Tíminn - 29.02.1992, Qupperneq 12
12 Tíminn
Laugardagur 29. febrúar 1992
Toyota Hilux Double Cab 4WD bensín
Vinnubíll með kosti og
eiginleika einkabíls
Fyrir um tólf árum urðu ákveðin ir fjórhjóladrifnu pikkarar voru eins og ódýrari í rekstri heldur en stóru
þáttaskil í hérlendri jeppamenn- og sniðnir fyrir íslenskar aðstæður, pallbílarnir frá AMC, Ford og GM,
ingu, þegar P. Samúelsson hóf að byggðir á sterkri grind, með hátt sem voru fyrir á markaðinum.
flytjainnogseljaToyotaHilux. Þess- undir lægsta punkt og mun liprari Reynslan hefur síðan leitt í ljós að
ATH. í tæka tíö!
Hiluxinn er einhver sterkasti og
endingarbesti jeppi, sem fluttur hef-
ur verið inn.
Ég minnist þess að fyrir nokkru
hitti ég trillukarl, sem ekur um á
‘80-módelinu af Hilux og hefur frá
upphafi notað hann sem vinnubíl
fyrir útgerðina. Hann sagði að bfil-
inn hefði einfaldlega aldrei bilað og
það eina, sem hefði þurft að skipta
um, væri karfan; hún hafði ryðgað í
sundur og í staðinn fyrir hana var
kominn trépallur. Allt kram var hins
vegar í góðu lagi, þrátt fyrir tólf ára
þjónustu við íslenskan sjávarútveg
með tilheyrandi meðferð.
Fyrst þegar Hiluxinn kom á mark-
að, þótti bæði ekilshús hans nokkuð
þröngt og bfllinn jafnframt hastur
óhlaðinn. Þetta mátti þó laga með
því að fækka blöðum í afturfjöðrun-
um, enda var það óspart gert og sér í
lagi af þeim sem tóku þann kostinn
að láta byggja yfir bflana. Eftir sem
áður var þessi jeppi fyrst og fremst
gegnheill og dugandi vinnujálkur,
með heilum hásingum að aftan og
framan og blaðfjaðrirnar ofan á
þeim. Kjörinn bfll fyrir bændur,
smábátaeigendur og verktaka.
í dag býður Toyotaumboðið upp á
tvær grunngerðir af Hilux 4WD, tví-
hýsisbflinn Double Cab og hins veg-
ar Xtra Cab, tveggja manna bfl með
„hundasæti" aftan við ökumann og
farþega. Afbrigðin af þessum grunn-
gerðum, sem eru flutt hingað til
lands, eru fimm talsins og fara að
segja má eftir vélarstærð og lengd.
Sá úr þessari fjölskyldu, sem hér
verður tekinn til umfjöllunar, er
Hilux Double Cab 4WD bensín, en
.
. 'i
' 'V' vo ■',< >;
Rýmið er gott afturí, en sætin mættu styðja betur við farþega á lang-
keyrslu.