Tíminn - 01.05.1992, Blaðsíða 21
Föstudagur 1. maí 1992
Tíminn 21
Sighvatur og Jón Baldvin eyddu rúmum átta milljónum króna í að kynna sín mál
á fundum víða um landið:
GATT og EES-fundir Jóns
Baldvins kostuðu 4,5 millj.
Kostnaður vegna fundaherferða Jóns Baldvins Hannibalssonar ut-
anríkisráðherra á Iiðnu ári var um 4,5 milljónir króna. Rúmlega 1,3
milljónir voru vegna kynningar á GATT-samkomulagsdrögunum og
3,1 milijón var vegna kynningar á EES- samningnum. Utanríkisráð-
herra segir að þessu fé hafi verið vel varið, en Kristinn H. Gunnars-
son (Alb.), sem spurði um þennan kostnað á Alþingi í gær, segir á
ferðinni kostnað vegna pólitísks áróðurs utanríkisráðherra sem
skattgreiðendur séu látnir borga.
Fyrir páska var lagt fram svar við
fyrirspurn um kostnað við funda- og
kynningaherferðir Sighvats Björg-
vinssonar heilbrigðisráðherra. í
svarinu kom fram að kostnaður var
um 3,8 milljónir króna. Heildar-
kostnaður við kynningar og funda-
herferðir þessara tveggja ráðuneyta
er um 8,2 milljónir króna frá 1. maí
1991 til 1. mars á þessu ári.
Jón Baldvin sagði á Alþingi í gær
að það væri nauðsynlegt að kynna
vel þessi stóru og mikilvægu mál,
EES og GATT. Hann minnti á að ut-
anríkisráðuneytið hefði verið gagn-
rýnt fyrir að kynna málin ekki nægi-
lega vel. Hann sagði það því vera
sína skoðun að fénu hefði verið vel
varið.
Kristinn H. Gunnarsson sagði að
á fundum sem utanríkisráðherra
hefði haldið um þessi mál hefði
hann kynnt þau með sínum hætti.
Þar hefði þess ekki verið gætt að
önnur sjónarmið kæmust að. Krist-
inn minnti á að þegar fundirnir
hefðu verið haldnir hefðu EES-
samningarnir ekki verið frágengnir
og því hafi ráðherra verið að túlka
það sem hann teldi líklegt að kæmi
út úr samningunum. Kristinn sagði
það sína skoðun að stjórnmálaflokk-
ar ættu sjálfir að greiða sinn pólit-
íska áróður. Verði hins vegar tekin
um það ákvörðun að ríkið kosti
áróður af þessu tagi eigi bæði stjóm
og stjórnarandstaða áð eiga kost á
því að láta ríkið greiða áróðurinn.
Jón Baldvin mótmælti því að á
fundunum hafí verið borinn á borð
pólitískur áróður. Hann sagði að fyr-
irhugað væri að kynna fyririiggjandi
EES-samning á komandi vikum og
mánuðum. Kynningin fari fram
með útgáfu kynningarbæklings og
með fundum.
Svavar Gestsson (Alb.) sagði at-
hyglisvert að Jón Baldvin skuli ætla
í nýja fundaherferð einmitt nú þegar
flokksþing Alþýðuflokksins stendur
fyrir dyrum og flest bendi til að for-
maður flokksins standi þar höllum
fæti. Óeðlilegt sé að kostnaður af
þessum fundum sé greiddur af
skattgreiðendum. -EÓ
Samband íslenskra kristniboðsfélaga:
Kristniboðavígsla
í Dómkirkjunni
Næstkomandi sunnudag, kl. 14.00
fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík
kristniboðavígsla. Það verður séra
Sigurður Pálsson sem vígir hjónin
Ragnheiði Guðmundsdóttur og
Karl Jónas Gíslason til kristniboðs-
starfa á vegum Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga og mun Karl Jón-
as prédika. Hjónin hafa dvalist við
nám í Noregi og Engiandi undan-
farin ár til að búa sig undir kristni-
boðsstarf og fara þau til Addis
Abeba á miðju þessu sumri og hefja
nám í ríkismáli Eþíópíu áður en
þau hefja starf. Þau hjónin eiga tvö
böm, sex og níu ára.
Alls starfa átta manns í Afríku á
vegum Kristniboðssambandsins um
þessar mundir, þrír í Kenýu og fimm
í Eþíópíu. Nýlega var haídin vígslu-
hátíð í Voito í S-Eþíópíu þar sem ís-
lensk hjón hafa dvaiist undanfarin
ár. Þau bjuggu þar lengi í tjöldum og
strákofum, en nýlega voru tekin í
notkun hús þar. Nokkrir íslendingar
starfa auk þess í Afríku á kostnað
norskra samtaka.
-PS
Tímamót í flugsögu íslendinga:
45 ár frá samnings-
gerð um alþjóðaflug
í gær vom liðin 45 ár frá því að
samstarf íslands og Alþjóðaflug-
málastofnunarínnar um þjónustu
við alþjóðaflug á Norður-Atlants-
hafl hófst
Samningurinn var um rekstur
loranstöðvar í Vík í Mýrdal, en þá
stöð höfðu Bandaríkjamenn reist á
stríðsárunum og rekið þar til ísland
yfirtók rekstur hennar.
Árið 1947 fóru um 5500 alþjóðleg
flug um íslenska flugstjórnarsvæðið
sem var 1 milljón ferkflómetra að
stærð en í dag fara 70.000 alþjóðleg
flug þar um svæðið sem er orðið
um fimm sinnum stærra.
Hagnaður af samstarfi íslands og
aðila samkomulagsins hefur aðal-
lega verið tvíþættur, þ.e.a.s. gjald-
eyristekjur og innlend tækniþekk-
ing, sem ómetanleg er m.a. fyrir
Háskóla íslands.
í ár verður tekinn í notkun há-
þróaður tölvubúnaður til notkunar
fyrir Alþjóðaflugþjónustuna. Árið
1993 verður svo 3000 fermetra flug-
stjórnarmiðstöð tekin í notkun sem
ætluð er til sömu nota. Erlendir að-
ilar kosta nær að öllu leyti fram-
kvæmdirnar.
Guðmundur Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri flugumferðarþjón-
ustu, hefur verið valinn af Norður-
löndum til þess að vera í framboði
til setu í fastaráði Alþjóðaflugmála-
stofnunnarinnar 1993-1995 og
verður það í fyrsta sinn sem íslend-
ingur gegnir þeirri stöðu. —GKG.
Norrænir tónleikar í Nor-
ræna húsinu:
Börnin
skemmta
Tónleikar verða í Norræna hús-
inu þann 3. maí kl. 17:00 á veg-
um verkefnis um norræna tón-
list í skólum.
Um er að ræða þriggja ára
samvinnuverkefni milli tónlist-
arkennara frá Danmörku, Finn-
landi, íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Tónvísindastofnun Gautaborg-
arháskóla hefur yfirumsjón með
verkefninu og er því m.a. ætlað
að efla norræna tónlist og þróa
kennsluaðferðir sem byggja á
norrænum hefðum og sjónar-
miðum.
Hér á landi taka þrír bekkir í
jafnmörgum skólum þátt í verk-
efninu. Á tónleikunum syngja
nemendurnir og leika norræn
lög en þeir eru á aldrinum 8-10
ára. Þeir sýna líka íslenska dansa
sem þeir hafa lært í vetur. Þjóðd-
ansafélag íslands sýnir dansa frá
hinum Norðurlöndunum og
ýmsir hljóðfæraleikarar spila.
—GKG.
Roljirt
Rafstöðvar
og dælur frá
Fyrir bændur, verktaka, sumarhús o.fl.
Bensín eða diesel
Rafstöðvar: Dælur:
12 v og 220 v 130-2000 I á mín.
600-5000 W Verð frá kr. 21.000,-
Verð frá kr. 44.000,-
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími674000
Sendnm viðskiptavinum okkar
og öllu launafólki árnaðaróskir á
hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí.
^(gnnkPG^ÐÍkD
TUldsviÍ-fa
HOFÐABAKKA 9 112 REYKJAVlK SIMI 91-670000
Sendum viðskiptavinum okkar
og öllu launafólki árnaðaróskir á
hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí.
Prentsmiðjan Edda
Sendum viðskiptavinum okkar
og öllu launafólki ámaðaróskir á
hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí.
Tryggingastofnun ríkisins
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Auglýst er eftir umsóknum um störf námstjóra i gmnnskóla-
deild menntamálaráöuneytisins.
Um er að ræöa þrjár stöður sem ráðiö er í til tveggja ára til að
sinna sérstökum verkefnum. Verkefnin fela einkum i sér að
afia upplýsinga um stööu mála á neöangreindum stigum,
gera fillögur um Orbætur og fylgja þeim eftir. Ennfremur felst
í starfi námstjóra að fylgjast meö námi og kennslu í grunn-
skólum landsins, skólaþróun, eftirlit, miðlun upplýsinga, svo
og ráðgjöf.
1. Unglingastigiö (ein staða). Megináhersla er lögð á nám og
kennslu i þremur efstu bekkjum grunnskóla og tengsl grnnn-
skóla og framhaldsskóla.
2. Neytendafræðsla, hollusta og heimilisfræöi (ein staða).
Áhersla er lögð á almenna hollustu og heilbrigði, aö efla neyt-
endafræöslu á sem flestum sviðum grunnskólanáms, svo og
aö fylgja eftir uppbyggingu heimilisfræðikennslu.
3. Náttúrufræði, einkum eðlis- og efnafræði (ein staöa).
Áhersla er lögð á nám og kennslu eðlis- og efnafræöi I grnnn-
skólum. Verkefniö felur einnig I sér að fylgjast meö og efla llf-
fræöikennslu, umhverfisfræöslu, tækni og visindi.
Auglýst er eftir fólki sem hefur menntun i uppeldis- og
kennslufræöum og reynslu af störfum I skólakerfinu. Störfin
krefjast frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða og skipulags-
hæfni. Mjög reynir á samstarf viö aöra.
Ráðiö er i þessar stöður frá 1. ágúst 1992.
Um laun og kjör fer samkvæmt launakerfi rlkisins.
Umsóknarfrestur er til 25. mal nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráöuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavlk.
Ekki spyrja n ro -fc+-k Segjum frekar
„Hvað varstu lengi HEILBRIGD SKYNSEMI! „Ég ók á löglegum
á leiðinni ?“ hraða,og eins og
Ekki segja ég vil að aðrir geri!“
„Ég var ekki ...nema. ■ ■
mIUMFERÐAR Uráð