Tíminn - 25.01.1992, Síða 19
Laugardagur 25. janúar 1992
Tíminn 19
Romaine Lauridsen sagöi aö þaö minnsta, sem hægt væri aö gera
fyrir vini sfna, væri aö losa þá við makann.
heppilegri leið til að losna við leiðin-
legan eiginmann. En Paula var ekki
á því. Þannig var málum farið að
Paula hafði ekki átt neitt þegar þau
Tom gengu í hjónaband, en hann aft-
ur verið sæmilega stæður. Þau höfðu
gert með sér sáttmála um að við
skilnað héldi Tom eignum sínum
óskertum. Paula vildi því ekki bara
losna við eiginmanninn, hún vildi
líka krækja í eigur hans.
Romaine sagði að hún hefði verið
viðstödd þegar Paula bað bróður
sinn um að drepa Tom. Hann hló í
fyrstu og tók uppástungunni fjarri.
En þegar Paula bauðst til að greiða
honum 25 þúsund dollara fyrir við-
vikið, fóru að renna á hann tvær
grímur.
Málið fór smám saman að komast á
rekspöl. Romaine sagði að Paula
hefði afhent sér 200 dollara til að
festa kaup á riífli, sem notaður skyldi
til að myrða Tom. Hún kvaðst hafa
keypt riffilinn og fengið systkinun-
um hann í hendur.
Bæði Romaine og Robert bar sam-
an um að þáttur þeirra beggja í
morðinu hefði verið að leggja á ráð-
in og aðstoða við undirbúning þess
og framkvæmd.
Þrálátur orðrómur hafði verið í
gangi í bænum um að þær Paula og
Romaine hefðu lengi átt í ástarsam-
bandi og það væri aðalástæðan fyrir
því að Tom skyldi rutt úr vegi. En
Romaine neitaði því eindregið. Sagði
að þær hefðu að vísu verið mjög góð-
ar vinkonur, en samband þeirra hefði
aldrei náð lengra en það.
Vel greitt fyrir akstur
Við yfirheyrslu játaði Robert Seml-
er að hafa verið með í ráðum varð-
andi morðið. Hann sagðist hafa
keyrt Ricky Chartier að bústaðnum
rúmum mánuði áður en morðið var
framið, í þeim tilgangi að skjóta
KROSSGÁTA
o -» O CO fc- <c| 3 pc
u. xlai B «r iC $c — pH'ol fc-
10 a B t- ct <x| ~z. v~>
XL — 3 E O
vu 3 [z| ES 7 HHHE BE
Ori 5 E V. |5c|v?Hcf:P<cl jUI
□HE3BE SQ BCRl BB
'O E B a HE □□HB
V4Í 2 - E
5 'X 2 3 E l'zl <zrHi «x| 1 <3:1 ~Z-\ 2l|<x|
JZ k E B H □ HHE HS
z U- B EDH CHq
in r—• Tj 3 B
~L > — BBBB H B
Ul > u E CC 1 -■v3|ul-|vo|<IT I
- (C i 3 E u-
*
ju|-i|=.[oM.<|o|
ts c- I HH £ÐE B
132 D
Tom. En þá urðu þeir að hætta við að
drepa hann, þar sem annar maður
var með honum í bústaðnum.
Robert sagðist síðan hafa ekið Ricky
aftur að bústaðnum þann 11. nóv-
ember 1988. Ricky fór út úr bílnum
og Robert beið eftir honum í rúmar
20 mínútur. Þegar Ricky kom aftur,
sagðist hann hafa skotið Tom Peter-
son, en ekki vita hvort hann hefði
gengið af honum dauðum.
Á leiðinni aftur til bæjarins hittu
þau Romaine. Hún tók við rifflinum
og setti hann í skottið á bifreið sinni.
Síðan skildi leiðir.
Robert játaði einnig að hafa fengið
greitt fyrir að hafa ekið Ricky til bú-
staðarins. Hann sagðist hafa fengið
10 þúsund dollara af tryggingafénu
sem Paula fékk eftir mann sinn.
Mörg vitni báru að um það leyti,
sem Tom Peterson var myrtur, hafi
þeir báðir, Robert og Ricky, verið að
stæra sig af því að senn kæmu þeir
höndum yfir mikið fé og gefið í skyn
að þess hefði verið aflað með heldur
vafasömum aðferðum.
Paula neitar
En það kvað við annan tón þegar
Paula kom fyrir réttinn. Hún harð-
neitaði að hafa átt nokkum þátt í
dauða manns síns. Hún sagði hin
þrjú hafa staðið að því og tilgangur-
inn hefði meðal annars verið að
koma sök á sig.
Paula játaði að hafa staðið í ástar-
sambandi við Romaine, en því hefði
lokið fyrir löngu. Hún sagði að
Romaine hefði hótað því að segja
Tom frá því að samband þeirra vin-
kvennanna væri ekki beinlínis plat-
ónskt og einnig að Romaine hefði ít-
rekað hafið máls á því að koma þyrfti
Tom fyrir kattamef til þess að þær
gætu tekið upp þráðinn að nýju.
Aðspurð hvort hún hefði ekki feng-
ið Romaine peninga til þess að kaupa
riffilinn, sem var notaður við morð-
ið, sagði hún það vera af og frá. Hún
viðurkenndi að hafa síðar fengið
vitneskju um að bróðir hennar hefði
skotið Tom, en sagði að Romaine,
Ricky og Robert hefðu ein staðið að
undirbúningi og framkvæmd
morðsins. Hún sagðist telja að það
hefði verið framið í þeim tilgangi að
reyna að koma sök á sig og þannig
þvinga sig til að taka aftur upp sam-
bandið við Romaine. Einnig sagði
hún að þremenningamir hefðu gert
ráð fyrir að fá hlutdeild í arfinum eft-
ir Tom.
Vinargreiði
Síðan var Romaine kölluð til vitnis.
Hún hélt fast við fyrri frásögn. Hún
neitaði alfarið að hcila staðið í ástar-
sambandi við Paulu, þær hefðu ein-
ungis verið vinkonur og hún hefði
tekið þátt í morðinu til þess eins að
losa góða vinkonu úr slæmu hjóna-
bandi.
Paula hélt staðfastlega við það að
hún væri alsaklaust fómarlamb
óprúttins fólks, sem hefði myrt
mann hennar. En það dugði henni
skammt.
Kviðdómur komst að þeirri niður-
stöðu að hún væri sek um morð að
yfirlögðu ráði og dómurinn, sem
hún fékk, hljóðaði upp á ævilangt
fangelsi.
Romaine Lauridsen fékk 7 til ,20 ára
dóm fyrir aðild sína að morðinu á
Tom Peterson. Robert Semler var
dæmdur til að eyða næstu 7 til 15 ár-
um innan veggja fangelsis.
Ricky Chartier hlaut sömu refsingu
og systir hans. Ævilangt fangelsi.
v*?'s'0
TIL SOLU
EINBÝLISHÚSIÐ
SUNNUVEGUR 6,
HAFNARFIRÐI
Kauptilboð óskast í einbýlishúsið Sunnuveg 6,
Hafnarfirði, samtals 556 m3 (206 m2) að stærð.
Brunabótamat er kr. 13.010.000,- Húsið verður til
sýnis sunnudaginn 26. janúar n.k. kl. 14-15 og
miðvikudaginn 29. janúar n.k. kl. 15-16 og á öðrum
tímum í samráði við Erling Hansson í síma 92-
41872.
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum
aðila og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykja-
vík. Tilboð merkt „Útboð nr. 3775/92“ skulu berast
fýrir kl. 11:00 þriðjudaginn 4. febrúar 1992 þar sem
þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
Utboð
Laugarvatnsvegur, Snorra-
staðir — Laugardalshólar
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i
lagningu 3,8 km kafla á Laugarvatns-
vegi.
Helstu magntölur: Fyllingar og neðra
burðarlag 21.000 m3, fláafleygar, blönd-
uð færsla 4.900 m3 og skeringar 8.000
m3.
Verki skal að fullu lokið 27. júní 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Selfossi og í Borgartúni 5,
Reykjavík (aðalgjaldkera), frá og með
27. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fýrir
kl. 14:00 þann 10. febrúar 1992.
Vegamálastjóri
Þórshöfn
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði á
ÞÓRSHÖFN.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b.
150-200 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni,
fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan
afhendingartíma, sendist eignadeild fjármálaráðuneytis-
ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 3. febrúar 1992.
Fjármálaráðuneytið,
23. janúar 1992.
FÉLAG
JÁRNIÐNAÐARMANNA
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 28. janúar 1992 kl.
8 e.h. að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Samningamál; launakönnun.
3. Verktakamál: Ásmundur Hilmarsson; erindi,
umræða.
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin
FÉLAG
JÁRNIÐNAÐARMANNA
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Ákveðið hefur verið að viöhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á
skrifstofu þess á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð,
ásamt meðmælum a.m.k. 77 fullgildra félags-
manna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 14 menn til viðbótar í trún-
aðarmannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og
trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 18.00 þriðjudag-
inn 4. febrúar 1992.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.