Tíminn - 25.07.1992, Síða 2

Tíminn - 25.07.1992, Síða 2
2 Tíminn Laugardagur 25. júlí 1992 Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ: Friður um ákvörðunina svo hjólin haldist gangandi að ná sáttum um þetta mál. Magnús gegnir formennsku í tveim nefndum um sjávarútvegsmál, ann- ars vegar nefnd skipaðri af stjórnar- flokkunum, sem fjalla á um al- menna stéfnumörkun í sjávarútvegi, og hins vegar nefnd sem fjalla á um breytingar á núverandi fiskveiðifyr- irkomulagi. Þröstur Ólafsson er einnig formaður beggja nefndanna, þannig að um tvær „tvíhöfðanefnd- ir“ er um að ræða. Magnús segir að lítið hafi verið starfað í nefndinni um breytingar á fiskveiðifyrirkomu- laginu, því áhersla hafi verið lögð á að keyra áfram vinnu í nefndinni um sjávarútvegsstefnuna. Nú sé meiningin að byrja vinnu í nefndun- um að fullum krafti í ágúst og Magnús segist vonast til að þær skili af sér fljótlega í haust. -BS Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands, styður framkomnar tillögur sjávarútvegsráðherra um veiðar næsta árs og úthlut- un Hagræðingasjóðs. Hann segir lífsspursmál að ná fríði um þá ákvörðun hve mikið skal veiða, því síðar þurfi forystu í að leiða þá vinnu, sem verður að eiga sér stað til þess að komast í gegnum fyrirsjánlegar þrengingar án „Það er gífurlega mikilvægt að ná sáttum um þetta mál,“ segir Magn- ús, „og geta komið frá ákvörðun um úthlutun á kvóta Hagræðingasjóðs og einhvern veginn að jafna áfallið milli manna. Vegna þess að þegar þetta allt saman er yfirstaðið þá þurfum við að takast á við næstu vandamál. Það sem við ákveðum núna er efnislega, miðað við núver- andi upplýsingar, ef til vill það sem við þurfum að lifa við næstu þrjú ár- in. Þegar ákvörðun liggur fyrir þarf að fara ofan í hvaða aðgerðir þarf að fara í til þess að halda atvinnulífinu gangandi. Menn gleyma því gjarnan í allri þessari umræðu að við erum ekki að fara úr 265 þús. tonna þorsk- veiði niður í 190 þús. tonn, heldur erum við að fara úr 350 þús. tonn- um niður í 190 þús. tonn. Við veidd- um yfir 300 þús. tonn bara fyrir ári. Öll fjárfesting og skipulag, sem menn hafa verið að vinna með innan sjávarútvegsins, hefur miðað við það að auðlindin myndi geta gefið um 350 þús.tonn." Magnús segir að þegar ákvörðun hafi verið tekin, hver svo sem hún verði, þá þurfi að ræða vandamálin Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands. sem augljóslega verði framundan. Því þurfi að skipta upp í tvennt, ann- ars vegar það sem ríkisvaldið getur gert til að hjálpa við að halda hjól- unum gangandi fyrir atvinnulífið í heild, ekki aðeins sjávarútveginn, því þrengingar sjávarútvegs þýði þrengingar alls atvinnulífs í land- inu. Hins vegar þurfi menn í öllu at- vinnulífinu að huga að aðgerðum sem miða að sparnaði og aukinni hagkvæmni. „Öðruvísi komumst við ekki í gegnum þetta," segir Magnús. Hann segir að eftir allar þær um- ræður sem átt hafi sér stað undan- farið sé mikið ábyrgðarleysi að taka ekki tillit til þess sem fiskifræðingar segi. Hann sér ekki aðra leið en að úthluta aflaheimildum Hagræð- ingasjóðs til skipa, þó það kosti auk- inn halla á ríkissjóði. Það sé auðvit- að ekki æskilegt, en mikilvægara sé Nýju ratsjárstöðvarnar á Gunnólfsvíkur- og Bolafjalli: 2 nýjar stöðvar vígðar á árinu Ratsjárstofnun tók tvær nýjar ratsjárstöðvar í notkun í byijun janúar þessa árs og eru þær staðsettar á Bolafjalli og Gunnólfsvíkuríjalli. Um 12 starfsmenn vinna við hvora stöð og hafa þeir lögheimili á Bol- ungarvík, Þórshöfn og jafnvel í Reykjavík og á Akureyri. 2-4 menn eru á vakt í hvert skipti og sjá þeir um viðhald búnaðar í byggingunum sem og viðhald fjarskiptabúnaðar. Unnið er samfleytt í 6 daga og að því loknu er 8 daga frí. Framkvæmdir hafa hafist við að reisa íbúðarhús á Bolungarvík fyrir starfsmenn stöðvarinnar á Bolafjalli og eiga þau alls að vera átta talsins. Fjögur hús eiga að vera tilbúin vorið 1993. Nauðsynlegt var að byggja ný hús en að sögn Ólafs Kristjánssonar, bæjarstjóra í Bolungarvík, er mikil húsnæðisekla á staðnum og líður ekki sá dagur að ekki sé spurst fyrir um húsnæði. Ólafur vonast til að þess að starfs- menn ratsjárstöðvarinnar flytji með sér nýja menningarstrauma og miðli Bolvíkingum af þekkingu sinni. „Það er að sjálfsögðu mjög gott fyr- ir bæjarfélagið að fá nýtt fólk hing- að," segir Ólafur. Starfsmönnum ratsjárstöðvanna á Höfn og Stokksnesi er einnig boðið upp á húsnæði en ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um hvort svo verði einnig á Þórshöfn. Guðjón Sigurðsson, deildarstjóri hjá Ratsjárstofnun, segir nokkuð vel hafa gengið að komast upp á Gunn- ólfsvíkurfjall í vetur en þar er jafnan hvasst og því erfitt að komast þang- að. „Það eru alltaf dálitlir erfiðleikar en þetta hefur gengið," segir Guðjón. „Vegirnir eru í góðu lagi, það er bara þetta venjulega viðhald." í hygfíju er að taka í notkun hug- búnaðarstöð á Keflavíkurflugvelli árið 1995, þar sem unnið verður úr upplýsingum frá ratsjárstöðvunum. —GKG. Raunasaga Díönu selst vel hér á landi: Húsmæður í úthverfum lesa bókina um Díönu Bókin „Díana“ eftir Andrew Morton hefur selst vel hér á landi en hún kom í bókaverslanir á fimmtudaginn var. Bókin olli miklu fjaðrafoki þegar hún kom út í Bretlandi og hefur vakið athygli út um allan heim. Almenna bókafélagiö gefur bókina út í þýðingu Sigríðar Ástríðar Ei- ríksdóttur og er hún gefin út í 3.500 eintökum. Ekki þótti forráðamönnum útgáf- unnar ráðlegt að bíða til jóla með að gefa bókina út, þar eð þá gæti áhugi almennings hafa dalað á einkamál- um prinsessunnar. Á fimmtudaginn seldust u.þ.b. 10 eintök af bókinni í Pennanum í Hall- armúla og er það afar gott miðað við það að ekki er mikið keypt af bókum á þessum árstíma. Einnig hefur mik- ið verið hringt og spurt um hana. í bókabúð Sigfúsar Eymundssonar í Kringlunni var það sama upp á ten- ingnum, fólk var forvitið um bókina og gott þótti að 4-5 eintök seldust þar á fyrsta degi. Díönuáhuginn virðist vera hverfis- skiptur því í Bókaverslun Eymunds- sonar í Austurstræti hafði bókin lítið selst en aftur á móti á Eiðistorgi var salan góð. Aö sögn einnar af- greiðslustúlkunnar eru það heima- vinnandi konur úr úthverfunum sem kaupa bókina: „Það eru ekki karlmennirnir sem kaupa hana, það er kvenfólkið.“ Eins og kunnugt er orðið segir bók- in frá ýmsum vandamálum Díönu, prinsessu af Wales, líkamlegum sem andlegum, og sýnt fram á að hjóna- band hennar og Charles prins sé alls ekki eins mikill tangó á túlípönum og það hefur litið út fyrir að vera. Það er líklega þessi sameiginlegi reynsluheimur kvenna undir þrúg- andi ógn karlveldisins, sem íslensk- ar húsmæður finna við lestur bókar- innar um Díönu og geta samsamað sig við í sumarleyfinu. —GKG. Halonnotkun hefur minnkað á íslandi um 60% — en ekki vegna w verndunar ósonlagsins heldur mettunar markaðarins: Óþörf halonslökkvitæki seld um gervallt land? Halon slökkvitæki. Frá 1. janúar 1995 veröa slík tæki bönnuð meö öllu. Þau eru nú talin vera mun fleiri á landinu en nokkurn tímann var þörf fyrir. „Þessi mikla notkun halon hand- slökkvitækja hér á landi bendir til þess að mikið af duglegum sölu- mönnum hafi verið á ferðinni og er ljóst að mikið af halonslökkvi- tækjum er í umferð þar sem engin þörf er fyrir slíkan búnað og nóg til af öðrum og heppilegri slökkvi- búnaði. Framundan er því mikið starf við að kalla inn þessi slökkvi- tæki þegar að því kemur að notk- un þeirra verður alfarið bönnuð og er fyrirsjáanlegur talsverður kostnaður við að eyða efnunum." Það er Sigurbjörg Gísladóttir, deildarverkfræðingur mengunar- varna Hollustuverndar ríkisins, sem upplýsir um þessi umfangs- miklu kaup landsmanna á halon (ósoneyðandi) handslökkvitækj- um í grein í blaði Landssambands slökkviliðsmanna. Hún segir nú liggja fyrir drög að reglugerð sem geri m.a. ráð fyrir því að þegar frá næstu áramótum verði óheimilt að selja eða fylla á halonslökkvi- tæki og jafnframt að búast megi við að notkun þessara efna verði alveg bönnuð frá ársbyrjun 1995. í grein Sigurbjargar kemur einn- ig fram athyglisvert dæmi um það hvernig grátbroslegur raunveru- leiki getur leynst bak við tölur sem í fljótu bragði benda til glæsi- legs árangurs í mengunarvörnum og umhverfisvernd. Halonnotkun á íslandi minnkaði um 60% frá árinu 1986 til 1990 sem — í ljósi fjölþjóðasamþykkta um 50% samdrátt fyrir 1985 — lítur þetta út sem mjög góður ár- angur, en það er ekki allt sem sýn- ist: „Halonnotkunin hefur ekki minnkað vegna þess að íslending- ar séu orðnir svo meðvitaðir um skaðsemi halonslökkvimiðla fyrir umhverfið, heldur er búið að setja upp halonslökkvibúnað á flestum stöðum þar sem slíkt var talið æskilegt," segir Sigurbjörg. Hún rekur hvernig stöðugt hefur verið unnið að því að hertum regl- um um notkun ósoneyðandi efria á undanförnum árum, undir for- göngu Umhverfismálastofnunar SÞ. Undirritun Vínarsáttmálans 1985 hafi verið fyrsti áfanginn. Með Montrealbókuninni við sátt- málann árið 1987 hafi verið sam- þykkt að draga skipulega úr notk- un ósoneyðandi efna. Þar voru til- greind þrjú halonefni (1211, 1301 og 2402) og fimm klórflúorefni (CFC: 11, 12, 113, 114 og 115). ís- lendingar voru meðal þeirra sem staðfestu aöild að Vínarsáttmálan- um og bókuninni. Ákvæði Montrealbókunarinnar hafi síðan verið hert verulega þeg- ar hún var tekin til endurskoðun- ar á fundi í London árið 1990. Auk þess sem öðrum sambærilegum klórflúorefnum var hætt á bann- efnalistann skyldi notkun þeirra og fyrrnefndu efnanna minnkuð í áföngum (frá 1986) um 50% fyrir 1995, um 85% fyrir 1997 og alger- lega hætt fyrir árið 2000. Þessi endurskoðaða bókun tekur gildi nú um næstu mánaðamót þar sem nægilega margar þjóðir hafa nú staðfest hana. En skilyrði er að 67% af notendum bannefn- anna hafi staðfest samkomulagið. Montrealbókunin verður þó enn tekin til endurskoðunar á fundi í Kaupmannahöfn í nóvember nk„ að sögn Sigurbjargar. Aukin vitn- eskja um líkur á eyðingu óson- lagsins af völd- um klórflúor- efna og halona geri það að verk- um að aðildar- þjóðir sam- þykktarinnar, en þeirra á meðal eru allir fram- leiðendur hal- ona, muni leggja til að ákvæði bókun- arinnar verði enn hert veru- lega. Þær tillög- ur sem nú séu ræddar og lík- legt að nái fram að ganga miðist við það að notk- un bannefnanna hafi dregist saman um 85% fyrir ársbyrjun 1994 og að notkun efnanna verði hætt fyrir 1. janúar 1995 eða 1996. Þó sé rætt um reglur um undan- þágur fyrir einstaka lífsnauösyn- lega notkun. ísland sem og hinar Norður- Iandaþjóðirnar hafa lýst yfir stuðningi við að notkun bannefn- anna verði hætt frá ársbyrjun 1985. Að sögn Sigurbjargar hefur „ósonnefnd" umhverfisráðuneyt- isins kannað notkun ósoneyðandi efna hér á landi og unnið að til- lögugerð um nauðsynlegar að- gerðir til þess að draga úr notkun þeirra. Liggi nú fyrir drög að reglugerð um bann við notkun klórflúorefna og halona, sem gert sé ráð fyrir að taki gildi með haustinu. Gangi það eftir verður frá 1. janú- ar nk. bannað að selja eða fýlla á halonslökkvitæki og sömuleiðis að setja upp ný halonslökkvikerfi. Og frá 1. janúar 1995 verður bann- að að fylla á halonslökkvikerfi. Gert er ráð fyrir að reglugerðin nái eingöngu til nýrra halona, þannig að hugsanlega verði heim- ilað að fylla endurunnið halon á slökkvikerfi eitthvað lengur. - HEI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.