Tíminn - 01.05.1992, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.05.1992, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur 1. maí 1992 Fulltrúaráðs verka- lýðsfélaganna í Reykjavík, Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og Iðnnema- sambands íslands 1. maí ávarp Samstaða er styrkur Baráttudagur launafólks er í dag haldinn í lok erfiðrar samningalotu. í átta mánuði hefur verkalýðs- hreyfingin átt í erfiðum samninga- viðræðum, sem nú er lokið með miðlunartillögu frá sáttasemjara. í Ijósi erfiðrar efhahagsstöðu og at- vinnuleysis í þjóðfélaginu tókst ekki að komast lengra án átaka á vinnu- markaðnum. Kröfur samtaka launafólks hafa verið skýrar og afdráttarlausar. Höf- uðáhersla hefur verið lögð á aukinn kaupmátt þeirra sem minnstan kaupmátt hafa, að viðhalda kaup- mætti hinna og verja velferðarkerfið. Samtök launafólks hafa staðið saman um þessar kröfur og fylgt þeim eftir í samningaviðræðunum. Allt frá því núverandi ríkisstjórn tók við völdum, hefur hún staðið í samfelldu stríði við launafólk. Hún hefur fyrst og fremst beint spjótum sínum að þeim hópum í þjóðfélag- inu, sem erfiðast eiga um vamir. í stað þess að skattleggja fjármagns- og eignatekjur, koma böndum á skattsvik og ná þannig auknu fé til að standa undir velferðinni, hefur hún einbeitt sér að því að rýra kjör sjúk- linga, aldraðra og öryrkja, auk þess sem hún hefur þrengt að kjörum barnafólks og námsmanna. Þá hafa sparnaðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar í heilbrigðiskerfinu einkennst af van- hugsun og flumbrugangi. Aðferð rík- isstjórnarinnar hefur jafnan verið sú að skjóta fyrst og spyrja svo. Verka- lýðshreyfingin hefur allan þennan tíma staðið í harðri vamarbaráttu um kjarna velferðarkerfisins. Á verkalýðsdaginn heitir hún á lands- menn alla að standa vörð um horn- steina velferðarinnar. í þessum deilum við ríkisvald og atvinnurekendur hefúr orðið ljóst hve nauðsynlegt það er að samtök launafólks standi saman og mæti fjandsamlegri afstöðu með fullum þunga og með þeim krafti, sem býr í breiðfylkingu launafólks. • Við munum aldrei fallast á að velferðarkerfi okkar verði skerL • Við krefjumst þess að heiibrigð- iskerfið verði áfram opið öllum, án tillits til efnahags. • Við höfnum öllum hugmyndum um skólakerfi hinna efnameiri. • Við minnum á að atvinnuleysis- tryggingasjóður er eign launafólks og við vörum við öllum hugmyndum um skerðingar á bótum eða réttind- um launafólks. • Við mótmælum enn og aftur tví- sköttun í lífeyriskerfinu. • Við höfnum öllum skerðingum á ellilífeyri. Sættum okkur aldrei við atvinnuleysið í nær aldarfjórðung hefur fjöldaat- vinnuleysi verið óþekkt hér á landi. Hættumerkin eru nú sýnileg. At- vinnuleysi er ekki lengur staðbundið eða tímabundið. Fjöldi fólks er án vinnu mánuðum saman. Atvinnu- leysið er staðreynd. Það er óþolandi. íslensk verkalýðshreyfing sættir sig ekki við að atvinnuleysi festist í sessi. Við munum ekki sætta okkur við at- vinnuleysi hér á landi til frambúðar. Aldrei fyrr hafa svo stórir hópar ungs fólks gengið atvinnulausir. Aldrei fyrr hafa samtök aldraðra þurft að minna á atvinnuþátttöku eldra fólks, sem á í vök að verjast á vinnu- markaði. Aldrei fyrr hefur ungt fólk, sem er að hefja lífsbaráttuna eftir margra ára undirbúning í skóla, komið út á vinnumarkað þar sem enga vinnu er að hafa. Við megum ekki láta þetta viðgangast. I umræðu um atvinnumál innan verkalýðshreyfingarinnar hefur kom- ið fram að við íslendingar eigum mikla vannýtta möguleika í sjávarút- vegi, ferðaþjónustu og iðnaði. Við er- um auðugt þjóðfélag af auðlindum og hugviti. Hér verður að eiga sér stað markviss umræða um þá kosti, sem fyrir liggja, og verkalýðshreyf- ingin að hafa forystu í því efríi. Avarp Alþjóðasambands frjálsra ve Alþjóðasamband frjálsra verkalýðs- félaga lítur björtum augum til fram- tíðar. Okkur hafa verið falin mörg og vaxandi verkefni með launafólki, sem tekur þátt í skipulegri starfsemi stéttarfélaga í fimm heimsálfum og sameinast um grundvallarreglur fyrir starfsemi frjálsra verkalýðsfé- laga og alþjóðlegrar samstöðu. Við eigum þá sannfæringu að auðlindir jarðar beri að nýta til þess að tryggja jarðarbúum félagslegt réttlæti, ör- uggan efnahag, vistvænt umhverfi, frelsi, frið og jöfnuð. Við stöndum dyggan vörð um grundvallarmann- réttindi. Við staðhæfum að hornsteinn efnahagsstefnu og velferðarþjón- ustu sé næg nytsamleg atvinna að eigin vali. Fjöldaatvinnuleysi er ekki eðlilegt ástand, heldur afleiðing rangrar efnahagsstefnu og pólitísks viljaleysis. Fjöldaatvinnuleysi er frumástæða sárrar fátæktar og jarð- vegur fyrir kynþáttahatur, þjóðern- isrembing og trúarofstæki. Með því að útrýma atvinnuleysi og arðráni vinnuafls færist heimurinn nær því að uppræta fátækt. Við lítum á kröfur launafólks um betri efnahag, bætta félagslega stöðu og betri lífsskilyrði sem rétt- mætar allstaðar. Mikill og vaxandi ójöfnuður milli iðnaðar- og þróun- arlanda er til vansæmdar. Saman eiga iðnríkin og þróunarlöndin að leggja sig fram um að koma á lýð- ræðislegri stjórn í samskiptum þjóða, til þess að greiða fyrir því að sem flestar þjóðir nái markmiðum sínum um frelsi og jöfnuð. Við erum þess fullviss að frjáls verkalýðshreyfing er afar mikilvæg- ur þáttur lýðræðis og aflmikið verk- færi til þess að byggja réttlátt og efnahagslega skilvirkt þjóðfélag. Við höfnum falskenningunni um að fá- tækt og atvinnuleysi sé óumflýjan- leg eða nauðsynleg, og vísum því á bug að til þess að öðlast efnahags- legt öryggi og félagslegt réttlæti verði að fórna frelsi og lýðræði. Til þess að auðlindum heimsins verði skipt af sanngirni og réttlæti, þarf frjálsa verkalýðshreyfingu í lýðræð- islegu stjórnkerfi þar sem grund- vallarréttur hennar er virtur. Við hvetjum frjálsa verkalýðs- hreyfingu allstaðar í heiminum til að starfa í anda Iýðræðislegrar og sjálfstæðrar verkalýðshreyfingar undir forustu Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga í baráttunni fyrir brauði, frelsi og friði. Við fullyrðum að félagafrelsi — réttur verkafólks til þess að stofna og eiga aðild að skipulögðum sam- tökum án íhlutunar — eru grund- vallarmannréttindi. Félagafrelsi er grunnurinn, sem launafólk byggir frjálsa verkalýðshreyfingu á, og meginforsenda fyrir því að hún geti starfað óáreitt að því að bæta og gæta réttinda þess. Launafólk þarf á verkalýðsfélögum að halda til þess að minna á og auka réttindi sín, sem atvinnurekendur eða stjórnvöld gleyma, hafa að engu eða hafna ann- ars. Eini lögformlegi málsvari verkafólks eru frjáls verkalýðsfélög. Við krefjumst þess að rétturinn til félagafrelsis og samningafrelsis stéttarfélaga fyrir hönd félagsmanna sinna og verkafólks almennt verði að fullu viðurkenndur um allan heim. Við höldum uppi vömum fyr- ir rétti verkafólks til að leggja niður vinnu í þeim tilgangi að fylgja eftir kröfum sínum. Við erum þeirrar skoðunar að vegna hraðra tæknibreytinga og nánara alþjóðlegs samstarfs sé nauðsynlegt að leggja meiri áherslu á að alþjóðlegar reglur, sem hvetja til framfara í launamálum og vinnu- umhverfi, taki gildi um allan heim. Ný tækni kallar á greiðan aðgang að verkmenntun og endurmenntun. Við heitum stuðningi okkar við verkafólk, sem enn á í baráttu við einræðisstjómir, undirokun, kyn- þáttahatur og óþolandi mismunun. Við krefjumst þess að allir skuli eiga rétt til að velja sér nýtt eða breyta núverandi stjórnmálalegu, efna- hagslegu eða félagslegu skipulagi, að því tilskildu að það sé gert á lýð- ræðislegan hátt. Félagslegu réttlæti öllum til handa verður aðeins náð þar sem er borin virðing fyrir verka-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.