Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 9

Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 9
Föstudagur 1. maí 1992 Tíminn 9 * ; - L Vinnan er frumþörf. Atvinnulaus maður er óhamingjusamur, vonlaus og örvæntingarfuliur. Þar sem mein- semd atvinnuskortsins hefur náð að grafa um sig eru mannleg eymd og óhamingja þrúgandi. Þar er gróðrar- stía ofbeldis, aukinnar fíkniefna- neyslu og menningarleysis. Atvinnu- leysið verður aldrei metið í glötuðum vinnutíma, atvinnuleysisdögum eða skertum launum. Þegar atvinnu skortir, ganga at- vinnurekendur á lagið. Svipan er á lofti yfir höfði launafólks. Verkalýðs- hreyfingin verður að mæta atvinnu- rekendum af fullri einurð og hörku. Atvinnurekendur mega ekki komast upp með að nota atvinnuleysið sér til framdráttar á kostnað launafólks. Full atvinna fyrir alla. Um þessa kröfu verður barátta verkalýðshreyf- ingarinnar að snúast á næstu mán- uðum. Sýnum þjóðarstolt. Með því að kaupa í auknum mæli íslenskar vörur og framleiðsiu sköpum við at- vinnu og viðhöldum íslenskum at- vinnufyrirtækjum. Þjóðarauðinn til fólksins Fyrirhyggjuleysið hefur allt of lengi ráðið ferðinni í atvinnumálum þjóðarinnar. Blind ofljárfesting hefur átt sér stað í ýmsum greinum at- vinnulífsins og af þessu súpum við seyðið. Við lýsum ábyrgð á hendur þeim stjórnmálamönnum, sem stað- ið hafa fyrir bruðli og gæluverkefn- um sem kostað hafa allt samfélagið offjár. Gróðafíkn hefúr ráðið of miklu í íslensku atvinnulífi. Gegndarlaust okur hefur fært fjármuni svo millj- örðum skiptir frá launafólki og fyrir- tækjum til fjármagnseigenda, en með því móti hefur verið grafið und- an stoðum atvinnulífsins. Hvergi annars staðar verður þetta augljósara en í rússnesku rúllettunni um þjóðarauðinn: fiskinn í sjónum — atvinnu verkafólksins — sem skipin sigla með úr landi á degi hverj- um. Eign þjóðarinnar gengur kaup- um og sölum. Það, sem þjóðin á, er fært til eignar hjá fjölskyldum út- gerðarmannanna og síðan er sjó- mönnum, fiskverkafólki og öðrum launamönnum í sjávarútvegi skömmtuð kjörin úr hnefa. Við krefjumst þess að þjóðarauður- inn verði aftur færður í hendur eig- anda síns. Fólkið á fiskinn. Við krefj- umst ábyrgðar. Við sættum okkur ekki við að skammsýnir stjómmála- menn leiki sér að fjöreggi þjóðarinn- ar. Burt með skattsvikin Árum saman hafa íslenskir launa- menn horft upp á botnlaus og blygð- unarlaus skattsvik þeirra, sem hafa haft aðstöðu til að stela úr hinum sameiginlega sjóði okkar. Það er sorgleg staðreynd að veikburða til- raunir stjómvalda á undanförnum árum til að stöðva þjófnaðinn hafa runnið út í sandinn. Ekki nóg með það, heldur hefúr launafólk þurft að horfa upp á skattsvikara og óprúttna atvinnurekendur, sem skipuleggja gjaldþrot eigin fyrirtækja til að sleppa við skuldbindingar sfnar. Hve lengi eigum við að sætta okkur við að aðeins hluti þjóðarinnar borgi vel- ferðina? Hve lengi? Hve lengi? íhugum vandlega hvert skref í Evrópumálum Á síðustu ámm hefur mikil um- bylting átt sér stað í Evrópu. Evrópa er um þessar mundir að sameinast pólitískt og efnahagslega. íslensk verkalýðshreyfing verður að fylgjast grannt með breytingunum, því kjör okkar og réttindi munu verða fyrir áhrifum af samrunanum í Evrópu, hvort sem við eigum þar aðild eða ekki. Hin rétta leið í þessu efni er vandrötuð fyrir litla þjóð, sem vill halda sjálfstæði sínu, en um leið halda lífskjömm eins og þau gerast best í nálægum löndum. Hvert skref þarf að stíga fram á við að vandlega athuguðu máli og að höfðu samráði við þjóðina alla. F.h. Fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna í Reykjavík Þórunn Sveinbjömsdóttir Vignir Eyþórsson Björk Jónsdóttir Sigurður Bessason Hildur Kjartansdóttir Grétar Hannesson Hafsteinn Eggertsson F.h. Bandalags starfsmanna ríkis og bæja Guðmundur Þorkelsson Margrét Tómasdóttir F.h. Iðnnemasambands íslands Ólafur Þórðarson rkalýðsfélaga, ICFTU lýðshreyfingu eins og öðmm mann- réttindum. Við teljum okkur skuldbundin til þess að berjast fyrir jöfnum rétti karla og kvenna allstaðar — í fjöl- skyldunni, á vinnustaðnum, í verka- lýðsfélaginu og annars staðar í þjóð- félaginu. Við trúum því að ósvikinn, varan- legur friður sé undir því kominn hvernig tekst til með útbreiðslu frelsis, lýðræðis og félagslegs rétt- lætis í heiminum. Við viljum efla undirstöður friðar, öryggis og af- vopnunar, sem og alla skipulega starfsemi til þess að fyrirbyggja styrjaldir og borgaraskæmr. Við viðurkennum að þjóðir heimsins em innbyrðis háðar hvað umhverfismál, stjómmál og efna- hagsmál varðar. Við berjumst gegn náttúmspjöllum, viljum stuðla að sjálfbærri þróun og atvinnu. Mesta alþjóðlega auðlindin er vinna fólks- ins, sem undir hæfilegu félagslegu skipulagi og á sanngjörnum launum getur útrýmt fátæktinni. Við krefj- umst þess að öllu verkafólki sé sýnd sú virðing og sú reisn sem því fólki ber. Við styðjum sjónarmiðin, sem koma fram í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna, eins og við styðjum al- þjóðlegt samstarf, sem byggir á virð- ingu fyrir verkalýðshreyfingu og öðrum mannréttindum allstaðar. Útbreiðsla þessarar undirstöðu lýð- ræðislegs frelsis til allra þjóða heimsins er eini ömggi grunnurinn til þess að halda jafnvægi milli full- veldis þjóðríkis og aðkallandi alþjóð- legs samstarfs. Þannig má mynda friðsamleg samskipti milli allra þjóða og til þess að eyða félagsleg- um, efnahagslegum og stjórnmála- legum ójöfnuði, sem enn sundrar íbúum jarðarinnar. Við höfum, allt frá stofnun sam- takanna árið 1949, barist gegn hvers konar stjórnmálalegri og efnahags- legri kúgun og stundum haft sigur. Við getum ekki slakað á í baráttunni á meðan miljarðar verkafólks og barna þeirra em enn föst í neti fá- tæktar, kúgunar og misnotkunar, jafnframt því að hungursneyð, sjúk- dómar, stríð og ósætti ógnar þeim. Við hvetjum verkafólk alls heimsins til þess að leggja þessum málstað lið og að sækjast eftir aðild að frjálsum verkalýðsfélögum, sækjast eftir að- ild að og styrkja Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga. Saman tekst okkur að gera heiminn að ömggu athvarfi fyrir börnin okkar og kom- andi kynslóðir. Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykjavlkur, óskar eftir tilboðum I viögeröir og viöhald utanhúss á Iþróttahúsi Árbæjar- skóla. Helstu magntölurem: Spmnguviðgerðir 250 m Háþrýstiþvottur 680 m2 Sílanbööun 680 m2 Málun flata 680 m2 Málun glugga 622 m Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavfk, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin veröa oþnuö á sama staö fimmtudaginn 14. mal 1992, kl. 15.00 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Skólaskrífstofu Reykjavlkur, óskar eftir tilboðum I viögerðir og viöhald utanhúss á iþróttahúsi Álftamýr- arskóla. Helstu magntölur em: Sprunguviögeröir 290 m Fúgun milli steins og trés 210 m Háþrýstiþvottur 708 m2 Silanböðun 708 m2 Málun flata 1.248 m2 Málun glugga 1.974 m Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö miövikudaginn 13. mal 1992 kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans I Reykjavlk, óskar eftir tilboöum I hreinsun holræsa og niöurfalla. Hreinsun holræsa u.þ.b. 300 klst. Hreinsun niöurfalla u.þ.b. 4.000 stk. Síöasti skiladagur er 30. september 1992. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tllboöin verða opnuö á sama stað þriöjudaginn 19. mal 1992 kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 |j) ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans I Reykjavlk, óskar eftir tilboöum I gerö malbikaöra gangstiga vlös vegar I borginni. Helldarmagn er u.þ.b. 18. þús. m2. Sföastl skiladagur er 1. október 1992. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofú vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk, frá og meö þriðjudeginum 5. maf, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboöin verða opnuö á sama staö miövikudaginn 13. mal 1992 kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 Sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki árnaðaróskir á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí. Krin^Umni S-12 Siim (iSHSXS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.