Tíminn - 01.05.1992, Síða 25

Tíminn - 01.05.1992, Síða 25
Tíminn 25 Föstudagur 1. maí 1992 byssu og Dori hafði látist samstund- is. Ránmorð Enga aðra áverka var að sjá á lík- inu. Ekkert benti til þess að Dori hefði reynt að verjast morðingja sínum á nokkurn hátt. Lögreglan taldi ekki að morðing- inn hefði valið Dori úr sérstaklega, heldur hefði reynt að fá samband við kvenkyns fasteignasala sem hefði viljað sýna honum hús. Þær upplýsingar fengust að maður nokkur, sem kvaðst vera viðskipta- jöfur í tímaþröng, hefði hringt sama dag á fleiri fasteignasölur. Þar sem upplýst var talið hvernig morðinginn hefði valið sér fórnar- lamb, var spurningin nú hvers vegna. Greinilegt var að um kynferðis- glæp var ekki að ræða. Líkið var fullklætt og engin ummerki um nauðgun eða barsmíðar. Hinn möguleikinn var rán. Dori hafði haft handtösku sína meðferð- is, þegar hún fór að sýna húsið, og taskan hafði ekki fundist. Eigin- maður hennar skýrði frá því að Dori gengi sjaldan með mikið reiðufé á sér, en hún hefði aftur á móti verið með greiðslukort, bankakort og ávísanahefti. Lögreglan lét bankana því strax vita og bað um að strax yrði látið vita ef greiðsiukort, bankakort eða ávísanahefti Dori yrðu notuð. Illur fengur... Viðbrögðin voru skjót. 500 dollarar höfðu verið teknir út af bankareikn- ingi Dori klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú morðdaginn, aðeins tutt- ugu mínútum eftir að síðast hafði sést til Dori. Daginn eftir var tekið út úr banka í Nevada og daginn þar á eftir út úr banka í Carson City. En í bankanum í Nevada var falin myndavél, sem sýndi hver hafði tek- ið út á bankakortið. Myndin sýndi stórvaxinn mann milli fertugs og fimmtugs, skeggj- aðan og gráhærðan. Hvorki samstarfsmenn Dori á fast- eignasölunni né eiginmaður henn- ar þekktu manninn á myndinni. Ekki fannst heldur mynd af honum í skjalasöfnum lögreglunnar. Lögreglan vissi að tíminn var naumur og að slóð mannsins kóln- aði með hverrri mínútu. Það var því gripið til þess ráðs að birta myndina í fjölmiðlum og leita þannig á náðir almennings með upplýsingar. Vingjamlegur bangsi Fljótlega bárust upplýsingar um að maðurinn á myndinni væri að öll- um líkindum John Alden Colwell, 42 ára og fjögurra barna fráskilinn faðir. Sá, sem hringdi, kvaðst varla trúa að John væri eftirlýstur fyrir morð. Hann sagði að John væri fyrrum kaupsýslumaður og manna glaðlyndastur og varla væri vitað til að hann hefði talað illa um nokkurn mann, hvað þá meira. Við nánari rannsókn kom í ljós að John hafði áður starfað á fasteigna- sölu, en þar sem hann hafði verið gífurlega feitur hafði bak hans gefið Ráðning á krossgátu i 3BB aaH BBai ■EC QBS □ ■SESDHBlESSfi £ BBB QE3 QQSl □aöaÐ'daEana'na'a Þessi mynd sýnir glögglega líkamsburði Johns Colwell, og augljóst að Dori Greene hafði lltið I hendurnar á honum að gera. sig og hann hafði orðið að fara á sjúkrahús í megrun og bakskurð. Þegar hann kom aftur af sjúkra- húsinu, hafði hann ætlað aftur til starfa á fasteignasölu, en þá hafði sú starfsgrein dregist saman í heima- bæ hans og enga vinnu þar að fá. Hann hafði síðan reynt fyrir sér í Sakamál ýmsum störfum, en var atvinnulaus þegar síðast var vitað. Einnig kom í ljós að maður, sem lýsingin átti við, hafði skellt sér á hóruhús í Carson City og hafði sóað þar fé á báða bóga. Vændiskonurnar skýrðu frá því að hann hefði sagst vera viðskiptajöfur og ætti nóga peninga. Morðinginn handtekinn Lögreglan fékk nú handtökuskip- un á John Colwell og hélt heim til hans. Hann vildi fyrst ekki koma út, en þegar lögreglan gerði sig líklega til að ráðast inn í húsið kom hann út, berfættur með hendur fyrir ofan höfuð. í húsinu voru einnig tveir aðrir menn. Aðspurðir kváðust þeir ekk- ert vita um Dori Greene, né heldur um stolin greiðslukort. Þeir kváð- ust bara vita það eitt um John Col- well að hann væri fyrirmyndar ná- ungi. Að yfirheyrslu lokinni var þeim sleppt. En það sama var ekki hægt að segja um John Colwell sjálfan. Hann var handtekinn og fluttur til yfir- heyrslu. John Colwell neitaði að segja orð nema lögfræðingur hans væri við- staddur, og því var hann úrskurðað- ur í gæsluvarðhald og beðið með frekari yfirheyrslur. Handtaka Colwells vakti gífurlega athygli. Nágrannar hans og fyrrum samstarfsmenn hefðu ekki orðið meira undrandi þótt jólasveinninn sjálfur hefði verið handtekinn fyrir morð. Allir, sem lögreglan talaði við, báru honum mjög vel söguna og sögðu að annaðhvort væri lög- reglan að gera reginmistök eða þá að John Colwell hefði hreinlega misst vitið, því þessi verknaður væri ekki í neinu samræmi við þá per- sónu sem fólk taldi hann vera. John var ekki samstarfsfús, hvorki við verjanda sinn né saksóknara. Það kom því öllum á óvart, þegar hann venti sínu kvæði í kross og ákvað að játa á sig morð að yfir- lögðu ráði og rán. Jólagjafír handa böraunum Við játninguna kom í Ijós að Col- well hafði ekki þekkt Dori Greene, hafði reyndar aldrei séð hana fyrr en hann mælti sér mót við hana í tóma húsinu við Tasmaníuveg. Hann játaði að eina erindið, sem hann hefði átt við hana, var að kom- ast yfir fjármuni hennar og greiðslukort. Síðan greip hann til þess ráðs að myrða hana til þess að koma í veg fyrir að hún gæti kært hann og borið á hann kennsl. Hann upphóf síðan mikinn sorgar- söng um féleysi sitt, kvaðst vera staurblankur og hefði gripið til þessa óyndisúrræðis til þess að geta keypt jólagjafir handa börnunum sínum fjórum. Saksóknari sagði að vissulega hljómaði þessi saga sorglega — það er að segja þangað til hugsað væri til þess að John Colwell hefði eytt góðum hluta ránsfengsins í áfengi og vændiskonur á hóruhúsi. Þrefaldur dauðadómur Lögreglunni tókst aldrei að finna kúluna, sem Dori hafði verið skotin með. En Colwell benti á morðvopn- ið, sem hann hafði selt kunningja sínum skömmu eftir ódæðið. Dómarinn hafði hlustað á fram- burð Colwells án athugasemda. En að honum loknum kvað hann upp yfir honum þrefaldan dauðadóm, þannig að ólíklegt má teljast að morðinginn stórvaxni gangi laus í framtíðinni. TOSHIBA Þeir sem eiga TOSHIBA örbylgjuofn segja að það sé tækið, sem þeir vildu síst vera án. TOSHIBA eru mest seldu örbylgjuofnarnir á Islandi og þeim fylgir ókeypis kvöldnámskeið hjá Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara. Hvernig væri að láta drauminn rætast og fá sér slíkan kostagrip ? Við bjóðum yfir 10 gerðir af TOSHIBA örbylgjuofnum á verði og kjörum, sem allir ráða við! ///’ Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 g 622901 og 622900 BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK ■ SÍMI632340 • MYNDSENDIR 623219 Hverfaskipulag borgarhluta 6, Breiðholtshverfa Orðsending frá Borgarskipu- lagi til íbúa og hagsmunaaðila Á Borgarskipulagi Reykjavíkur er að hefjast vinna við hverfaskipulag borgarhluta 6, Breiðholtshverfa. íbúar og aðrir hagsmunaaðilar í Breiöholti eru hvattir til þess að koma ábendingum á framfæri við Borgar- skipulag um það sem þeir telja að betur mætti fara í borgarhlutanum, t.d. varðandi umferð, leiksvæði og önnur útivistarsvæði, stíga eða byggð. Þær munu verða teknar til gaumgæfilegrar athugunar og metnar með tilliti til heildarskipulags borgarhlutans. Ábendingum óskast skilað munnlega eða skriflega fyrir 1. júní 1992 til Ingibjargar R. Guðlaugsdóttur, deildarstjóra hverfaskipulags, eða Ágústu Svein- björnsdóttur, arkitekts, á Borgarskipulagi Reykjavík- ur. Fjarskiptaeftirlitið verður lokað fimmtudaginn 30. apríl 1992 vegna flutninga. Opnaö verður aftur mánudaginn 4. maí að Malarhöfða 2 (hvíta húsið fyrir ofan Ingvar Helgason hf.). Sími: 682424. Fax: 682429.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.