Tíminn - 01.05.1992, Blaðsíða 10

Tíminn - 01.05.1992, Blaðsíða 10
10 Tíminn Föstudagur 1. maí 1992 Tíminn oskar verkalyðshreyfingu og launafóiki til hamingju með 1. maí: Baráttu- og hátíðis dagur vinnandi fólks 1. maí baráttu- og hátíð- isdagur launafólks er í dag og af því tilefni lagði Tíminn eftirfarandi spurn- ingar fyrir nokkra forystu- menn íslenskra launþega og fara þær hér á eftir: 1. Með hliðsjón af árangri samflotsins í nýafstöðnum kjarasamningum mætti ætla að styrkur verkalýðshreyf- ingarinnar sé þess eðlis að honum sé í raun ómögulegt að beita. Er hreyfingin því máttlaus sem kjarabaráttu- vopn hins almenna félags- manns? 2. Ertu sátt(ur) við úrslit nýaf- staðinna kjaraviöræðna og þá niðurstöðu sem felst í miðlunartillögu sáttasemj- ara? 3. Hvaða gildi hefur 1. maí í þínum huga? Ögmundur Jónasson, formaður BSRB: Barátta gegn þvergirð- ingshætti og skammsýni i. Hreyfingin samanstendur af einstak- lingum — hinum almenna félags- manni eins og það er orðað í spurn- ingunni. í sameiningu myndum við öll hreyfingu í þeirri vissu að samein- uð náum við meiri árangri en við myndum gera ein á báti. Sú spuming sem við jafnan stöndum frammi fyrir er hvemig við kjósum að beita samtakamætti okkar. Um átta mánaða skeið höfðu einstök aðildarfé- lög heildarbandalaganna reynt að ná fram kjarasamningum en án árang- urs. Þess vegna var leitað inn á sam- eiginlegt borð. Þar varð niðurstaðan sú að ekki væri vilji til þess að beita verkfallsvopni eða öðmm slíkum þrýstiaðgerðum að sinni til að knýja á um kröfur. Við slíkar aðstæður verða menn að láta sér nægja að höfða til sanngimi og skynsemi viðsemjandans með röksemdir og fortölur einar að vopni. Slíkar röksemdir féllu hins veg- ar í svo grýttan jarðveg að himinn og haf skildu viðsemjendur að og var ljóst að niðurstaðan yrði aldrei kennd við neins konar sátt. Það á ekki síst við varðandi velferðarmálin en einnig bar í milli í sambandi við kaupið. Þess vegna kom sáttasemjari fram með miðlunartillögu sína og hjó á hnút- inn. Þetta er samhengi hlutanna og segir ekkert til um það hvers verka- lýðshreyfingin er megnug. Þetta segir hins vegar miklu meira um viðsemj- endur okkar og ríkisstjóm — þver- girðingshátt og skammsýni þessara aðila. Nú þarf hver og einn að draga rétta lærdóma af þessari niðurstöðu. En varðandi styrk verkalýðshreyfing- arinnar er það að segja að með styrk hennar og afli er hægt að standa vörð um lífskjörin, - - koma í veg fyrir að stoðir þess samfélags sem hér hefur verið byggt upp verði nagaðar í sund- ur. En þá verða menn líka að vera til- búnir til þess að beita afli. Og það á við um hinn almenna félagsmann. Hann gerir sér að sjálfsögðu grein fyrir því að með sérsamningum einstaklinga við atvinnurekandann getur stöku maður potað sér eitthvaö áfram. En einn á báti smíðar hann ekki neitt þjóðfélag. Þar þurfa fleiri að koma til sögunnar. Einmitt þess vegna mynd- um við hreyfingu. 2. Ég er mjög ósáttur við úrslit nýaf- staðinna kjaraviðræðna. Á hinn bög- inn fannst mér rétt með hliðsjón af öllum aðstæðum að taka á móti miðl- unartillögu sáttasemjara. Mér finnst rökrétt að fólk sem ekki vill knýja á um kröfur sínar með beinum þrýsti- aðgerðum samþykki þessatillögu. Það er ekki þar með sagt að menn þurfi að vera sáttir við niðurstöðuna. 3. Baráttudagur verkalýðsins hefúr táknrænt gildi fyrst og fremst. Hann er dagur samstöðu þegar minnt er á baráttumál þeirra afla sem vilja stuðla að lýðræði og jöfnuði í þjóðfélaginu. í þeirri baráttu hefur mikið áunnist í ís- lensku samfélagi á liðnum áratugum þótt langt sé frá því að ásættanlegt sé. Það sem við stöndum frammi fyrir núna er skipuiögð og yfirveguð niður- rifsstarfsemi frá hendi stjómvalda. Það er harkalegt að þurfa að orða það svona. En þetta er raunveruleikinn og 1. maí er öðrum dögum fremur ástæða til að minna á hann og þá ekki síður hitt hvemig við fömm að því að breyta honum. Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgarness: Ríkisstjórnin varö aö sveigja frá stefnunni i. Ég tel að verkalýðshreyfingin hafi í nýafstöðnum kjaraviðræöum sýnt mikinn styrk í mjög erfiðri stöðu. Verkalýðshreyfingin hefur haft veruleg áhrif á stefnuna í velferðar- málum. Ríkisstjórnin varð að gefa eftir og breyta fyrri ákvörðunum. Mörgum skerðingaráformum, sem rfkisstjómin hafði uppi, var af sam- einaðri verkalýðshreyfingu breytt launamönnum í hag. Verkalýðshreyfingin er sterkt bar- áttutæki launafólks sem vissulega þarf að endurskoða margt í starfs- háttum sínum. Gera þarf hvern fé- lagsmann virkan í ákvarðanatöku innan félaganna. Verkföll og átök eru ekki einhlítur mælikvarði á styrk verkalýðshreyfingarinnar. Afl samtaka launafólks getur birst í ýmsum myndum en aðstæður á hverjum tíma ráða því hvaða bar- áttuaðferð er beitt. Slíkt er ekki veikleikamerki. 2. Ég tel að lengra hafi ekki verið komist án verkfallsátaka. Félags- menn virtust ekki tilbúnir til verk- falla að þessu sinni. Þeir sem hafa lægstu launin fá meira en aðrir. Vissulega hefði þurft að ganga mun lengra í þá átt. Ég tel að gera ætti sérstaka úttekt á þeim fyrirtækjum sem greiða lægstu launin, þ.e. slétta taxta án álaga. Leita þarf leiða til að bæta kjör þessara starfshópa. Verulega áherslu þarf að leggja á úrbætur í atvinnumálum. Hefja þarf sem fyrst undirbúning fyrir næstu kjarasamninga með víðtæk- um umræðum innan félaganna. 3. Að mínu áliti hefur 1. maí mikið gildi sem baráttudagur. Verkafólk ætti þá að minnast þess sem áunn- ist hefur og hvað er framundan. Verkalýðshreyfingin hefur á liðnum áratugum stuðlað að efnahagslegri umbyltingu á liðnum áratugum, stuðlað að efnahagslegri umbylt- ingu íslensks þjóðfélags. Fjölmörg félagsleg atriði hafa náðst fram. í nútíð og framtíð þurfum við að standa vörð um þessi atriði. Sjaldan hefur verið meiri nauðsyn en að þessu sinni að félagshyggju- fólk standi saman og berjist gegn sérhyggju sem er of áberandi í þjóð- félaginu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.