Tíminn - 01.05.1992, Qupperneq 13
Föstudagur 1. maí 1992
Tíminn 13
Guðmundur Þ. Jónsson, formaöur Landssambands iðnverkafóiks:
Launþegahreyfing er sterk
i.
Styrkur verkalýðshreyfingarinnar
er ekki í fjötrum og honum er hægt
að beita. Hins vegar er það alltaf
matsatriði hvenær á að beita honum
og hvort skilyrði séu slík að skyn-
samlegt sé að gera það. Hreyfingin
er sterk f sinni kjarabaráttu sem sést
í þeim samningum sem við höfum
nýlokið við að gera. Þrátt fyrir að við
séum með mjög fjandsamlega ríkis-
stjóm þá tókst okkur samt, meira að
segja án þess að beita hörðu, að
knýja fram nokkra stefnubreytingu.
Ríkisstjómin dregur bæði nokkuð í
land með þær aðgerðir sem hún fyr-
irhugaði og gaf jafnframt ákveðnar
yfirlýsingar sem, ef hugur fylgir
máli, eru okkur nokkurs virði. Það
er mjög óvenjulegt og segir nokkuð
um þessa ríkisstjórn að það þurfi í
kjarasamningum að berjast sérstak-
lega við hana fyrir því að varðveita
svo sjálfsagða hluti eins og öldrun-
arhjúkmn og að halda opinni barna-
geðdeild þar sem veik börn fá þá
umönnun og læknishjálp sem þeim
er nauðsynleg.
Nú er ég ekki að segja að ég sé sér-
lega sáttur við útkomuna úr samn-
Siguróur T. Sigurðsson, formaður verka-
mannafélagsins Hlífar í Hafnarfiröi:
Hreyfingin þarf
að taka sig á og
brýna vopn sín
í.
Ég held ekki að hreyfingin sé mátt-
laust vopn. Hins vegar verður að viður-
kenna að hreyfingin er ekki nógu af-
gerandi. Hin seinni ár hefur dregið til
þeirra tíðinda að hún er að veikjast
Fýrir þjóðarsáttarsamningana hafði
þjóðin búið við, og býr enn við, glæp-
samlegt okurkerfi. Hér á ég við það
sem snýr að hinum almenna launa-
manni, td. húsaleiga: Maður með 40-
50 þúsund á mánuði í dagvinnutekjur
þarf að borga 40-60 þúsund í húsaleigu
ef hann á ekki þak yfir höfuðið.
Við náðum verðbólgunni niður og það
er eingöngu að þakka launþegum og
því hafði fólk nú talsverðar væntingar
um að njóta ávaxta þess. Guð hjálpi
okkur ef farið verður út í það að keppa
um krónutöluna aftur, en það var ein-
mitt óttinn við það sem hélt í hinn al-
menna mann og verkalýðshreyfinguna
að fara ekki út í harðan slag sem myndi
aðeins verða svarað af stjómvöldum
með gömlu aðferðunum að hleypa öllu
út í verðlagið þannig að allir stæðu verr
að vígi á eftir. Þetta er fyrst og fremst
ástæða niðurstöðunnar nú og hún að
sínu leyti sýnir vissan styrk. En því er
ekki hægt að mótmæla að verkalýðs-
hreyfingin hefur verið töluvert veik.
Hún þarf að stokka upp hjá sér. Hún
þarf að taka til og brýna busana.
2.
Ég er alls ekki sáttur við niðurstöðuna
nú og það sem felst í miðlunatrillögu
sáttasemjara. En miðað við ástandið í
atvinnumálum nú og raunar á öllum
sviðum þjóðfélagsins þá verð ég að
leggja til að við látum þetta yfir okkur
ganga. En ég vil líka geta þess að við
munum nota fyrsta tækifæri til að leið-
rétta þá kaupmáttarskerðingu sem nú
þegar er orðin og ég legg sérstaka
áherslu á að leiðréttur verði sá mikli
launa- og lífskjaramunur sem er í land-
inu.
Það hefúr verið ýjað að því að brátt
verði tvær þjóðir í landinu en það er nú
þegar orið. Það búa nú þegar tvær
þjóðir hér. Annars vegar eru menn sem
eiga fjármagn og þurfa ekkert að borga
af því, menn sem geta stjómað því hvað
mikið þeir gefa upp til skatts. Hins veg-
ar eru það við hinir og af okkur er tek-
ið bæði til að mennta böm hinna og að
ingaviðræðunum. Við hefðum getað
farið í verkfall. Við hefðum kannski
getað barist meira áfram. En þá
verðum við líka að meta til hvers
það hefði leitt á öðrum sviðum. Vor-
um við að setja verðbólguna í gang?
Hefði betri kaupmnáttur náðst? Er
atvinnuástand nú með þeim hætti
aö við hefðum getað náð betri ár-
angri? Nú eru nokkur þúsund
manns á atvinnuleysisskrá sem þá
hefði tapað því Iitla sem það hefur
haft meðan á verkfalli stæði. Alla
þessa þætti þurfum við að vega og
meta og það lýsir ekki á neinn hátt
veikleika verkalýðshreyfingarinnar
að geta metið hlutina kalt og rólega.
Þvert á móti sýnir það styrk hennar.
Út af fyrir sig er það rétt að fólk er
öðruvísi statt fjárhagslega nú en var
fyrir nokkrum áratugum þegar fólk
var mjög eignalítið og átti ekkert til
að missa. Nú er fólk mjög skuldsett
og því fylgja vissir erfiðleikar. En
það kemur í sjálfu sér ekki í veg fyr-
ir hugsanleg átök, enda má gera ráð
fyrir því að reikna megi með að slík
átök muni skila einhverju til fram-
tíðarinnar. Ég lít svo á að niðurstað-
an nú sýni miklu fremur styrk okkar
en veikleika.
2.
Þegár við gerðum þjóðarsáttar-
samninganá árið 1990 sögðumst við
ætla að sækja meira í næstu samn-
ingum. Þá var reiknað með að verð-
bólga færi niður, vextir lækkuðu og
það yrði efnahagslegur stöðugleiki.
Þetta hefur allt gengið eftir nema að
okkur tókst ekki að bæta kaupmátt
launa nema að okkur tókst nú í
fyrsta sinn í langan tíma að verja
það sem við vildum helst verja —
kaupmátt hinna lægst launuðu.
Hinir sem eru betur settir verða að
bíða og eiga að geta það.
1. maí hefur sama gildi fyrir mig og
hann hafði þegar ég byrjaði að taka
þátt í kröfugöngum dagsins. Dagur-
inn er baráttudagur og dagur þar
sem verkafólk kemur saman og Iítur
yfir farinn veg og strengir sín heit til
framtíðarinnar. Þótt umbrot hafi
verið í heiminum að undanfömu þá
hefur innihald 1. maí ekki breyst
fyrir mér. Dagurinn er enn í fullu
gildi sem baráttudagur verkalýðsins
eftir sem áður.
halda þeim sjálfum uppi.
3.
1. maí mun áfram halda gildi sínu. Við
þurfum að koma saman og finna að
enn getum við staðið saman og sett
fram sameiginlegar kröfur. Hins vegar
ber þess að geta að það er orðinn mjög
takmarkaður áhugi hins almenna
launamanns fyrir deginum. Það er því
hlutverk okkar í verkalýðshreyfing-
unni að reyna að efla áhuga fólks. 1.
maí í mínum huga heldur sannarlega
gildi sínu.
BÆNDUR
Massey-Ferguson
dráttarvélar
Eigum enn fyrirliggjandi
Massey-Ferguson dráttarvélar
á verði síðasta árs.
Pantið strax og tryggið ykkur vel búnar vélar á mjög
góðu verði.
Massey-Ferguson — mest selda vélin á Islandi.
Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn.
THUðsúrffiq
HOFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVIK ■ SIMI 91-670000
ssindola VenbAxia
LOFTRÆSIVIFTUR
GLUGGAVIFTUR - VEGGVIFTUR
BORÐVIFTUR - LOFTVIFTUR
Ensk og hollensk gæðavara.
Veitum tæknilega ráðgjöf við
val á loftræsiviftum.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI: 81 46 70