Tíminn - 25.07.1992, Qupperneq 22
22 Tfminn
Laugardagur 25. júlí 1992
Líkamsfegurð
er í ættinni
Það hefur enginn, sem séð hefur
hina gífurlega vinsælu mynd Basic
Instinct, efast um fegurð þeirra
Sharon Stone og Leilani Sarelle,
sem lék ástkonu þeirrar fyrrnefndu í
myndinni. Svo við víkjum að þeirri
síðarnefndu þá er hún ekki eini fjöl-
skyldumeðlimurinn sem vakið hef-
ur athygli fyrir líkamsburði. 27 ára
gamall bróðir dömunnar, Victor,
hefur getið sér gott orö fyrir sinn
kropp og hefur starfað að því að
fækka fötum. Sagan segir að döm-
urnar gersamlega tryllist þegar Vic-
tor tínir af sér spjarirnar, næstum
því allar. Á innfelldu myndinni má
sjá þær Sharon Stone og Leilani
Sarelle í einu atriði í Basic Instinct.
Leynisystir
Davids Bowie
Iman, eða Annette Jones, býr nú
í skugga píramídanna í Egypta-
landi og hefur engin samskipti
við hálfbróður sinn David Bowie.
Hún segir hann hafa skorið á
þau samskipti og vilji ekkert af
sér vita.
Það hefur ekki farið hátt að David
Bowie á hálfsystur, múslima sem býr
í skugga pframídanna í Egyptalandi.
Þau eru samfeðra en hún fæddist á
meðan fyrra hjónabandi föður David
Bowie stóð og var hún skírð Annette
Jones. Hún er núna múslimi og
heitir Iman, sama nafni og eigin-
kona Davids Bowie.
Hún fluttist til Egyptalands fyrir
30 árum, giftist verkfræðingi og tók
þá hina nýju trú. Iman, áður An-
nette Jones, segist aldrei geta hætt
að hugsa um David. „Ég baðaði
hann, skipti um bleiur á honum og
klæddi hann. Þegar allt kemur til
alls þá er hann litli bróðir," sagði
Iman. Lífsstfll systkinanna er ekki á
nein hátt líkur. David lifir í vellyst-
ingum enda hefur hann gífurlegar
tekjur, en systir hans Iman býr í
venjulegri íbúð í Kairó með þremur
bömum sínum og ellefu bamabörn-
um. „Síðast sá ég hann þegar hann
var 15 ára, en þá flaug ég til Eng-
lands til að heimsækja ættingja
mína, en David lét eins og ég væri
ekki til. Þegar ég sá hann rifjuðust
upp okkar samskipti í æsku, hvemig
ég annaðist hann og ég ætlaði að
faðma hann, en það komu enginn
viðbrögð frá David. Ég var sár og
skyndilega rann það upp fyrir mér
að hann hafði útilokað mig úr huga
sínum, allt frá því að ég fór að heim-
an þegar hann var níu ára.“
Iman segist ekki eiga von á því að
fá að faðma David að sér aftur. Hún
hefur fylgst með fréttum af bróður
sínum, safnað úrklippum úr blöðum
og geymt myndir af honum. Hún á
eina spólu með David, en hún segist
ekki getað hlustað á hana því hún
þoli ekki tónlistina sem hann leikur
Ertu að fara í útilegu og ert tjaldlaus?
Sportleigan gegnt Umferðarmið-
stöðinni í Reykjavík hefur um ára-
bil leigt út tjöld og á því hefur eng-
in breyting orðið. Tíminn kannaði
hvað kostaði að leigja tjöld yfir
verslunarmannahelgina, þ.e.a.s. í
nætur og er það sem hér
2ja manna 3.300
3-4manna 4.200
5 manna 5.400
GOÐAFOSS
ALDEYJARFOSS
ÁSBYRGI
DIMMUBORGIR
DETTIFOSS
Veríö velkomin á félagssvæöi okkar, sem
býöur upp á marga fegurstu staði landsins
Við bjóðum þjónustu okkar á HÚSAVÍK í:
K.Þ. Matbæ (matvöruverslun)
K.Þ. Miðbæ (fatnaður - ferðavörur - íþróttavörur o.fl.)
K.Þ. Smiöjunni (vélavarahlutir - byggingavörur - verkfæri o.fl.)
Söluskálanum Naustagili (matur - drykkur o.fl. o.fl.)
I útibúum að: Fosshól við Goðafoss - Laugum, Reykjadal -
Reykjahlíð við Mývatn og Ásbyrgi, sem öll
veita ferðamönnum margvíslega þjónustu.
ESSO þjónusta.
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA