Tíminn - 01.05.1992, Síða 29

Tíminn - 01.05.1992, Síða 29
Föstudagur 1. maí 1992 Tíminn 29 Félagsfundur Félag hárgreiðslu- og hár- skerasveina heldur félags- fund vegna nýgerðs kjara- samnings og sáttatillögu rík- issáttasemjara mánudaginn 4. maí 1992 kl. 19.00 í Baðstofunni, Ingólfsstræti 5. Að fundi loknum geta félagsmenn tekið þátt í allsherjaratkvæðagreiðslu. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Allsherjar- atkvæða- greiðsla Vegna nýgerðs kjarasamnings og sáttatillögu ríkis- sáttasemjara fer fram allsherjaratkvæðagreiðsla í Ingólfsstræti 5 sem hér segir: Strax að loknum félagsfundi Félags hárgreiðslu- og hárskerasveina mánudaginn 4. maí n.k. Þriðjudaginn 5. maí frá kl. 8.00-20.00. Miðvikudaginn 6. maí frá ki. 8.00-16.00. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í atkvæðagreiðslunni. s-var^. LqtUi % Ff. ooo w ..../ Allsherjar- atkvæða- greiðsla Vegna nýgerðs kjarasamnings og sáttatillögu ríkissátta- semjara fer fram allsherjaratkvæðagreiðsla í Ingólfsstræti 5 sem hér segir: Strax að loknum félagsfundi Félags starfsfólks í veit- ingahúsum mánudaginn 4. maí n.k. og stendur til kl. 21.00. Þriðjudaginn 5. maí frá kl. 8.00-20.00. Miövikudaginn 6. maí frá kl. 8.00-16.00. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í at- kvæðagreiðslunni. Félagsfundur Uj * » “f' i7* a a 1r- í i __ _r_f ' _e_sas_■_ OOO w % Félag starfsfólks í veitingahús- um heldur félagsfund vegna ný- gerðs kjarasamnings og sáttatillögu ríkissáttasemjara mánudaginn 4. maí 1992 kl. 17.00 í Baðstofunni, Ingólfsstræti 5. Að fundi loknum geta félagsmenn tekið þátt í allsherjaratkvæðagreiðslu. LötUl Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Félags- fundur Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund mánudag- inn 4. maí n.k. kl. 20:30 á Hótel Sögu, Súlnasal. Fundarefni: Miölunartillaga ríkissáttasemjara kynnt Að fundinum loknum hefst allsherjaratkvæðagreiðsla um tillög- una. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á fundinn. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Þriöji maöur Mandyar er alþjóölegi sorpeyöingarjöfurinn Ron Foreman. Hún segist hafa mikinn áhuga á viðskiptum hans þó að hún komist engan veginn yfir aö fylgjast með þeim öllum. En hann sé viöriö- inn valdaviöskipti sem líkist valdastjórnmálum og þau séu gifurlega spennandi. Bjartsýnismanneskj- an Mandy Rice-Da- vis á sína blómatíma Fyrir u.þ.b. 30 árum varð feikna- hneyksli í Bretlandi þegar upp komst að varnarmálaráðherrann, John Profumo, hafði verið í tygj- um við gleðikonuna Christine Ke- eier samtímis því sem hún var lagskona sovésks sendiráðsfull- trúa. Auðvitað varð breski ráð- herrann að segja af sér með skömm, en athygli fjölmiðla beindist ekki síður að konunni og fví umhverfi sem hún hrærðist í. þær umræður blandaðist starfs- systir hennar, Mandy Rice-Davis, og þar bar vel í veiði fyrir fjöl- miðlamenn því Mandy var ófeim- in og hafði ekkert á móti því að láta á sér bera. Hún var þess vegna óspör á yfirlýsingar og blaðraði stöðugt. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar og ferill Mandyar hefur ver- ið fjölskrúðugur en hún hefur staðið af sér allar raunir með glans og nú brosir lífið virkilega við henni. Hún er orðin 47 ára og býr í hjónabandi með þriðja manni sínum, kaupsýslujöfrinum Ken Foreman, sem hefur auðgast af alþjóðlegri sorpeyðingu. Þau eiga heimili bæði á Miami og í London og eru á sífelldum ferða- lögum milli landanna. „Ég veit að ef gluggatjöldin eru rauðbleik þegar ég vakna um morguninn er ég á Miami en ef þau eru rósótt er ég í London," segir Mandy og seg- ist annars taka með sér Coleman’s sinnep, Ryvita hrökkbrauð og reyktan lax frá London, en frá Mi- ami Key lime sýróp til að búa til Key lime böku og 30 únsu bað- sápuflöskur, þær séu óþolandi litl- ar í Englandi. Þá sé hún fljót að eiga heima á hvorum staðnum sem er. Mandý er orðin rithöfundur og er nú að vinna að þriðju skáld- sögu sinni. Hún segist ganga afar skipulega til verks, gera heima- vinnuna sína í byrjun vikunnar svo að hún geti farið í vélritun um næstu helgi. Ef eitthvað beri út af með skipulagið fari allt í vaskinn. Það getur því vel farið svo að hún Mandy undirbýr nú brúökaup dóttur sinnar Dana af kappi. Þær mæögur eru mjög nánar og gengur varla hnífurinn á milli þeirra. verði arftaki Barböru Cartland með tímanum. Um þessar mundir er Mandy önnum kafin við að undirbúa brúðkaup dóttur sinnar úr fyrsta hjónabandinu, Dana, en hún verður nágranni mömmu sinnar á Miami. Mandy segir gaman að búa á Miami, veðrið gott og mannlífið fjölbreytt með suður-amerísku ívafi, sem gefi fólki aukið um- burðarlyndi. Aftur á móti sé Kali- fornía óþolandi! Mandy er sæl og sátt við tilver- una nú, enda segist hún vera bjartsýnismanneskja. Hún hafi hengt upp í eldhúsinu kjörorðið sitt: Bjartsýnismanneskja er sú sem ekki veit allar staðreyndirnar enn. „Þannig er ég,“ segir hún.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.