Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 20

Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP AUÐVITAÐ „Suðuríandsbraut 12 Oðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. W ' Vslt Áskriftarsími Tímans er NUTIMA FLUTNINGAR Hatnorfiusinu v Tryggvc.gotu .yff. 2882_2 MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 686300 LAUGARDAGUR 28. DES. 1991 Formenn ríkisstjórnarflokkanna íhuga aö bæta slæma ímynd ríkisstjórnarinnar meö því aö færa ráðherra til milli ráðuneyta: Davíð og Jén íhuga að stokka stjórnina upp Sú kann að fara að ráöherrar í núverandi ríkisstjóm færi sig til milli ráðuneyta á næsta árí. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hafa staðfest í samtali við fjölmiðla að um slík stólaskipti hafi veríð rætt í Viðey þegar ríkisstjómin var mynd- uð. Davíð segir í samtali við Vikuna að vel komi til greina að ráðherrar færí sig til milli ráðuneyta á næsta ári og segist sjá ýmsa kosti við slík- ar breytingar. Það er ekki óalgengt erlendis að breytingar séu gerðar á rikis- stjórnum á miðju kjörtímabili. Nægir í því sambandi að benda á Bretland og Frakkland, en þar er þetta mjög algengt fyrirbæri í stjórnmálum. Markmiðið með slíkum breytingum er tvíþætt. Annars vegar að fá ferskari svip á ríkisstjórn sem á í vanda og nýtur kannski takmarkaðs trausts meðal almennings. Hins vegar getur „ráðherrahoppið", eins og það er stundum kallað, haft það að mark- miði að leysa innri vandamál í rík- isstjórnum. Þá er nýr maður sett- ur í ráðuneyti sem staðið hefur styr um. „Ráðherrahopp" hefur verið fátítt fýrirbæri í íslenskum stjórnmál- um, en þó ekki óþekkt. Sjálfstæð- isflokkurinn stokkaði upp sitt ráð- herralið haustið 1985 í fyrri ríkis- stjórn Steingríms Hermannsson- ar. Þá var tilgangurinn að koma nýkjörnum formanni flokksins, Þorsteini Pálssyni, í ráðherrastól. Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa staðfest að þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð í Viðey hafi verið rætt um þann möguleika að færa ráðherra til milli ráðuneyta á miðju kjörtímabili. Jón Baldvin sagði í sjónvarpsþætti nýlega að rætt hafi verið um að hann og Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, skiptu um sæti. Hann sagði að þessi breyting væri ekki tímabær nú og vildi ekki segja hvenær hún yrði tímabær. Davíð Oddsson ræddi um þetta mál í viðtali við Vikuna sem kom út í gær. Þar segir forsætisráð- herra: ,Arið 1992 gætu hins vegar orðið breytingar innan ríkisstjórn- arinnar. Rætt var um það þegar stjórnin var mynduð að stuðla að vissri hreyfingu innan hennar á meðan hún sæti. Hér á ég við að núverandi ráðherrar kynnu að færst til innan stjórnarinnar, sennilega þannig að ráðherrar úr sama flokki skiptu um ráðuneyti. Til þess gæti komið á næsta ári. Líka kemur til greina að skipta um menn og fá alveg nýja menn inn í stjórnina. Það verður þó varla fyrr en á þar næsta ári. Sjálfur tel ég að jafnan eigi að koma til álita að skipt sé um ráðherra í ríkisstjórn á miðju kjörtímabili. Sá háttur er hafður á í ýmsum ríkjum og þykir gefast vel. Þannig fást nýjar víddir inn í stjórnarsamstarfið sem hlýt- ur að vera æskilegt þótt ekki kæmi annað til. Mér finnst sjálfsagt, að öðru jöfnu, að gefa nýjum mönn- um tækifæri til að spreyta sig í rík- isstjórn, jafnvel þótt þeir sem þar eru standi sig ágætlega." Ekki er talið að umræður um þessar tilfærslur séu hafnar að neinu marki innan stjórnarflokk- anna. Líklegt er að verði hug- myndir flokksformannanna að veruleika verði um miklar tilfærsl- ur að ræða, jafnvel að nýir menn setjist í öll ráðuneytin nema for- sætisráðuneytið. Með þessu myndi ríkisstjórnin fá nýtt og ferskara út- lit og hugsanlega aukið fylgi hjá þjóðinni, en hún þarf einmitt á því að halda um þessar mundir. Jafn- framt gæfist tækifæri til að leysa ýmis innri vandamál sem stjómin á við að glíma í dag. Vandamál sem skapast hafa vegna einharðrar stefnu Þorsteins Pálssonar í sjáv- arútvegsmálum myndu hugsan- Iega leysast svo dæmi sé tekið. Hægt yrði að gera ýmsar breyting- ar í húsnæðismálum sem ekki er hægt að gera í dag vegna andstöðu Jóhönnu Sigurðardóttur. -EÓ Akranes: Afkastamikil brugg- verksmiðja afhjúpuð Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi gerði á aðfaranótt Þor- láksmessu upptæka afkastamikla og fullkomna bruggverksmiðju í bflskúr á Akranesi og í kjölfarið var maður handtekinn grunaöur um bruggina og sölu á landa. Verksmiðjan var í herbergi í bíl- skúrnum og var að sögn lögreglu haganlega fyrir komið þar. Ásamt tækjunum gerði lögreglan upptæka um 70 lítra af eimuðum landa og um 500-600 lítra af gambra, sem er óei- maður landi. Talið er að starfsemin hafi verið búin að ganga í 2-3 mán- uði, en ekki eru taldar líkur á að manninum hafi tekist að selja teij- anlegt magn. Maðurinn sem stund- aði hruggunina, hefur viðurkennt að hafa bruggað og selt landann og en hann var færður í fangageymslur, en var síðan sleppt þar sem máliö er nú að fullu upplýst og bíður þess að verða sent til ríkissaksóknara. Að sögn rannsóknardeildar Akra- neslögreglunnar er þetta lang- stærsta bruggmál sem upplýst hefur verið þar í bæ í mörg ár. Engin kreppa í jólaverslun Samkvæmt upplýsingum Tímans lögðu mjög margir leið sína ■ Kringluna fyrir jólin. Jóna Vem- harðsdóttir, starfsmaður Kringl- unnar, segir ansi mikla „traffik" hafa verið og mikið um að vera. Hún telur að álíka margir og í fyrra hafi komið í Kríngluna eða jafnvel heldur fieiri. Til marks um það er að bflastæðin yfirfylltust. Jón Ásbergsson, forstjóri Hag- kaupa, segist ánægður með jóla- verslunina. Hann segir umtalað kreppuástand ekki hafa komið fram í jólasölunni. Jón telur að jólaversl- un í Kringlunni hafi almennt verið mjög góð og segir hljóðið vera gott í þeim kaupmönnum sem hann hefur talað við. Hann tekur fram að opið hafi verið tvo sunnudaga í desem- bermánuði og sennilega hafi aldrei verið jafnmikil aðsókn í Kringluna fyrir jól eins og í ár. Ekki náðist í Jón Sigurbjörnsson, forsvarsmann Laugavegssamtak- anna, en starfsmaður Úra- og skart- gripaverslunar Jóns og Óskars telur jólaverslunina við Laugaveginn hafa gengið mjög vel og segist ekki hafa heyrt annað. Hann tekur fram að það hafi verið sérstaklega góð stemning á Laugaveginum á Þor- láksmessu. -js Yfirmenn lögreglunnar í Reykjavík stunda nú almenna föggæslu í borginni. Á myndinni má sjá þá Guðmund Guðjónsson yfirlögregluþjón og Ómar Smára Armannsson aðstoðaryfirlögregluþjón á gangi á Laugaveginum í gær. Timamynd pjetur. Nýbreytni hjá lögreglunni í Reykjavík: Yfirmennirnir á götunni Nú geta vegfarendur átt von á því að sjá æðstu yfirmenn lögreglunnar í Reykjavík á götum úti við almenn lögreglustörf, en nú stendur yfir tilraun á vegum lögreglunnar, sem miðar að því að bæta tengsl þeirra við hinn almenna borgara og að bæta ímynd hennar hjá skattgreið- endum. Tilraunin felst í því að yfir- menn Iögreglunnar, að undanskild- um lögregiustjóranum stunda nú almenn löggæslustörf. „Við erum að breyta til, prófa nýjar áherslur og reyna að fá okkur sem að vinnum innistörfin í meiri tengsl, bæði innbyrðis við hinn óbreytta lögregluþjón og við hinn almenna borgara. Það má segja að við sem erum hærra settir innan lögreglunnar erum að reyna að nálgast fólkið í borginni og hafa við- brögð almennings verið mjög já- kvæð.“sagði Guðmundur Guðjóns- son annar tveggja yfirlögregluþjóna hjá Lögreglunni í Reykjavík í sam- tali við Tímann. Allir yfir- og undirmenn, að undan- skildum lögreglustjóra, sem hingað til hafa nær einungis unnið inni- störf sinna nú almennum löggæslu- störfum einhvern hluta dags. Með breytingu þessari fjölgar um tugi lögregluþjóna á götum úti, en kem- ur þó til með að koma niður á öðr- um störfum yfirmannanna. Verkefn- ið er tilraun sem hófst þann 10. des- ember til að bæta tengsl yfirmanna lögreglunnar við hinn almenna borgara og einnig vonast yfirstjóm lögreglunnar til að tengsl yfirmanna við hinn almenna lögregluþjón verði betri fyrir bragðið. Þeir lög- reglumenn sem að um ræðir koma úr öllum deildum lögreglunnar. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar vonast þeir til að tilraunin takist vel, en ekki er Ijóst hve lengi hún stend- ur. -PS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.