Tíminn - 25.07.1992, Blaðsíða 11
Laugardagur 25. júlí 1992
Tíminn 11
Bjartsýni ríkir hjá forsvarsmönnum
Þjóðhátíðar í Eyjum:
Búist er við
yfir 9 þúsund
manns til Eyja
Frá fyrri þjóöhátíö.
Dagskrá Þjóðhátíðar
Þjóðhátíð í Eyjum verður haldin að
venju um þessa verslunarmanna-
helgi, en Þjóðhátíð hefur verið fast-
ur punktur í þessari stærstu ferða-
helgi ársins um margra ára skeið.
Forráðamenn hátíðarinnar búast
ekki við færri en níu þúsund manns
í ár og segja að öll viðbrögð enn sem
komið er gefi ekki annað til kynna.
Allt stefnir í metflutninga hjá Flug-
leiðum og þá hefur flutningsgeta
Herjólfs margfaldast með tilkomu
nýrrar ferju. Þess utan er íslands-
flug með áætlun og leiguflug Vals
Andersen flýgur frá Bakka í Landeyj-
um, en þaðan er einungis fimm
mínútna flug í Eyjar.
Að sögn Sigmars Georgssonar,
framkvæmdarstjóra íþróttafélagsins
Þórs í Vestmannaeyjum, sem er
framkvæmdaraðili Þjóðahátíðar í ár,
hefur undirbúningur undir hátíðina
gengið eins og best verður á kosið
og hefur veðrið leikið þar aðalhlut-
verkið. Hann segir mikinn fjölda
manna hafa starfað að undirbúningi
í Herjólfsdalnum og það sé afskap-
lega létt hljóð í mannskapnum. „Eg
held að ég sé ekki að ýkja þegar ég
segi að við finnum strauminn liggja
hér út í Eyjar. Við heyrum góðar
fréttir frá Flugleiðum og Herjólfi
hf.,“ sagði Sigmar Georgsson í sam-
tali við Tímann.
Á þjóðhátíð í Eyjum verða það Sál-
in hans Jóns míns og Todmobile,
sem að auki hafa sér til fulltingis þá
Pétur Kristjánsson og Geira Sæm,
en þessar tvær hljómsveitir bera hit-
ann og þungann af dansleikjunum.
Þess utan er helgin þéttskipulögð af
skemmtiatriðum við allra hæfi, allt
frá skemmtunum fyrir yngstu ald-
urshópana upp í skemmtanir sem
þóknast foreldrum. Þá verður Bylgj-
an með svæðisútvarp auk þess sem
komið verður inn í almenna dagskrá
útvarpsstöðvarinnar.
Að venju verður boðið upp á viða-
mikla flugeldasýningu, brennu á
Fjósakletti, brekkusöng og varðeld.
Þetta segir Sigmar vera það sem
hæst ber á Þjóðhátíðum og á þess-
um stundum sjáist alltaf best hve
margir eru í dalnum því þá séu allir
úti við.
Á Þjóðhátíð í fyrra voru um níu
þúsund manns í dalnum þegar best
lét og sagði Sigmar að menn ætluðu
sér ekki minna í ár. „Okkur finnst
þetta vera betri viðtökur en við
þekkjum áður og ég held að menn
séu búnir að fá nóg af útihátíðum
sem hafa leyst upp í ekki neitt. Jafn-
vel þó að veður sé ekki eins og best
verður á kosið í Vestmannaeyjum,
þá eru aðstæður þess eðlis að Þjóð-
hátíðin rennur ekki út í sandinn,
þar sem dalurinn er svo lokaður. Þá
stöndum við vel að vígi hvað dag-
skrána varðar, þar sem hún er mjög
fjölbreytt og eitthvað er fyrir alla,
böm sem fullorðna," sagði Sigmar.
Hann sagði ennfremur að Þjóðhátíð
væri orðin svo rótgróin og stöðluð
að menn vissu alltaf að hverju þeir
gengju þegar farið væri út í Eyjar.
Bæði Flugleiðir og Herjólfur skipu-
leggja pakkaferðir á Þjóðhátíð auk
þess sem íslandsflug og leiguflug
Vals Andersen munu fljúga með far-
þega. Sigmar segist hafa fengið upp-
lýsingar frá þessum aðilum sem eru
allar á sömu lund og segja að mikil
eftirspurn sé eftir ferðum til Eyja.
Sigmar Georgsson sagði að flutn-
ingsgeta flugfélaganna og Herjólfs
væri mikil í ár. Flugfélögin væm
stöðugt að bæta við ferðum og þá
hefði bæst við nýr og stærri Herjól-
fur sem margfaldaði flutningsgetu á
sjó. Þá væri alltaf hægt að leita á
náðir gamla Herjólfs sem væri til
taks í Vestmannaeyjahöfn. Að sögn
Gunnars Más Sigurfinnsonar, blaða-
fulltrúa Flugleiða í Vestmannaeyj-
um, stefnir allt í metflutninga í ár
og sagðist hann búast við að félagið
myndi flytja um 1200 farþega í ár.
Búið væri að fylla allar þær ferðir
sem áætlaðar væru á fimmtudegi og
föstudegi og væri unnið í því að
fjölga ferðum. Til marks um það hve
aðsóknin væri góð væru einnig að
fyllast þær vélar sem væru áætlaðar
á þriðjudegi og miðvikudegi.
Það er Ijóst að það er mikilvægt fyr-
ir allt íþróttalíf í Vestmannaeyjum
að Þjóðhátíð í Eyjum gangi vel. Það
eru íþóttafélögin tvö Þór og Týr sem
halda mótin sitt hvort árið og segir
Sigmar að vel heppnuð Þjóðhátíð
haldi hvoru félagi um sig gangandi í
þau tvö ár. Sérstaklega er það mikil-
vægt nú á síðari árum þar sem erfið-
ara hefur verið að fá styrk fyrirtækja,
en það væri þó alltaf leitað til þeirra
ef Þjóðhátíð gengi ekki nógu vel.
Miðaverð er það sama á Þjóðhátíð
nú og í fyrra, eða 6500 kr en 6000 ef
keypt er í forsölu. Þá hafa forráða-
menn hátíðarinnar fengið bæði
Flugleiðir og Herjólf til að halda
flugfargjöldum einnig á sama verði
og í fyrra. Hjá Flugleiðum kostar
pakkinn 10.990 en ef farið er með
Herjólfi og rúta tekin frá Umferðar-
miðstöðinni í Reykjavík kostar
pakkinn 9.000.- -PS
Föstudagur 31. júlí
13.00 Létt lög í Dalnum
15.00 Lúðrasveit Vestmannaeyja
Þjóðhátíðin sett: Formaður Þórs,
Þór I. Vilhjálmsson
Hátíðarræða
Lúðrasveit Vestmannaeyja
Hugvekja: Séra Bjarni Karlsson
Lúðrasveit Vestmannaeyja
16.20 Barnagaman: Vertu til hóp-
urinn
Leikir, látbragð, trúðar og drauma-
spuni
17.00 Bjargsig af Fiskhellisnefi
17.15 Knattspyma á Þórsvelli
íslm.ÍBV ‘79 og Islm. ÍBV 2.fl. ‘80
17.30 Söngvarakeppni barna
í umsjá hljómsveitarinnar Sálin
hans Jóns míns
Barnadansleikur: Sálin hans Jóns
míns
20.00 Létt lög í dalnum
20.30 Kvöldvaka á Brekkusviði
Hljómsveitin TúrbóEftirhermur: Jó-
hannes Kristjánsson
Harmonikuleikur: Örvar Kristjáns-
son
Þjóðhátíðarlagið kynnt: Hljómsveit-
in Sálin hans Jóns míns, Stefán
Hilmarsson og Bryndís Ólafsdóttir
Dixie Bandið, „Vinir Óla“
Geiri Sæm
Todmobile
Richard Scobie og Siggi Kristins
Brekkusniglarnir ásamt hljómsveit-
inni Prestó
23.00 Dansleikir á báðum pöllum
til kl. 5.00
Á Brekkusviði leika hljómsveitirnar
Todmobile og Sálin hans Jóns míns.
Á Tjamarsviði leikur hljómsveitin
Prestó
24.00 Þjóðhátíðarbrenna á Fjósa-
kletti.
Laugardagur 1. ágúst
00.00 Létt lög í Dalnum
14.00 Barnaskemmtun á Brekku-
sviði:
Vertu til hópurinn sýnir leikrit:
Froskurinn sem vildi fljúga.
Stóru börnin leika sér, með Þorvaldi
B. Þorvaldssyni, Eyþóri Arnalds,
Andreu Gylfadóttur, Geira Sæm og
Stefáni Hilmarssyni.
Tveir með öllu, Jón Axel og Gulli
Helga bregða á leik með börnunum
og útbýta Tópas og grilla SS pylsur
ofan í börnin.
16.00 Kaffihlé
17.00 Barnadansleikur með Sál-
inni hans Jóns míns
20.00 Létt lög í Dalnum
20.30 Kvöldvaka á Brekkusviði:
Hljómsveitin Túrbó, Jóhannes
Kristjánsson með eftirhermur, Pét-
ur Kristjánsson, Sálin hans Jóns
míns, Örvar Kristjánsson leikur á
harmoniku, Bluesmobile, Richard
Scobie og Siggi Kristins, Todmobile,
Brekkusniglarnir og Hljómsveitin
Prestó.
23.00 Dansleikir á báðum pöllum
til kl. 5.00
Brekkusvið: Sálin og Todmobile
Tjarnarsvið: Prestó
24.00 Flugeldasýning á Fjósa-
kletti.
Sunnudagur2.ágúst
10.00 Létt lög í Dalnum
14.00 Tveir með öllu, Jón Axel og
Gulli Helga bregða á leik með börn-
unum.
16.00 Með allt í botni. Stórhljóm-
sveitirnar Sálin hans Jóns míns og
Todmobile fá ærlega útrás á útihá-
tíð.
17.00 Barnadansleikur í umsjá
Todmobile.
20.00 Létt lög í Dalnum.
20.30 Oddgeirssyrpa. Hljómsveitin
Prestó og Brekkusniglarnir rifja
upp gömlu Oddgeirslögin.
23.00 Brekkusöngur og varðeldur.
Árni Johnsen verður á sínum stað
með gítarinn.
24.00 Flugeldasýning á hægu nót-
unum.
24.15 Dansleikur á báðum pöllum
til kl. 5.00
Brekkusvið: Todmobile og Sálin
Tjarnarsvið: Prestó.
kaupfélag Skagfirðinga
VARMAHLÍÐ
selur allar almennar
neysluvörur
ásamtýmsum
feröavörum
og smáréttum
„ ' Z'-íT'' ■ ’-'C. 3
þjónusta