Tíminn - 25.01.1992, Page 12
12 Tíminn
Laugardagur 25. janúar 1992
Laugardagur 25. janúar 1992
Tíminn 13
Citroén BX Evasion I venjulegri akstursstiiiingu.
Citroén BX 4x4 Estate reynsluekið við „séríslenskar“ aðstæður:
Með aldrif og fjöðrun
sem dugar vel í ófærum
í Citroen BX 4x4 Evasion sameinast gamalreynd bílatækni, sér-
kenni Citroén og algildar evrópskar viðmiðanir um notagildi og
þægindi og þegar á heildina er litið var viðkynning viö þennan bíl
með ágætum.
Þegar litið er á vagninn verður
ekki hægt að segja annað en hann
er ansi fallegur álitum og smekk-
legur, hvort sem er að utan eða
innan. Citroén BX er raunar tals-
vert algengur hérlendis og hefur
verið um margra ára skeið í fólks-
bílsútgáfunni, en Evasion bíllinn
eða skutbíllinn er sjaldgæfari og
kannski að það sé ástæða þess að
undirrituðum finnst hann fallegri
fyrir augað. Svo spillir ekki fyrir
að hann hefur óneitanlega meira
notagildi í skutútgáfu.
Aðal þessa bíls er fjórhjóladrifið
og fjöðrunin, sem hæfa hvort
öðru vel: Aldrifið er ekki sídrif
eins og algengast er, heldur er
bílnum ekið við venjulegar að-
stæður í framhjóladrifi en þegar
leiðir gerast torfarnar er skipt í
fjórhjóladrif með litlum rofa sem
komið er fyrir á milli sætanna.
Jafnframt kviknar aðvörunarljós í
mælaborði sem gefur til kynna
hvort bíllinn sé í aldrifi. Gerist
ökuleiðir nú enn torfærari er
stöng á milli sætanna þar sem
hægt er að hækka bílinn á fjöðr-
unum upp í það að verða allt að
því eins háfættur og ferlegustu
torfærubílar.
Tímamenn reynsluóku bílnum í
hlýindakaflanum um síöustu
helgi við nokkuð misjafnar að-
stæður. Fyrst var ekið í borgarum-
ferð, síðan á þjóðvegum með
bundnu slitlagi, malarvegum og
að síðustu var farið um Gjábakka-
hraun milli Þingvalla og Laugar-
vatns, en þar voru vegir miður
góðir auk þess sem miklar og
þungar fannir voru á veginum.
Með þessu fékkst gott yfirlit yfir
aksturseiginleika og getu vagns-
ins.
í þéttbýli er Citroén BX Evasion
ósköp notalegur og auðveldur í
umgengni. Hann er með vökva-
stýri og leggur vel á og því ekkert
mál að komast í eða úr þröngum
stæðum. Útsýni er gott úr öku-
mannssæti til allra átta og öll
stjórntæki við höndina að evr-
ópskum hætti. Innrétting er afar
smekkleg og falleg og sætin fyrir-
tak. Hins vegar mætti finna að því
að gírstöngin er dálítið ónákvæm
og svona eins og „gúmmíleg".
Mælaborðið er hefðbundið:
Hraðamælir og snúningsmælir
eru venjulegar klukkuskífur, eng-
in digital- eða Citroénsérviska þar.
Þessir tveir mælar eru beint af
augum ökumanns. Hins vegar er
staða stýrishjólsins ekki eins brött
eins og algengast er og ef haldið
er um stýrið samkvæmt aksturs-
kennslubókinni — eins og klukk-
una vanti 10 mín. í tvö — þá
þrengir að sýn ökumanns að efri
hornum mælaborðsins, ekki þó að
aðalmælunum tveim sem fyrr eru
nefndir.
Auk hraða- og snúningshraða-
mæla eru eldsneytismælir og
mælir sem sýnir olíustöðu á vél,
en fyrir allt annað eru aðvörunar-
Ijós. Stefnuljósum, flautu og aðal-
Ijósum er stjórnað með sama
stilknum vinstra megin á stýris-
leggnum og til hægri er stilkur
fyrir framrúðuþurrku og rúðu-
piss. Miðstöð og loftræstingu er
stjórnað með þrem snúnings-
hnöppum beint fram undan gír-
stönginni og hún virkar vel. Neyð-
arljósum, afturrúðuþurrku, hita
og þokuljósi að aftan er stjórnað
með fjórum rofum til sinnar
hvorrar handar við mælaborðið.
Mælaborð og innrétting er hvort tveggja afar smekkiegt og útsýni
er gott úr ökumannssæti til allra átta.
Þá eru tvö hólf til hægri í mæla-
borðinu hvort öðru stærra. Auk
þess er öskubakki og lítið lokað
hólf fyrir smámynt, vasar fýrir
kort og fleira á hurðunum.
Bíllinn er ekki fæddur með út-
varpi. Hins vegar er mjög auðvelt
að koma því fyrir því að allar lagn-
ir fyrir útvarp ásamt fjórum hátöl-
urum eru í bílnum. Þá eru tilbún-
ar milli framsætanna innstungur
fyrir tvenn stereoheyrnartól og
tenging fyrir kælibox eða eitthvert
raftæki er þar einnig. Allar rúður
eru rafdrifnar og auk þess er bíll-
inn búinn fjarstýrðri samlæsingu
og hægri útispegillinn er rafstýrð-.
ur.
Það fer vel um farþega í aftursæt-
inu og ef mikið þarf að flytja, er
Hann er ansi hár Citroön BX 4x4 Evasion billinn I hæstu stööu. Hann kemst ansi langt enda með drifi
á öllum og læstu mismunadrifi að aftan. Tímamyndir: —sá
hægt að fella það niður í tvennu
lagi, annars vegar tvo þriðju þess
og hins vegar einn þriðja. Skut-
hurðin opnast vel og hátt, svo hátt
að hæstu menn eiga ekki á hættu
að reka höfuðið í hana.
Tímamenn kunna því vel að geta
ráðið því hvort ekið er í aldrifi eða
aðeins í framdrifi. Skipta má í og
úr aldrifinu á ferð og þarf stund-
um aðeins að slaka á vinnslunni
til þess að það tengist eða afteng-
ist, en fyrrnefnt ljós í mælaborð-
inu sýnir það á áberandi hátt.
Vélin er 1905 rúmsentimetra 107
hestöfl. Hún togar ágætlega á lág-
um snúningi sem reyndist mikill
kostur í vondu færi þegar miklu
skiptir að geta ekið hægt. Raunar
væri gott að hafa í svona bíl einn
skriðgír sem grípa mætti til við
erfiðar aðstæður. Nokkuð heyrist í
vélinni inni í bílnum í akstri und-
ir álagi. Þá hvein nokkuð í topp-
grindinni sem fylgir bílnum og
vegdynur, sérstaklega á malarvegi,
er nokkur, en reynslubíllinn hafði
raunar ekki verið ryðvarinn um-
fram verksmiðjuryðvörnina svo
það getur verið ástæðan.
Fjöðrunarkerfið er kafli út af fyr-
ir sig: í venjulegri akstursstillingu
er Citroén BX eins og venjulegur
fólksbíll hvað varðar hæð undir
lægsta punkt. Þá er önnur hærri
akstursstilling en til viðbótar er
hæsta stilling sem ágæt er til að
bjarga sér út úr snjóskafli eða
annarri ófæru. í henni fjaðrar
bíllinn hins vegar ekkert og verð-
ur eins og traktor.
í snjóskafl mikinn á niðurgröfn-
um veginum í Gjábakkahrauni ók-
um við bílnum í hærri aksturs-
stillingunni. Snjórinn var blautur
og þungur og í honum gamalt
traðk eftir torfærutröll. Þegar
bíllinn loks stöðvaðist og gróf sig
niður þar til hann sat á vömbinni,
var ekkert mál að setja í hæstu
stöðu og bakka út. Við fórum
heldur gassalegar í skaflinn í
næsta sinn og þá dugði ekki að
setja í hæstu stöðu og bakka. Bíll-
inn var fastur og við skóflulausir.
Hvað var nú til ráða? Jú, setja í
lægstu stöðu og láta hann draga
hjólin upp eins og flugvél og setja
síðan undir þau, setja aftur í
hæstu stöðu og bíllinn er laus.
Gott mál! Citroén BX reyndist af-
bragðsgóður í ófærðinni, en það
skal hins vegar tekið fram að hann
er ekki jeppi og því ekki rétt að
beita honum sem slíkum bíl og
böðlast áfram dags daglega, held-
ur ber að líta á hann sem fólksbíl
sem getur ef í nauðir rekur komist
allan skrattann ekki síður en
venjulegur jeppi, gerist þess þörf.
í heild er Citroén BX Evasion 4x4
19 athyglisverður bíll og ágætur
kostur fyrir þá sem eru að hug-
leiða kaup á aldrifsbíl af þessari
stærð. Verðið er hagstætt og kost-
irnir umfram flesta aðra slíka eru
vitanlega fjöðrunarkerfið og að
geta tekið hann úr aldrifinu þegar
þess gerist ekki þörf. -sá
Ný útgáfa af Lödu Samara kom til landsins í vikunni. Þetta er fjögurra
dyra stallbakur og á þessari mynd, sem var tekin af bílnum í tolli á
miðvikudag, er ekki annað að sjá en skottið fari Samörunni bara nokk-
uð vel. í þessari fyrstu sendingu af stallbaknum eru frekar fáir bflar, en
það má búast við bflnum á almennan markað á næstunni. -ÁG
PARIS-DAKAR RALLIÐ:
Þrefaldur sig-
ur Pajero
Mitsubishi nældi sér heldur betur í
rós í hnappagatið á dögunum, þegar
þrír Pajero jeppar höfnuðu í þremur
efstu sætunum í París-Dakar rall-
inu.
París-Dakar rallið er lengsta og eitt
það erfiðasta sem haldið er í heimin-
um, en það spannar meira en 3.200
kflómetra vegalengd með viðkomu í
Pajero jeppar frá Mitsubishi lentu
í fyrsta, ööru og þriðja sæti f Par-
sjö Iöndum. Þátttakendur aka meðal
annars þvert yfir Sahara eyðimörk-
ina og það segir sig sjálft að þær
gríðarlegu hitasveiflur sem eru á
milli dags og nætur í eyðimörkinni
reyna bæði á bfla og ökumenn. Aðal-
keppinautur Mitsubishi Pajero, Toy-
ota Landcruiser hafnaði í fjórða
sæti, en Toyota hefur hingað til haft
mjög sterk ítök á jeppamarkaðinum
í eyðimerkurlöndum Norður Afríku.
-ÁG
HVERNIG BILL HENTAR ÞER?
5 dyraskutbíll 4WD kr. 1.155.000.-.stgr.
NISSAN
/ /
/ /
0DYR, LIPUR, RUMG0ÐUR 0G SPARNEYTINN SUNNY,
SJÁLFSKIPTUR EÐA 5 GÍRA
Sja dyrn hlabbakur kr. 890.000.-.stgr.
4ra dyra stallbakur kr. 972.000.-.stgr.