Tíminn - 25.07.1992, Blaðsíða 21

Tíminn - 25.07.1992, Blaðsíða 21
Laugardagur 25. júlí 1992 Tíminn 21 ur að sögn Alfreðs eins og best verður á kosið og tjaldstæðin sömuleiðis. Sömu sögu er að segja um aðstöðu til dans- leikjahalds, en UÍA fékk til liðs við sig verkfræðing til að hanna 150 fermetra svið, sem hefur þar verið reist og kost- ar á þriðju milljón. Það er ætlun þeirra Austanmanna að svæðið verði framtíð- arútihátíðarsvæði á Héraði og því var sviðið byggt með það fyrir augum að það væri komið til að vera og sagði Al- freð að þetta væri lýsandi dæmi um það að það væri ekki verið að tjalda til einnar nætur, eins og oft væri um að ræða hjá aðstandendum útihátíða. Skemmtiatriðin á Eiðum eru ekki af verri endanum, en þar koma fram hljómsveitimar Stjómin, GCD með þá Bubba Morthens og Rúnar Júlíusson fremsta í flokki, Undir Tunglinu, Af lífi og sál, Ozon frá Norðfirði og Víkinga- sveitin frá Djúpavogi. Að auki skipa meðlimir Stjómarinnar að mestum hluta hljómsveitina Maggi og Grað- naglamir. Tvennir hljómleikar verða haldnir og em það þeir Pálmi Gunn- arsson og Bubbi Morthens sem þá halda. Það er margt annað til skemmt- unar á Eiðum um verslunarmanna- helgina, haldin verður blautbols- keppni, þar sem keppendur klæðast bikinibuxum og bol, Magnús Ver, Eldborg ‘92 á Kaldármelum um verslunar- mannahelgina: Útihátíö í tilefni 70 ára afmælis HSH Um næstkomandi verslunar- mannahelgi verður í fyrsta sinn haldin útihátíð á Kaldármelum á Snæfellsnesi, Eldborg ‘92, sem dregur nafnið af nærliggjandi fjalli. Það er Héraðssamband Snæfells- og Hnappadalssýslu sem stendur fyrir hátíðinni, en sambandið er 70 ára um þessar mundir. Dagskrá mótsins er vegleg og er listi hljómsveita sem sjá um fjörið bæði langur og áhugaverður. Það verða hljómsveitimar Síðan skein sól, Ný dönsk, Júpiters og KK bandið sem bera hitann og þung- ann af skemmtuninni, en þeim til aðstoðar verða Blues brothers, Kolrassa krókríðandi og lipstick lo- vers og í svokölluð Rave-tjaldi leika hljómsveitimar Ajax, Insane, Mind in motion og T-world. Einnig mæta þeir Ómar Ragnarsson og Her- mann Gunnarsson sem munu gera sitt besta til að létta lund sam- komugesta, en sá síðamefndi er skemmtanastjóri. Hermann mun sjá um hæfileikakeppni, stjömulið Ómars Ragnarssonar og Rokk- landsliðið í knattspymu taka leik, aflraunir og vítaspymukeppni í knattspyrnu verða einnig meðal skemmtiatriða. Aðgangseyrir er krónur 5.900, en unglingar á aldrinum 12-16 ára greiða 4.900 og yngri en 12 ára fá frítt inn. Dulbúnar stjörnur Það er ekki sældarlíf að vera frægur í hinum stóra heimi. Sem dæmi um það er meðfylgjandi mynd af þeim Robert De Niro og stórfyrirsætunni Naomi Camp- beli, sem gerðu allt til að þekkjast ekki né sjást á meðan þau eyddu rómantískri viku í París. Líklega átti dvöl þeirra saman ekki að fara hátt þar sem Robert hefur átt í sambandi við annan kvenmann, Toukie Smith, um nokkurn tíma. Til að komast hjá því að þekkjast þegar þau vom að fara inn á Ritz hótelið í París, þar sem þau dvöldu svítunni, hafði Robert rak- að af sér hárið að mestu og Naomi var með hatt, sólgleraugu og gerviyfirvaraskegg, sem sést á myndinni ef vel er að gáð. Þetta laumuspil ástarfúglanna tókst nú ekki þar sem það náðist að festa flug þeirra á filmu. Dagskrá útihátíðarinnar á Eiðum 1992 sterkasti maður heims, stjómar krafta- jötnakeppni í anda keppninnar um sterkasta mann heims og einnig verður haldin söngvarakeppni. Þar gefst kepp- endum kostur á að syngja með einni af vinsælustu hljómsveitum landsins, Stjóminni, og einnig er um gott tæki- færi að ræða til að koma góðum söngv- umm á framfæri. UÍA hefur leigt hljóðkerfi Reykjavík- urborgar til hátíðarinnar og þá er teflt fram mjög öflugu ljósakerfi. Það kostar 6.000 krónur fyrir fúll- orðna inn á útihátíðina á Eiðum, en frítt er fyrir 14 ára og yngri. Ef komið er á svæðið eftir klukkan 8.00 að morgni sunnudags kostar 3.000 krón- ur inn. Flugleiðir bjóða upp á svokall- aðar pakkaferðir frá Reykjavík á hátíð- ína og kostar það 15.900, þar sem inni- falið er flug báðar leiðir auk miða á svæðið. Föstudagur 31. júlí kl 20.00 Pálmi Gunnarsson 21.00 Af iífi og sál 22.00 Víkingasveitin 23.00 JetBIackJoe 24.00 GCD 02.00 Stjómin Laugardagur 1. ágúst ld. 13.00 Magnús Ver og Eiðajöt- unn ‘92 16.00 Söngvakeppnin Eiða barkinn 20.00 Bubbi Morthens hljóm- leikar kl. 21.00 Ozon 22.00 Undir Túnglinu 23.00 Maggi og Graðnaglamir 24.00 Stjómin 02.00 GCD Sunnudagur 2. ágúst Kl. 14.00 Blautbolskeppni 16.00 Söngvakeppni úrslit 20.00 Víkingasveitin 21.00 Undir Túnglinu 22.00 Ozon 23.00 Aflífiogsál 24.00 JetBlackJoe 01.00 GCD 02.00 Stjómin -PS ER EKKILIFHIDASAMLEGT? 'O Þeaar konan skammast í framsætinu, kallinn gleymdi heymarhlífunum, uppahalds liðið að spila í beinni útsendingu, krakkamir snarvitlausir aftur í, kærulausar rollur við þjóðveainn og gamall kall með hatt búinn að vera ó undan þér á sínum Moscovits síðustu 100 kílórpetranna. Hvað er þá betra en að stoppa í Veitingaskálanum BRÚ, teygja úr sér, nærast og hlaða rafhlöðurnar. Munau svo bara að vera a undan Moskovitseigandanum út. '4 VERIB VELKOMIN 4 AfCIÐ VARLEGA MEÐ BELTIN SPENNT OG SYNIÐ TILITSEMII UMFERÐINNI. VÖRUHÚS KÁ Selfossi ALLAR VORUR A EINUM STAÐ Opið: Mánudaga-fimmtudaga kl. 9-18.00. Föstudagakl. 9-19.00. Laugardaga kl. 10-16.00. STÓRMARKAÐUR Á RÉTTUM STAÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.