Tíminn - 25.07.1992, Page 13
Laugardagur 25. júlí 1992
Tíminn 13
\ Enska knattspyrnan:
I
Ný og betri
bensínafgreiðsla
Ferðavörur • í nestið • Á grillið
miMi
Hrútafírði • Simi 95-11150
... sá eini við
hringveginn
/mmm /myMa /imMi mmM mmAa /mMi mmAa
HÓTELIÐ FLÚÐUM
Hnuuimcmna hreppi
s
Arnessyslu
Býður upp á gistingu og veitingar í
ágætum húsakynnum
tk
Rúmgóðir salir til ráðstefnu- og
fundahalda
★
Gisting í 40 herbergjum
þar af 20 herbergi
með heitum pottum.
+
Sundlaug og golfvöllur
Hr
Tjald- og hjólhýsastæði
Góð hreinlætisaðstaða,
heitt og kalt vatn
VERIÐ VELKOMIN
Sími 98-66630
Enskir
dómarar
klæðast grænu
England hefur ávallt verið þekkt
fyrir það í knattspyrnuheiminum að
vera íhaldssamt þegar kemur til
breytinga á knattspyrnunni, en nú
bregður svo við að þeir taka sig til og
gera miklar breytingar á búningi
dómara sem dæma í ensku deild-
inni.
Stofnuð hefur verið úrvalsdeild og
kom þeir 90 dómarar sem dæma í
henni koma til með að klæðast
grænni skyrtu, svörtum buxum og
svörtum sokkum með grænni rönd.
Þetta kemur til af því að sportvöru-
fyrirtækið Umbro hefur gert samn-
ing við enska dómara um að klæðast
þessum búningi gegn háum greiðsl-
um. Sá hagnaður sem Umbro fyrir-
tækið sér er að þegar toppdómar-
arnir eru komnir í slíkan búning
vilja allir aðrir dómarar, sem telja
hundruð þúsunda í Englandi, eign-
ast slíkan búning.
En það er þó ekki bara í úrvals-
deildinni sem dómarar þurfa að
breyta frá sínum hefðbundna svarta
búning. í fyrstu deildinni koma
dómarar til með að klæðast fjólublá-
um peysum og ef það stangast á við
annað hvort liðið verða þeir gulllit-
aðir. Knattspymuaðdáendur, sem
eiga erfitt með að sætta sig breyt-
ingarnar, geta huggað sig við að
varabúningur í úrvalsdeildinni og
þriðji búningur í 1. deildinni er
gamli, góði svarti búningurinn. -PS
Þetta er sjón sem er úr sögunni
aö mestu i ensku deildakeppn-
inni, a.m.k. í bili.
/mykAa mik/kAu /mvkAa mrnAa /mvkAa /mykAa /mk/kAu
Í Sama hvert litið er, sumar sem velur,
® hað er aðeins einn /TAMUkÁll ...
íþróttir:
Sagan segir
• •• að ástæðan fyrir hinu
skyndilega brotthvarfí Baldurs
Bjarnasonar úr Fram hafi verið
samskiptaörðugleikar við þjálf-
ara liðsins, Pétur Ormslev. Bald-
ur hafi ekki fengið að leika „sína“
stöðu og það hafi smám saman
leitt það að af sér að Baldur sneri
til síns gamla félags, Fylkis.
• • • að handknattleiksdeild
Víkings hafi þurft að punga út
einni milljón króna fyrir Alex-
ander Revine, markmanninn
snjalla sem lék með Gróttu á síð-
asta ári. Það þykir mikili pening-
ur í íþróttum í dag, en þó ekki
svo mikið að Gróttumenn hefðu
getað fengið meira fyrir kapp-
ann, því félagið gerði þau mistök
að gleyma að láta Revine skrifa
undir samning við félagið. Ef það
hefði verið gert hefði Grótta get-
að heimtað meira fyrir kappann.
• • • að 2. deildar lið Gróttu í
handknattleik er að leita fyrir sér
meö júgóslavneskan leikmann
til að styrkja lið sitt, en nánast
allt byrjunarlið Gróttu síðan það
lék í 1. deild hefur horfið á braut.
• •• að sá dómur Aganefndar
KSÍ yfir Sigurjóni Kristjánssyni
UBK, tveggja leikja bann, hafi
komið á óvart. Þykir mönnum það
vera merki þess að nefndin taki
harðar á brotum sem þessum, en
Sigurjón hrinti bæði leikmanni og
dómara. Það eru ekki nema tvö ár
síðan að Goran Micic, nú þjálfari
Þróttar í Neskaupstað, fékk sama
dóm fyrir að hrækja framan í dóm-
ara í leik Víkings og Stjörnunnar.
• •• að Eiríkur Þorvarðarsson,
markmaður með UBK, komi til
með að leika í Bandaríkjunum í
vetur. Hann kemur til með að
sækja skóla í Alabama, þann sama
og Þorsteinn Guðjónsson, sem ný-
genginn er í raðir Grindvíkinga,
sækir og leika með knattspyrnu-
liði skólans. Ekki er ljóst hvort Ei-
ríkur nær að klára keppnistímabil-
ið með UBK, en þó er það líklegt.
Þetta hefur staðið til áður, fyrir
tveimur árum.
mmAu /mk/kAu /mh/kAu /mvkAu /mykAu /mvkAu /mvkAu /mykAu