ieið- in alltaf legið á Byggðaveginn, þar sem þau Ásta hafa búið síðan 1979. Ævinlega barst tal okkar Arngríms að pólitík og viðfangsefnum líðandi stundar. Fyrst eftir að ég fór að hugsa um pólitík þótti mér nánast sjálfgefið að Arngrímur væri fram- sóknarmaður, enda Akureyri alltaf mikill Framsóknarbær og Kaupfé- lagið eins konar háborg samvinnu- stefnunnar. í samtölum okkar hin síðari ár varð mér smátt og smátt Ijóst að svo einfalt var málið ekki. Hann var að vísu sannur framsókn- armaður, en umfram allt samvinnu- og félagshyggjumaður, með fast- mótaðar skoðanir, kunni góð skil á réttu og röngu og lét menn hvorki njóta né gjalda flokkspólitískrar stöðu. í samræmi við sín lífsviðhorf lét hann sig varða kjör annarra, sér- staklega þeirra sem minna mega sín. Hann taldi eins og margir að stjórn- málamennimir hefðu brugðist skyldu sinni í því efni að tryggja öll- um sómasamleg lífskjör og þar væri mikið verk að vinna. Ekki gat ég fundið annað en að róttæk sjónar- mið mín mættu skilningi og stund- um beinum stuðningi. Margan dag á ég í hugskoti mínu frá þessum sam- verustundum öllum sem vert er að rifja upp og þakka fyrir. Það hefur stundum verið sagt í fjöl- skyldunni að Arngrímur hefði mörg Iíf — og ekki alveg að ástæðulausu. Árið 1970 var honum vart hugað líf þegar hann veiktist af nýmasjúk- dómi og lá á Landakotsspítala um nokkurra vikna skeið. Þá man ég eft- ir því að þær vöktu til skiptis vfir honum Þorbjörg móðir mín og Olöf dóttir hans, báðar hjúkmnarfræð- ingar. Þá vom það ungir sérfræðing- ar, nýkomnir heim frá námi, sem beittu nýrri tækni við að hreinsa blóð og Árngrímur komst yfir hjall- ann þann og síðan em liðnir tveir áratugir. Frá þeim tíma kenndi Arn- grímur sér tæpast nokkurs meins fyrr en nýrnasjúkdómurinn tók sig upp aftur fyrir um fimm ámm. Það var svo snemma árs árið 1988 að hann fór að fara til Reykjavíkur með stuttu og reglubundnu millibili í „gervinýrað" á Landspítalanum. Síðla það sama ár fékk hann þó ný tæki og síðan gat hann að mestu sjálfur framkvæmt þær hreinsanir sem gervinýrað sér um og hafði þá útbúnaðinn til þess heima hjá sér. Þá fór hann einungis í fáar eftirlits- ferðir á ári til Reykjavíkur og var feginn að vera laus við flandur milli landshluta, því hann undi hag sín- um best á Akureyri. Eftir því sem hjúkmnarfólk hefur sagt sinnti hann læknisverkunum af mikilli kostgæfni eins og honum var lagin, og aldrei þurfti að hafa áhyggjur af því að hann gleymdi sér. Með því móti gat hann verið heima allt þar til hann var fluttur á Landspítalann nokkmm dögum áður en hann hóf ferðina inn í fegri heim og aldrei missti hann meðvitund, en það var eitt af því sem hann síst vildi, að þurfa að lifa úr tengslum við um- heiminn. Hann var sjálfsagt hvíld- inni feginn. Eftir sitjum við sem söknum sam- ferðamanns. Sárast sakna eiginkona og börn. Ég veit að ég mæli fyrir hönd föður míns og okkar bræðra þegar ég sendi Astu, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og systkinum hugheilar samúðarkveðj- ur. Arngrímur Bjarnason er kvaddur með virðingu og þökk. Blessuð sé minning manns sem gaf. Árni Þór Sigurðsson Glúmur Björnsson fyrrum skrifstofustjóri Fæddur 9. febrúar 1918 Dáinn 14. desember 1991 Ég kynntist Glúmi Björnssyni fyrst árið 1954 þegar ég sem ungur verk- fræðingur byrjaði störf hjá raforku- málastjóra. Hann hafði þá unnið þar sem fulltrúi í nokkur ár. í upphafi starfsferils míns unnum við saman að ýmiskonar skýrslum og greinar- gerðum um virkjanir og raforku- mál. Ég minnist þess að mér þótti Glúmur skarpgreindur maður. Hann var ákaflega fljótur að setja sig inn í mál og hann átti mjög auðvelt með að setja mál sitt fram á skýran og greinargóðan hátt, jafnvel um flókin viðfangsefni. Þetta vakti aðdá- un mína og fleiri ungra manna sem þá voru um það bil að hefja störf. Ég man líka að hann gerði miklar kröf- ur til sjálfs sín og okkar um ná- kvæmni; ekki endilega í tölum, nema efni væru til þess — sem ekki var alltaf — heldur í hugsun og tjáningu. Ruglingsleg hugsun og ómarkviss framsetning voru eitur í hans beinum. Hélt hann stundum brýningarræður yfir okkur, sem með honum unnum, um þetta, og hafa bæði ég og fleiri margt af þeim lært. Síðar tók Glúmur við stjórn á bók- haldi og skrifstofuhaldi hjá raforku- málastjóra og Orkustofnun eftir að hún tók við embætti hans 1967. Hjá Orkustofnun starfaði hann til ársins 1981 er hann lét af störfum og fór á eftirlaun; síðustu ár sín þar sem yfir- maður Skrifstofu- og hagdeildar stofnunarinnar. Hjá raforkumálastjóra fékkst Glúmur, einkum framan af, mikið við gjaldskrármál rafyeitna. Síðar, þegar bókhald varð stærri þáttur í störfum hans, lét hann bókhaldsmál rafveitna og raforkufyrirtækja mjög til sín taka. Átti hann ríkan þátt, stundum höfuðþáttinn, í að taka upp ýmsar nýjungar hér á landi á því sviði, sem fyrir löngu eru orðnar óaðskiljanlegur hluti af bókhaldi slíkra fyrirtækja og ýmsir yngri menn eiga eríitt með að skilja að ekki hafi verið hluti af því, að minnsta kosti síðan á dögum Adams og Evu. Svo sjálfsagðar þykja þær nú. í störfum sínum að gjaldskrár- og bókhaldsmálum rafveitna beitti Glúmur sömu skarpskyggninni og sama skýrleika í hugsun sem ég minntist á. Þessum störfum fylgdu mikil samskipti við rafveitur um þessi mál, þar sem sú skýra fram- setning, sem honum var svo lagin, naut sín vel. Þetta kom sérstaklega fram í fjölmörgum erindum sem Glúmur flutti á þingum og öðrum samkomum Sambands íslenskra rafveitna á þessum árum. Ég hygg að hann hefði orðið afbragðskennari ef hann hefði lagt kennslu fyrir sig. Glúmur fylgdist af miklum áhuga með hinni ævintýralegu þróun tölvutækninnar nú á síðari hluta þessarar aldar. Beitti hann sér fyrir því að sú tækni var tekin upp í bók- haldi raforkumálastjóra og síðar Orkustofnunar, og notkun hennar þar endurbætt jafnt og þétt eftir því sem tækninni fleygði fram. Um það leyti sem hann lét af störfum voru einmenningstölvurnar að ryðja sér til rúms. Glúmur kynnti sér þá tækni af sama eldmóði og áhuga sem stórtölvutæknina áður, og var fljótur að átta sig á möguleikum hennar, ekki síst fyrir minni rafveit- ur. Beitti hann þeirri tækni mikið í ráðgjafastörfum sínum eftir að hann hætti störfum hjá Orkustofnun. Glúmur var góðviljaður maður sem vildi öllum vel. Man ég vel hve annt hann lét sér um að leiðbeina okkur nýliðunum í starfi og hvetja okkur til dáða. Hann hafði ríka sam- úð með þeim sem á einhvern hátt stóðu höllum fæti og áttu erfitt með að taka af fullum krafti þátt í lífs- gæðakapphlaupi nútímans. Hann var einnig tilfinninganæmur og hrifnæmur; hafði yndi af skáldskap, einkum ljóðum. Ég rek hér ekki ættir Glúms eða æviferil að öðru leyti. Það verður ef- laust gert af öðrum sem eru betur til þess hæfir. Nú er leiðir skiljast, er mér í huga þakklæti fyrir langt samstarf, sem aldrei bar skugga á; fyrir leiðbein- ingar og hvatningar af góðum hug fram settar. Orkustofnun þakkar langa og dygga þjónustu. Við Jóna vottum konu Glúms frú Ingibjörgu Sigurðardóttur, syni hans af fyrra hjónabandi Stefáni Björnssyni, börnum Ingibjargar af fyrra hjóna- bandi og öðrum aðstandendum, samúð okkar. Ég veit að ég mæli fyr- ir munn allra starfsmanna Orku- stofnunar er ég flyt öllum aðstand- endum Glúms samúðarkveðjur þeirra. Jakob Björasson Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa aö vera vélritaðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.