Tíminn - 25.01.1992, Qupperneq 1
Laugardagur
25. janúar 1992
:bl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Starfsfólk Landakots býst við hópuppsögnum. Læknaráðsformenn allra Reykjavíkur-
spítalanna senda út sameiginlega viðvörun vegna niðurskurðar í spítalaþjónustunni:
lrJá, ég held að það sé óvanalegt að
við komum allir saman til fundar,
enda lítum við svo á að það séu
óvenjulega alvarlegir hlutir í gangi.
Sú umræða sem fram fer innan spít-
alanna held ég að hafi aldrei verið í
eins mikilli alvöru og einmitt núna,“
sagði Jóhannes M. Gunnarsson, for-
maður læknaráðs Borgarspítalans.
Það óvenjulega hefur gerst að for-
menn læknaráða allra þriggja stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa sent
frá sér sameiginlega yfirlýsingu um
að hinn mikli niðurskurður, sem að
er stefnt á rekstrarfé sjúkrahúsanna,
hljóti óhjákvæmilega að leiða til svo
mikils samdráttar í þjónustu að
hreint öngþveiti muni af hljótast. Svo
miklum samdrætti verði ekki mætt
nema með lokun sjúkradeilda. Fækk-
un sjúkrarúma muni einkum bitna á
sjúklingum á biðlistum og öldruðum.
Eins og fram hefur komið verða óhjá-
kvæmilega verulegar breytingar á
starfsemi Landakotsspítala í kjölfar
niðurskurðar sem gert er ráð fyrir í
nýsamþykktum fjárlögum, hvort sem
af sameiningu spítalans við Borgar-
spítala verður eða ekki. Fram-
kvæmdastjóm spítalans hélt fund í
gærdag tií að ákveða til hvaða ráða
yrði gripið. Starfsfólk á Landakoti er
mjög órólegt og telur ljóst að niður-
staðan verði stórfelldur samdráttur í
starfsemi Landakotsspítala og hóp-
uppsagnir komi í kjölfar þess. Fram-
kvæmdastjómin mun hafa tekið
ákvörðun í gær. Hverjar þær em
fékkst ekki uppgefið í gærkvöld. Þær
verða hins vegar opinberaðar á fundi
með fulltrúum starfsmanna eftir há-
degi í dag. Að sögn Sifjar Knudsen,
trúnaðarmanns sjúkraliða, hafa
sjúkraliðar Landakots ráðgast við lög-
menn um viðbrögð við hópuppsögn-
um. Álit þeirra sé að sjúkraliðar og
aðrir fastráðnir starfsmenn eigi rétt á
biðlaunum ef störf þeirra við sjúkra-
húsið verða lögð niður.
Jóhannes M. Gunnarsson bendir á
það að Reykjavíkurspítulunum þrem
sé ætlað að skera niður kostnað sem
gæti numið á bilinu frá 700 til 1.000
milljónir króna á þessu ári. Þar af seg-
ir hann hlut Borgarspítalans í kring-
um 200 milljónir. „Okkur sýnist það
deginum ljósara að ekki geti hjá því
farið að það komi niður á þjónust-
unni, því svo mikið bmðl hefur ekki
verið á spítulunum." Ekki er fjarri
lagi að þessi áætlaði niðurskuður
nemi íkringum 10% afheildarrekstr-
arkostnaði þessara þriggja spítala.
Auk þess sem þama er um hátt hlut-'
fall að ræða, segir Jóhannes nú
óvenju lítið svigrúm til niðurskurðar
því hinn mikli niðurskurður sem nú
er áætlaður komi í kjölfar flats niður-
skurðar sem gerður var í tíð síðustu
ríkisstjómar, m.a.s. tvisvar (fyrst 2%
og síðar 4%).
í sinni sameiginlegu yfirlýsingu
vekja læknaráðsformennimir athygli
á að þótt þessir spítalar geti ekki vikið
sér undan að sinna bráðveikum sjúk-
lingum þá hljóti þjónustan við þá að
versna. Fækkun sjúkrarúma muni
samt einkum bitna á hópum eins og
sjúklingum á biðlistum og öldruðum.
Þá muni álagið enn aukast þegar geta
sjúkrahúsanna utan Reykjavíkur til
að sinna mikið veikum sjúklingum
minnkar og fleimm þeirra verði því
vísað á sjúkrahúsin í Reykjavík. Það
ástand muni enn versna með vorinu
þegar minni sjúkrahúsin fara að loka
vegna sumarleyfa.
Fækkun sjúkrarúma bætir hvorki
heilbrigði þjóðarinnar né fækkar
þeim sem þurfa aðhlynningar með,
segja læknaráðsformennimir. Niður-
skurður á einum stað í heilbrigðis-
kerfinu valdi því oftast auknum
kostnaði annars staðar og spamaður-
inn verði því oft enginn í heildina lit-
ið. Á hvað eða hvar niðurskurðar-
hnífnum verði beitt á Borgarspítalan-
um sagðist Jóhannes ekki enn geta
greint frá. En innan spítalans hafi ver-
ið leitað allra spamaðarleiða. Hver
einasti yfirmaður spítalans hafi fengið
tilmæli um að skila spamaðartillög-
um til framkvæmdastjómar sjúkra-
hússins. Þar komi fram ýmsir athygl-
isverðir hlutir sem leitt geti til um-
talsverðs spamaðar. Úr þessu verði
síðan unnar tillögur fyrir stjóm
sjúkrastofnana Reykjavíkur sem taka
muni endanlega afstöðu til þeirra
- HEI
Þýska skipið Gerd Schepers kom til Hafnarfjarðar í gærmorgun.
Skipið losar þar salt. Tímamynd Ámi Bjama
LEITAÐ
ÁNÁR-
ANGURS
Frá Slgurði Boga Sævarssynl,
fréttarítara Tfmans á Selfossl.
Um 40 björgunarsveitarmenn
gengu fjörur í nágrenni Þorláks-
hafnar í gær og leituðu brasilísks
sjómanns sem tók út af þýska skip-
inu Gerd Schepers eina og hálfa sjó-
mflu úti fyrir Hafnarnesi við Þor-
lákshöfn í fyrrakvöld.
Það vom björgunarsveitarmenn úr
Þorlákshöfn og frá Stokkseyri og
Eyrarbakka sem leituðu. Þá kom
þyrla Landhelgisgæslunnar til að-
stoðar og leitaði hún um morguninn
og aftur síðdegis. Maðurinn hafði
ekki fundist þegar Tíminn fór í
prentun. Þýska skipið er í saltflutn-
ingum hér á landi. Það losaði salt í
Þorlákshöfn í fyrradag og fyrirhugar
að losa salt Hafnarfirði og Rifi. Skip-
ið var í Hafnarfirði í gær.
0DYR, LIPUR, RUMG0ÐUR 0G SPARNEYTINN SUNNY,
SJÁLFSKIPTUR EÐA 5 GÍRA
Hreint öngþveiti
mun af hljótast
Marinós
rleytið í
i veitingast
um
gærkvöid.
Eins og kunnugt er auglýsti
veitingamaðurinn eftlr stúlkum
til slíkra starfa og málið fékk
taisverða ijölmiðlaumQöllun.
Veitingamaðurinn sagði Tíman-
um í gær að 17 stúlkur hefðu
sótt um og tvær verið ráðnar.
Blaða- og fréttamenn voru
mættir á staðinn í gærkvöid. Þá
var enginn kvenkyns starfs-
maður mættur til vinnu, hvað
þá ber að ofan. Veitingamaður-
inn vildi engar myndatökur á
staðnum og virtist kunna illa
nærveru ijölmiðlafólksins, sem
pantaði sér pitsu — að sjálf-
sögðu.
PlNISSAN